Morgunblaðið - 20.06.2019, Page 24

Morgunblaðið - 20.06.2019, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is COMPONIBILI hirslur 3ja hæða – fleiri litir Verð frá 18.900,- KAHLER HAMMERSHOI Vasi 20 cm fleiri litir Verð 7.690,- KARTELL BOURGIE Lampi – fleiri litir Verð frá 39.900,-ARCHITECTMADE Mörgæs Verð frá 8.490,- stk STOFF NAGEL Kertastjaki - fleiri litir Verð frá 5.750,- stk. LUKKUTRÖLL Margar gerðir Verð frá 3.990,- glæsilegar ÚTSKRIFTARGJAFIR FLOS MISS K Borðlampi fleiri litir Verð 38.900,- KAY BOJESEN Söngfugl– fleiri litir Verð frá 10.990,- KARTELL LOUIS GHOST Stóll Verð frá 39.900,- Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551 3033 Frábært úrval af herrafatnaði fyrir útskriftina frá BERTONI Flottir í fötum VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Landsmót hestamanna sem haldið verður á Hellu á næsta ári verður hefðbundið sveitamót í hjarta hestamennskunnar. Þó verður dag- skráin stytt og þjappað saman svo að hægt verði að halda mótið á sex dögum í stað átta. Markmið skipu- leggjenda er að „auka fjörið“ móts- dagana með meiri afþreyingu fyrir gesti en verið hefur á síðustu mótum. Dagskrá landsmótsins verður dagana 6. til 11. júlí á næsta ári, frá mánudegi til laugardags. Á sunnu- deginum, þegar menn eru að yfir- gefa svæðið, stendur til að bjóða upp á kynningu hjá helstu rækt- unarbúum á svæðinu. Engar ræktunarbússýningar „Dagskrá landsmóta er nokkuð föst í sniðum. Viss atriði þurfa að vera á landsmóti. Við höfum þó ákveðið að stytta mótið, halda það á sex dögum en mótið í Reykjavík stóð yfir í átta daga. Allan þann tíma sem ég hef komið að umræðu um landsmót hafa menn verið sam- mála um að mótin væru of löng og það þyrfti að stytta þau en það hef- ur alltaf gengið til baka,“ segir Kristinn Guðnason, bóndi í Ár- bæjarhjáleigu og formaður stjórnar Rangárbakka sem heldur mótið. Að félaginu standa hestamannafélög á Suðurlandi, frá Lómagnúp að Hellisheiði. Til þess að koma mótinu fyrir á sex dögum stendur til að gera ákveðnar breytingar, meðal annars að leggja af ræktunarbússýningar í núverandi mynd ásamt úrvalssýn- ingu kynbótahrossa. Síðan er ætl- unin að reyna að þjappa dagskránni aðeins betur saman. Kristinn segir að aðstæður séu þannig á Hellu að það eigi að vera hægt. Stutt sé á milli valla og stutt í alla þjónustu. Hlutirnir eigi að geta gengið greitt fyrir sig. Hann bætir því við að ræktunarbússýningarnar hafi verið skemmtileg viðbót á sínum tíma. Þær taki hins vegar langan tíma og þar komi við sögu sömu hross og knapar og á kynbótasýningunum. Þær megi því missa sig. „Mikilvægt er að menn geti hist og rætt saman á landsmóti og við gætum þess að svigrúm verði til þess,“ segir Eiríkur Vilhelm Sig- urðarson, formaður verkefnastjórn- ar landsmóts. Hann segir að auka þurfi fjörið á mótinu, í jákvæðum skilningi þess orðs. Afþreying verður aukin og haldinn stór dansleikur á móts- svæðinu. „Hestarnir eru aðalatriði mótsins en gestir verða einnig að geta skemmt sér með vinum sínum sem hafa sama áhugamál, hesta- mennskuna.