Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2019, Síða 52
52 29. mars 2019TÍMAVÉLIN
Hreidur.is • Auðbrekka 6 •Sími 822 7242
HREIÐUR.IS
Heilbrigðis- og
hamingjubankinn
Í
lok ársins 1913 gaf Egill V.
Sandholt prentari út nýárskort
í formi ávísana. Ávísanirnar
voru frá Heilbrigðis- og ham-
ingjubanka Íslands og áttu þær
að færa fólki „þrjú hundruð sex-
tíu og fimm gleðilega og ham-
ingjusama daga.“ Egill teikn-
aði sjálfur ávísanirnar sem voru
mjög smekklega úr garði gerð-
ar eins og segir í Morgunblaðinu
þann 5. desember árið 1913.
Ávísanirnar voru prentaðar
næstu árin en einnig kom það
fyrir að nýárskveðjur voru birt-
ar í blöðunum í formi ávísana frá
Heilbrigðis- og hamingjubank-
anum.
Upp úr 1920 virðist siðurinn
hafa lagst af og hamingjubank-
inn hafa lagst í híði í hálfa öld.
Þann 20. nóvember árið 1968 var
hins vegar greint frá því í Vísi að
„nýr banki og nýr gjaldmiðill“
hefði verið stofnaður. Voru þetta
sömu ávísanirnar nema hvað
innilegum jólaóskum hafði verið
bætt við nýárskveðjurnar.
Kórar sameinaðir
gegn djassinum
D
agana 28. til 29. júní árið
1945 fór fram sjötti aðal-
fundur Landssambands
blandaðra kóra í Reykja-
vík. Í sambandinu voru átta kór-
ar og 320 söngfélagar. Á aðal-
fundinum voru mættir fulltrúar
úr kórunum auk formanna og
söngstjóra.
Brynjólfur Sigfússon, söng-
stjóri frá Vestmannaeyjum, bar
upp brýnt erindi á fundinum;
uppgang djassins á Íslandi og
áhrif hans á ungu kynslóðina.
Lagði hann fram tillögu um að
vinna bæri að því að draga sem
mest úr áhrifum djassins. Var til-
lagan samþykkt einróma.
Gerræði landssambands-
ins stöðvaði ekki þar. Á fundin-
um var einnig samþykkt tillaga
um að skorað yrði á stjórnvöld í
landinu um að gera stafróf tón-
fræðinnar að prófskyldri náms-
grein og þá bæði í efri bekkjum
barnaskólanna og öllum æðri
skólum landsins.
Söngmót Dóm-
kirkjan í Reykjavík.
tónleikar Poison og Quireboys í
Kaplakrika mistókust.
Sigurður svaraði Gunnari og
sagðist ekki óttast fyrirbænirnar.
„Mér finnst það slæmt ef
menn ætla að biðja á þann veg
að aðrir skaðist á því,“ sagði hann.
„Spurningin er hvort frelsunin
er þá meira virði en tjónið sem
af því getur hlotist, því er spurn-
ing hvort þetta fólk er skaðabóta-
skylt.“
Sagði hann að þungarokkarar
væru ekki útsendarar djöfuls-
ins og að Ozzy hefði tekið sér
tak undanfarin ár. Væri hættur í
eitur lyfjum og orðin ráðsettari.
Handklæði og pottaplöntur
Hvort sem það var vegna fyrir-
bæna Krossara eður ei, þá fór svo
að Ozzy komst ekki á Skagarokk.
Í staðinn var ákveðið að fá hans
gömlu félaga úr Black Sabbath
til að fylla í skarðið. Þá voru eft-
ir Tony Iommi og Geezer Butler
úr upprunalegu hljómsveitinni
og sjálfur Ronnie James Dio hafði
tekið við hljóðnemanum.
Þann 25. apríl sagði Sigurður
við DV að forsalan hefði farið vel
af stað. Næstum allir miðar í sæti
á Jethro Tull hefðu klárast á fyrsta
degi. Áhuginn á tónleikum Black
Sabbath væri einnig mikill þó að
ekki hefði selst jafn vel á þá. Sig-
urður sagðist hafa tekið við miða-
pöntun frá manni á Húsavík sem
var svo spenntur að hann hefði
komið gangandi og það þó að
miðinn myndi kosta 15 þúsund
krónur.
