Morgunblaðið - 20.06.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 20.06.2019, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 236.600 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS Mjög mikið innifalið! sp ör eh f. Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir Blómleg beitilönd, djúpgrænir furuskógar og tignarlegir tindar Dólómítanna umlykja bæinn St. Ulrich í Suður-Tíról. Svæðið er einkar heillandi en á sama tíma róandi og endurnærandi. Hér er einstakt tækifæri til útivistar, ótal gönguleiðir eru á svæðinu og við munum fræðast um flóru, dýralíf, jarðfræði og sögu þessa heillandi svæðis. 1. - 8. september Trítlað í Suður-Tíról Mjaldrarnir komnir til Íslands Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Vestmannaeyjamjaldrarnir Litla Grá og Litla Hvít lentu í Keflavík í gær heilir á húfi þrátt fyrir tals- verða seinkun á ferðalaginu, sem nam um fimm tímum. Þær voru órólegar í byrjun flugferðarinnar en þegar líða tók á flugið róuðust þær talsvert að sögn Brynjars Arnar Sveinjónssonar, yfirflug- stjóra Cargolux, en annar mjaldr- anna steinsofnaði í vélinni. Aukahringur til heiðurs nýju heimkynnunum Tíu tíma flugferð Cargolux- vélarinnar sem flutti mjaldrana til landsins gekk vonum framar og var hálftíma á undan áætlun, þrátt fyrir seinkun á ferðalaginu í heild sinni. Aðstandendur verkefnisins, frá Whale and Dolphin Conservation og Sea Life Trust, biðu í ofvæni ásamt fjölmiðlafólki eftir því að berja flugvélina augum í Keflavík, en fremri hluti vélarinnar minnti á höfuð mjaldurs, sem er með hátt enni en lítið höfuð. Vélin flaug hringinn í kringum Vestmanna- eyjar áður en hún nam staðar í Keflavík, til heiðurs nýju heimili mjaldranna. Þegar vél Cargolux var lent í Keflavík tók við langt en nauðsyn- legt ferli; fulltrúar MAST gáfu formlegt leyfi fyrir komu mjaldr- anna og dýralæknar mátu ástand þeirra eftir flugferðina. Að undir- búningsvinnunni lokinni voru tankar mjaldranna fluttir út um nef flugvélarinnar og yfir í sér- útbúna flutningabíla TVG-Zimzen. „Fulltrúar allra mjaldra sem sitja í prísund“ Mjaldrasysturnar Litla Hvít og Litla Grá koma alla leið frá sæ- dýragarðinum Changfeng Ocean World í Sjanghæ, þar sem þær hafa skemmt almenningi síðan þær voru fangaðar við Rússland árið 2011. Þá voru þær einungis 2-3 ára gamlar en vera þeirra í Vestmannaeyjum gæti orðið löng, þar sem mjaldrar geta náð 40-50 ára aldri. Cathy Williamson frá dýra- verndunarsamtökunum Whale and Dolphin Conservation segir að nú sé mikilvægast að huga að vellíðan mjaldranna og stíga varlega til jarðar. „Þeta er í fyrsta skipti sem þetta er gert – þetta eru fyrstu mjaldrarnir sem fá að búa í sjókví eftir að hafa verið í prísund í nokkur ár. Í augnablikinu viljum við fara varlega og við viljum tryggja að þeim líði vel á griða- svæðinu og viljum huga vel að því að þeir aðlagist hinu nýja um- hverfi sem er mjög svo ólíkt hinu náttúrulega umhverfi þeirra,“ sagði Williamson. Umhverfið væri svo ólíkt því sem mjaldrarnir hefðu þurft að venjast á sæ- dýrasafninu að mögulegt væri að þeir dveldu þar drýgstan hluta ævinnar. Andy Bool, forstjóri Sea Life Trust, segir að uppbygging hinna nýju heimkynna mjaldranna, sjókvíarinnar í Klettsvík, sé gríðarlega mikilvægt skref í rétta átt, enda sé sjókvíin sú fyrsta af sínu tagi í heiminum fyrir mjaldra. „Litla Grá og Litla Hvít eru fulltrúar allra þeirra mjaldra í heiminum sem hafa verið hnepptir í prísund og búa í kerjum á sæ- dýrasöfnum. Með því að kynna þessa nýju leið til að annast dýrin í náttúrulegu umhverfi sínu von- umst við til þess að fleiri fylgi okkar fordæmi og geri slíkt hið sama,“ sagði Bool í samtali við Morgunblaðið. Litla Hvít og Litla Grá hafa staðið í ströngu þjálfunarferli til þess að venjast lífsskilyrðum í Klettsvíkinni, sem eru töluvert frábrugðin aðstæðunum í sædýra- garðinum. Þær þurfa að venjast hitastigi sjávarins og læra að halda niðri í sér andanum lengur áður en þær synda frjálsar í sjókvínni að sögn Bool. Því verða þær í sérstakri umönnunarlaug fyrstu vikurnar í Vestmanna- eyjum. Mjaldrarnir hafa ólíka persónuleika Þjálfarar mjaldranna, sem fylgja þeim alla leið til Vest- mannaeyja, hafa myndað náin tengsl við mjaldrana og gera stór- an greinarmun á persónugerð þeirra, að sögn Bool: „Litla Grá er mun sjálfsörugg- ari og tekur mun virkari þátt í nýjum athöfnum en Litla Hvít, sem er hlédrægari og aðeins ró- legri en Litla Grá. En stundum eru þær ófyrirsjáanlegar, stundum hikar Litla Grá við að gera eitt- hvað og Litla Hvít ríður á vaðið og er allt í einu sjálfsöruggari.“ Mjaldrarnir lentu heilu og höldnu  Litla Hvít og Litla Grá lentu í Keflavík klukkan 13.41 í gær  Annar mjaldurinn steinsofnaði í flug- ferðinni frá Sjanghæ til nýju heimkynnanna í Vestmannaeyjum  Líðan þeirra góð þrátt fyrir seinkun Morgunblaðið/Eggert Mjaldravélin Litla Grá og Litla Hvít lentu í Keflavík í gær eftir 10 og hálfs tíma ferðalag, alla leið frá Sjanghæ. Líðan mjaldranna var góð við lendingu. Samstarf Andy Bool, forstjóri Sea Life Trust, og Cathy Williamson frá Whale and Dolphin Conservation tóku á móti mjöldrunum ásamt fleirum. Brynjar Örn Sveinjónsson yfirflug- stjóri sagði að vel hefði gengið. Flutningar Mjaldrarnir voru fluttir til Landeyjahafnar í flutningabílum sem fengu lögreglufylgd hluta leiðarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.