Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2019
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara
herbergi, heldur upplifun
Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins.
Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum
keppast við að hanna hágæða eldhús sem standast
tímans tönn, með virkni, gæði og sveigjanleika að
leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til framtíðar
– tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði.
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Liðsmenn Landhelgisgæslu Íslands
(LHG) fóru á dögunum um fimmtíu
ferðir á gúmmíbát milli varðskipsins
Týs og fjörunnar við Hornbjargsvita
með byggingarefni, nýjar lagnir og
gröfu. Tilefnið var framkvæmdir
sem Ferðafélag Íslands (FÍ) er að
ráðast í, en FÍ sér um rekstur vita-
varðarhússins við Hornbjargsvita.
Landhelgisgæslan hélt þann 11.
júní af stað á varðskipinu Tý í svo-
kallaða vitaferð, hringferð um landið
þar sem ástand er athugað og al-
mennu viðhaldi sinnt á vitum lands-
ins. Eins og áður segir tók Land-
helgisgæslan að sér að nýta ferðina
og flytja farm fyrir FÍ í Hornbjargs-
vita. Í samtali við Morgunblaðið seg-
ir Páll Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri FÍ, að fyrst hafi þyrla
Landhelgisgæslunnar átt að sjá um
flutninginn. Hún hafi aftur á móti
ekki verið til taks og því hafi þurft að
flytja umræddan farm með gúmmí-
bát.
Stór verkefni fyrir vestan
„Þetta er stórt verkefni sem við
erum að ráðast í í Hornbjargsvita.
Við erum að laga þarna vatnslögn úr
brunninum uppi í fjalli og niður í
virkjunina. Lögnin er í dag hriplek
og bara ónýt. Þetta gerir það að
verkum að það er erfiðara að reka
þessa merkilegu virkjun sem á sér
mikla sögu,“ segir Páll og vísar þar
til hinnar ríflega 100 ára gömlu
vatnsvirkjunar á staðnum.
Spurður frekar út í framkvæmd-
ina segir Páll: „Þarna erum við að
fara í það að skipta um lögnina.
Þetta er um fimm hundruð metra
löng leið sem við skiptum um til þess
að tryggja þarna allan rekstur á
virkjuninni. Við fengum stuðning frá
Landhelgisgæslunni í þetta verk-
efni. Þyrlan var eitthvað biluð og svo
var veðrið ekki hagstætt, svo þetta
var flutt þarna í fjöruna,“ segir Páll.
Spurður út í það efni sem flutt var
í fjöruna segir hann að um hafi verið
að ræða byggingarefni og efni í nýju
leiðsluna. „Svo erum við að setja
þarna upp salerni og vinna þarna í
frekari öryggismálum á staðnum.“
„Ekkert vesen“
Við Hornbjargsvita hefur á sumr-
in verið rekin ferðaþjónusta í svip-
uðum stíl og FÍ rekur víða annars
staðar á landinu. Ýmis mannvirki
eru orðin fjörgömul og segir Páll að
brýnt hafi verið að ráðast í viðhald.
Auk þess að setja upp vetrarklósett
og lagfæra fallpípu að vatnsrafstöð-
inni er meiningin að endursmíða
stiga og togbraut upp úr fjöru og
upp á brún og lagfæra gangráð
vatnsvirkjunar vitans.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Einar H. Valsson, skipherra á varð-
skipinu Tý, að um 15-19 tonn af
farmi hafi verið flutt á milli skips og
fjöru. Hann segir að verkið hafi haf-
ist upp úr hádegi á laugardag og að
farið hafi verið í pásu um kvöldmat-
arleyti. Verkið var svo klárað á
sunnudagsmorgun. Spurður hvort
ekki hafi verið um heljarinnar vesen
að ræða, svarar Einar kampakátur:
„Nei, nei. Þetta var ekkert vesen.
Það tók sig upp gamalt hugvit frá
því áður en við höfðum þyrlur. Það
hafa ýmis farartæki og varningur
verið flutt í land í gegnum tíðina með
þessum hætti.“
Hann segir sjálfur að sléttar
fimmtíu og fimm ferðir hafi verið
farnar á gúmmíbátnum milli Týs og
fjöru og að þær hafi allar gengið vel.
Grafan sett í
gúmmíbátinn
Framkvæmdir við Hornbjargsvita
Ljósmynd/LHG
Í fjörunni Farmurinn sem liðsmennirnir fluttu úr skipi í fjöru var á bilinu 15 til 19 tonn, segir skipherra á Tý.
Ekkert vesen Gröfunni var skellt í gúmmíbátinn og svo var siglt af stað.