Morgunblaðið - 03.05.2019, Blaðsíða 35
Eitt
ogannað
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2019
Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri
Flugvallarþjónusta
BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda.
5-8 manneskjur
19.500 kr.
1-4 manneskjur
15.500 kr.
Verð aðra leið:
Sigvaldi Björn Guðjónsson, lands-
liðsmaður í handknattleik, og Þráinn
Orri Jónsson, fyrrverandi leikmaður
Gróttu, voru í sigurliði Elverum í
gærkvöldi þegar liðið lagði Fyllingen,
37:32, í þriðju viðureign liðanna í
undanúrslitum úrslitakeppni norska
handknattleiksins. Elverum hefur
unnið tvo leiki en tapað einum og
þarf einn sigur til viðbótar til að
komast í úrslit. Sigvaldi Björn skor-
aði fjögur mörk í leiknum í gær og
Þráinn Orri eitt.
Víkingar í Ólafsvík fengu í gær
þrjá leikmenn fyrir baráttuna í 1.
deild karla í fótbolta í sumar. Miðju-
maðurinn Stefán Þór Pálsson kom
frá ÍR en hann hefur leikið 18 leiki í
efstu deild með Víkingi R. og Breiða-
bliki. Bakvörðurinn Kristófer Jacob-
son Reyes kemur aftur til Ólafsvíkur
eftir að hafa leikið með Fram í 1.
deildinni undanfarin þrjú ár. Þá bætt-
ist í hópinn framherjinn Sallieu Tara-
wallie frá Síerra Leóne en hann á að
baki fjóra landsleiki fyrir þjóð sína og
hefur skorað eitt mark.
Spænski miðju-
maðurinn Xavi Hern-
ández, sem um ára-
bil var lykilmaður í
liði Barcelona,
hefur ákveðið
að leggja
skóna á hill-
una eftir
tímabilið.
Xavi, sem er 39
ára gamall, er á
sínu fjórða
tímabili með
liði Al Sadd í
Katar.
Í EYJUM
Guðmundur T. Sigfússon
sport@mbl.is
ÍBV bar sigur úr býtum í öðrum leik
einvígisins gegn Haukum í undan-
úrslitum Íslandsmótsins í hand-
knattleik í gærkvöldi. Leiknum lauk
með tveggja marka sigri, 32:30, og
ætlaði allt um koll að keyra í húsinu
þegar Eyjamenn sigu fram úr í lok-
in.
Haukar unnu fyrri leikinn nokkuð
sannfærandi og virkuðu þar eins og
vel smurð díselvél og áttu Eyjamenn
fá svör við stórskyttum Hauka.
Daníel Þór Ingason og Adam Hauk-
ur Baumruk héldu uppteknum hætti
í gærkvöldi og spiluðu glimrandi vel,
skiptu á milli sín 15 mörkum.
Andri Scheving Sigmarsson átti
frábæra innkomu í seinni hálfleikinn
og gerði allt sem hann gat til að
reyna að ná öðrum vinningi Hauka í
hús. Björn Viðar Björnsson var aft-
ur flottur í marki Eyjamanna og
varði þó nokkur færi.
Hornamenn Eyjamanna voru
markahæstir í þeirra liði, Hákon
Daði Styrmisson skoraði átta mörk
og Gabríel Martinez skoraði sex, úr
sex skotum. Hann hefur verið frá-
bær í úrslitakeppninni og hefur ekki
enn klikkað á skoti.
Hitastigið í Íþróttamiðstöð Vest-
mannaeyja var hátt, nánast hættu-
lega hátt. Haukar mættu með mikla
sveit og fjöruga peyja í Hersveitinni,
stuðningsmannasveit Haukamanna.
Hvítu Riddararnir voru þó engum
líkir í stúkunni og héldu uppi stuðinu
lengi í gærkvöldi. Háttsettir menn
frá Haukum voru ekki lengi að finna
Róbert Geir Gíslason og menn hans
frá HSÍ og kvarta undan rauðu
spjöldum Haukamanna, en það lítur
allt út fyrir að rauða spjaldið á Adam
Hauk Baumruk hafi verið þvæla.
Adam var þó ekki sá eini sem fékk
rautt spjald þar sem Darri Aronsson
fékk rautt spjald fyrir að fara aug-
ljóslega í andlitið á Degi Arnarssyni
er hann skoraði eitt af fimm mörk-
um sínum. Róbert Sigurðarson fékk
síðan rautt spjald sem Eyjamenn
voru ósáttir við og Adam Haukur
einnig rautt sem Haukamenn voru
alls ekki sáttir við. Gunnar Magn-
ússon sagði það vera skandal að
VAR hefði ekki verið notað í leikn-
um.
