Morgunblaðið - 20.06.2019, Síða 50
50 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019
Elsku amma
mín. Þú varst ein-
stök kona. Þú varst
fyrirmyndin mín.
Ég er ótrúlega þakklát fyrir að
hafa fengið að vera hluti af þínu
lífi í 30 ár. Betri ömmu er ekki
hægt að hugsa sér.
Minningarnar mínar um
ömmu eru fullar af gleði og
hamingju. Ég eyddi stórum
hluta barnæskunnar hjá henni
og hún kenndi mér svo margt.
Hún hafði gaman af því að segja
sögur af sjálfri sér og þeim æv-
intýrum sem hún lenti í þegar
hún var ung. Ég lærði mikið af
þeirri sjálfstæðu konu sem hún
var á sínum yngri árum. Hún
var manneskja sem þorði að
fara sínar eigin leiðir. Til dæmis
ferðaðist hún um Evrópu á þeim
tíma sem fáir fóru út fyrir land-
steinana.
Uppáhalds minningarnar
mínar með henni eru gönguferð-
ir út á vídeóleiguna að leigja
spólu ásamt því að fá bland í
poka. Við fórum líka oft út á
róló og á veturna fékk ég að
renna mér á sleða niður brekk-
una hjá Rauðalæknum. Amma
elskaði að eyða tíma með barna-
börnunum sínum og ég man
hvað mér leið alltaf mikilvægri í
kringum hana. Hún hlustaði
alltaf á mig og ég fann hvað
henni þótti vænt um mig. Við
eyddum mörgum stundum í að
spila saman, enda kunni amma
endalaust af spilum.
Samband okkar breyttist með
tímanum og þegar ég varð full-
orðin varð úr mikill vinskapur.
Amma var ekki bara amma, hún
var góð vinkona. Hún tók alltaf
á móti mér með brosi á vör og
hún var alltaf svo þakklát fyrir
að fá mig og Nökkva í heim-
sókn.
Elsku amma mín. Takk fyrir
allar góðu minningarnar. Takk
fyrir að vera nákvæmlega eins
og þú varst. Ég mun sakna þín
alla daga. Takk fyrir að vera
svona yndisleg við mig og
Nökkva. Við munum alltaf elska
þig. Ég kveð þig, elsku amma,
með miklu þakklæti. Ég mun
aldrei gleyma þér.
Þitt barnabarn,
Tanja Dögg
Ásdís Einarsdóttir
Frímann
✝ Ásdís Einars-dóttir Frímann
fæddist 15. septem-
ber 1925. Hún and-
aðist 9. júní 2019.
Útför Ásdísar
fór fram 19. júní
2019.
Elsku amma er
dáin eftir óvænt
veikindi. Það er
sárt til þess að
hugsa að hún sé
farin frá okkur en
efst í huga okkar
eru dýrmætar
minningar. En lífið
verður svo sannar-
lega fátækara án
hennar.
Amma var alveg
einstök kona og hefur verið
fyrirmynd okkar alla tíð, dugn-
aðarforkur með bein í nefinu.
Hún var fyndin, mikil félagsvera
og naut þess að fylgjast með
barna- og barnabarnabörnunum
vaxa úr grasi.
Amma fór sínar eigin leiðir í
lífinu, en ung að árum lögðu
amma og Theódóra vinkona
hennar land undir fót í leit að
ævintýrum í Evrópu. Þær störf-
uðu um tíma í Danmörku, Nor-
egi og Svíþjóð áður en þær ferð-
uðust um Evrópu. Við
barnabörnin fengum að njóta
góðs af skemmtilegum sögum af
ævintýrum vinkvennanna víðs-
vegar um Evrópu.
Við heimkomu kynntust
amma og afi og þau sköpuðu sér
gott líf með börnunum sínum í
Rafstöð.
Um ömmu eigum við margar
góðar minningar en til hennar
var alltaf gaman að koma, hún
tók okkur opnum örmum og hjá
henni fékk maður mikla ást. Á
okkar yngri árum dvöldum við
oft hjá ömmu, og minnisstæð-
astir eru tímarnir sem við feng-
um að gista á Rauðalæk. Þá
fengum við að leigja spólu,
kaupa nammi og vaka frameftir.
Í seinni tíð sátum við löngum
stundum heima hjá ömmu,
drukkum kaffi og borðuðum
lakkrís á meðan við spjölluðum
um daginn og veginn.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Við kveðjum þig með söknuði,
elsku amma, en hlýju vitandi að
nú eruð þið afi sameinuð. Minn-
ingarnar munu lifa með okkur
og við munum aldrei gleyma
þér.
Þín barnabörn,
Vigdís Svava, Snorri
og Ásdís Hrund.
Nú þegar amma okkar Ásdís
er fallin frá koma fram góðar
minningar. Efst í huga okkar er
þakklæti.
Þakklæti fyrir að hafa fengið
að hafa hana ömmu okkar svona
lengi meðal okkar. Þakklæti fyr-
ir að börnin okkar fengu að
kynnast langömmu sinni. Þakk-
læti fyrir allar þær dýrmætu
stundir sem við fengum með
ömmu okkar.
