Morgunblaðið - 02.07.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.07.2019, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2019 ✝ Eva HarneRagnarsdóttir fæddist 14. júlí 1922 í Reykjavík. Hún lést 12. júní 2019. Foreldrar hennar voru Ragn- ar Ásgeirsson, þá forstöðumaður Gróðrarstöðv- arinnar við Lauf- ásveg, en síðar kennari á Laugar- vatni og garðyrkjuráðunautur Búnaðarfélags Íslands, og Olga Margrethe Harne, jafnan nefnd Grethe, frá Árósum í Dan- mörku. Systkini Evu voru Úlfur læknir, f. 1923, Sigrún kennari, f. 1924, og Haukur skógfræð- ingur, f. 1929. Eva giftist 21. júlí 1946 Önundi Ásgeirssyni, f. 1920, viðskipta- og lögfræðingi. Hann var fulltrúi forstjóra Ol- íuverslunar Íslands hf. frá 1947, framkvæmdastjóri frá snyrtifræðing, f. 1977, og Ólaf Björn mannfræðing, f. 1990. 3) Ragnar, viðskiptafræðingur og fv. bankastjóri, f. 1952, kona hans er Áslaug Þorgeirsdóttir hússtjórnarkennari. Synir þeirra eru Þorgeir, sagnfræð- ingur, f. 1978, kona hans er Hrefna Sigurjónsdóttir fram- kvæmdastjóri, og Önundur Páll, stjórnmála- og hagfræð- ingur, f. 1982, unnusta hans er Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað söngkona. 4) Páll Torfi, yfir- læknir og prófessor, f. 1955, kona hans er Kristín Hanna Hannesdóttir hjúkrunarfræð- ingur. Börn þeirra eru Karen, líffræðingur og umhverfis- og auðlindafræðingur, f. 1981, maður hennar er Finnbogi Ósk- arsson jarðefnafræðingur, og Ragnar, læknir, f. 1983, kona hans er Hrafnhildur Bragadótt- ir lögfræðingur. Barnabarna- börn Evu og Önundar eru fjög- ur. Útför hennar fer fram frá Áskirkju í dag, 2. júlí 2019, og hefst athöfnin klukkan 15. 1960 og forstjóri frá 1966 til 1981. Eva lauk stúd- entsprófi frá MA 1943 og var blaða- maður og kennari í Reykjavík til 1948, en helgaði sig hús- móðurstörfum eftir það. Eva og Ön- undur bjuggu lengst af á Kleifar- vegi 12 í Reykja- vík. Þau eignuðust fjögur börn: 1) Greta, kennari og flugfreyja, f. 1948, maður hennar er Páll Halldórsson flugstjóri. Páll á þrjú börn frá fyrra hjónabandi. 2) Ásgeir, rekstrarfræðingur, f. 1950, kona hans er Riszikiyah Hasansdóttir. Börn þeirra eru Daniessa og Daniella, f. 2002, og Haukur Ragnar, f. 2010. Ás- geir á tvö börn frá fyrra hjóna- bandi með Ragnhildi Ólafs- dóttur, Evu, ferða- og Tengdamóðir mín hefur kvatt jarðlífið eftir langa og farsæla ævi. Samferðamennirnir farnir og hún saknaði þeirra. Skildi ekki hví hún lifði svo lengi og var hvíldinni feg- in. Hún var glæsileg kona, hávax- in með þykkt og mikið hár. Alltaf fallega klædd. Við minnumst hennar með þakklæti, fögnum líf- inu og minningunum. Hún hefði getað farið í hvaða langskólanám sem var, en er hún lauk stúdentsprófi frá MA hafði hún þegar kynnst mannsefni sínu, honum Önundi. Í Menntaskólan- um á Akureyri var sagt að Önund- ur „hefði bitið í eplið“. Hún ljóm- aði er hún minntist mennta- skólaáranna og Lystigarðsins en „þar vorum við Önundur að sverma“ sagði hún mér. Í þá daga þótti sjálfsagt að konan hætti námi og starfi við hjúskap en mað- urinn lyki sínu og sú varð raunin. Þau giftu sig og eignuðust 4 börn á sjö árum. Hans starf hjá Olíu- verslun Íslands var hlaðið annríki á löngum vinnudegi en hún gerð- ist húsmóðir „par excellence“. Heimili hennar var stórt listasafn. Hún hafði alist upp á miklu menn- ingarheimili þar sem Kjarval, Kaldalóns, Gunnlaugur Scheving, Guðmundur Einarsson o.fl. voru