Morgunblaðið - 20.06.2019, Blaðsíða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
LOFOTEN N°6814
160x200 cm 359.900 kr. Nú 269.925 kr.
180x200 cm 399.900 kr. Nú 299.925 kr.
HÖFUÐGAFL N°03
160 cm 64.900 kr. Nú 48.675 kr.
180 cm 69.900 kr. Nú 52.425 kr.
LOFOTEN
WWW.ILVA.IS/NORTHBEDS
1
23
4
5
6
7
8
1 Teygjanlegt efni sem má þvo
2 Comfort Latex - 5 cm
3 Clima Latex bólstrun - 2,5 cm
4 7 svæða pokagormar - 15 cm
5 Stuðningssvampur
6 Stuðnings-pokagormar - 13 cm
7 Pokagormar - 7 cm
8 Mjög sterkur viðarrammi - 12 cm
25%
AFNORTH BEDS OG FRÍ
HEIMSENDING Á HÖFUÐ-
BORGARSVÆÐINU EF VERSLAÐ
ER FYRIR 59.000 KR. EÐA
MEIRA 20.- 24. JÚNÍ
Tónlistarhátíðin Secret Solstice
hefst formlega á morgun, 21. júní, í
Laugardal en í kvöld kl. 21 fer hins
vegar fram opnunarteiti hátíðar-
innar á Hard Rock Café í Lækjar-
götu. Hún fer fram í kjallara stað-
arins og er aðgangur ókeypis.
Fram koma Dillon Cooper,
Psychoplasmics, Countess
Malaise, IPCUS Pinecone,
Drengur og DJ Boogieman.
Opnunarteiti Secret
Solstice á Hard Rock
FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 171. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Ég sá það alltaf fyrir mér að ég
myndi spila í toppliði í þýsku deild-
inni þannig að innst inni var þetta
alltaf markmiðið,“ segir Ómar Ingi
Magnússon, landsliðsmaður í hand-
bolta, sem frá og með sumrinu
2020 verður leikmaður Magdeburg
í Þýskalandi. Ómar Ingi hefur átt
góðu gengi að fagna með liði Aal-
borg undanfarin ár. »60
Innst inni var þetta
alltaf markmiðið
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Öld er liðin frá því Halldór Laxness
gaf út sína fyrstu skáldsögu, Barn
náttúrunnar, aðeins 17 ára að aldri
og af því tilefni mun Haukur Ingvars-
son bókmenntafræðingur leiða bók-
menntagöngu í kvöld kl. 20. Yfir-
skrift hennar er „Barn náttúrunnar
og borgarbarnið“ og verður dregin
upp mynd af Reykjavík þess tíma
þegar verkið var
skrifað. Haukur spyr
af hverju svo barn-
ungur piltur var tilbú-
inn að leggja allt í söl-
urnar til að sinna
kalli skáldskapar-
gyðjunnar. Lagt er
af stað frá
Borgarbókasafni
Grófinni og er
þátttaka ókeypis.
Barn náttúrunnar
og borgarbarnið
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sagt hefur verið að Kristján Sveins-
son stýrimaður sé eini maðurinn
sem hafi gengið frá Vestmanna-
eyjum að Landeyjasandi. „Það man
þetta ekki nokkur maður því þeir
eru allir farnir sem voru með mér en
strákarnir sögðu þetta og sagan er
góð,“ segir Kristján dulur.
Tildrög málsins eru þau að Eyja-
menn höfðu lengi leitað leiða til að fá
sæstreng fyrir rafmagn. Fyrstu
botnrannsóknirnar voru gerðar
1938, aftur var hafist handa um 12
árum síðar og 1961 fannst leiðin,
sem fyrsti strengurinn var síðan
lagður eftir á milli Landeyjasands
og Eyja í blíðskaparveðri sumarið
1962. Áhöfn vitaskipsins Árvakurs
sótti strenginn á skipinu til Dan-
merkur og lagði hann.
Kristján, boxari í Ármanni, var 28
ára gamall stýrimaður á Árvakri.
Hann segir að kapallinn hafi verið
hringaður ofan í lestina í Kaup-
mannahöfn og sérstakt spil sett á
dekkið til þess að spila honum út á
leiðinni frá landi til Eyja. „Þetta
voru nákvæmlega 13 kílómetrar og
176 metrar,“ staðfestir hann. Eftir
lagninguna hafi verið hleypt raf-
magni á strenginn, 60.000 voltum, og
þá hafi hann slegið út. „Rafveitu-
mennirnir héldu því fram að við
hefðum lagt kapalinn vitlaust, þrátt
fyrir að mæling sýndi að líklega væri
um gallaða samsetningu að ræða, en
1.000 metrar voru á milli samsetn-
inga. Því lögðum við af stað til baka
til að kanna kapalinn, gúmmíbátur
fylgdi mér og var með mig í taumi en
ég gekk eftir botninum og dró mig
áfram á kaplinum.“
Á um 48 metra dýpi
Skipverjarnir höfðu rétt fyrir sér.
13. og síðasta samsetningin frá landi
var ekki í lagi. Þar var kapallinn
hífður upp í Árvakur, gert við og síð-
an látinn falla aftur til botns. Aftur
var rafmagni hleypt á strenginn og
þá reyndist allt vera í lagi. „Þetta
umstang tók tvo daga en við vorum
ekki nema um tvo tíma að leggja
kapalinn í byrjun,“ segir Kristján og
bætir við að lengri tími hafi farið í
undirbúning og frágang í landi.
Kristján, sem var reyndur kafari,
var á þriðju klukkustund í sjónum. Í
gúmmíbátnum voru stórir loftkútar
og slanga þaðan sem Kristján notaði
til að anda að sér súrefni. Hann seg-
ist hafa gengið á um 10 metra til
rúmlega 48 metra dýpi að álnum
skammt frá Elliðaey, þar sem dýpið
hafi verið um 90 metrar. „Tilfellið er
að ég gekk bara á hafsbotni frá höfn-
inni út undir Elliðaey, um 50 metra
leið,“ upplýsir hann. „Ég var vel bú-
inn, en vegna þrýstings tók mig
langan tíma að komast upp í bátinn.
Ég dró mig upp á tauginni, stoppaði
fyrst í 10 til 15 mínútur í 25 metrum
og hékk svo á aðra klukkustund níu
metra frá yfirborði.“ Hann segist
hafa séð ágætlega á leiðinni. „Það er
svo skrýtið að skyggnið var gott
niðri við botninn, sem var sléttur,
berar klappir og mikill sandur.“
Morgunblaðið/Hari
Göngugarpur Kristján Sveinsson gengur nú aðeins á þurru landi, mest í golfi á vellinum á Korpúlfsstöðum.
Ævintýri á gönguför
Kristján Sveinsson gekk á hafsbotni frá Vestmanna-
eyjum og sagt er að enginn hafi leikið það eftir Sagan öll