Morgunblaðið - 22.06.2019, Page 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2019
ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarhelgi-
stund kl. 11. Barn borið til skírnar.
Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjón-
ar. Félagar úr kór Árbæjarkirkju leiða
sönginn og Benjamín Gísli Einarsson
leikur á flygilinn. Kirkjukaffi og spjall
eftir stundina.
ÁSKIRKJA | Lesmessa kl. 11. Séra
Sigurður Jónsson prédikar og þjónar
fyrir altari.
ÁSTJARNARKIRKJA | Sameiginleg
hjólreiðamessa þjóðkirkjusafnaðanna
í Hafnarfirði, í Garðabæ og á Álfta-
nesi. Hjólað verður á milli kirkna og
verður það einn liður messunnar í
hverri þeirra. Messan hefst í Ástjarn-
arkju kl. 10, ath. breyttan messu-
tíma. Þaðan verður hjólað til Hafn-
arfjarðarkirkju. Nánari upplýsingar á
heimasíðu kirkjunnar, www.astjarn-
arkirkja.is.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sameiginleg
göngumessa þjóðkirkjusafnaðanna í
Breiðholti. Safnast saman við Breið-
holtskirkju og gengið þaðan kl. 10 að
Seljakirkju þar sem messa hefst kl.
11. Ensk messa í Breiðholtskirkju kl.
14. Prestur sr. Toshiki Toma, org-
anisti er Örn Magnússon.
BÚSTAÐAKIRKJA | Jónsmessu-
kvöld sunnudag kl. 20.
Rómantísk tónlist og hugleiðing um
ástina, kærleikann og lífið. Jónas
Þórir og félagar úr Kór Bústaðakirkju
leiða tónlistina. Messuþjónar að-
stoða. Kvöldhressing eftir messu.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö.
kl. 8, lau. kl. 16 er vigilmessa á
spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11.
Prestur er Eva Björk Valdimarsdóttir,
félagar úr Dómkórnum syngja, org-
anisti er Erla Rut Káradóttir. Minni á
bílastæðin við Alþingi.
FELLA- og Hólakirkja | Sameig-
inlegar gönguguðsþjónustur kirkn-
anna í Breiðholti:
23. júní verður gengið frá Breiðholts-
kirkju kl. 10 í Seljakirkju. Guðsþjón-
usta kl. 11.
30. júní verður gengið frá Seljakirkju
kl. 10 í Fella- og Hólakirkju. Guðs-
þjónusta kl. 11.
Eftir gönguguðsþjónusturnar er boðið
upp á létta hádegishressingu og síð-
an er rútuferð til baka að þeirri kirkju
sem gengið var frá.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Ferming-
armessa sunnudag kl. 14. Séra
Hjörtur Magni Jóhannsson þjónar fyrir
altari. Hljómsveitin Mantra og Söng-
hópurinn við Tjörnina leiða sönginn
ásamt Erni Arnarsyni gítarleikara.
GLERÁRKIRKJA | Messa sunnudag
í Lögmannshlíðarkirkju kl. 20. Sr.
Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór
Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn
Petru Bjarkar Pálsdóttur organista.
GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffi-
húsamessa kl. 11. Séra Guðrún
Karls Helgudóttir prédikar og þjónar.
Forsöngvari leiðir söng og organisti er
Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. María Ágústdóttir þjónar. Ásta
Haraldsdóttir er organisti og félagar
úr Kirkjukór Grensáskirkju sjá um
tónlist. Heitt á könnunni fyrir og eftir
messuna.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Karl
V. Matthíasson, organisti er Hrönn
Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju
syngur. Kirkjuvörður er Lovísa Guð-
mundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Hjólað
milli kirkna í Hafnarfirði og Garðabæ í
stað hefðbundins helgihalds. Lagt af
stað frá Ástjarnarkirkju og Vidal-
ínskirkju kl. 10. Hóparnir hittast við
Hafnarfjarðarkirkju kl. 10.30. Komið í
Víðistaðakirkju kl. 11. Komið við í
Garðakirkju kl. 11.30. Bessa-
staðakirkja kl. 12.15. Haldið heim á
ný kl. 12.20.