ÍBV og Haukar hafa átt margar
rimmurnar á síðustu árum og alltaf
virðast þeir ná að toppa þá síðustu.
Eyjamenn sópuðu Haukum úr leik í
fyrra á leið sinni að Íslandsmeist-
aratitlinum. Það er ljóst að allt verð-
ur lagt undir á sunnudaginn þegar
þriðji leikur fer fram, vonandi mun
kappið ekki bera fegurðina ofurliði.
Háspenna og rauð spjöld
þegar ÍBV jafnaði metin
Mikill hiti í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum Næsti leikur á sunnudag
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Víti? Kári Kr. Kristjánsson, ÍBV, í skotstöðu í leiknum í gær. Ásgeir Örn Hallgrímsson stendur innan teigs en Heim-
ir Óli Heimisson og Daníel Þór Ingason fá ekki rönd við reist ekki frekar en Adam Baumruk og Orri Þorkelsson
Vestmannaeyjar, undanúrslit karla,
annar leikur, fimmtudag 2. maí
2019.
Gangur leiksins: 1:0, 3:2, 5:5, 7:5,
9:5, 12:11, 13:16, 18:19, 20:19, 21:20,
24:22, 26:25, 27:28, 32:30.
Mörk ÍBV: Hákon Daði Styrmisson
8/4, Gabríel Martinez 6, Kristján
Örn Kristjánsson 5, Dagur Arn-
arsson 5, Fannar Þór Friðgeirsson 4,
Sigurbergur Sveinsson 2, Daníel Örn
Griffin 1, Kári Kristján Kristjánsson 1.
Varin skot: Björn Viðar Björnsson
14.
ÍBV – Haukar 32:30
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk Hauka: Adam Haukur Baum-
ruk 8, Daníel Þór Ingason 7, Orri
Freyr Þorkelsson 5/2, Heimir Óli
Heimsson 4, Atli Már Báruson 3, Ás-
geir Örn Hallgrímsson 2, Halldór Ingi
Jónasson 1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 7,
Andri Sigmarsson Scheving 6/1.
Utan vallar: 22 mínútur.
Dómarar: Sigurður Hjörtur Þrast-
arson og Svavar Ólafur Pétursson.
Áhorfendur: 700.
Staðan er 1:1.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, kynnti í
gær stefnumótun ráðuneytisins í
íþróttamálum sem gildir til ársins
2030 en verður endurmetin á veg-
um íþróttanefndar árið 2024. Víða
er komið við í stefnumótuninni en
Morgunblaðið spurði ráðherra
hvað henni þætti athyglisverðast.
„Við leggjum aukna áherslu á
menntun þjálfara sem hefur sýnt
sig að skilar verulegum árangri.
Við aukum þann þátt enn frekar.
Einnig er lögð áhersla á aukið ör-
yggi iðkenda. Til dæmis erum við
með samskiptafulltrúa sem á að
bregðast við því kynferðislega of-
beldi sem viðgengist hefur innan
íþróttahreyfingarinnar í ein-
hverjum mæli. Einnig má nefna að
við leggjum til að fjölga tímum í
viðmiðunarstundatöflunni er varð-
ar íþróttir og hreyfingu. Við ætlum
að vinna það frekar en rannsóknir
sýna okkur að börnum sem eru í
íþróttastarfi gengur betur í skóla
og þau hugsa betur um heilsuna til
lengri tíma litið. Eitt af því sem við
leggjum sérstaka áherslu á er að
fjölga iðkendum í íþróttahreyfing-
unni sem eru með annað móðurmál
en íslensku. Þátttaka þeirra hefur
ekki verið eins mikil og við hefðum
viljað sjá. Ég myndi segja að þetta
væru helstu atriðin ásamt því að við
höfum búið til ramma fyrir um-
sóknarferli varðandi þjóðar-
leikvanga. Í stefnunni eru nýmæli
en við erum til dæmis að takast á
við áskoranir eins og þau mál sem
komu upp í #Églíka-byltingunni og
nýtt landslag barna sem eru með
annað móðurmál en íslensku. Ég
myndi segja að þetta væri fram-
sækið,“ sagði Lilja. kris@mbl.is
Enn frekari áhersla
á menntun þjálfara
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stefna Lilja Alfreðsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra.