Morgunblaðið - 20.06.2019, Síða 40
40 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019
Hlauparar: Arnar
Pétursson, Elín Edda
Sigurðardóttir og
Hulda Guðný
Kjartansdóttir.
Allar ríkisstjórnir gera axarsköft,
misstór. Það er bara mannlegt. Og
nú telja ýmsir leikmenn og spek-
ingar að valdhafar hafi gert sig seka
um algjört dómgreindarleysi í
WOW air-málinu. Og það þrátt fyrir
að félagið hafi kannski verið von-
laust til frambúðar. Í þessu máli var
svo margt að verja. Miklir almanna-
hagsmunir í húfi. Peningafakírinn
Mogensen heldur því fram að ríkis-
sjóður hafi fengið hundruð milljarða
í beinar og óbeinar tekjur af rekstri
félagsins fram að gjaldþroti. Fyrir
utan borg og bæi. Þó það væri ekki
meira en bara eitt hundrað millj-
arðar, hefði það átt að kveikja við-
vörunarljós hjá valdhöfum og ráð-
gjöfum þeirra.
Þeir virðast ekki hafa séð augljósa
hagsmuni íslensku þjóðarinnar og
ríkiskassa hennar upp á fleiri tugi
milljarða þó ekki væri nema næstu
ferðamannamánuði. Fyrir utan allt
annað sem maðurinn á götunni sá,
en ekki ríkisstjórnin og vitringar
hennar. Og starfsfólk félagsins í al-
gjöru sjokki. Þar störfuðu Íslend-
ingar að stórum hluta. Allir sam-
mála um að það hafi verið Mogensen
metnaðarmál. Svo voru hinir sem
höfðu framfæri sitt beint af þessu
ævintýri. Þúsundir manna. Og
margir flugmanna okkar verða nú
nauðugir viljugir að rífa sig upp með
fjölskyldur sínar og ráða sig til
starfa erlendis.
Neyðaráætlun skyldi það vera
Ríkisstjórnin vildi ekki tryggja
hagsmuni þúsunda Íslendinga. En
við höfum fylgst vel með öllu, segja
ráðherrarnir. Nema hvað. Voru al-
veg klárir með neyðaráætlun. En
raunhæfar aðgerðir? Nei, það mátti
ekki. Þetta var nefnilega hlutafélag!
Svo eigum við 30 milljarða handan
við hornið ef illa fer, segja ráða-
mennirnir.
Það er eins og menn átti sig ekki
alltaf á því, að ábyrgð hluthafa tak-
markast við framlagt hlutafé. Og er
þá nákvæmlega sama hvort hluta-
félag er í eigu ríkisins, samvinnu-
félags eða einstaklinga. Við vitum
ekki betur. Skuldabréfaeigendur
nefndu, að til að koma WOW air í
rekstrarhæft form, þyrfti einhverja
5 milljarða. Það hefði verið líkleg
áhætta hjá ríkissjóði og meiri-
hlutaeign á borðinu. Setja svo menn
yfir reksturinn sem kunna að fara
með peninga og Skúla Mogensen
sem starfsmannastjóra.
Hvað neyðaráætlun ríkisstjórn-
arinnar getur kostað veit enginn á
þessu stigi. Kannski 20-30 milljarða?
Fyrir utan tekjur í útsvari og skött-
um upp á jafnvel tugi milljarða. Og
andlegar þrengingar þúsunda
manna sem ekki verða virtar til fjár.
Og þetta er í upphafi ferðamanna-
tímabils.
Hinn 15. maí sl. sagðist fjármála-
ráðherra hallast að því að hann yrði
að leggja nýja fjármálastefnu fyrir
Alþingi. Vísaði hann þar m.a. til
stóraukins atvinnuleysis eftir gjald-
þrot WOW og spár Hagstofunnar
um samdrátt.
„Vinnumálastofnun hætti við
árshátíðarferð starfsmanna vegna
aukins álags í kjölfar gjaldþrots
WOW air. Stofnuninni höfðu borist
um 700 atvinnuleysisbótaumsóknir í
byrjun mánaðar.“ Svo segir á ruv.is.
Starfsfólk stóð sig afburða vel, en að
þrotum komið. Hvað skyldu liggja
margir milljarðar bara þar?
Það hefðu verið búhyggindi að
gefa WOW 5 milljarða!
Ríkisstjórninni datt ekki í hug að
leggja „skattfé almennings“ í þetta
vonlausa dæmi! Hugsa sér. Það
mátti ekki tryggja tugmilljarða
rennsli af „skattfé almennings“ í alls
konar kassa, þó ekki væri nema
fram á haustið. Fimm milljarðar í
hlutafé eða gjöf til WOW hefði
væntanlega gefið svigrúm til björg-
unar á margfaldri þeirri upphæð.
Það þarf nefnilega stundum að
handstýra í þessu blessaða banana-
lýðveldi okkar. Spyrja verður:
Skyldi enginn sem vit hefur á hafa
yfirlit yfir þetta stóra mál í heild?
Þegar eingöngu er um að ræða
hagsmuni eins eða fleiri eigenda í
gjaldþrotum eru mál einfaldari. En
þegar atvinna, heill og velfarnaður
jafnvel þúsunda manna eru líka til
staðar gerast málin flóknari. Eru
það ekki líka beinir hagsmunir ríkis
og bæja?
Allt dæmið minnir á stúdentinn
sem spurði bóndann hvort væri
þyngra eitt kíló af dún eða eitt kíló
af blýi. Láttu hvort tveggja detta á
tærnar á þér. Þá finnurðu muninn,
svaraði hinn skynsami búandkarl.
Með öðrum orðum: Skyldi það geta
verið að ríkisstjórnin hafi skotið sig
alvarlega í annan fótinn með af-
skiptaleysi af umræddu máli?
Hitt er svo allt annað mál, að það
kemur ugglaust að því fyrr en varir,
að við verðum að fækka flugferðum
okkar um kannski helming eða
meira. Gamlir og afdankaðir spek-
ingar fyrir vestan hafa kannski ekk-
ert leyfi til að vera að röfla um svona
hluti. En hvar eru rannsóknar-
blaðamennirnir?
Hefði ekki verið heppilegra að
handstýra nauðlendingu WOW air?
Eftir Hallgrím Sveinsson,
Guðmund Ingvarsson
og Bjarna G. Einarsson
» Við höfum fylgst vel
með öllu, segja ráð-
herrarnir. Nema hvað.
Voru alveg klárir með
neyðaráætlun. En raun-
hæfar aðgerðir? Nei,
það mátti ekki.
Hallgrímur
Sveinsson
Hallgrímur er bókaútgefandi,
Guðmundur fyrrverandi stöðvarstjóri
Pósts og síma á Þingeyri og Bjarni
fyrrverandi útgerðarstjóri KD
á Þingeyri.
Guðmundur
Ingvarsson
Bjarni Georg
Einarsson
Atvinna