Morgunblaðið - 20.06.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 20.06.2019, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019 Frístunda- og atvinnufatnaður frá REGATTA Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Í framhaldi af frétt Morgunblaðsins í gær af systkinum sem setið hafa samtímis á Alþingi bárust blaðinu upplýsingar um fleiri ættmenni sem setið hafa samtímis á þingi. Guðjón Arnar Kristjánsson, Frjálslynda flokknum, og Jóna Val- gerður systir hans, þingmaður Sam- taka um kvennalista, sátu saman á þingi, einnig Halldór E. Fram- sóknarflokki og Margrét, sem sat fyrir Alþýðubandalagið, en þau eru Sigurðarbörn. Þrír bræður og faðir þeirra hafa allir setið á þingi fyrir Alþýðuflokk- inn; þeir Gunnlaugur og Finnur Torfi Stefánssynir sem sátu sam- tímis á þingi og bróðir þeirra Guð- mundur Árni sem sat síðar á þingi með Gunnlaugi. Faðir þeirra bræðra Stefán Gunnlaugsson var þingmaður áður en synirnir settust á þing. Faðir, sonur og barnabarn Þrír ættliðir hafa starfað sem þingmenn án þess að sitja á sama tíma á þingi en það eru sjálfstæðis- mennirnir Jón Pálmason, Pálmi Jónsson og Jóhanna Erla Pálma- dóttir. Systkinin Helga Vala og Skúli Helgabörn sátu fyrir Samfylk- inguna á sitt hvoru kjörtímabilinu. Pétur Sigurðsson, Sjálfstæðis- flokki, sat á þingi sem og dóttir hans Margrét í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði en ekki á sama tíma. Það sama má segja um feðg- ana Hannibal Valdimarsson, sem sat fyrir ýmsa flokka, og Jón Baldvin, sem sat fyrir Alþýðuflokk og Sam- tök frjálslyndra og vinstri manna. Feðgarnir Gylfi Þ. Gíslason og Vilmundur Gylfason voru báðir þingmenn en ekki á sama tíma. Eins og fram kom í blaðinu í gær sat Valgerður Bjarnadóttir á þingi á sama tíma og Björn bróðir hennar, en Valgerður var eiginkona Vil- mundar Gylfasonar. Bjarni Bene- diktsson, faðir Valgerðar og Björns, hafði áður setið á þingi og sat á tíma- bili með bróður sínum Pétri. Eins og greint hefur verið frá sitja nú systkinin Margrét og Sigmundur Davíð Gunnlaugsbörn samtímis á þingi, en faðir þeirra, Gunnlaugur M. Sigmundsson, var þingmaður eitt kjörtímabil. Einnig hafa systkinin Ingibjörg og Ísólfur Gylfi Pálma- börn og bræðurnir Gunnar Birgis- son og Kristinn H. Gunnarsson setið saman á þingi eins og greint hefur verið frá. Feðgin og þrír ættliðir á þingi  Faðir og þrír synir allir setið á þingi Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Ég vona bara að fólk vakni og fari að taka eftir umhverfis- og loftslags- breytingum svo það verði einhver framtíð, fyrir mig og næstu kyn- slóðir,“ sagði Dagný Erla Gunnars- dóttir í ræðu sem hún hélt í afmælisveislu Hrafnistu í Hafnar- firði fyrir þá Íslendinga sem eiga 100 ára afmæli í ár. Dagný er 15 ára nemandi í Egils- staðaskóla og Varmahlíðarskóla í Skagafirði og fer í 10. bekk í haust. Í ræðu sinni rifjaði hún upp liðna tíð og benti meðal annars á að afi sinn hefði upplifað mjög miklar breyt- ingar á 95 ára ævi, „frá árabátum til internets“. Hún velti fyrir sér næstu 100 árum og sagðist fullviss um að tæknin héldi áfram að þróast hraðar en nokkurn óraði fyrir. „Við þurfum þó að passa að þótt tæknin sé mikil þá megum við ekki hætta mann- legum samskiptum,“ sagði hún og lagði áherslu á að fólk yrði að hittast og eiga góða samveru frekar en að tala saman í gegnum skjá. Efnishyggja víki Í máli Dagnýjar kom fram að efnishyggjan væri allsráðandi og fólk hefði betur lært nægjusemi og þakklæti af þeim sem eldri eru. „Þakklæti fyrir að börnin manns séu heilbrigð og nægjusemi fyrir að eiga húsaskjól og mat. Til að ég geti talað við börnin mín eða barnabörn- in mín um gömlu góðu dagana þá þarf ég að hugsa um framtíð þeirra. Ég þarf að horfast í augu við það að núna er tíminn til að gera eitthvað fyrir jörðina. Ekki eftir 5 ár eða 10 ár heldur núna.