Morgunblaðið - 20.06.2019, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 20.06.2019, Blaðsíða 60
60 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2019 AÐGANGSSTÝRÐIR LYKLA- OG VERÐMÆTASKÁPAR Traka-kerfið býður upp á persónubundna aðgangsheimild. Búnaður í skápunum heldur utan um heimildir og útlán verðmæta hverju sinni, til dæmis lykla, spjaldtölvur og fartölvur. SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS Pepsi Max-deild karla KR – Valur ................................................ 3:2 Staðan: KR 9 6 2 1 17:9 20 Breiðablik 9 6 1 2 19:10 19 ÍA 8 5 1 2 15:10 16 Fylkir 8 3 3 2 14:11 12 KA 8 4 0 4 10:9 12 FH 8 3 3 2 14:15 12 Stjarnan 9 3 3 3 12:15 12 Grindavík 8 2 4 2 7:8 10 Valur 9 2 1 6 15:16 7 Víkingur R. 8 1 4 3 11:14 7 HK 8 1 2 5 8:12 5 ÍBV 8 1 2 5 7:20 5 Inkasso-deild karla Þróttur R. – Fjölnir.................................. 0:1 Staðan: Fjölnir 8 5 1 2 14:9 16 Þór 7 5 0 2 15:6 15 Keflavík 7 4 1 2 13:7 13 Víkingur Ó. 7 4 1 2 9:5 13 Fram 7 3 2 2 12:10 11 Grótta 7 3 2 2 12:12 11 Þróttur R. 8 3 1 4 15:13 10 Leiknir R. 7 3 0 4 11:13 9 Njarðvík 7 2 1 4 7:10 7 Haukar 7 1 3 3 7:12 6 Afturelding 7 2 0 5 10:18 6 Magni 7 1 2 4 9:19 5 Inkasso-deild kvenna ÍA – Haukar .............................................. 1:0 Staðan: Þróttur R. 4 4 0 0 19:3 12 ÍA 5 3 2 0 8:2 11 FH 4 2 1 1 10:7 7 Grindavík 4 2 1 1 5:5 7 Tindastóll 4 2 0 2 13:12 6 Haukar 5 2 0 3 5:4 6 Augnablik 4 2 0 2 5:5 6 Afturelding 4 1 1 2 6:7 4 Fjölnir 4 0 1 3 3:11 1 ÍR 4 0 0 4 2:20 0 KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA 1. deild karla, Inkasso-deildin: Rafholtsv.: Njarðvík – Afturelding..... 19.15 Ásvellir: Haukar – Leiknir R ...............19.15 2. deild karla: Vogaídýfuv.: Þróttur V. – ÍR................19.15 Jáverkvöllur: Selfoss – Tindastóll .......19.15 Akraneshöll: Kári – KFG .....................19.15 3. deild karla: Fjölnisvöllur: Vængir J. – Augnablik.......20 Í KVÖLD! Þýskaland Annar úrslitaleikur: Alba Berlín – Bayern München ......... 77:82  Martin Hermannsson lék í rúmar 22 mínútur og skoraði 4 stig, gaf 3 stoðsend- ingar og tók 2 fráköst.  Staðan er 2:0 fyrir Bayern München.  Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður ekki á meðal þeirra kylfinga sem hefja í dag leik á KPMG-meistara- mótinu, einu risamótanna fimm í golfi kvenna. Ólafía lék á síðasta risamóti, US Open, um síðustu mán- aðamót, og í viðtali við Morgunblaðið eftir það kvaðst hún binda vonir við að komast einnig á KPMG-mótið. Árangur Ólafíu síðustu misseri dugði henni ekki til að komast beint á mótið. Hún er hins vegar með stuðningssamning við fyrirtækið KPMG, líkt og fleiri kylfingar. Þess vegna mun fyrirtækið hafa sótt það fast að hún fengi boð á risamótið sem hefst í dag, án árangurs. Mótið er haldið í samvinnu KPMG og sam- taka atvinnukylfinga í Bandaríkj- unum sem vildu fara aðra leið. Ólafía leikur því næst á Symetra-móti í Ohio 28.-30. júní. sindris@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg KPMG Ólafía Þórunn Kristinsdóttir ber merki fyrirtækisins á öllum mótum. Ólafía ekki á KPMG- mótinu um helgina  Fyrirtækið vildi að hún fengi boð HANDBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Ég sá það alltaf fyrir mér að ég myndi spila í toppliði í þýsku deild- inni þannig að innst inni var þetta alltaf markmiðið,“ segir Ómar Ingi Magnússon, landsliðsmaður í hand- bolta, sem frá og með sumrinu 2020 verður leikmaður Magdeburg í Þýskalandi. Magdeburg, sem hafn- aði í 3. sæti þýsku 