Elsku amma, þú fórst óhefð-
bundnar leiðir í lífinu, varst mik-
il ævintýrakona og ferðaðist
víða.
Þær voru margar ferðasög-
urnar sem þú sagðir okkur. Ein
þeirra sem stendur upp úr er
sagan af interrail-ferðalagi þínu
strax eftir útskrift úr hjúkrunar-
námi, ekki svo löngu eftir seinni
heimsstyrjöldina. Það var svo
gaman að spjalla við þig um lífið
og hvernig örlögin eiga það til að
grípa inn í. Í þínu tilviki var það
þegar þú kynntist afa Ingólfi ár-
ið 1954. Hjá þér stóð aldrei til að
eignast börn en þau plön breytt-
ust þegar þú kynntist afa því á
aðeins fjórum árum varstu orðin
fjögurra barna móðir.
Elsku amma, takk fyrir að
gefa okkur aðra sýn á lífið og
kenna okkur að meta það sem
við eigum í dag. Litlar stundir
verða svo dýrmætar nú þegar
við hugsum til baka. Rauðalæk-
ur er okkur kær og þar var allt-
af gott að koma og vera hjá ykk-
ur afa.
Okkur er minnisstætt hve
spennandi það var að fá að gista
á svefnsófanum hjá ykkur afa og
horfa á þættina Nonna og
Manna aftur og aftur. Þar var
einnig ómissandi að fá ís með ís-
kexi að ógleymdum sviknum
héra. Minningar sem þessar eru
svo dýrmætar nú þegar við
kveðjum þig. Síðar fluttir þú á
Dalbrautina og áttir þar góð ár.
Þá tók að fjölga í fjölskyldunni
og barnabarnabörnin eiga góðar
minningar þaðan.
Elsku amma, takk fyrir að
hafa verið til staðar fyrir börnin
okkar. Takk fyrir að hafa hlust-
að af athygli á hinar ýmsu sögur
um hunda, Spiderman, Star
Wars, fótboltamenn og annað
sem börnin okkar vildu segja
þér frá þegar þau heimsóttu þig.
Þú hafðir mikinn áhuga á öllu er
tengdist fjölskyldu þinni og
varst afar stolt af þínu fólki.
Amma var umvafin stórri fjöl-
skyldu sem stóð við hlið hennar
fram á síðustu stundu. Síðustu
dagar ömmu á spítalanum ein-
kenndust af ást og umhyggju
þar sem allir nánustu ættingjar
vildu hvergi annars staðar vera
en hjá henni, hvort sem það voru
börnin hennar, barnabörn eða
barnabarnabörn.
Amma kvaddi þennan heim
umkringd ást. Það er lýsandi
fyrir ömmu okkar að kveðja
þennan heim á björtum og fal-
legum sumarmorgni.
Elsku amma, við elskum þig
og munum varðveita þær dýr-
mætu stundir sem við áttum
með þér.
Guðmunda Ósk, Ásdís
og Ingólfur Snorri.
Nú hefur elsku
Adam afi kvatt líf-
ið.
Hlýja og vænt-
umþykja er það
fyrsta sem kemur upp í hugann
þegar við hugsum um afa á
Akranesi. Hann var ávallt
virðulegur og vel greiddur,
vopnaður greiðu í vasanum, vel
lesinn og áhugasamur um
margt. Hann var einkar hand-
laginn og nutum við þess öll.
Bæði skilur hann eftir sig muni
sem hann smíðaði og gaf okkur,
auk þess að hjálpa okkur við
múrverk á heimilum okkar.
Að koma til Adams afa og
Gunnu ömmu á Háholt 5 var
ávísun á góðan tíma. Húsið
sjálft er reisulegt, fallegt og vel
við haldið, enda hélt afi sjálfur
um múrskeiðina þegar framtíð-
arheimilið var byggt fyrir þau
ömmu og fjölskylduna. Það
skilaði sér auðvitað í þeim ein-
staka anda sem þar hefur ávallt
verið. Stóri, fallegi og gróni
garðurinn var þeirra stolt og
yndi og þaðan komu bestu gul-
rætur og jarðarber sem hægt
var að fá. Það var yndislegt að
vera í „skotinu“ í garðinum,
gæða sér á góðgæti frá ömmu
og róla á heimasmíðaðri rólu
eða moka sand í gömlu dekki.
Skíðasleðinn var svo á sínum
stað í geymslunni undir stig-
anum, járnmeiðirnir nýpússaðir
af afa, tilbúinn fyrir brekkuna
við hlið hússins niður Háholtið.
Við tengjum margar ánægju-
legar minningar við Akranes,
þennan fallega bæ, hvort sem
við nálguðumst hann með
Akraborginni, fyrir Hvalfjörð-
inn sem okkur fannst nú heldur
Adam Þór
Þorgeirsson
✝ Adam Þór Þor-geirsson fædd-
ist 30. september
1924. Hann lést 5.
júní 2019.
Útför hans var
gerð 12. júní 2019.
langt fara þegar
við vorum börn,
eða í gegnum
göngin góðu.