tíðir gestir. Nú sit ég í Króknum í Laugardal og hugsa til hennar, en hún átti ánægjuleg uppvaxtarár á Laugarvatni. Pabbi hennar, Ragnar Ásgeirsson, hafði grafið upp og endurhlaðið Vígðu laugina sem er við vatnið og þar busluðu börnin saman í heitum potti sem kynslóðirnar höfðu vanrækt. Við fluttum frá Bandaríkjunum inn á Kleifarveginn í ættaróðalið sem þau byggðu, en þá fluttu þau í íbúðina í kjallaranum og við á efri tvær hæðirnar. Sambúðin varði í sautján ár. Það var heldur betur skjól fyrir börnin mín að hafa afa og ömmu í kjallaranum þegar ég var í vinnu. Afi skutlaði í tónlistar- skólann og amma eldaði kvöld- matinn þegar ég var á kvöldvakt- inni. Alltaf gátu börnin farið niður og var það gert næstum því á hverju kvöldi og tekið í spil. Það var alveg sama hvernig stóð á, alltaf voru þau velkomin. Eva var listakona í höndunum. Handsaumaði crazy quilt-teppi úr gömlum ballkjólum og silkislifsum af Önundi. Teppin eru hrein lista- verk sem og púðarnir hennar enda hannaði hún mynstrin og valdi litina sjálf. Líkjast þau verk- um Picasso eða abstraktmálverk- um Kjarvals. Hún saumaði nánast alveg fram í andlátið. Þessar hannyrðir prýða nú heimili afkom- enda hennar. Eva veiktist 45 ára af krabba- meini. Á þeim tíma var ekki um það talað. Hún hefur ekki búist við að lifa lengi. Þetta hefur haft miklu meiri áhrif á hana en fólk gerði sér grein fyrir því hún talaði ekki um veikindin. Sagðist hafa harkað af sér á daginn en grátið um nætur. Þegar ég veiktist af sama sjúkdómi þá opnaði hún sig fyrir mér og sýndi mér örin sín, en í þá daga voru aðgerðirnar mjög róttækar og fóru illa með konurn- ar. Allir vöðvar í kringum brjóstin og í holhöndinni teknir þannig að styrkur handleggja varð lítill á eftir. Hún sagði mér að hún hefði haft tvær konur í huga, sem gætu tekið við heimilinu og Önundi! Hún vildi tryggja velferð fjöl- skyldu sinnar. Ég kveð tengdamóður mína með þakklæti fyrir vináttu hennar í áratugi. Blessuð sé minning hennar. Kristín Hanna Hannesdóttir. Tengdamóðir mín Eva Ragn- arsdóttir er látin, nær 97 ára að aldri. Hún óttaðist að verða 100 ára, sagði hún stundum. Kynni mín og fjölskyldunnar hófust löngu áður en við Ragnar rugluð- um saman reytum okkar. Faðir Evu kom oft á Grund vegna starfa sinna fyrir Búnaðarfélag Íslands. Þá voru borgarbörn send í sveit á sumrin. Hann kom því svo fyrir að börn Evu og Önundar kæmu sem sumarbörn að Grund, þannig mynduðust sterk tengsl milli Grundarheimilisins og fjölskyld- unnar að Kleifarvegi 12, sem voru svo tryggilega hnýtt þegar við Ragnar gengum í hjónaband. Við bjuggum í kjallaranum á Kleifar- vegi fyrstu fimm árin og svo aftur í tæpt ár áður en við fluttum í Garðabæ. Í svona nábýli þurfa all- ir að gefa eitthvað eftir og það get- ur stundum reynt á. Stundum var tekist á um skoðanir og málefni, en þegar upp er staðið er ekki hægt að segja annað en allt hafi farið vel. Tengdamóðir mín var sterk persóna sem hafði skoðanir á bæði stóru og smáu. Hún fylgdist þrátt fyrir háan aldur með fréttum og pólitík, las blöðin og klippti út mikilvægar greinar. Aðeins fyrir ári undraðist hún að enginn skyldi koma Donald Trump fyrir kattar- nef. Eva ólst upp á heimili þar sem mættust dönsk og íslensk menn- ing. Faðir hennar nam garðyrkju- fræði í Danmörku og flutti svo heim með sinni dönsku konu. Hann hélt mikið upp á þjóðsögur, ævintýri og Íslendingasögurnar. Eva og Úlfur