Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2019 Glæsilegir skartgripir innblásnir af íslenskri sögu GULL SM IÐUR & SKARTGR I PAHÖNNUÐUR Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is SENDIBÍLL ÁRSINS 2019 Splunkunýr Citroën Berlingo Van er nú með 5 ára verksmiðju- ábyrgð, sparneytinni vél og fáanlegur með 8 þrepa sjálfskiptingu. Komdu og prófaðu nýjan Berlingo sem er rúmbetri og öflugri en nokkru sinni áður. NÝTT: Fyrirtækjalausnir Brimborgar kynna flotastjórnunarkerfið Brimborg Fleet Manager sem er vistað í skýinu, auðvelt í notkun og getur lækkað rekstrarkostnaðinn umtalsvert. Fáðu kynningu. KOMDU & KYNNTU ÞÉR ÖRUGG GÆÐI CITROËN! Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 8 Sími 515 7040 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 VERÐ FRÁ: 2.532.000 EÐA 3.140.000 KR. MEÐ VSK KR. ÁN VSK citroen.is Forsendur framlengdrar verksmiðjuábyrgðar eru reglulegt þjónustueftirlit samkvæmt staðli framleiðenda frá nýskráningardegi bifreiðar. Kaupandi ber kostnað af þjónustunni. Nánari upplýsingar citroen.is/abyrgd. NÝR CITROËN BERLINGO VAN NÚMEÐ 5 ÁRA ÁBYRGÐ* * STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Fyrsta veiðidag sumarsins, 4. júní síðastliðinn, veiddust sjö laxar í Norðurá. Vatnsstaðan var æði lág þann dag, rennslið um 3,7 rúmmetr- ar sem var verulega minna en á sama tíma í fyrra er það var um 40 rúmmetrar, sem þótti nokkuð gott í sumarbyrjun. En nú í byrjun júní höfðu þurrkar ríkt lengi á Vestur- landi og vetrarsnjórinn, forðinn sem venjulega dugir ánum eitthvað inn á sumar, var allur bráðnaður úr fjöll- um. Og enn er þurrkur og veiði- bændur jafnt sem veiðimenn tala um hamfarir; ef litið er til Norðurár þá veiddist ekki nema einn lax vikuna eftir upphafið og í síðustu viku fjórir til. Eftir að hafa séð ána í liðinni viku er ekki annað hægt en dást að þeim veiðimönnum sem hafa fengið laxa til að taka flugur í vatnslitlum og stöðnum hyljunum. Sagan er sú sama í mörgum ám á Vesturlandi. Þær renna ekki, laxinn nær ekki að ganga upp í þær – og veiðihús standa tóm. Blaðamaður átti veiðidaga í Kjarrá í vikunni og hefur átt því að venjast að mæta þar í veislu á þeim tíma; fyrstu tvær vik- urnar hafa venjulega gefið hátt í eða meira en tvö hundruð laxa. Nú voru sjö laxar komnir í bók og vissulega fiskar í dýpstu hyljum sem sytraði í; en meira að segja vötnin á Tvídægru eru orðin það lítil að þau ná ekki að skila rennsli niður í Þverá og Kjarrá. Laxinn kemst ekki milli hylja í ánni og það var ekki freistandi að leggja flugur fyrir þessa aðþrengdu fiska í þessari annars frábæru veiðiá. En laxinn bíður í Brennu, í Hvítá við ós Þverár. Þar höfðu 54 verið færðir til bókar á miðvikudaginn. „Ein buna“ á hyl Vissulega hefur veiðst ágætlega þar sem vatnsrennsli er gott. Til að mynda við Urriðafoss í Þjórsá en þar höfðu 256 laxar veiðst frá byrjun mánaðarins. Tölur í Blöndu hafa hins vegar oft verið hærri en 85 höfðu veiðst á miðvikudag, stærstir tveir 98 cm. Og veiðin fór vel af stað í Rangánum síðustu daga. En það er í skugga hins ískyggilega vatnsleysis sem laxveiðin hefur hafist í hverri ánni á fætur annarri síðustu daga. Veiðiárnar í Húnavatnssýslum eru vatnslitlar sem um sólríkt hásumar en sæmilega veiddist í opnunarholl- inu í Miðfjarðará, best í Austurá sem býr yfir djúpum hyljum og er vatns- mest ánna þriggja í vatnakerfinu; fyrstu þrjár vaktirnar gáfu tíu laxa og var veitt afar varfærnislega. Í samtali við Sporðaköst á Mbl.is sagði leigutakinn Rafn Valur Al- freðsson að vaktirnar hefðu verið styttar niður í fjóra tíma og einungis verið veitt á mjög smáar flugur og farið bara „ein buna“ yfir hvern hyl. „Þetta er tilraun til að halda lífi í þessu á meðan ástandið er svona erf- itt,“ sagði hann. Fjórir laxar veiddust fyrsta dag- inn í Víðidalsá og Fitjá í fyrradag, sá stærsti 82 cm, og í Vatnsdalsá hófust veiðar í gær, þar var fyrstu löxunum landað að vanda í Hnausastreng, stórum og björtum. Veiðar hófust í Laxá í Aðaldal í fyrradag og að vanda veiddu Laxa- mýringar fyrstu vaktina neðan Æðarfossa. Haft er eftir Jóni Helga Björnssyni á Mbl.is að aðstæður hafi verið erfiðar, kalt og hvasst en þó nóg vatn, ólíkt því sem er í mörgum öðrum landshlutum. Sett var í sex laxa á vaktinni og náðist að landa þremur þeirra; Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norð- urlandi eystra, náði þeim fyrsta á land og var það 86 cm hrygna úr Kistukvíslinni. Vigfús Bjarni Jóns- son landaði svo 94 cm hæng í Foss- polli og loks fékk Jón Helgi sjálfur um 90 cm hæng í Kistuhyl. Tóku lax- arnir flugurnar Frances og Abbadís. Erlendir veiðimenn veiddu fjóra laxa á fyrstu vaktinni í Grímsá í Borgarfirði og komu þeir upp á öll- um svæðum árinnar, sá stærsti, 90 cm, veiddist í Strengjum. Morgunblaðið/Einar Falur Vatnsþurrð Tryggvi Ársælsson landaði öðrum laxi sumarsins við Eyrina í Norðurá 4. júní, Einar Sigfússon háfaði. Fáir hafa veiðst þar síðan. „Þetta er tilraun til að halda lífi í þessu“  Margar bestu laxveiðiár landsins líða fyrir vatnsleysi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.