Morgunblaðið - 03.05.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2019
„Þetta var góður fundur,“ sagði
Katrín Jakbosdóttir, forsætisráð-
herra Íslands, sem átti tvíhliða fund
með Theresu May, forsætisráðherra
Bretlands, í Downingstræti 10 í
Lundúnum í gær.
Loftslagsmálin bar á góma en þau
eru mikið rædd í Bretlandi eftir að
tillaga var lögð fram í breska
þinginu í fyrradag. Katrín sagði að
May hefði spurt út í nálgun Íslend-
inga varðandi loftslagsmálin.
Þær ræddu einnig jafnréttismál,
ekki síst mansalsmál og kynbundið
ofbeldi. Katrín sagði að May hefði
persónulegan áhuga á jafnréttis-
málum. „Ég tel að við getum ým-
islegt lært af því sem þau [Bretar]
hafa verið að gera í þeim efnum,“
sagði Katrín.
Samskipti Íslands og Bretlands og
staðan í Brexit voru einnig rædd.
Katrín sagði að May væri bjartsýn
varðandi samtal milli Íhaldsflokks-
ins og Verkamannaflokksins um
lendingu í málinu. Katrín sagði mik-
ilvægt að samskipti Íslands við Bret-
land yrðu ekki aðeins jafn góð í
framtíðinni og hingað til heldur
betri og meiri. Hún sagði að Bretar
vildu viðhalda mjög góðum sam-
skiptum við Íslendinga.
Katrín Jakobsdóttir fundaði með Theresu May í Downingstræti 10
Brexit,
loftslag og
jafnrétti
AFP
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Verð á eldsneyti hefur hækkað að
undanförnu og í gær var verð á bens-
ínlítra komið í 241,50 krónur án vild-
arafsláttar á stöðvum N1 og Olís og
verð á lítra af dísilolíu var 233,10
krónur. Algengt verð á mannlausum
stöðvum var 237,30 krónur fyrir
bensínlítra og 228,90 krónur fyrir
lítra af dísilolíu.
Um síðustu áramót var algengt
verð á bensínlítranum um 220 krón-
ur, þannig að á fjórum mánuðum hef-
ur hann víða hækkað um 20 krónur.
Hinrik Örn Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri N1, segir að skýringar
á breytingu á heimsmarkaðsverði á
olíu að undanförnu liggi fyrst og
fremst í því að víða á olíuframleiðslu-
svæðum hafi ríkt ófriðarástand.
Nefndi hann sérstaklega Venesúela,
Líbíu og Íran.
„Söluverð á Íslandi endurspeglast
af þróun heimsmarkaðsverðs og þró-
un gjaldmiðilsins okkar,“ sagði Hin-
rik Örn í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Hinrik sagði ómögulegt að segja
til um það hvort frekari verðhækk-
anir yrðu á næstunni. „Þetta ræðst
auðvitað mikið af ytra umhverfi, en
ef við horfum á verðþróun olíunnar
við eðlilegrar aðstæður, þá höfum við
oft séð hækkanir á vorin sem jafna
sig svo yfir sumartímann, þegar eft-
irspurnin er minni,“ sagði Hinrik
Örn.
Olíuverðshækkanir hafa
orðið vegna ófriðarástands
Bensínlítrinn víða hækkað um 20 krónur frá áramótum
Morgunblaðið/Ómar
Hækkanir Umtalsverðar verðhækk-
anir hafa orðið á eldsneyti.
Gjaldeyriseftirlit Seðlabanka
Íslands var lagt niður sem sérstakt
svið innan bankans í byrjun þessa
mánaðar. Eftirstandandi verkefni
gjaldeyriseftirlits flytjast annars
vegar til fjármálastöðugleikasviðs
Seðlabankans og hins vegar til lög-
fræðiráðgjafar bankans. Segir frá
þessu í tilkynningu frá bankanum.
Gjaldeyriseftirlit Seðlabankans
var formlega sett á fót í september
2009 og hefur sinnt verkefnum
tengdum fjármagnshöftum frá þeim
tíma. Auk þess að sinna lögbundnum
verkefnum á borð við eftirlit með
fjármagnshöftum, rannsóknum á
meintum brotum gegn þeim og veit-
ingu undanþága frá þeim hefur
gjaldeyriseftirlit unnið að öðrum
verkefnum sem tengjast fram-
kvæmd og losun fjármagnshafta.
Þegar mest lét störfuðu 24 við
gjaldeyriseftirlit, að því er fram
kemur í tilkynningu Seðlabanka Ís-
lands.
Lagt af
sem svið
Eftirstandandi
verkefni fara annað
TANGARHÖFÐA 13
577 1313 - kistufell.com
BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ
Hjóla-
legur
Renndu við hjá okkur
í Tangarhöfða 13
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála hefur fellt úr gildi bygging-
arleyfi fyrir parhús með geymslum og
bílgeymslum í kjallara á lóð við Blesu-
gróf 12 í Reykjavík. Útgefið bygging-
arleyfi var ekki í samræmi við skil-
mála deiliskipulags Blesugrófar þar
sem byggingin var talin hafa veruleg
grenndaráhrif gagnvart nærliggjandi
fasteign þeirra sem kærðu málið.
Byggingarleyfið var samþykkt á
afgreiðslufundi byggingarfulltrúa
Reykjavíkur í fyrra og staðfesti borg-
arráð afgreiðslu byggingarfulltrúa á
fundi sínum. Framkvæmdir hófust í
janúar á þessu ári. Kærendur héldu
því fram að framkvæmdir þær sem
samþykktar höfðu verið með bygg-
ingarleyfinu hefðu aldrei verið kynnt-
ar þeim. Í svari skipulags- og bygg-
ingarsviðs sem kærendum barst 14.
febrúar 2019 kom fram að hæð fyr-
irhugaðrar nýbyggingar yrði innan
gildandi deiliskipulags. Þegar fram-
kvæmdir byrjuðu og búið hefði verið
að koma púða fyrir á lóðinni og slá
upp sökklum hefði komið í ljós að
framangreind svör hefðu einfaldlega
ekki verið rétt, segir í málsástæðum
kærenda. Taldi úrskurðarnefndin að
ljóst væri að hæð byggingarinnar yrði
ekki í samræmi við deiliskipulag og að
hún myndi hafa veruleg grenndar-
áhrif á fasteign kærenda.
Þurfa að sækja
bætur frá borginni
„Það sem gerist núna er það að eig-
andinn þarf að senda inn nýtt bygg-
ingarleyfi,“ segir Nikulás Úlfur Más-
son, byggingarfulltrúi Reykjavíkur.
„Hvað það hefur í för með sér á eftir
að koma í ljós. Við funduðum með eig-
endum en þeir eru núna að láta vinna
nýtt byggingarleyfi sem verður svo
skoðað hér og hvort það sé í samræmi
við úrskurðinn,“ segir Nikulás og
bætir við að í kjölfarið verði tekin
ákvörðun um áframhaldandi fram-
kvæmdir. Spurður um hvort eigendur
geti ekki farið fram á bætur frá borg-
inni, segir Nikulás þá þurfa að sækja
þær.
Byggingarleyfi fellt úr gildi
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála fellir úr gildi byggingarleyfi Áð-
ur samþykkt af byggingarfulltrúa og borgarráði Unnið að nýju byggingarleyfi
Morgunblaðið/RAX
Blesugróf 12 Útgefið byggingarleyfi var ekki í samræmi við deiliskipulag.