Hressing á leiðinni. Í hverri kirkju er
stutt helgistund. Hægt er að byrja
eða hætta hvar sem er á leiðinni. All-
ir velkomnir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Hópur
messuþjóna aðstoðar. Félagar úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Björn Steinar Sólbergs-
son. Upphaf Alþjóðlegs orgelsumars:
Tónleikar laugard. kl. 12 og sunnud.
kl. 17. Björn Steinar Sólbergsson
leikur.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11,
organisti er Aðalheiður Þorsteins-
dóttir, prestur er Eiríkur Jóhannsson.
HVALSNESKIRKJA | Kvöldmessa
kl. 20. Almennur söngur við gítarund-
irleik.
LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 20. Arngerður María Árna-
dóttir organisti leikur á hljóðfæri og
leiðir söng. Sr. Davíð Þór Jónsson
þjónar fyrir altari og prédikar. Athugið
breyttan messutíma. Þetta verður
síðasta guðsþjónustan í Laugarnes-
kirkju fyrir sumarleyfi. Næsta guðs-
þjónusta verður sunnudaginn 4.
ágúst kl. 20.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Messa um kvöldið
kl. 20, sr. Bára Friðriksdóttir þjónar.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar
úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng.
Við orgelið situr María Kristín Jóns-
dóttir. Prestur er Skúli S. Ólafsson.
Kaffisopi eftir messu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Messa
23. júní kl. 18, athugið breyttan
messutíma. Séra Pétur þjónar, Krist-
ján Hrannar sér um tónlistina, Petra
er messugutti og Ólafur Kristjánsson
tekur vel á móti kirkjugestum. Gúll-
assúpa og spjall eftir messu.
PRESTBAKKAKIRKJA Hrútafirði |
Árleg sögumessa sunnudag kl. 14.
Ingi Heiðmar Jónsson sagnfræðingur
frá Ártúnum í Blöndudal leikur á
Björgvinsorgelið nýja og stýrir söng.
Meðhjálpari og hringjari er Kristín
Leifs Árnadóttir djákni. Eftir messu
bjóða safnaðarkonur til kaffiveitinga í
safnaðarheimili.
SALT kristið samfélag | Sameigin-
legar samkomur Salts og SÍK kl. 17
alla sunnudaga í Kristniboðssalnum
Háaleitisbraut 58-60. Barnastarf.
Túlkað á ensku.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sameiginleg gönguguðsþjónusta
Breiðholtssafnaðanna þar sem geng-
ið verður frá Breiðholtskirkju kl. 10
og yfir í Seljakirkju. Sr. Bryndís Malla
Elídóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Örn Magnússon leikur á orgel og fé-
lagar úr Kór Seljakirkju leiða söng.
Kaffi að messu lokinni.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgi-
stund í húsi Lyfjafræðisafnins við
Nesstofu kl. 11. Sóknarprestur þjón-
ar. Organistinn mætir með harm-
onikkuna. Kaffiveitingar eftir athöfn.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Hjólreiðamessa í Hafnarfirði og
Garðabæ. Komið við í Víðistaðakirju
kl. 11. Stund í kirkjunni og hressing í
safnaðarsal. Sjá nánar á vidistada-
kirkja.is.
Morgunblaðið/Ómar
Hvalfjörður Hallgrímskirkja
ORÐ DAGSINS:
Ríki maðurinn og
Lasarus
(Lúk. 16)
✝ Sigrún Sigur-geirsdóttir
fæddist á Ísafirði
23. apríl 1935.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Vestfjarða 15. júní
2019.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Sigurgeir Bjarni
Halldórsson frá
Minni-Bakka í
Skálavík, f. 2.3. 1908, d. 31.3.
1972, og Sveinsína Björg Guð-
mundsdóttir frá Tungugröf í
Tröllatunguhreppi en alin upp
í Bolungarvík frá 7 ára aldri,
f. 17.5. 1908, d. 11.9. 1983.
Sigrún var þriðja í röð tólf
systkina en auk þess ólst upp á
heimilinu systurdóttir hennar,
Pálína K. Þórarinsdóttir.