bróðir hennar voru send saman í Menntaskólann á Akureyri og voru á „vistinni“. Hún dúxaði á stúdentsprófinu 1943 og eflaust hefði hún vilja læra meira, en það var ekki í boði. Það var ekki hægt að setja aðra en synina til náms. Dæturnar áttu að gifta sig og sjá um börn og bú. Hún undi því. Eftir stúdentsprófið og þar til fyrsta barnið fæddist vann hún fyrst um tíma sem blaðamaður á Vikunni, samdi m.a. vikulega stjörnuspá! Hún hafði gaman af því að segja frá því að hún tók viðtal við Marlene Diet- rich þegar sú fræga og leggja- prúða leikkona kom 1944 til að skemmta hermönnum. Eftir við- talið skrifaði hernámsandstæðing- ur að „unga blaðakonan hefði ver- ið snöggtum glæsilegri en leikkonan“. Evu var skemmt. Hún kenndi líka dönsku við Gagn- fræðaskóla Reykjavíkur. Þegar frumburðurinn kom í heiminn var vinnu hennar utan heimilis lokið og við tók umsjá bús og barna, en þau urðu fjögur á sjö árum. Í hennar hjónabandi var verka- skiptingin skýr. Önundur dró björg í bú, hún sá um börnin, heimilið og ræktaði frændgarðinn. Hún hélt góðu sambandi við móð- urfjölskyldu sína í Danmörku og föðurbræður og afkomendur þeirra í Boston og bróðurbörnin í Noregi. Heimili hennar stóð þeim alltaf opið, þar var ekki í kot vísað og heimilið einstaklega glæsilegt og bar vitni myndarskapar og smekkvísi húsráðenda. Eva var glæsileg kona sem átti gott líf. Ég lærði margt af tengda- móður minni, við höfum átt langa samleið sem ég þakka fyrir. Það var alltaf tilhlökkun hjá sonum okkar Þorgeiri og Önundi að heimsækja afa og ömmu. Fá kök- ur og saft og afi alltaf tilbúinn að leika. Nú hefur tengdamóðir mín lokið sinni lífsgöngu. Blessuð sé minning hennar. Áslaug Þorgeirsdóttir. Þótt margir telji sér trú um að þeir stýri lífi sínu eru það ósjaldan tilviljanir og óviðráðanlegir at- burðir sem ráða því sem mestu máli skiptir. Að sögn afa kynntust hann og amma fyrir slysni, í orðs- ins fyllstu merkingu, þegar hon- um varð á að missa bakka með drykkjum yfir hana á skóla- skemmtun í MA. Þetta var sann- kallað lán í óláni. Þau áttu eftir að eiga innihaldsríka ævi saman fram yfir nírætt og urðu, þrátt fyrir að vera sterkar persónur hvort um sig, órjúfanleg í hugum annarra. Nú þegar amma er líka fallin frá rifjast þetta upp fyrir mér, ásamt öðrum tilviljanakenndum atburðum sem féllu mér í hag. Ég var heppinn að fá að alast upp frá sjö ára aldri í húsinu sem amma og afi byggðu á Kleifarvegi 12, þar sem þau bjuggu áfram sjálf. Ég leit upp til þeirra beggja alla tíð og varði miklum tíma með þeim. Ár- um saman fór ég gjarnan í heim- sókn til þeirra eftir kvöldmat þar sem við spiluðum við borðstofu- borðið. Þetta fyrirkomulag gat komið sér sérstaklega vel ef mér hafði ekki líkað kvöldmaturinn á efri hæðinni, því amma bauð alltaf upp á sérvaldar veitingar handa mér við þessi tilefni. Mér finnst merkilegt að hugsa til þess í dag að þau hafi aldrei verið óupplögð og sagst heldur vilja gera annað. Þolinmæði þeirra hefur ekki erfst til mín, en ég vona að mér hafi tek- ist að tileinka mér önnur skap- gerðareinkenni þeirra að ein- hverju leyti í uppvextinum. Það var alltaf gaman að tala við ömmu, sem hafði fágaðan og glett- inn húmor ásamt einstöku minni. Hún var listfeng og sjálf afburða- hannyrðakona. Hún mátti þola margt í gegnum árin þegar ég æfði mig á píanóið á Kleifarveg- inum en lýsti samt aldrei öðru en ánægju með aðstæðurnar, sér- staklega