Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2019 H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Bílaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem sér um minni háttar viðgerðir og viðhald. Velta 90 mkr. Góður hagnaður. • Rótgróin heildsala með sérhæfðar vörur fyrir byggingariðnað. Velta 100mkr. Góður hagnaður. • Trésmiðja með 40 ára rekstrarsögu sem sérhæfir sig í innréttingasmíði fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtækið er vel tækjum búið og í eigin húsnæði. Velta 130 mkr. • Fyrirtæki sem framleiðir ákveðnar tegundir einfaldra matvæla fyrir aðra aðila á markaði. Töluverð sjálfvirkni þannig að kostnaði er mjög stillt í hóf. Velta 100 mkr. og afkoman sérlega góð. • Lítið ferðaþjónustufyrirtæki í góðum vexti sem býður fjölbreyttar ferðir á Suðurlandi. Eigið húsnæði og góður búnaður. Velta 50mkr. Góður vöxtur. • Heildverslun sem flytur inn ýmsan tæknibúnað til hitunar, kælingar og loftræstingar. Velta yfir 200 mkr. og góð afkoma. • Lítil heildverslun með sterkan fókus í árstíðabundinni vöru. Tilvalinn rekstur fyrir einstaklinga eða sem viðbót við aðra heildsölu. Stöðug rekstrarsaga. Velta 45 mkr. • Þjónustufyrirtæki á mjög sérhæfðu sviði sem hefur eftirlit mað hreinlæti á vinnustöðum, gerir tillögur að kerfum og sér um úttektir. Velta 100 mkr. og góð afkoma. • Hádegisverðarþjónusta þar sem bæði er sent í fyrirtæki og neytt á staðnum í hádeginu. Tilvalið fyrir samhenta fjölskyldu og kokka. Velta 100 mkr. Töluverðir möguleikar fyrir duglega aðila að auka veltuna. Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að herlið landsins hefði verið í viðbragðsstöðu til þess að hefja árásir á skotmörk í Íran í hefndarskyni fyrir drónann sem írönsk stjórnvöld grönduðu á fimmtudaginn. Trump fyrirskipaði hins vegar að hætta við árásirnar innan við tíu mínútum áður en þær áttu að hefj- ast, þar sem gert var ráð fyrir að um 150 manns myndu látast í aðgerð- unum, og væri slíkt mannfall of mik- ið í skiptum fyrir eitt mannlaust flyg- ildi að mati Trumps. Sagði Trump jafnframt að hann væri ekki í nein- um flýti að hefja átök við Írani. Stjórnvöld beggja ríkja deildu áfram í gær um árás Írans á drón- ann, en bandarísk stjórnvöld segja hann hafa verið á flugi um alþjóðlega lofthelgi, en Íranir halda því fram að dróninn hafi farið ólöglega inn fyrir lögsögu Írans og því verið réttmætt skotmark. Foringi loftvarnasveita ír- anska byltingarvarðarins sagði í gær að dróninn hefði fengið tvær viðvar- anir um að yfirgefa lofthelgina áður en hann var skotinn niður í Óman- flóa. Sögðust írönsk stjórnvöld jafn- framt reiðubúin til þess að verja landamæri sín. Abbas Arachi, að- stoðarutanríkisráðherra Írans, kall- aði sendiherra Sviss, sem sér um samskipti Bandaríkjanna og Írans, til sín og afhenti honum formlega kvörtun vegna flugs drónans. Sagð- ist hann jafnframt hafa lagt fram „óumdeilanleg“ sönnunargögn fyrir því að dróninn hefði farið inn í loft- helgina. Bandaríska varnarmálaráðuneyt- ið lagði hins vegar fram sín eigin gögn, sem það sagði sýna að dróninn hefði verið 34 kílómetra frá Íran þegar hann var skotinn niður. Birti ráðuneytið meðal annars kort með flugáætlun drónans og ljósmynd af meintri staðsetningu hans. Banna flugferðir yfir sundið Bandaríska flugumferðarstofnun- in FAA tilkynnti í gær að atvikið með drónann sýndi að ekki væri