Um sumarið byrjaði spenn-
an að magnast. Fréttir bárust af
því að meðlimir Jethro Tull hefðu
beðið um alls konar skringi-
lega hluti, eins og rokkstjörn-
ur gera oft. Vitaskuld báðu þeir
um ákveðinn fjölda handklæða,
öll ný en þvegin einu sinni. Þá
þurftu tíu tveggja metra háar
pottaplöntur að vera til staðar og
hringlaga borð með fjórum stól-
um að hætti franskra kaffihúsa.
Einnig bárust fregnir af því að
meðlimir Black Sabbath, líkt og
Ozzy sjálfur, væru í stanslausum
barningi við ameríska sértrúar-
söfnuði.
Mikið tap
Hin mosfellska rokksveit Gildran
var fengin til að hita upp fyrir
Jethro Tull. Þeir voru orðnir
alvanir enda höfðu þeir hitað upp
fyrir Uriah Heep, Status Quo og
Nazareth. Um tíma var ætlunin
að breska sveitin UFO hitaði upp
fyrir Black Sabbath. En svo fór
að hinir norsku Artch með Eirík
Hauksson í fararbroddi sáu um
það.
Loks kom að tónleikahelginni.
Tónleikar Jethro Tull tókust mjög
vel og mikil stemning. 1.500
miðar seldust, sem átti að vera
nóg til að halda tónleikunum á
pari, það er ef það sama tækist
seinna kvöldið. En á Black Sabb-
ath mættu einungis 250 manns
og margir á útsölumiðum. Ekk-
ert var hins vegar upp á hljóm-
sveitina sjálfa að klaga.
Um viku eftir tónleikana
greindi Siguður frá því að um-
talsvert tap hefði verið á tónleik-
unum, 2,5 milljónir króna þegar
allt var tekið til. Var þetta umtals-
vert meira tap en tónleikahaldar-
ana hefði getað órað fyrir. Kom þá
í ljós að einnig hefði orðið tap á
hljómleikum Jethro Tull.
Jagger eða McCartney
Skömmu eftir að tapið af
Skagarokki var kunngert fóru að
heyrast kvittir um að tónleika-
haldararnir ætluðu að reyna að
endurheimta tapið með öðrum
tónleikum. Þá ekki þungarokks-
tónleikum á Akranesi heldur
stórtónleikum í Reykjavík.
Þann 15. október var greint
frá því í Pressunni að verið væri
að hugleiða „stórt nafn“ en Sig-
urður vildi ekki segja um hvern
væri að ræða. Áreiðanlegar heim-
ildir blaðsins voru þær að það
væri annaðhvort Mick Jagger eða
Paul McCartney. Fyrst var farið
á fjörurnar við Jagger sem var að
gefa út sólóplötu. Síðan McCart-
ney.
Af þessu varð hins vegar ekki
og aðstandendur Skagarokks sátu
uppi með tapið, það er að segja
allir nema Sundfélag Akraness.
Sundfélaginu bjargað
Tæpu ári eftir Skagarokk, í júní
árið 1993, sagði Sigurður við DV
að ævintýrið hefði verið tilraun
sem mistókst, lottó sem ekki gekk
upp. Þá var ljóst að heildartapið
var átta milljónir. Aðstandend-
urnir sóttu um styrk hjá bæn-
um en fengu ekki. Sundfélagið
hafi hins vegar fengið styrk upp á
sömu upphæð og þeir lögðu und-
ir sem áhættufé. Sá styrkur var
merktur sem tækjakaupastyrkur.
„Þetta er of mikið tap fyrir
venjulegar sálir og því halda
þessir aðilar ekki aftur rokkhátíð
á Akranesi á þessari öld,“ sagði
Sigurður. Kannski voru Krossarar
því bænheyrðir eftir allt saman. n
Sigurður Sverrisson
Talsmaður tónleika-
haldara.