Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2019 Theodór A. Jónsson fæddist 28.6. 1939 á Stað við Stein- grímsfjörð. Theodór fatlaðist um 16 ára aldur og eftir það notaði hann hjólastól. Hann var vistaður á Elliheimilinu Grund, þar sem enginn staður var til fyrir fatlað fólk. Theodór lauk prófi frá Samvinnuskólanum á Bifröst 1961 og fékk vinnu hjá Tryggingastofnun ríkisins. Theodór var formaður Sjálfsbjargar 1960-1988 og for- stöðumaður Vinnu- og dvalar- heimilis Sjálfsbjargar þegar það var opnað 1973. Theodór var formaður Bandalags fatlaðra á Norður- löndum 1968-1972, sat í stjórn Sjúkrasamlags Seltjarnarness frá 1974 og í byggingarnefnd heilsugæslustöðvar á Seltjarn- arnesi 1974-1978. Hann var í stjórn Hjálpartækjabankans frá stofnun 1976-1980 og fram- kvæmdanefnd alþjóðaárs fatl- aðra 1980-1981. Hann var vara- formaður í stjórn Öryrkja- bandalags Íslands, ritstjóri Skólablaðs Samvinnuskólans og Sjálfsbjargar, tímarits fatl- aðra, 1960-1967. Theodór var sæmdur heiðursmerki Rauða kross Ís- lands, fálkaorðunni og gull- merki Sjálfsbjargar. Eiginkona Theodórs er Elísabet Jónsdóttir. Stjúpbörn Theodórs eru tvö. Theodór lést 7.5. 1989. Merkir Íslendingar Theodór A. Jónsson Kæri mennta- málaráðherra. Ég hlustaði á viðtal við þig í þættinum Í bítið á Bylgjunni á fimmtudagsmorgni. Þar varst þú spurð hver staðan væri á nýrri Laugardalshöll. Hvort búið væri að teikna. Hvort búið væri að þarfagreina. Svar þitt var að það væri gott sam- starf milli ríkis, Reykjavíkurborgar og KSÍ. Það er ljómandi, en svarar í raun engu. Hvað um handboltann? Hvað um körfuboltann? Hvað um blakið? Hvað um aðrar greinar? Hver heldur utan um þetta? Hver hefur svörin? Hvar er málið statt? Svo margar spurningar, svo fá svör. En til að einfalda málið ætla ég bara að spyrja þig einnar spurningar. Sem fyrrverandi landsliðsmaður í hand- bolta, fyrrverandi landsliðsþjálfari ís- lenska liðsins og sem fyrrverandi stjórnarmaður HSÍ leyfi ég mér að spyrja og ég vonast eftir ítarlegra svari en bara að það sé gott sam- starf. Kæri menntamálaráðherra. Hver er staðan á nýrri Laugardalshöll? Auðveld spurning til ráðherra Eftir Þorberg Aðalsteinsson Þorbergur Aðalsteinsson » Spurningar til menntamálaráð- herra vegna óskýrra svara hennar um nýju Laugardalshöllina. Höfundur er fv. landsliðsmaður, þjálf- ari og stjórnarmaður í HSÍ. Það gekk mikið á í vor að fá tolla nið- urfellda á kartöflum því innlend framleiðsla væri á þrotum og það sem byðist væri ekki boðlegt, svo að notað sé síðasta tískuslangrið. Síðan hefur tíminn liðið og margar vikur síðan tolllaus innflutningur var leyfður, en hvað hefur gerst? Í mínum stórmarkaði hefur ekkert gerst. Sama framboð á íslenskum kartöflum og sama verð og gilt hefur frá í fyrrahaust. Það veit ferðglöð þjóð eins og Ís- lendingar að á þessum tíma árs bjóð- ast gómsætar vorkartöflur, beint úr moldinni á suðrænum slóðum, og það ætlaði ég mér að kaupa en greip í gullaugað frá í fyrra. Að vísu vel ætar kartöflur og óspíraðar, en samt. Til landsins eru fluttir alls kyns torkennilegir ávextir og grænmeti sem sumt hefur varla nafn í málinu, en í kartöflum erum við ekki eins snögg til. Kannski hefur þjóðin afvan- ist kartöflum en farið í staðinn í pasta og grjón. Frönskurnar standa þó væntan- lega fyrir sínu og enn um hríð verður sagt frá fyrstu kartöflum sem koma á markað. Sunnlendingur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Kartöflur í geymslunni Uppskerubrestur Ef kartöfluuppskeran