Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2019
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Jakkar og yfirhafnir á
20%afslætti
33.980 kr.
27.184 kr.
St. 34-48
Einnig í svörtu
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Opið 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Kr. 7.900
Str. 36-52
Fleiri litir
Buxur
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
SUMARJAKKAR
20%
AFSLÁTTUR
Ármúla 44, 108 Reykjavík
s. 562 6062
Einnig nýjar vörur
komnar í rýmingarsölu
Mikið úrval af fallegum
nýjum vörum
Erum á
facebook
Útsalan hefst mánudaginn 24. júní
Suðurlandsbraut 30 • sími 553 3755
Grassláttur er sagður ganga vel í
Reykjavík og er önnur umferð þeg-
ar hafin, að sögn Björns Ingvars-
sonar, deildarstjóra Þjónustu-
miðstöðvar borgarlandsins. Sláttur
hófst tíu dögum fyrr í ár en vant er
og er það vegna góðviðrisins sem
borgarbúar hafa fengið að njóta í
sumar. Sláttur hefst venjulega í
kringum 26. maí, en í ár hófst hann
16. maí sl.
„Fyrstu umferð er lokið og lauk
að mestu fyrir 17. júní. Það er ekk-
ert endilega meiri sláttur í ár en við
byrjuðum 10 dögum fyrr vegna
veðurfarsins,“ segir Björn.
Grunn- og leikskólalóðir og borg-
arland verður slegið þrisvar, við
þjóðvegi í þéttbýli fjórum sinnum og
almenningsgarðar allt að 15 sinnum.
Þjónustumiðstöð borgarlandsins
sér um grasslátt við þjóðvegi í þétt-
býli og í vestur- og austurhluta
Reykjavíkurborgar en svæðið
spannar um 480 hektara. Starfs-
menn verktaka sinna slættinum,
sem verður meðal annars við Bú-
staðaveg, Kringlumýrarbraut og
Sæbraut, og er svæðið um 118 hekt-
arar. Reykjavíkurborg sér um gras-
slátt í Grafarvogi og Grafarholti.
Starfsfólk á Þjónustumiðstöð
borgarlandsins sinnir slætti á öðrum
svæðum, til dæmis í íbúðahverfum
og á grunn- og leikskólalóðum. Það
svæði er um 334 hektarar að stærð.
Almenningsgarðar, sem spanna
um 22 hektara, verða slegnir allt að
vikulega í sumar eða 15 sinnum og
sinnir starfsfólk garðyrkjudeildar
Reykjavíkurborgar verkinu.
Hægt er að fylgjast með fram-
gangi grassláttar í Reykjavík á
Borgarvefsjá, sem er að finna á vef
Reykjavíkurborgar.
Morgunblaðið/RAX
Úfið Sum svæði eru minna slegin en önnur, t.d. við Ægisíðu í Reykjavík.
Sláttur hófst tíu dögum fyrr í ár
Önnur umferð
sláttarins byrjuð
Guðrún Vala Elísdóttir
Borgarnesi
Guðlaugur Óskarsson, fyrrverandi
skólastjóri á Kleppjárnsreykjum,
hefur haft í ýmsu að snúast en hann
gaf á dögunum út bókina Vet-
urnætur, ljóðmyndir þar sem ljóð
hans og myndir kallast á.
Höfundurinn fyllir um þessar
mundir 70 ár og því er hægt að taka
undir það sem segir á bókarkápu um
Veturnætur, að þær eigi sér hlið-
stæðu í lífsvefnaði manns, þar sem
skil verða á milli aldursskeiða.
Guðlaugur hefur lengi tekið ljós-
myndir og samið ljóð og þessa fyrstu
bók gefur hann út sjálfur þar sem
bæði áhugamálin tvinnast saman.
Ritstjóri er dóttir hans, Hlín Helga,
hönnuðir þau Birna Geirfinnsdóttir
og Arnar Freyr Guðmundsson hjá
Studio Studio og bókin var prentuð í
Eistlandi með milligöngu Prentmiðl-
unar. Bókin er til sölu í Snorrastofu í
Reykholti og kaffihúsinu Heims-
kringlu, sem rekin er í gamla hér-
aðsskólahúsinu þar.
Undanfarin þrjú sumur hafa ljós-
myndasýningar verið á Stálp-
astöðum í Skorradal. Staðurinn er
sérstakur og sýningarsvæðið
óvenjulegt þar sem sýnt er undir
berum himni, í skjóli hárra trjáa, í
og við gömlu hlöðuna sem fyrir
hálfri öld þjónaði sem gististaður
ungmenna sem unnu við plöntun
barrtrjáa á svæðinu. Í ár verður
fjórða ljósmyndasýningin á Stálp-
astöðum og er það Guðlaugur sem
sýnir og er þema sýningarinnar:
Hestar, menn og náttúran.
Sýningin verður opnuð kl. 15 í
dag, 22. júní, og verður hún opin all-
an sólarhringinn til 29. september.
Það er Uppbyggingarsjóður Vest-
urlands sem styður framtakið. Eng-
inn aðgangseyrir er og allir vel-
komnir.
Ljóðabók og úti-
ljósmyndasýning
Þemað er hestar, menn og náttúran
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Ljóðmyndir Guðlaugur Óskarsson
með ljóðabókina Veturnætur.
Allt um
sjávarútveg
Atvinna