Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2019 60 ára Þór er Reykvík- ingur og er leikari frá Leiklistarskóla Íslands. Hann hefur verið fast- ráðinn leikari við Þjóð- leikhúsið og Borgar- leikhúsið og hefur einnig leikstýrt. Að auki starfar hann sem leiðsögumaður. Maki: Elísabet Katrín Friðriksdóttir, f. 1969, umhverfissiðfræðingur frá HÍ og er rekstrarstjóri í eldhúsinu á Landspít- alanum. Hún á tvo syni. Börn: Arna Sif, f. 1988, og Freyja, f. 1989. Barnabarn: Anna Sóley Kristjánsdóttir. Foreldrar: Hrafn Tulinius, f. 1931, d. 2015, læknir og prófessor við HÍ, og Helga Brynjólfsdóttir, f. 1931, píanókenn- ari, búsett í Reykjavík. Þór Tulinius Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú þarft að venja þig af kæk sem fer í taugarnar á þínum nánustu. Þú ert eftirsótt/ur af vinum og þarft að velja og hafna, getur ekki verið alls staðar. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert undir auknum þrýstingi um þessar mundir. Settu þig í stellingar og vertu tilbúin/n að setja upp sparibrosið um leið og einhver hefur samband. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert í ljúfu og góðu skapi og fólk vill vera nálægt þér. Hagaðu þér eins og leiðtogi svo að aðrir fylgi þér. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Fortíðin nær tökum á þér, bæði góðar minningar og slæmar. Nú er komið að því að sinna heimilinu og því sem hefur setið á hakanum síðustu vikur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert í skapi til að kynnast nýju fólki og sjá hvert það leiðir þig. Hættu að reyna að fá fólk til þess að vera sammála þér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur þann hæfileika að geta hjálpað/kennt öðrum. Settu í forgang það sem skiptir þig öllu máli. Finndu eitthvað til að vera þakklát/ur fyrir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Fylgdu málum vel eftir jafnvel þótt þér kunni að leiðast öll smáatriðin. Óvænt uppákoma verður í veislu sem þú ferð í fljótlega. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Til að endurheimta kraftana skaltu njóta einveru og rólegheita í dag. Gleðin verður við völd næstu vikur og þú færð boð í brúðkaup. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú gætir þurft að sitja undir harðri gagnrýni maka eða vinar í dag. Hvernig væri að brosa meira? Barnið í þér hefur verið týnt lengi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Lífið er endalaus lærdómur. Farðu í ferðalag, ef tækifæri gefst á næst- unni. Þú færð aðvörun á einhvern hátt, en bara einu sinni. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Makinn er léttur í skapi, vin- gjarnlegur og orðheppinn í dag. Smá kvef gæti hrellt þig fljótlega. Einhver stígur í vænginn við þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Með örlítilli þolinmæði og smá hugkvæmni átt þú að geta fellt alla hluta saman þannig að úr verði heil mynd. Þú átt gott samtal við foreldra þína. fyrir í uppþvottavélum og senda í dauðhreinsun. Öll þessi störf voru skemmtileg og ég hefði alveg viljað halda áfram að vinna við bíla eða á skurðstofu eða við garðyrkju. En þegar maður hefur áhuga á mörgu getur verið hentugt að starfa sem blaðamaður og fá tækifæri til að fjalla um ólíka fleti samfélagsins og tala við alls konar fólk.“ Eyrún kynntist fjölmiðlum fyrst í gegnum sumarstarf á Textavarpi RÚV árið 2000. „Sumarið eftir fór ég svo í hið alræmda Moggapróf, en á þeim tíma voru jafnan yfir 100 umsækjendur um sumarstarf á Mogganum og það var valið eftir einkunn úr sérstöku prófi sem var tekið í Háskólanum í Reykjavík, sem þá var í Kringlunni. Ég fékk sumarstarf og kynntist þannig blaðamennsku.