Morgunblaðið - 20.06.2019, Page 14

Morgunblaðið - 20.06.2019, Page 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019 GRILLJÓN ástæður til að grilla Afgreiðslutímar á www.kronan.is ... því sumarið er í fullum blóma Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við erum með tvo vita hér áGarðskaga; litla gamla vit-ann og þann stóra sem ernýrri. Gamli vitinn var byggður 1897 en fólk er í vaxandi mæli farið að kalla hann Ástarvitann og Kærleiksvitann, af því að margir koma hingað til að trúlofa sig eða gifta sig. Nýlega komu hingað rúm- lega áttræð hjón, en þau ætla að endurnýja hjónabandsheit sín hér,“ segir Sigurður Þorsteinsson, en hann er ásamt Jóhanni Ísberg í forsvari fyrir þá starfsemi sem boðið er upp á í Garðskagavitunum báðum. „Kærleiksstemninguna í gamla vitanum má rekja áratugi aftur í tím- ann, til þess að eiginkonur sjómanna á svæðinu komu í vitann til að fara með bænir. Þær báðu fyrir því að þær myndu njóta hverrar stundar og hvers dags á meðan þær höfðu menn- ina sína á lífi. Þær báðu fyrir því að þær mættu láta gott af sér leiða, njóta náttúrunnar og standa ekki í deilum við annað fólk. Þær báðu fyrir börnum sínum og heilsu. Þær báðu líka fyrir því að mennirnir þeirra kæmu heilir heim af hafi. Þá settu þær sér markmið, stigu á stokk eins og kallað var og strengdu heit,“ segir Sigurður og bætir við að margir menn hafi farist í sjóskaða á þessu svæði áður fyrr í gríðarlega sterkum veðurskotum sem stöfuðu af sér- stökum aðstæðum haf- og loft- strauma. „Um 1870 misstum við marga sjómenn í einu í slíku skoti, en börn þeirra manna voru hörðust í því að láta byggja litla vitann, gamla Garðskagavitann. Eftir þetta mikla slys fóru eiginkonur sjómanna sem enn voru á lífi að gera sér ferð í vit- ann til að fara með bænir og þakka fyrir það sem lífið gaf þeim. Fólk hef- ur haft þessa gömlu hefð í heiðri og kemur hingað í vaxandi mæli til að biðja fyrir einhverju góðu.“ Verður gjarnan ástfangið Sigurður segir að í hinum vit- anum, þeim nýrri og stærri, sé boðið upp á einstaka norðurljósasýningu. „Hér mætast heitir og kaldir straum- ar í lofti og því er meiri hreyfing en víða annars staðar. Tölur sýna að þetta er sá staður í heiminum þar sem norðurljós sjást hvað oftast. Við erum líka með norðurljósasýningu í hvelfingu inni í vita, í kvikmynda- formi fyrir þá sem koma hingað að sumri. Einnig bjóðum við upp á hvalasýningu í vitanum með teikn- ingum Jóns Baldurs Hlíðberg. Gestir geta keypt í einum pakka aðgang að hvala- og norðurljósasýningunum hér í vitunum og að Byggðasafninu í Garði sem er til húsa í fjósi og hlöðu, en þar er líka vélasafn Guðna Ingi- mundarsonar og byggðasafn skip- stjórans sem er einstakt safn byggt upp af Ásgeiri Hjálmarssyni, fyrrver- andi skipstjóra. Í byggðasafninu er vandað veitingahús á efri hæð, þar sem er einstakt útsýni út á hafið og yfir fjallahringinn, en sólsetrið hér er yndislegt og fólk gerir sér ferð víða að til að sjá það. Fólk verður gjarnan ástfangið þegar það horfir á sólsetur eða norðurljós,“ segir Sigurður og hlær og bætir við að þannig hafi hann einmitt kynnst sinni konu. Erum bjartsýn á framtíðina Sigurður segir að kaffihúsið Flösin í gamla vitanum sé mjög vin- sælt, enda allsérstakt vegna þrengsla í rými og dreifir sér á fjórar hæðir. „Hingað kemur fólk líka til að njóta strandarinnar, því hún er ein af fáum ströndum á Íslandi sem eru hvítar. Við stefnum að því að vera með við- burð á ströndinni í tengslum við sumarsólstöðurnar í kvöld. Þegar sumarnóttin er björtust er gaman að njóta þess að syngja saman og spila á gítar.“ Sigurður segir að fólki finnist það vera „öðruvísi“ upplifun að koma á Reykjanesið, enda sé það falin perla. „Það er ótrúlega margt hægt að sjá og skoða hér og við finnum fyr- ir vaxandi ferðamannastraumi hingað. Við þurfum að dreifa ferða- mönnum jafnara um landið,“ segir Sigurður og bætir við að ráðstefna hafi verið á Suðurnesjum fyrir skömmu þar sem yfirskriftin hafi ver- ið: Frá vörn í sókn. „Við fundum að það er mikil samstaða hér og erum bjartsýn á framtíðina.“ Ljósmynd/Jóhann Ísberg Lýðveldisvitinn Hann er sá stærsti á Íslandi, byggður 1944. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Vitamenn Jóhann Ísberg og Sigurður í ljóshúsi vitans. Ljósmynd/Jóhann Ísberg Fallegt Hvíta ströndin á Garðskaga er óvenjuleg og vinsæl. Sumir kalla hann Ástarvitann Eiginkonur sjómanna komu í vitann til að fara með bænir. Þær báðu fyr- ir því að þær myndu njóta hverrar stundar og hvers dags á meðan þær höfðu mennina sína á lífi. Enn kemur fólk til að biðja fyrir góðu. Ljósmynd/Jóhann Ísberg Ástarviti og kærleiksviti Gamli vitinn var byggður 1897 og þangað sækir fólk í rómantískum hugleiðingum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.