Sigrún ólst upp á Ísafirði og
bjó þar allan sinn aldur fyrir
utan síðasta rúman áratug
sem hún bjó í Stykkishólmi
ásamt eiginmanni sínum,
Sigurgeir Hrólfur Jónsson,
f. 31.5. 1955. Maki: Þórdís
Mikaelsdóttir. Þau eiga saman
tvö börn, fyrir átti Sigurgeir
tvær dætur.
Börn Sigrúnar sem hún
eignaðist með fyrri eig-
inmanni sínum, Sverri Hall-
dóri Sigurðssyni, f. 6.9. 1936,
d. 25.7. 1996, eru: Bjarnþór
Haraldur Sverrisson, f. 3.9.
1957. Hann á tvær dætur. Sig-
ríður Inga Sverrisdóttir, f.
16.7. 1959. Maki: Árni Sig-
urðsson. Hún á einn son. Kol-
brún Sverrisdóttir, f. 4.5.
1961. Hún á þrjú börn. Guð-
mundur Bjarni Sverrisson, f.
22.9. 1965. Maki: Sakuntara
Chantavong. Þau eiga einn
son. Halldór Benedikt Sverr-
isson, f. 15.7. 1967. Hann á
einn son.
Hafsteinn Sverrisson f.
13.11. 1972. Maki: Margrét
Björgvinsdóttir. Þau eiga sam-
an þrjú börn, fyrir átti Haf-
steinn eina dóttur.
Barnabörn Sigrúnar eru 21
og barnabarnabörnin 32 tals-
ins, von er á fyrsta barna-
barnabarnabarninu í haust.
Útför Sigrúnar fer fram frá
Ísafjarðarkirkju í dag, 22. júní
2019, klukkan 14.
Gunnlaugi Valdi-
marssyni, f. 20.5.
1927, d. 27.3.
2019, en hún var
nýflutt aftur heim
á Ísafjörð þegar
hún lést.
Systkini Sigrún-
ar eru: Hafsteinn,
f. 16.9. 1930, d.
19.4. 2012. Ingi-
björg, f. 14.5.
1932, d. 6.4.1997.
Sæunn Marta, f. 12.11. 1936.
Garðar Ingvar, f.15.11. 1938.
Helga, f. 18.2. 1940. Halldór, f.
7.2.1943. Margrét, f. 23.8.
1944. Lilja, f. 3.3. 1946. Haf-
þór, f. 28.6. 1949, d. 27.5.
2006. Sveinsína Sigurveig, f.
13.7. 1950. Hörður Bergmann,
f. 23.7. 1936, d. 5.12. 1998.
Börn Sigrúnar sem hún
eignaðist með Jóni Gunnari
Sigfúsi Björgúlfssyni, f. 29.9.
1931, d. 19.4. 1971, eru:
Sveinsína Björg Jónsdóttir, f.
10.12. 1953. Hún á fimm börn.
Ef þú sérð gamla konu, þá minnstu
móður þinnar,
sem mildast átti hjartað og þyngstu
störfin vann
og fórnaði þér kröftum og fegurð
æsku sinnar
og fræddi þig um lífið og gerði úr
þér mann.
(Davíð Stefánsson)
Elsku hjartans mamma mín
hefur kvatt þennan heim, hún
var langt frá því að vera tilbúin
í þá ferð í huganum en skrokk-
urinn sannarlega hvíldinni feg-
inn. Nýliðið ár var henni eitt
það erfiðasta í hennar lífi, hún
missti ástina sína, manninn sem
bar hana á höndum sér og vakti
yfir velferð hennar og okkar.
Að auki þurfti hún að horfast í
augu við það að geta ekki leng-
ur haldið heimili á Dvalarheim-
ilinu í Hólminum.
Þetta var henni erfitt enda
hún ættmóðirin vön að standa
sína plikt en hún stóð svo sann-
arlega ekki ein þegar á reyndi
frekar en fyrri daginn enda
fólkið úr Vallaborginni þekkt
fyrir að standa saman utan vall-
ar sem innan. Hún tók ákvörð-
un, bjó sig til heimferðar heim í
fjörðinn sinn fallega og sótti
fast að taka með það mikilvæg-
asta, manninn sem hún elskaði,
hann skyldi hvíla þar sem hún
gæti vitjað hans. Síðustu vikur
voru eins og í fallegri ástar-
sögu, sögunni hennar mömmu
og Gulla. En mamma mín var
ekki alveg tilbúin í lokakaflann,
á því áttaði ég mig fljótlega,
hún var gömul sjómannskona,
vön að stýra stóru heimili og
nú var hún komin heim. Hug-
urinn bar hana í erfiðleikunum
miklu meira en hálfa leið og nú
var hún komin að taka upp
þráðinn og gera gagn.
