Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2019
Píratar, ekki síst einn þeirra,leggja fram mikinn fjölda
fyrirspurna á Alþingi, misjafnlega
áhugaverðar eins og gengur. Jón
Þór Ólafsson átti eina ágæta undir
lok þings þar sem hann spurði
dómsmálaráðherra um skipta-
stjóra.
Úthlutun búa tilskiptastjóra
og störf skipta-
stjóra hafa stundum
ratað í opinbera
umræðu, meðal
annars nýverið, og
ekki að ástæðu-
lausu.
Fyrirspurnin er í mörgum liðumog er meðal annars spurt um
erindi um aðfinnslur við störf
skiptastjóra sl. 10 ár. Þá er spurt
um fjölda erinda til héraðsdóm-
stóla þar sem krafist er úrskurðar
um að skiptastjóra verði vikið frá
störfum vegna vanhæfis.
Ennfremur er spurt hve margirlögmenn eru skráðir á lista
sem mögulegir skiptastjórar hjá
héraðsdómstólum og hvernig lög-
menn eru valdir á þann lista.
Þá er ekki síður áhugaverðspurningin um hve langur tími
líði að meðaltali frá skipun skipta-
stjóra og þar til skiptum lýkur og
um almennt eftirlit með störfum
þeirra.
Loks er spurt um fjölda rift-unar- og ágreiningsmála
vegna gjaldþrotaskipta.
Ýmislegt undarlegt hefur komiðupp í tengslum við þrotabú á
síðustu árum. Vonandi verður auk-
in umræða til að þessi mál færist í
betra horf.
Jón Þór Ólafsson
Þörf fyrirspurn
um skiptastjóra
STAKSTEINAR
SKECHERS GO WALK 5 DÖMUSKÓR.
STÆRÐIR 36-41.
FÁST EINNIG SVARTIR
13.995.-
DÖMUSKÓR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi
Flokks fólksins, segir í samtali við
Morgunblaðið að ákvörðun borgar-
meirihlutans um að vísa tillögu um
reglur um hagsmunaskráningu borg-
arfulltrúa til borgarráðs, á þriðjudag-
inn var, teljist óvenjuleg þar sem mál-
ið hafi verið tekið fyrir í for-
sætisnefnd. Meirihluti borgarráðs
lagði á fundinum fram breytingartil-
lögu á tillögu sinni um hagsmuna-
skráningu borgarfulltrúa, en breyt-
ingin snýst um að borgarfulltrúar
þurfi ekki einungis að skrá eigin fyrir-
tæki heldur einnig fyrirtæki sem
fyrirtæki í þeirra eigu eiga. Minni-
hlutinn hefur ekki viljað taka afstöðu
til tillögunnar fyrr en mat Persónu-
verndar á henni hefur borist.
Telur Kolbrún meirihlutann ekki
hafa verið nægilega vel undirbúinn til
að klára málið.
Hún segir umræðuna á fundinum
hafa verið ófaglega og telur fráfar-
andi forseta borgarstjórnar, Dóru
Björt Guðjónsdóttur, hafa brotið
gegn siðareglum sem samþykktar
voru á fundinum þegar hún krafðist
svara frá Eyþóri Arnalds, borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins, um eigna-
hlut sinn í fyrirtæki.
Dóra Björt Guðjónsdóttir vísar því
á bug að um persónulega árás hafi
verið að ræða og telur sig ekki hafa
brotið siðareglur. Segist hún hafa
fengið upplýsingar um möguleg
tengsl Eyþórs við orkufyrirtæki sem
hafi komið því við að stjórnarkjör fyr-
ir stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hafi
legið fyrir á fundinum. Hún leggur
áherslu á að fjárhagslegir hagsmunir
borgarfulltrúa séu ekki einkamál
heldur komi almenningi við.
Segir hún að breytingunum hafi
verið vísað til borgarráðs, m.a. til að
gefa minnihluta færi á að kynna sér
þær til hlítar. Einnig segist hún hafa
viljað bíða eftir mati Persónuverndar
til að koma til móts við minnihlutann.
rosa@mbl.is
Krafðist upplýsinga um eignarhlut
Segir forseta
borgarstjórnar
brjóta siðareglur
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Enn berast Morgunblaðinu ábend-
ingar um skyldmenni sem setið
hafa á þingi eftir að blaðið birti
frétt 19. júní um systkini sem setið
hafa á þingi á sama tíma og aðra
frétt 20. júní um skyldmenni sem
setið hafa á þingi. Í upptalningu
vantaði feðgana Guðna Ágústsson
og Ágúst Þorvaldsson sem sátu
samanlagt á þingi fyrir Framsókn-
arflokkinn í 40 ár og þrjá ættliði
sem sátu samtals 70 ár á þingi fyr-
ir sama flokk, en það voru Her-
mann Jónasson, Steingrímur Her-
mannsson og Guðmundur Stein-
grímsson sem hóf þingferil sinn
með Framsóknarflokknum en sat
síðar á þingi fyrir fleiri flokka. Ingi
R. Helgason sat fyrir Alþýðu-
bandalagið og síðar dóttir hans Álf-
heiður fyrir Vinstrihreyfinguna
grænt framboð. Fyrrverandi heil-
brigðisráðherra, Svavar Gestsson
Alþýðubandalagi, og síðar Samfylk-
ingu, sat á þingi en Svandís dóttir
hans, situr á þingi fyrir VG.
Systkini sem setið hafa á þingi
hvort heldur er samtímis eða á sitt
hvorum tímanum eru Nanna Mar-
grét og Sigmundur Davíð auk þess
sem Gunnlaugur M. Sigmundsson
faðir þeirra sat á þingi á undan
þeim. Ingibjörg og Ísólfur Gylfi
Pálmabörn, Halldór og Katrín Ás-
grímsbörn, Guðjón Arnar og Jóna
Valgerður Kristjánsbörn, Halldór
E. og Margrét Sigurðarbörn,
Helga Vala og Skúli Helgabörn og
bræðurnir Gunnar Birgisson og
Kristinn H. Gunnarsson. Einnig
Valgerður og Björn, en faðir þeirra
Bjarni Benediktsson sat einnig á
Alþingi og einnig bróðir hans Pét-
ur. Feðgarnir Gylfi Þ. Gíslason og
eiginmaður Valgerðar, Vilmundur
Gylfason, gegndu einnig þing-
mennsku.
Stefán Gunnlaugsson og synir
hans Gunnlaugur, Finnur Torfi og
Guðmundur Árni hafa allir setið á
þingi. Jón Baldvin Hannibalsson og
faðir hans Hannibal Valdimarsson
sátu á þingi sem og Pétur Sigurðs-
son og dóttir hans Margrét.
Jón Pálmason, Pálmi sonur hans
og Erla dóttir Pálma voru öll þing-
menn.
Feðgar og þrír ætt-
liðir 110 ár á þingi
Fjórir feðgar sátu á þingi Mörg
systkini þingmenn 3 ættliðir í 70 ár