ef ég spilaði Chopin. Í fljótu bragði minnist ég þess reyndar ekki að hún hafi hælt mér sérstaklega fyrir að æfa verk eftir Bartók eða Prokofiev, en hún baðst þó aldrei griða heldur. Amma var af kynslóð Íslend- inga, sem er nú að mestu horfin. Hún var vönd að virðingu sinni, kom vel fram við alla og var laus við sýndarmennsku. Tilfinninga- semi hélt hún í lágmarki, en sýndi þess í stað hug sinn í verki. Á tím- um hóflausra yfirlýsinga og merk- ingarlítils orðagjálfurs á sam- félagsmiðlum mættu fleiri taka sér þetta til fyrirmyndar. Það hefði ekki hentað ömmu að verða internetstjarna; hún tók reyndar þá meðvituðu ákvörðun að láta ekki nútímann ýta sér út í sam- skipti í gegnum tölvur. Henni þótti „kúnstugt“ að fólk væri jafn- vel að stofna til nýrra ástarsam- banda með því að „bloggast á“. Lái henni hver sem vill. Síðastliðin sjö ár hef ég búið í Bandaríkjunum. Á þeim tíma hef ég velt fyrir mér í hvert sinn sem ég hef kvatt ömmu hvort það yrði í síðasta sinn sem við hittumst. Það hlaut að koma að því. Ég gleðst yf- ir því að hafa fengið tækifæri til að kynnast ömmu svo vel og lengi. Hún hafði sterk áhrif á mig og ég vona að þegar best lætur takist mér að líkjast henni dálítið. Mér fannst liggja í augum uppi að dótt- ir okkar Hrafnhildar fengi nafn höfuðið á henni. Ég mun alltaf minnast hennar með miklu þakk- læti. Ragnar Pálsson. Eva amma okkar er fallin frá en eftir lifa margar góðar minningar. Litlir drengir biðu heimsókna til ömmu og afa á Kleifarvegi ávallt með eftirvæntingu. Heimili þeirra og garðurinn stóri höfðu svo sér- stakt yfirbragð, eins og heimur út af fyrir sig. Þar var margt við að vera og ekki sátu gömlu hjónin auðum höndum. Þau undu sér vel saman og sönn vinátta þeirra smitaði út frá sér, svo þar var gott að vera. Fastir liðir voru í heimsóknun- um. Á sumrin var það til að mynda rabarbarasaft sem amma lagaði. Um áramót var spilað púkk og raunar var aldrei langt í spila- stokkinn þegar dvalið var hjá þeim. Hallir voru byggðar úr kubbum, eða teiknaðar á blöð. Amma sagði okkur sögur af kyn- slóðunum sem á undan fóru, lista- mönnum sem faðir hennar þekkti, konungi Danmerkur sem kom í heimsókn á Laugarvatn og ýmsu fleiru. Bræður hennar heitnir þeir Haukur og Úlfur voru þar tíðir gestir og alltaf fagnaðarfundir milli þeirra systkina. Amma undi sér vel í garðskálanum og var óþreytandi við hannyrðir eins og þeir vita sem hana þekktu. Saumaskapinn lagði hún stund á svo til fram á síðasta dag og eftir hana liggur ógrynni verka. Heim- ili okkar bræðra prýða til að mynda púðar sem amma hannaði og saumaði. Það eru góðir minn- isvarðar um hana. Í seinni tíð einkenndust heim- sóknir til ömmu oftar en ekki af rólegu kaffispjalli á meðan hún saumaði. Umræðuefnin voru ólík eftir því hversu margir voru í heimsókn, en bestu stundirnar voru stundum þær þegar gest- komandi var einn á ferð. Þá var stundum rætt um hin hinstu rök tilverunnar og stundum lagt út frá fréttum af nýjustu uppgötvunum í stjarnvísindum, það tengt við trúarbrögðin og rætt hvort ekki mætti samræma þetta tvennt. Eva amma var á 97. aldursári þegar hún andaðist. Hún saknaði Önundar afa síðustu árin og ræddi það oft að hún væri tilbúin í ferða- lagið langa. Gott er til þessa að hugsa hve lengi hún hélt heilsunni og hve fljótt og friðsællega hún kvaddi þennan heim, með börnin sín hjá sér. Við erum þakklátir fyrir þann tíma sem við