“ Allir verði jafnir Dagný sat á Alþingi unga fólksins í fyrradag og sagði gamla fólkinu frá því að krakkarnir hefðu afhent forsætisráðherra þrjár ályktanir um umhverfis- og loftslagsmál, jafnrétt- ismál og heilbrigðismál til frekari umfjöllunar. „Það er það sem ég vona, að eftir 100 ár þá verði þessi mál komin í gegn, vonandi fyrr og við þurfum ekki að hafa neinar áhyggjur af þeim. Ég vil ekki að staða jafnréttis verði söm og er í dag heldur að þau verði búið að betrumbæta og að eftir 100 ár þá vitum við kannski ekkert hvað jafn- rétti er af því að allir eru og verða jafnir.“ Þegar Dagný var beðin um að flytja ræðu í veislu Hrafnistu segist hún hafa byrjað að velta framtíðinni fyrir sér. „Krakkar á mínum aldri eru að byrja á því, en fyrir fimm ár- um hugsuðum við bara um að lifa líf- inu, enda ekki það gömul.“ Hún seg- ir að til þess að fólk geti áfram lifað á jörðinni sé mikilvægt að vera með- vituð um hvað þurfi að gera til þess að halda henni í góðu standi. Í ræð- unni benti hún á að hún væri hætt að nota rör eða notaði umhverfis- væn rör. Hún væri alltaf með fjöl- nota poka í vasanum og tæki strætó á æfingar í stað þess að fá far í einkabíl. „Margt smátt gerir eitt stórt,“ áréttaði hún. Spurð hvort hún stefni á þing seg- ist hún ekki vera viss um það. „Við sjáum til, en mig langar til þess að hjálpa fólki.“ Kominn tími til að vakna og hugsa um framtíð jarðar  Dagný Erla Gunnarsdóttir, 15 ára, brýnir fyrir fólki að taka á mikilvægum málum Í afmælisveislunni Dagný Erla Gunnarsdóttir hélt ræðu í afmælisveislunni á Hrafnistu sem haldin var fyrir þá Íslendinga sem eiga 100 ára afmæli í ár. Ellefu manns, sem eiga 100 ára afmæli á árinu, mættu í veisluna. Morgunblaðið/Eggert „Maður heyrir alltaf meira og meira um þetta og það virðist vera setið um betri hjól, því miður,“ segir Kol- brún Dröfn Ragnarsdóttir, for- maður Hjólreiðafélags Reykjavíkur, um reiðhjólaþjófnað sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að borið hafi þó nokkuð á undanfarið. Kolbrún segir að skorið sé á lása og jafnvel keðjur. „Það þarf bara að hvetja fólk til að geyma hjólin inni, það virðist vera eina ráðið.“ Tjón fyrir þá sem lenda í því að hjólinu þeirra sé stolið getur verið mikið, að sögn Kolbrúnar, því það sé dýrt að koma sér upp góðu hjóli. Erfitt sé að endurheimta hjól sem stolið hefur verið. „Það gengur ekki vel. Einstaka aðili virðist fá hjólið aftur,“ segir Kolbrún. Auglýsingar á Facebook og að- stoð lögreglunnar sé mikilvæg. „Ég held að það sé samvinna hvors tveggja. Lögreglan gerir náttúrlega allt sem hún getur og er sannarlega vinur okkar þarna.“ Árleg þjófnaðaralda Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, upplýsingafulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir aukn- ingu í þjófnaði á reiðhjólum gjarnan verða yfir sumartímann. „Þetta er eitthvað sem við sjáum því miður á hverju ári. Með hækk- andi sól fer fólk náttúrlega að hjóla meira og þá gerist það samhliða að við fáum fleiri tilkynningar um reið- hjólaþjófnaði.“ 400 hjólum var stolið á síðasta ári. Frá janúar til apríl var lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um 77 reiðhjólaþjófnaði en 60 slíkir voru tilkynntir á sama tíma árið áð- ur. Tölur um reiðhjólaþjófnað í maí og júní eru ekki tiltækar sem stendur. ragnhildur@mbl.is Setið um betri hjól Morgunblaðið/Eggert
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.