Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2019
ERUM AÐ TAKA
UPP NÝJAR
VÖRUR!
companyskringlan
companys kringlunni
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég fagna því að geta skrifaðþessa stuttu drápu umRammstein, hljómsveit sem
ég elska skilyrðislaust. Og ég er síst
einn um það. Sveitin höfðar af ein-
hverjum óútskýranlegum ástæðum
sterkt til okkar Íslendinga og óhætt
að segja að mörlandar hafi beðið
þessarar nýju plötu með óþreyju.
Síðasta plata Rammstein,
Liebe Ist Für Alle Da (2009), var
slöpp. Það er eins og það hafi verið
til marks um að bensínið hafi verið
á þrotum hjá okkar mönnum að svo
virtist sem sveitin væri sátt við að
vera orðin ferilsband, þ.e. spilandi
slagarana á tónleikum út í hið óend-
anlega. Fréttir af nýrri plötu skutu
manni í raun skelk í bringu, maður
var óöruggur eftir slappleika síð-
ustu verka (Rosenrot og Reise
Reise voru heldur engin meistara-
verk). Það er því gleðilegt að geta
sagt frá því að Rammstein hefur
fundið fjölina á ný. Pistilritari er að
fá skilaboð frá rokkvinum í gegn-
um ýmsa miðla með setningum eins
og „Hún er bara góð nýja Ramm-
stein!?“ Einn þeirra orðaði það frá-
bærlega, „þetta er svo mikið lol en
á sama tíma já!!“. Lauslega þýtt,
þetta er svo fyndið og ýkt en rokk-
ar um leið eins og fjandinn.
Rammstein hefur frá fyrstu tíð
verið einstök myndbandahljóm-
sveit. Það eru þau sem maður bíður
spenntastur eftir því þar stinga
þeir ógjarnan á samfélagsmeinum,
horfast blákaldir í augu við þýskan
veruleika og henda bannhelgum
hlutum óhikað í hrærivélina. Svei
mér þá, Rammstein þorir á meðan
aðrir þegja. Og til að hamra skila-
boðin inn ganga þeir iðulega eins
langt og hægt er – og oftast ögn
lengra.
Fyrsta myndbandið við þessa
plötu er við lagið „Deutschland“.
Ég man í svipinn ekki eftir annari
Þora á meðan aðrir þegja
Germanía Stilla úr áhrifamiklu myndbandi við lagið „Deutschland“ . Í
miðið er Germanía sjálf, þeldökk og eru það sterk skilaboð frá sveitinni sem
hægt er að tengja inn á sögulega, aríska tilburði, mismunun og fleira.
eins „við erum mættir!“ yfirlýsingu
og það myndband er. Það er
STÓRT á allan hátt. Níu mínútur,
starfsmenn við það skiptu hundr-
uðum (sjá langan upplýsingalista í
lokin) og myndbandið gríðarlega
umfangsmikið og metnaðargjarnt.
Saga gervalls Þýskalands undir,
takk fyrir, og byrjað í myrkustu
miðöldum. Búningaskipti og senur í
tugatali og Auschwitz, staður sem
hvað mest bannhelgi er yfir í opin-
berri þýskri umræðu, er m.a. af-
greiddur. Í miðið er Germanía sjálf,
svört, og eru það gríðarlega sterk
skilaboð frá sveitinni sem hægt er
að tengja inn á sögulega, aríska til-
burði, mismunun o.s.frv.
Þessum leik var haldið áfram á
„Radio“, grípandi útvarpssmellur
um ... uh ... útvarp en í myndband-
inu má sjá dýpri skilaboð sem hafa
að gera með niðurníðslu mannrétt-
inda og tjáningarfrelsis. Nýjasta
myndbandið er svo við „Ausländ-
er“, algert snilldarverk sem tekur á
blóði drifinni sögu Þýskalands í
Afríku. Rammstein gerir þetta af
ótrúlegri næmni og sniðugheitum,
örlítil skilaboð í örstuttum römm-
um sem segja stóra sögu. Uppá-
haldsatriðið mitt er þegar innfædd-
ur ætlar að taka í höndina á Paul
gítarleikara en Paul dregur hönd-
ina til baka og greiðir sér um koll-
vikin til að „dissa“ gestgjafann.