Það gerði hún svo sannar-
lega, þó hún væri farin að
heilsu þá var mín kona ákveðin,
hún gæti þetta sjálf, ekkert
kjaftæði. Færum við yfir strik-
ið að reyna að létta henni lífið,
viðruðum hugmyndir eins og
hjólastól, sjúkrarúm og álíka
þægindi þá setti hún upp svip-
inn sem dugði á okkur sem
börn og sagði: „Kolbrún
stopp!“, hélt svo áfram og sagði
með blíðum róm: „Hvað segir
þú, Gummi minn,“ þá þekkti
Kolbrún hennar sinn vitjunar-
tíma og þagði.
En undanfarnar vikur hafa
ekki bara verið hlaðnar erfiði,
þær hafa líka verið fullar af
gleði og ómældri ást og hlýju,
ótrúlegasta fólk fylkti sér að
baki gömlu ættmóðurinni, um-
vafði hana og tók að sér það
hlutverk sem hið opinbera hefði
átt að vera í forsvari fyrir, hér
var öllu tjaldað til og sett upp
ígildi hjúkrunarheimilis og rað-
að á vaktir. Á þessum vöktum
voru það litlu systur hennar
Lilja, Sína Veiga og Palla
ásamt elsku Noy sem gripu
keflið og voru alltaf til taks.
Helga frænka, gamla hjúkrun-
arkonan, kom svo og var þeim
til halds og trausts. Á okkar
hjúkrunarheimili var vakað
frameftir, hlegið, sagðar sögur,
skálað í sérríi og allt sem hug-
urinn girnist. „Eins og á Eyri,
mamma mín.“ Hjá okkur voru
heimsóknar- og símatími allan
daginn þar sem börnin og
barnabörnin hringdu og pöss-
uðu upp á þig og komu, hjálp-
uðu og styttu þér stundir þegar
þau gátu. En okkur þraut líka
ráð og þá var gott að geta leit-
að hjálpar hjá yndislegu starfs-
fólki Hvest sem greip okkur og
tók við keflinu.
Öllu þessu fólki færum við
okkar innilegustu þakkir fyrir
hvað þið voruð góð við hana
mömmu okkar, elsku mamma,
takk fyrir okkur, Guð geymi
þig, þú varst best.
Ástarkveðja,
þín
Meira: mbl.is/minningar
Kolbrún.
Elsku amma mín það er svo
skrýtið að hugsa til þess að á
stuttum tíma séuð þið bæði far-
in, þú og Gulli afi.
Í hugann streyma fram
minningar, þar ber hæst að ég
fæddist á afmælisdaginn þinn
og eins og þú á Sumardaginn
fyrsta, það tengdi okkur á viss-
an hátt, við vorum bæði í nauts-
merkinu og ég held að þrjóskan
sem stundum þvælist fyrir mér
sé kannski genatískt frá þér,
nema þú varst þrjóskari.
Ég hugsa til þess hvað ég
var heppinn að eiga þig fyrir
ömmu, þú varst ótrúlega dug-
leg að láta mann finna að mað-
ur skipti máli. Mitt fyrsta laun-
aða starf í lífinu var undir þinni
handleiðslu, þá bárum við
Moggann út saman, þú hélst á
töskunni, stjórnaðir verkinu og
lést mig hlaupa með blöðin.
Þessu fylgdi mikil ábyrgð og
eitt sinn var okkur boðið á af-
mælisfagnað á Hótelinu í boði
Moggans. Boðið var upp á góð-
ar veitingar og fullorðna fólkinu
var boðið upp á léttvín með
matnum og hvað gerði hún
amma mín þá, jú hún snerti
ekki vínið, hugsanlega hefði
hún þegið það ef hún hefði ver-
ið ein en hún var með barna-
barnið með sér og þetta fannst
henni ekki viðeigandi, hún var
fyrirmynd, því yrði ekki breytt,
ekki einu sinni fyrir Moggann.
