Morgunblaðið - 15.08.2019, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 5. Á G Ú S T 2 0 1 9
Stofnað 1913 190. tölublað 107. árgangur
70 ÁRA STARFS-
AFMÆLI ÞJÓÐ-
LEIKHÚSSINS
ATVINNUBLAÐ
MORGUNBLAÐSINS
EINKAKOKKUR
SHEERAN HÉLT
MATARBOÐ
FINNA VINNU 4 SÍÐUR POPPARINN LARSSON KOM 14VIÐAMIKIÐ LEIKÁR 62
........ 20-60%
rúm... 20-40%
ara.... 20%
klæði.. 20-70%
FSLÁTTUR
Wis
60%
VER
MEÐ
ó ar..
H ilsu
av
nd
tra
AFSLÁTTUR
Ð ÁÐUR 179.900
6 A
TVEIR LITIR:
GRÁR / VÍNRAUÐUR
Lúxussnekkjan Scenic Eclipse sést hér við Miðbakka í
Reykjavíkurhöfn og státar áhöfn skipsins af því að geta
veitt gestum sínum, sem eru um 230 talsins, upplifun
sem erfitt sé að nálgast annars staðar. Eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd lagði dökkan og mikinn reyk frá
vélum skipsins er það lá við bryggju, með tilheyrandi
loftmengun, en mengun frá skipum í höfnum landsins
hefur mjög verið til umræðu að undanförnu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sótsvartan reyk lagði frá snekkjunni
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarps-
stjóri Útvarps Sögu, gagnrýnir
stjórnvöld fyrir að bregðast ekki við
ábendingum um óheilbrigt rekstrar-
umhverfi fjölmiðla á Íslandi. Þá
meðal annars varðandi undanþágu
frá samkeppnislögum svo stórfyrir-
tækin geti mælt saman hlustun.
RÚV taki þátt í þessum könn-
unum sem mæli ekki smærri fyrir-
tækin, með alvarlegum afleiðingum.
„Það er fyrir neðan allar hellur að
RÚV hafi nýtt sér undanþágu frá
samkeppnislögum síðastliðin 10 ár.
Þetta eru miklar hindranir enda
fáum við ekki auglýsingar hjá aug-
lýsingastofunum þegar þær kynna
auglýsingamöguleika fyrir stórfyrir-
tækjum, þar sem Gallup mælir okk-
ur ekki,“ segir Arnþrúður.
Lengi bent á skekkjuna
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir eftir-
litið lengi hafa „bent á þá samkeppn-
isskekkju sem leiðir af því að RÚV
með sínar opinberu tekjur taki þátt í
samkeppni á auglýsingamarkaði“.
Samkeppniseftirlitið hafi m.a.
fylgt þessum sjónarmiðum eftir
þegar lög um RÚV hafi verið til um-
fjöllunar. » 24, 26
Vill að brugðist sé við
óheilbrigðri samkeppni
Útvarp Saga telur sér ýtt til hliðar
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Aflandsfélagið Lindsor Holding
Corp., sem Kaupþing hf. lánaði 171
milljón evra (26,5 milljarða kr. á
gengi þess tíma) til að kaupa skulda-
bréf útgefin af bankanum 6. október
2008, er enn til rannsóknar hjá yf-
irvöldum í Lúxemborg. Um er að
ræða síðasta efnahagsbrotamálið
tengt efnahagshruninu á Íslandi þar
sem ákvörðunar um saksókn er enn
að vænta.
Starfsmenn og stjórnendur Kaup-
þings voru grunaðir hérlendis um
auðgunarbrot, umboðssvik og
skjalafals. Morgunblaðið hefur undir
höndum áður óséð gögn sem m.a.
voru send út til rannsóknaraðila í
Lúxemborg. Gögnin sýna hvernig
reynt var að fela eignarhald Lindsor
á stofnskjölum í gegnum félög sem
eiga rætur að rekja til gamla Bún-
aðarbankans. Að mati Fjármálaeft-
irlitsins (FME) var félagið þó ávallt í
eigu Kaupþings hf. Í bréfi FME til
fjármálaeftirlitsins á Bresku Jóm-
frúaeyjunum segir að Lindsor hafi
verið félag sem var notað til að verð-
launa valda skuldabréfahafa ásamt
því að fjarlægja tap af efnahags-
reikningi Kaupþings í Lúxemborg.
Skuldabréfakaup Lindsor áttu sér
stað sama dag og neyðarlán Seðla-
banka Íslands til Kaupþings var
veitt en bréfin urðu nær verðlaus
einungis þremur dögum seinna, þeg-
ar FME tók yfir bankann. Fjórir
starfsmenn bankans eru grunaðir
um skjalafals í Lúxemborg.
Í réttarbeiðni sérstaks saksókn-
ara til yfirvalda í Lúxemborg frá
árinu 2010 kemur fram að gögn
Lindsor-málsins sýna að engin skjöl
virðast hafa verið til sem sýndu fram
á samningssamband á milli Kaup-
þings á Íslandi, Kaupþings Lux og
Lindsor fyrr en í desember árið
2008, en þau voru dagsett þannig að
þau litu út fyrir að hafa verið undir-
rituð í september.
Aflandsfélag
Kaupþings enn
til rannsóknar
Hugsanlegt skjalafals starfsmanna
Kaupþings til skoðunar í Lúxemborg
M„Ruslakista“ … »18, 20, 22