Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2019 31
Atvinnuauglýsingar 569 1100
Sérfræðingur í
málefnum umhverfis
• Stefnumörkun og gerð áætlana um aukinn árangur
sjávarútvegs í umhverfismálum
• Eftirfylgni áætlana og mælinga á árangri
• Ábyrgð á samskiptum við hagsmunaaðila,
þjónustuaðila og stjórnvöld tengd umhverfismálum
• Kynna framlag sjávarútvegs til umhverfismála
• Styðja við markaðs- og samfélagsmál SFS
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. umhverfis-
verkfræði, umhverfisfræði eða annars konar nám með
áherslu á umhverfismál
• Starfsreynsla á sviði loftslagsmála er kostur
• Brennandi áhugi á loftslagsmálum og sjávarútvegi
• Þekking og reynsla af mótun og framfylgd stefnu
og áætlunar
• Tæknileg kunnátta, s.s reynsla og þekking á skipum
og búnaði þeirra, er kostur
• Mjög góð samstarfs- og samskiptafærni
• Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæði í starfi
• Góð íslensku- og enskukunnátta og færni í
tjáningu í ræðu og riti
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) auglýsa eftir kraftmikilli
manneskju í nýtt starf innan samtakanna á sviði umhverfismála. Um
er að ræða spennandi og krefjandi verkefni sem felur meðal annars í
sér markmiðasetningu í umhverfismálum, innleiðingu verkferla og
verkefnastjórnun með minnkandi kolefnisspor að leiðarljósi.
Menntun og hæfniÁbyrgð og verkefni
Heilbrigt haf, allra hagur
Hreinleiki lands og sjávar skiptir höfuðmáli við nýtingu verðmæta sem
hafið hefur að geyma. Góð umgengni um hafið og fiskveiðar í sátt og
samlyndi við náttúruna eru forsenda þess að fiskistofnar við Ísland
verði nýttir um alla framtíð. Það er ánægjuleg staðreynd að útstreymi
gróðurhúsalofttegunda frá sjávarútvegi hefur minnkað um ríflega 45%
frá árinu 1990. Hér verður þó ekki látið staðar numið. Við ætlum að gera
enn betur!
Umsóknir skulu berast í gegnum vef SFS, www.sfs.is, ásamt ferilskrá og kynningarbréfi með rök-
stuðningi fyrir hæfni í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí nk. Farið verður með allar fyrir-
spurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri SFS, í síma 591-0300.
Frekari upplýsingar um starfsemi SFS má nálgast á www.sfs.is.