1. deildarinnar í vetur, gerði samning við Ómar sem gildir til fjögurra ára, eða til sumars- ins 2024. Ómar mun sem sagt fyrst klára seinna tímabilið af samningi sínum við Aalborg í Danmörku. Fyrra tímabilið, sem nú er nýlokið, var draumi líkast en Ómar varð þrefald- ur meistari með liðinu auk þess að vera (lang)stoðsendingahæstur í dönsku úrvalsdeildinni og í 9. sæti yfir markahæstu menn deildarinnar. Tölurnar tala sínu máli og því ekki skrýtið að Magdeburg skyldi hafa samband en félagið ætlar Ómari að fylla í skarðið sem Svíinn Albin Lag- ergren skilur eftir þegar hann fer til Rhein-Neckar Löwen á næsta ári. „Ég hef vitað af áhuga félagsins í nokkurn tíma og ég er auðvitað mjög ánægður með þetta. Þetta er klassa- klúbbur veit ég, og búinn að vera nokkuð stöðugur síðustu ár. Ég held líka að liðið henti mér mjög vel, upp á það hvernig handbolta það spilar Eftir næsta tímabil verð ég búinn að vera í fjögur ár í Danmörku, í fínni deild með fínum leikmönnum og því er þetta rökrétt skref. Það hefur hjálpað mér mikið að spila hérna, upp á að þroskast í mínum leik, og þetta verður góður tímapunktur til að flytja mig um set. Auðvitað get ég alltaf verið sterkari og bætt líkam- lega þáttinn, sem ég vinn í á hverjum degi, og það kemur hægt og rólega. Hvað allt annað varðar er ég klár í þetta,“ segir Ómar við Morgun- blaðið. Hann kemur til með að deila hægri skyttustöðunni með Þjóðverj- anum Christoph Steinert sem kemur til Magdeburg frá Erlangen í sumar. Heyrði í Guðjóni Val Nokkur Íslandstenging hefur í gegnum tíðina verið við Magdeburg, sem orðið hefur þýskur meistari einu sinni, árið 2001, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar og með Ólaf Stefánsson fremstan í flokki. Björgvin Páll Gúst- avsson lék síðast með liðinu, árin 2011-2013, og Geir Sveinsson stýrði Magdeburg í eitt og hálft ár en var rekinn í desember 2015. Þá tók nú- verandi þjálfari, Bennet Wiegert, við. „Ég vissi þokkalega út í það hvað ég væri að fara en félagið hefur kannski breyst svolítið frá því að Ís- lendingur spilaði síðast fyrir það. Það er þarna ný stjórn og nýr þjálf- ari, en ég heyrði einmitt aðeins í Guðjóni Val [Sigurðssyni] varðandi þjálfarann,“ sem stýrði Guðjóni hjá Gummersbach veturinn 2006-2007. Eins og fyrr segir átti Ómar Ingi frábært tímabil í Danmörku og á næstu leiktíð mun hann leika í Meist- aradeild Evrópu með liðinu. „Það gekk bara vel í vetur fannst mér. Ég átti góða leiki en líka lélega, en heilt yfir fannst mér ganga vel hjá mér. Við unnum bikarinn, deildina og svo stóra titilinn. Það var auðvitað hundleiðinlegt að vera ekki með í lokin en annars var þetta nánast full- komið ár,“ segir Ómar en hann fékk heilahristing eftir höfuðhögg í undanúrslitaleik tvö við Silkeborg og missti því af síðustu leikjum tíma- bilsins sem og síðustu landsleikjum. „Ég fékk hrindingu frá tveimur gæjum og lenti illa aftan á hausnum, og fékk gat á hausinn og heilahrist- ing. Núna um helgina verða komnar fjórar vikur frá því að þetta gerðist og það var talað um að þá yrði kannski tímabært að taka stöðuna og athuga hvort ég gæti farið að hreyfa mig eitthvað,“ segir Ómar. „Nánast fullkomið ár“  Ómar Ingi fer til Magdeburg sumarið 2020  Varð þrefaldur meistari og stoðsendingakóngur í Danmörku  Úr leik í lok tímabils vegna heilahristings Ljósmynd/SC Magdeburg Magdeburg Ómar Ingi Magnússon með treyju Magdeburg en hann mun þó ekki spila fyrir liðið fyrr en eftir ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.