Atriðið er í sekúndubrot en segir í
raun allt.
Eins og ég segi, ég var dauð-
hræddur um að þessir herramenn,
sem mér þykir svo vænt um, væru
heillum horfnir en svo er aldeilis
ekki. Það er erfitt að lýsa þessu, líkt
og að hitta góðan frænda sinn sem
er búinn að vera heilsuveill lengi og
svo kemur hann til dyra, algerlega
stálsleginn. Skýr og skarpur og
með glúrnar skoðanir á því sem
máli skiptir. Velkominn Ramm-
steinn (hvenær verður þetta sam-
þykkt sem íslenskt eiginnafn, svona
svipað og Hafsteinn?)!
»Rammstein hefurfrá fyrstu tíð verið
einstök myndbanda-
hljómsveit. Það eru þau,
sem maður bíður
spenntastur eftir, því að
þar stinga þeir ógjarnan
á samfélagsmeinum...
Ný plata frá þýsku sveitinni Rammstein, samnefnd henni, kom út fyrir stuttu Tíu ár eru liðin frá því sú síðasta kom út
Sveitin þykir endurnýjuð að kröftum – og gríðarsterk tónlistarmyndböndin hafa vakið athygli sem aldrei fyrr
Grallarar Það er stutt í grínið hjá félögunum í rokksveitinni Rammstein. Þeir eru aldeilis ekki heillum horfnir og bæði tónlist og myndefni vekja athygli.
Streymisveitan Storytel, sem sér-
hæfir sig í hljóðbókum og rafbók-
um, efndi til handritasamkeppn-
innar Eyrans á dögunum og nú
liggja úrslit hennar fyrir. Einar Leif
Nielsen hreppti fyrsta sætið fyrir
framtíðarglæpasöguna Sýnd-
arglæpi. Í tilkynningu frá Storytel
kemur fram að framtíðarsýnin sem
Einar skapar hafi þótt „einstaklega
sannfærandi og óhugnanleg um
leið, persónurnar vel skrifaðar og
sagan heldur lesandanum frá upp-
hafi til enda“. Sýndarglæpir er önn-
ur skáldsaga Einars en hann lauk
ritlistarnámi frá Háskóla Íslands ár-
ið 2017.
Í öðru sæti varð Tómas Zoëga
með barnabókina Vetrargestir og í
því þriðja var Hildur Enóla með
fantasíuna Íohúlú. Verkin þrjú
verða öll gefin út sem hljóðbækur
hjá Storytel og kemur fyrsta bókin
út í lok sumars. Þátttakan í sam-
keppninni þótti góð en Storytel bár-
ust yfir þrjátíu handrit. Sigrún Mar-
grét Guðmundsdóttir bókmennta-
fræðingur, Óskar Guðmundsson
rithöfundur og Sóla Þorsteinsdóttir,
framleiðandi hjá Storytel, skipuðu
dómnefnd Eyrans.
Sigurvegari Einar Leif Nielsen bar sigur
úr býtum í hljóðbókasamkeppni Storytel.
Handritasam-
keppni Storytel
Sigurður Mar Halldórsson opnaði
sýninguna Undan vetri í Slunkaríki
í Edinborgarhúsinu á Ísafirði 17.
júní. Á henni má sjá níu ljósmyndir
sem Sigurður tók með linsum sem
hann smíðaði sjálfur en með því
nær hann fram „áhrifum sem hin
ofurskarpa tækni nútímans nær
ekki að skapa og ekkert mynd-
vinnsluforrit getur líkt eftir því
galdurinn er í glerinu“, eins og seg-
ir í tilkynningu. Ljósmyndir Sig-
urðar eru sagðar eftirtektarverðar
fyrir dulúð og draumkennd og á
þeim má sjá vaknandi jörð á leið
undan vetri þar sem tilfinningin
fyrir vorinu gæðir þær lífi.
Vetrartíð Ein mynda Sigurðar.
Dulúð og draum-
kennd í Slunkaríki