áttum með henni og fyrir allt það sem hún kenndi okkur. Minningin lifir. Þorgeir Ragnarsson, Önundur Páll Ragnarsson. Eva Ragnarsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann ✝ Guðrún HelgaFinnboga- dóttir fæddist í Bolungarvík 25. júní 1929. Hún lést 17. júní 2019. Hún var dóttir Finnboga Bernód- ussonar, f. 26. júlí 1892, d. 9. nóv- ember 1980, og Sesselju Sturlu- dóttur, f. 14. sept- ember 1893, d. 21. janúar 1963. Systkini Guðrúnar, þau sem komust á fullorðinsár, eru: Sig- ríður, f. 9.8. 1914, d. 4.4. 1997; Ásdís, f. 18.12. 1915, d. 5.9. 2007; Valgerður, f. 10.11. 1918, d. 11.5. 2005; Bernódus Örn, f. 21.2. 1922, d. 17.4. 1995; Þór- Guðrún og Birgir eignuðust þrjá syni: Sturla Ómar Birg- isson, fæddur 23. mars 1952. Hann er kvæntur Sigríði Björgu Eiðsdóttur og börn þeirra eru Eiður Ottó, Soffía, Sesselja og Elfa Björk, barna- börnin eru átta og barnabörn- in eru tvö. Finnbogi Birgisson, fæddur 23. apríl 1955. Hann er kvæntur Þórunni Elínu Halldórsdóttur og börn þeirra eru, Guðrún Helga, Þórunn Benný og Birgir Arnar, barna- börnin eru 10. Guðmundur Birgisson fæddur 19. nóv- ember 1969. Hann er kvæntur Brynju Rós Bjarnadóttur og börn þeirra eru Lydía Líf og Birgir. Útförin hefur farið fram. unn Benný, f. 27.5. 1923, d. 26.2. 1918; Þórlaug, f. 22.2. 1925, d. 8.1. 2001; Ingibjörg, f. 13.6. 1926; og Stella, f. 6.8. 1934, d. 18.12. 2014. Auk þessara barna áttu Finn- bogi og Sesselja fjögur börn sem dóu í bernsku. Guðrún giftist hinn 17. janúar 1951 Birgi Guð- mundssyni, f. 26. ágúst 1925, d. 26. júní 1996. Foreldar hans voru Guðmundur Arason, fædd- ur 3. júlí 1888, dáinn í ágúst 1996, og Þorbjörg Guðmunds- dóttir, fædd 14. janúar 1887, dáin 1. október 1953. Elskuleg tengdamóðir mín hún Guðrún, eða amma nagli eins og hún var gjarnan kölluð á okk- ar heimili, er fallin frá. Guðrún var ótrúlegur karakter, hún var engum lík. Ég held að hún hafi fundið upp máltækið „betra er að gefa en þiggja“ því þannig var hún alla ævi. Hún var boðin og búin til að allir aðrir í kringum sig hefðu það gott. Hún vildi aldrei láta hafa fyrir sér og ákvað hún að sýna það núna í verki því hún vissi að við ætluðum að halda upp á 90 ára afmælið hennar þann 25. júní nk. Hún hafði líka svartan húmor, hún sagði við okkur Gumma viku áður en hún lést: „Farið bara í útilegu, ég lofa að drepast ekki á meðan“ og svo hló hún og hún reyndar stóð við það. Svo kom að þeim tímapunkti að hún gat ekki meir og lést á þjóðhátíðardegi okkar Íslend- inga, 17. júní, átta dögum fyrir ní- ræðisafmælið sitt. Mig langar að þakka Guðrúnu fyrir góð kynni og væntumþykju í minn garð. Við áttum alltaf mjög góðar stundir saman og ég sakna hennar mjög mikið. Hún á stórt pláss í mínu hjarta. Ég kveð hana tengdamömmu með þessum lagatexta sem við vorum báðar svo hrifnar af: Draumalandið Ó, leyf mér þig að leiða til landsins fjalla heiða með sælu sumrin löng. Þar angar blóma breiða við blíðan fuglasöng. Þar angar blóma breiða. Þar angar blóma breiða, við blíðan fuglasöng. Þar aðeins yndi fann ég þar aðeins við mig kann ég þar batt mig tryggða band því þar er allt sem ann ég, það er mitt draumaland. Því þar er allt sem ann ég. Því þar er allt sem ann ég, þar er mitt draumaland. (Jón Trausti) Brynja Rós Bjarnadóttir. Guðrún Helga Finnbogadóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr. Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.