Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Side 49
FÓKUS 4929. mars 2019
Suðurlandsbraut 14 • 108 Reykjavík • Sími 588 0188 • slysabaetur@slysabaetur.is
VIÐ SÆKJUM
BÆTURNAR
Ekki flækja málin.
Frægir Íslendingar á fermingardaginn
Ingólfur Ragnarsson Geirdal, tónlistar- og töframaður,
25. apríl 1982
„Ég fermdist vorið 1982 og fékk frá foreldrum mínum utan-
landsferð til frænku minnar sem þá bjó í Seattle, heimabæ Jimi
Hendrix. Fyrir fermingarpeningana keypti
ég minn fyrsta rafmagnsgítar og bassa
handa Silla bróður ásamt vinyl-
plötum með Alice Cooper, AC/
DC, Deep Purple, Jimi Hendrix
og fleirum. Hljóðfærin voru
ódýrar eftirlíkingar en dugðu
okkur til að læra eftir plötun-
um og má segja að þarna hafi
verið lagður grunnurinn að
tónlistarsamstarfi okkar bræðra,
sem hefur varað æ síðan.“
Atli Steinn Guðmundsson lagerkall, prófarkales-
ari og fréttaritari, 27. mars 1988
„Það var fallegur sunnudagur, 27. mars 1988, þegar
séra Bragi Friðriksson heitinn sletti á mig skinninu,
eins og það var kallað til forna þegar illa uppfrætt
barn var fermt. Þetta var í Garðakirkju og lítið rætt um
það á þessum tíma hvort nafnalistar fermingarbarna
í fjölmiðlum teldust birting viðkvæmra persónuupp-
lýsinga um trúarskoðanir. Ég valdi mér ritningargrein
úr sálmum Davíðs í von um að komast að því hvar
hann hefði keypt ölið þrátt fyrir bjórbann sem enn
gilti á Íslandi þetta vor. Síðar tók ég ásatrú en hef nú
snúist til búddisma.“
Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, ráðgjafi og einn af
stofnendum Miðflokksins og annar varaborgar-
fulltrúi flokksins í Reykjavík, 14. apríl 1985,
Breiðholtskirkja
„Prestur var séra Lárus Halldórsson heitinn sem var
prestur í Breiðholtskirkju. Á þessum tíma var kirkjan
í byggingu og því fór athöfnin fram í Bústaðakirkju.
Ég fékk Sanyo útvarps- og kassettutæki
sem var með tvöföldum kassettuspilara.
Það þótti því vinsælt að taka upp vin-
sældarlista Rásar tvö. Ég fékk alls 27
þúsund krónur í peninga og veislan
var haldin heima hjá mér. Um
kvöldið þegar ég lagðist þreyttur
til svefns hafði mamma keypt
ný rúmföt og búið um rúmið
mitt. Líklega hef ég aldrei
sofnað eins vel enda frábær
dagur sem var að baki.“
Bjarni Hafþór Helgason, tónskáld og fyrrum fjöl-
miðlamaður, 2. maí 1971, Húsavíkurkirkja
„Ég vildi ekki láta taka af mér sérstaka fermingar-
mynd, þannig að hún er ekki til. Ég fékk góðar hefð-
bundnar fermingargjafir en þó vakti nokkra athygli
gjöfin frá foreldrunum en það var 22 calibera riffill.
Ég var 14 ára og þurfti að bíða í tvö ár með að fá að
skjóta úr honum en á þessum tíma fékk maður bys-
suleyfi 16 ára. Ég hafði mikið talað um að það væri
stóri draumurinn minn að eignast riffil,
pabbi og mamma ákváðu að láta það
eftir mér og gerðu mig alveg himin-
sælan. Það var tekin af mér ein ljós-
mynd með riffilinn á fermingardeg-
inum en hvernig sem ég leita þá hef
ég ekki fundið hana, en hún kemur
vonandi í leitirnar einhvern tímann.
Ég held að skotvopn séu ekki
algeng í gjafapökkum ferm-
ingarbarna, hvorki fyrr
né síðar.“