bregst má alltaf fá franskar í næstu búð. Eftir að frami MagnúsarCarlsen á skáksviðinuvarð jafn mikill og raunber vitni olli það löndum hans talsverðum áhyggjum hve illa honum gekk að vinna mót þegar hann tefldi í Noregi. En á því varð breyting á Norska mótinu 2016 og aftur 2017. Á dögunum lauk 2019-útgáfunni af „Norska mótinu“ en það var hald- ið í Stafangri. Það var hugbúnaðar- fyrirtækið Altibox sem var aðal- kostandi þess. Fyrirkomulagið hjá þeim norsku hefur alltaf verið frem- ur óvenjulegt og í ár var tekið upp glænýtt kerfi. Tíu af fremstu skák- mönnum heims tefldu allir við alla hefðbundnar kappskákir en þó með heldur minni tíma en venja er, 2 klst. á 40 leiki án aukatíma og þegar 40 leikja markinu var náð varð að klára skákina á þeim litla tíma sem eftir var – en þó með 10 sekúndna viðbót eftir hvern leik. Ég veit ekki til þess að þessi tímamörk hafi verið notuð áður, en stærsta breytingin var sú, að ef skák lauk með jafntefli voru hrein úrslit fengin með því að tefld var svokölluð Armageddon- skák. Stjórnanda svarta liðsaflans dugði jafntefli til að teljast sigur- vegari en sá sem hafði hvítt í kapp- skákinni fékk sama lit aftur og 10 mínútur á klukkuna – svartur fékk aðeins 7 mínútur. Fyrirkomulagið hentaði Magnúsi vel; hann var sig- urvegari í sex Armageddon-skákum og vann því mótið með allnokkrum yfirburðum. Gefin voru 2 stig fyrir sigur í kappskák, jafntefli í kapp- skákunum gaf vissulega hálfan vinn- ing, en einn punktur bættist við eft- ir Armageddon-skákina. Lokaniðurstaðan varð þessi: 1. Magnús Carlsen 13½ (af 18) 2.-3. Aronjan og Yu Yangyi 10½ v. 4.-5. Caruana og So 10 v. 6. Ding Li- ren 8½ v. 7.-8. Anand og Vachier Lagrave 8 v. 9.-10. Mamedyarov og Grischuk 5½ v. Kínverjinn Yu Yangyi er öflugur skákmaður og viðureign hans við Magnús hlaut að verða athyglis- verð: Altibox – Norska skákmótið 2019; 8. umferð: Magnús Carlsen – Yu Yangyi Slavnesk vörn 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 dxc4 5. e4 b5 6. Be2 Kasparov tefldi svona fyrir u.þ.b. 40 árum og réðst strax til atlögu með 6. e5 Rd5 7. a4 en svartur á að geta varist. 6. ... b4 7. e5 bxc3 8. exf6 exf6?! Svartur gat hæglega leikið 8. ... cxb2 sem gefur betri möguleika. Nú fær hvítur þægilega stöðu. 9. bxc3 Bd6 10. O-O O-O 11. Rd2 He8 12. He1 Rd7 13. Rxc4 Bc7 14. Bf3 Ba6 15. Re3 Rb6 16. Ba3! Vitaskuld ekki 16. Bxc6?? Dd6! og vinnur. 16. ... Rc4 17. Dd3!? Skemmtilega leikið þó að 17. Bxc6 hafi einnig komið til greina. 17. ... Hxe3 18. Hxe3 Rxe3 19. Dxa6 Rc2 20. Hd1 Rxa3 21. Dxa3 Dd6 22. Dxd6 Bxd6 23. c4! Lærdómsríkt augnablik. Hvítur gat hirt c6-peðið en eftir 23. Bxc6 Hc8 24. d5 er ekki nægjanleg teygja í peðastöðunni. 23. ... Hc8 24. c5 Be7 25. Kf1 f5 26. Ke2 g5 27. h3 Kg7 28. Kd3 Kg6 29. Hb1 h5 30. Hb7 Bf6 31. Hd7 g4 32. Bd1 Kg5 33. Ba4 f4 34. f3 He8 35. fxg4 hxg4 36. hxg4 He6 37. Bd1! Eitt það erfiðasta í skák er að leika vel staðsettum manni aftur upp í borð. En með þessu valdar biskupinn g4-peðið og getur hreiðr- að um sig á f3. 37. ... He3+ 38. Kc4 a5 39. Bf3 Ha3 40. Bxc6 Hxa2 41. Be4 a4 42. c6 Ha1 43. c7 a3 44. Kb3 - og svartur gafst upp. Ein leið er 44. ... Hc1 45. Hd5+ og 46. Hc5 og c-peðið verður að drottningu. Armageddon-skák- ir réðu úrslitum á Norska stórmótinu Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Ljósmynd/Heimasíða Altib Sigurreifur Magnús Carlsen hefur unnið öll þau mót sem hann hefur tekið þátt í á þessu ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.