Göngutúrar á
Langasand, jafnvel
með viðkomu í
Einarsbúð eða
Harðarbakaríi voru
ómissandi í heim-
sóknum upp á
Skaga. Það var
einnig mikill sam-
gangur við fjölskyldu ömmu á
Háholti 7. Fjölskyldurnar voru
til dæmis saman í sláturgerð og
glæsilegum jólaveislum þar
sem við lékum bókaleiki og
gæddum okkur á fallegum og
góðum jólamat. Aðrar góðar
hefðir sem við munum alltaf
tengja við afa og ömmu á Akra-
nesi er að tína aðeins aðalblá-
ber í berjamó því önnur bláber
komast ekki nálægt þeim í
gæðum og að skera laufabrauð
en það er ein af okkar mik-
ilvægustu jólahefðum.
Adam afi lagði sig fram við
að fylgjast vel með okkur,
spurði mikið og sýndi áhuga,
hvort sem það voru störfin
okkar, áhugamál, fjölskyldur
eða heimili.
Hann hafði gaman af börnum
okkar, langafabörnunum, og
þeim fannst skemmtilegt að
koma á Háholtið þar sem þau
léku sér í tunnunni á stigapall-
inum, renndu sér niður hand-
riðið og skoðuðu dýrgripi í
kjallaranum.
Nú verður Adam afi lagður
til hinstu hvíldar hjá Gunnu
ömmu og það er gott að vita af
þeim saman á ný. Við erum
þakklát fyrir að hafa átt þau
sem afa okkar og ömmu og
munum ávallt hugsa fallega til
þeirra þar sem þau standa sam-
an að veifa bless af tröppunum
á Háholti 5 og við kveðjum þau
til baka í hinsta sinn.
Guðrún Ragna, Hjördís
Lára og Hjalti Þór.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Jón G. Bjarnason,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
LUDWIGS HEINRICHS
GUNNARSSONAR,
Birkihlíð 4b, Hafnarfirði.
Guðrún Jónsdóttir
Guðmundur G. Ludwigsson
Þóra Kristín Ludwigsdóttir Davíð Þór Marteinsson
Eva Sóley og Lilja Karen
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GRÉTU ÓSKARSDÓTTUR,
Sólarsölum 7, Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
æðaskurðdeildar Landspítalans Fossvogi.
Helga G. Hauksdóttir Þorsteinn Guðbjörnsson
Margrét Hauksdóttir Hilmar Kristinsson
Grétar, Björg, Hildur Ýr, Íris Björk
Margrét Helga, Júlía Dóra og Kristbjörn Óli
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
móður, tengdamóður og ömmu,
ERNU ASPELUND
sjúkraliða,
Björtuhlíð 13, Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
á bráðamóttöku, A2 og gjörgæsludeild Landspítalans Fossvogi.
Júlíana H. Aspelund Guðmundur Hjartarson
Berglind B. H. Aspelund Guðmundur Guðjónsson
Helena H. Aspelund
Davíð Ö. Hansson Jóhanna K. Þórhallsdóttir
Snæfríður, Sóllilja, Erna Dagný, Þorbjörg Tinna,
Ernir, Guðjón Andri, Hákon Kári, Dagbjört Lilja,
Þórhildur Jökla og Halla Bergrún
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ALDÍS ÞURÍÐUR RAGNARSDÓTTIR,
DÍDA,
lést á Hrafnistu í Reykjavík 3. júní.
Útför hennar fer fram frá Lindakirkju í
Kópavogi þriðjudaginn 25. júní klukkan 13.
Sigurður Þórir Hauksson
Ingibjörg Hauksdóttir Ingþór Ásgeirsson
barnabörn og langömmubarn
Ástkær faðir okkar, afi, bróðir og mágur,
SIGURBJÖRN FRÍMANN
HALLDÓRSSON,
Spóahólum 14,
Reykjavík,
andaðist á krabbameinsdeild 11E,
Landspítalanum við Hringbraut, laugardaginn 15. júní.
Útförin fer fram frá Áskirkju í Reykjavík þriðjudaginn 25. júní
klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð. Þeim sem
vilja minnast hins látna er bent á Ljósið eða önnur líknarfélög.
Lonni Björg Sigurbjörnsdóttir Hansen, Baldur Sævarsson
Lilja Bryndís Sigurbjörnsdóttir Hansen
Örn Aron Sigurbjörnsson, Tanja Rán Einarsdóttir,
barnabörn, systkini, mágar og mágkona
Móðir okkar og tengdamóðir,
EVA HARNE RAGNARSDÓTTIR,
lengst af til heimilis á
Kleifarvegi 12, í Reykjavík,
er látin. Útför hennar verður gerð frá
Áskirkju þriðjudaginn 2. júlí klukkan 15.
Greta Önundardóttir Páll Halldórsson
Ásgeir Önundarson Riszikiyah Hasansdóttir
Ragnar Önundarson Áslaug Þorgeirsdóttir
Páll Torfi Önundarson Kristín Hanna Hannesdóttir