Þessi saga og þegar þú labb-
aðir með mig lítinn í kerrunni
og þurftir að stoppa til að ég
gæti skriðið undir og gert við
kerruna, á miðri stétt, lifir í
minningunni. Þessa sögu hef ég
heyrt skemmtilega oft nú seinni
ár. Þú mátt eiga það amma mín
að þú varst dugleg að hvetja,
við vorum öll svo mikilvæg í
þínu lífi, hvaða hlutverki sem
við gegndum í lífinu vorum við
alltaf best.
Ef þér voru falin verkefni þá
þurftir þú að leysa fljótt og vel
úr þeim, stundum kom þrjósk-
an þér til góða en gat líka
þvælst fyrir þér, þú varst ekki
kona sem gafst upp. Til marks
um það þegar læknirinn setti
þig í þolpróf og varst sett á
þrekhjól, síðan endaðir þú á
gjörgæslu. Þegar ég spurði þig
afhverju þú hafir ekki hætt að
hjóla þegar þú fórst að finna til,
sagðir þú „nú ég var í prófi
maður, auðvitað þurfti ég að
klára“.
Elsku hjartans amma mín,
síðasta samtal okkar sem við
áttum saman var í myndsímtali,
þar sem Katrín Rós var að sýna
þér afmælisgjafirnar sínar og
þakka fyrir sig. Þrátt fyrir
veikindi var alltaf stutt í húm-
orinn og brosið. Þannig vil ég
muna þig amma mín.
Takk fyrir allt og góða ferð.
Hörður Sævar og
Katrín Rós.
Nú ertu farin, elsku Lalla
mín.
Þig ég kveð með söknuði í
hjarta. Það er alltaf sárt að
kveðja, en minningarnar um þig
eru margar og góðar. Þú hefur
alltaf verið einstaklega góð-
hjörtuð, góðmennska þín og
hjálpsemi gáfu mér og fleirum
mikið. Það hefur alltaf verið svo
gott að vera í kringum þig og
ég gat alltaf leitað til þín, alveg
sama hvernig ástand mitt var
þá kom ég alltaf að opnum dyr-
um hjá þér. Þú studdir mig
áfram með jákvæðni þinni og
góðmennsku sem ég er mjög
þakklátur fyrir og gleymi aldr-
ei.
Þú varst okkur svo mikilvæg,
það var alltaf leitað til þín ef
það þurfti að redda einhverju
og þú reddaðir öllu, alveg sama
hvað það var. Ég er óendanlega
þakklátur fyrir að hafa haft þig
í lífi mínu, elsku Lalla mín.
Þín verður sárt saknað. Ég
elska þig.
Kveð ég þig og sendi um leið
samúðarkveðjur til fjölskyld-
unnar.
Sigurgeir Bjarni Árnason.
Elsku hjartans Lalla amma
og langamma.
Ég var of langt í burtu
Örlögin tóku þátt í því.
Margt á ég þér að þakka
Lífsins speki, kærleika og þor.
Guð einn veit, hvert framtíðin mig
leiðir
Lífið ekki svo gegnsætt er.
En ég treysti á það, að farsælt verði
Því vernd frá þér mun fylgja mér.
Eitt lítið knús, elsku amma
Áður en þú ferð
Nú við erum komin til að kveðja
Við komum aldrei framar í faðminn
þinn.
Á meðan sólargeislar fegra fjörðinn
þinn
Ég finn og feta veginn minn.
Dyrnar opnar sumarhöllin
Og í faðm sinn Gulli dregur þig
þar inn
Ég þakkir sendi þér, elsku amma
Þetta er kveðjan mín
Ég mun ganga á þessum vegi
þeim sem þú sýndir mér
Uns hittumst við á ný.
(Byggt á texta Einars
Georgs Einarssonar)
Sigrún Kapitola og börn.
Sigrún
Sigurgeirsdóttir
Messur á morgun
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Sigrún Óskarsdóttir,
guðfræðingur
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is