“ Trén veita vaxandi skjól Á undanförnum árum og áratug- um hefur mótssvæði verið byggt upp á Rangárbökkum. Flestar framkvæmdirnar hafa verið var- anlegar og koma mótshaldinu til góða áfram. Því þarf ekki að fara í kostnaðarsamar framkvæmdir vegna mótsins nú, aðeins halda við eignum og snyrta til. Þó var ekið vikri í brautirnar í vor og eru þær í mjög góðu standi. Í raun er svæðið í það góðu ásigkomulagi að hægt væri að halda landsmót þar nú í byrjun júlí. Kristinn bendir á að sérstaða svæðisins sé nálægðin við þjónustu á Hellu. Getur þess að nú hafi verið byggð upp myndarleg hótel á Hellu og víðar í héraðinu og því sé ekki hægt að kvarta undan skorti á góðri gistiaðstöðu. Helga Ragna Pálsdóttir í Kjarri í Ölfusi, varaformaður stjórnar Rangárbakka, segir að markvisst hafi verið unnið að því í átta ár að græða svæðið upp og planta trjám til að veita skjól. Plantað hefur ver- ið tæplega 8 þúsund trjáplöntum. „Svæðið er allt orðið iðagrænt og trjágróðurinn sem vex upp á eftir að veita gestum móta hér ennþá meira skjól í framtíðinni,“ segir Helga. Hún getur þess að ekki hafi verið spáð vel fyrir trjáræktinni í upphafi en hrakspárnar hafi sem betur fer ekki ræst og allar plönt- urnar lifað. Gaman hafi verið að fylgjast með hvernig gróðurinn hafi breytt ásýnd svæðisins. Fært í betra veður Mótið á næsta ári verður 6. landsmótið sem þar er haldið. Þar á meðal eru mörg fjölsóttustu og eftirminnilegustu landsmótin. Veðrið getur haft úrslitaþýðingu við framkvæmd slíkra móta eins og annarra útihátíða og ekki síst á upplifun gesta. Veðrið hefur ekki leikið við mótshaldara síðustu landsmóta og ekki heldur við gesti á landsmótinu á Hellu árið 2014. Hefð hefur verið að halda mótin fyrstu helgina í júlí, annað hvert ár. Nú fengu stjórnendur Rangárbakka heimild til að færa mótið aftur um eina viku. Tilgangurinn er að reyna að tryggja betra veður. Það er vissulega happdrætti og enginn veit hver hreppir vinninginn. Rangárbakkar ehf. halda mótið í sínu nafni og bera fjárhagslega ábyrgð á því. Eiríkur segir að 6-7 þúsund gestir þurfi að koma til þess að mótshaldarar fái kostnað sinn til baka. „En við ætlum að fá 8 þúsund gesti og helst 10 þúsund,“ segir Eiríkur. Helga telur að á mótinu á Hellu verði úrslitastund varðandi framtíð landsmóta. „Ef við fáum ekki góða aðsókn verðum við að setjast niður og velta fyrir okkur viðburðinum landsmóti frá grunni. Ef ekki er hægt að láta hann reka sig þrátt fyrir endalausa sjálfboðavinnu þarf að endurmeta málin,“ segir Helga og Eiríkur bætir við: „Við ætlum að sýna að hægt sé að láta mótshaldið ganga upp.“ Aukið fjör á styttra landsmóti  Undirbúningur fyrir landsmót hestamanna sem haldið verður á Hellu á næsta ári gengur vel  Upp- græðsla og trjágróður hefur breytt ásýnd Rangárbakka og veitir skjól  Vonast eftir 8-10 þúsund gestum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Stjórnendur Helga Ragna Pálsdóttir, Eiríkur Vilhelm Sigurðarson og Kristinn Guðnason standa í grósku og sól við keppnisvöllinn á Rangárbökkum. Svæðið er að verða tilbúið og þess vegna væri hægt að halda það í júlí í ár. Morgunblaðið/Eva Björk Fjölmenni Talið er að um 10 þúsund gestir hafi komið á landsmótið á Hellu árið 2014, þrátt fyrir rok og rigningu. Sex árum fyrr voru gestir 14 þúsund.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.