öruggt að fljúga á þessum slóðum og bannaði bandarískum flugfélögum að fljúga yfir Hormuz-sund um sinn. Ýmis flugfélög á borð við British Airways, KLM, Lufthansa, Qantas og Emirates tilkynntu einnig að þau hygðust breyta flugáætlunum sínum til þess að forðast þetta svæði. Hættu við á síðustu stundu  Trump segir Bandaríkin hafa verið um „tíu mínútur“ frá árásum á Írani AFP Brakið Amir Ali Hajizadeh, leiðtogi loftvarnasveita íranska byltingarvarð- arins, sýnir hér fjölmiðlum brakið af drónanum sem Íranir skutu niður. Mótmælendur söfnuðust saman í gær fyrir framan höf- uðstöðvar lögreglunnar í Hong Kong og kröfðust þess að Carrie Lam, héraðsstjóri Hong Kong, segði af sér og að fólki sem handtekið var fyrir þátttöku í fyrri mót- mælum yrði sleppt úr haldi. Var áætlað að fjöldinn hefði skipt þúsundum og var mikil reiði meðal fólks. AFP Mótmælt fyrir framan lögreglustöðina Irakli Kobak- hidze, forseti georgíska þings- ins, sagði af sér í gær, en mótmælt var í Georgíu í gær annan dag- inn í röð, þrátt fyrir að lög- reglan hefði leyst upp mót- mæli fimmtu- dagsins með mikilli hörku. Um 15.000 manns söfnuðust sam- an fyrir framan þinghúsið í höfuð- borginni Tíblisi og kröfðust þess að boðað yrði til þingkosninga. Mótmælin hófust þegar rúss- neski þingmaðurinn Sergei Gavr- ilov fékk að ávarpa ráðstefnu í þingsalnum úr stóli þingforsetans, en ríkin tvö háðu stríð haustið 2008. Ríkir enn spenna milli ríkjanna vegna átakanna. Sagði Salome Zurabishvili, forseti Georgíu, að ávarp Gavrilovs hefði verið móðgun við heiður þjóð- arinnar. Rússnesk stjórnvöld for- dæmdu hins vegar mótmælin gegn ávarpi Gavrilovs og sögðu þau dæmi um Rússahatur. Þingforseti segir af sér vegna mótmæla Sergei Gavrilov GEORGÍA Leiðtogar Evrópusambandsríkj- anna 27, sem verða eftir í samband- inu þegar Bretar yfirgefa það, vör- uðu við því í gær að engar breytingar yrðu gerðar á samkomulagi því sem Theresa May undirritaði síðastliðinn nóvember. Bæði Boris Johnson og Jeremy Hunt, sem eftir standa í leið- togakjöri breska Íhaldsflokksins, hafa sagt að þeir vilji semja um breytingar á samkomulaginu, sem neðri deild breska þingsins hefur nú þegar fellt þrisvar. Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, sagði á frétta- mannafundi að loknum leiðtogafundi sambandsins að afstaða ESB- ríkjanna væri enn óbreytt, og yrði það þrátt fyrir að mannabreytingar í Lundúnum gætu mögulega gert út- gönguferlið „meira spennandi“. Engar tilnefningar enn Einn tilgangur leiðtogafundarins var sá að kanna hvort leiðtogarnir gætu komið sér saman um það hverj- ir ættu að fá tilnefningar í helstu embætti sambandsins, en kjörtíma- bili Tusks, Jean-Claude Junckers, forseta framkvæmdastjórnarinnar, og Federicu Mogherini, utanríkis- málastjóra sambandsins, lýkur senn. Mesta deilan stendur um arftaka Junckers, en úrslit Evrópuþingkosn- inganna þýða að ekki er meirihluti fyrir Manfred Weber, leiðtoga EPP- flokkaþyrpingarinnar, sem Angela Merkel Þýskalandskanslari styður. Leiðtogarnir hafa gefið sér til loka þessa mánaðar til þess að koma sér saman um tilnefningar í embættin, en þá verður fundað á ný í leiðtoga- ráðinu í Brussel. sgs@mbl.is Vilja engar við- ræður um brexit  Leiðtogafund- inum lauk án tilnefninga AFP ESB Angela Merkel og Emmanuel Macron ræðast við á fundinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.