“ Eyrún vann með hléum í tæp fjögur ár sem viðskiptablaðamaður á Mogganum. Hún vann svo í Kastljósi á RÚV í rúm tvö ár en tók þá hlé á fjölmiðla- svokölluðu skoli á skurðstofu á Landspítalanum. Sá þar um að þrífa áhöld eftir aðgerðir, raða skurðlæknagræjum á bakka, koma E yrún Magnúsdóttir fæddist 22. júní 1979 í Reykjavík og ólst upp í Seljahverfi, bjó þar frá fæðingu og fram yfir tvítugt. „Við fjölskyldan bjugg- um í Dalseli þangað til ég var 10 ára og fluttum þá í Jakasel, á báðum stöðum vorum við svo lánsöm að eiga alveg frábæra nágranna. Ég held ég hafi lært mikið af því hvað foreldrar mínir náðu einhvern veg- inn alltaf að gera nágranna sína að góðum vinum fyrir lífstíð. Ná- grannaerjur voru framandi fyrir mér þegar ég var að alast upp, ég vandist því bara að nágrannar væru vinir. Það er eitthvað sem er gott að tileinka sér, að láta sér annt um ná- grannana, fólkið sem maður óhjá- kvæmilega umgengst talsvert frá degi til dags.“ Eyrún æfði alls konar íþróttir sem krakki; t.d. frjálsar, samkvæm- isdans, skíði, fimleika og tennis og var alltaf mikið á skíðum og ferðað- ist mikið um landið með fjölskyldu sinni. „Ég bý að því og reyni að gera það sama fyrir minn dreng, hann er á fullu í íþróttum, æfir fim- leika, körfubolta og golf og ég þvælist með hann um landið á sumrin. Við förum á skíði á veturna og höfum bæði alveg óskaplega gaman af því að ferðast um heim- inn.“ Eyrún gekk í Seljaskóla, útskrif- aðist af náttúrufræðibraut frá Kvennaskólanum í Reykjavík, fór þá í Háskóla Íslands, tók eitt ár í sagnfræði en lauk BA-gráðu í hag- fræði með sagnfræðina sem auka- grein. Hún tók tvær annir í Erasmus-skiptinámi í Mílanó á Ítalíu. Síðar fór Eyrún í meistara- nám í stjórnun og stefnumótun í viðskiptadeild HÍ. „Fyrsta reynsla mín af atvinnu- lífinu var eins og hjá flestum í gegnum sumarstörf. Ég var svo heppin að fá að prófa ólík störf. Ég vann hjá Landsvirkjun eitt sumar á bílamiðstöð, sá um að kaupa vara- hluti í bíla, þrífa þá og sinna léttu viðhaldi. Starfaði svo í skólagörð- unum nokkur sumur og eitt sumar og hluta úr vetri starfaði ég líka í störfum og starfaði við ráðgjöf og almannatengsl í nokkur ár. „Þegar sonur minn var lítill ákvað ég að skella mér í meistaranámið og skömmu eftir að ég lauk því námi bauðst mér að taka við nýju og end- urbættu Sunnudagsblaði Moggans og hafði umsjón með því blaði í nærri sjö ár. Það var mikil áskorun og mér þykir ákaflega vænt um þann tíma og allt fólkið sem ég fékk að vinna með og skrifa fyrir.“ Nýlega tók Eyrún þá ákvörðun að færa sig um set og tók við starfi sem framkvæmdastjóri Kjarnans. „Hér er unnið frábært starf með heilindi og sjálfstæða blaða- mennsku að leiðarljósi. Ég hef fulla trú á að nú sé skemmtilegur tími framundan við uppbyggingu á þess- um unga en öfluga netmiðli. En sumarið fer engu að síður í útilegur og útivist með syni mínum, fjöl- skyldu og góðum vinum, það breyt- ist ekkert þótt ég vinni á nýjum stað. Afmælisdeginum ætla ég að Eyrún Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Kjarnans – 40 ára Ljósmynd/Bjartur Einarsson Mæðginin Bjartur og Eyrún á 102. hæð í New York rétt fyrir páska á þessu ári. Nýjar áskoranir framundan Ljósmynd/Bjartur Einarsson Horft til sólar Eyrún ætlar ekki að slá slöku við í útivistinni í sumar. 50 ára Helga Rós er frá Hvíteyrum í Skaga- firði en býr í Varma- hlíð. Hún er óperu- söngkona frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og Tónlist- arháskólanum í Stutt- gart. Hún starfaði við óperuna þar hátt í áratug en í dag stjórnar hún Skagfirska kammerkórnum og Kvennakórnum Sól- dísi auk þess að kenna söng á eigin veg- um. Hún syngur einnig við ýmis tæki- færi. Maki: Magnús Sigmundsson, f. 1957, rekur ferðaþjónustufyrirtækið Hesta- sport. Hann á tvö börn og tvö barnabörn. Foreldrar: Indriði Sigurjónsson, f. 1933, d. 2015, bóndi á Hvíteyrum, og Rósa Björnsdóttir, f. 1941, fv. bóndi á Hvít- eyrum og er búsett þar. Helga Rós Indriðadóttir Til hamingju með daginn Akureyri Unnur Dröfn Þorvalds- dóttir fæddist 22. júní 2018 kl. 10.09 og á því eins árs afmæli í dag. Hún vó 4.660 g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Sigrún Björk Bjarkadóttir og Þorvaldur Helgi Sigurpálsson. Nýr borgari ... stærsti uppskriftarvefur landsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.