Morgunblaðið - 15.08.2019, Side 6

Morgunblaðið - 15.08.2019, Side 6
BAKSVIÐ Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Réttarstaða þeirra kaupenda íbúða við Árskóga 1-3 sem fallist hafa á skil- málabreytingar vegna kaupanna um verðhækkun er ólík stöðu annarra kaupenda, t.d. þeirra sem beiddust innsetningar fyrir héraðsdómi í fyrra- dag. Fordæmisgildi niðurstöðu í inn- setningarmálunum hefur aðeins þýð- ingu fyrir þá sem eru í sömu stöðu og aðilar þeirra mála, en ógildingareglur samningaréttar gætu komið til álita hjá þeim sem féllust á skilmálabreyt- ingar, að sögn löglærðra viðmælenda blaðsins. Varnir FEB við fyrirtöku fólust annars vegar í því að ómöguleiki sé fyrir hendi hvað varðar afhendingu íbúðanna í ljósi þess að gagnvart verktaka séu enn útistandandi 250 milljónir króna vegna bygginganna. Hins vegar hélt Daði Bjarnason, lög- maður FEB, því fram að horfa þyrfti til hagsmunamats milli kaupanda annars vegar og seljanda hins vegar. Þannig þyrfti að horfa til þess að villa hefði komið upp í kaupsamningi sem uppgötvast hefði eftir að skrifað hefði verið undir. „Við því verður að bregð- ast og þá þarf að horfa til hagsmuna heildarinnar en ekki bara þeirra sem ganga fyrstir fyrir hornið, þó að allir hafi ákveðna samúð með þeim mál- stað,“ sagði hann. Lögmenn kaupendanna höfnuðu þessum sjónarmiðum og sögðu varnir félagsins litlar sem engar. Meðal ann- ars var því haldið fram að enginn ómöguleiki væri til staðar í ljósi þess að verktakinn sem um ræðir sé ekki aðili málsins. Fordæmisgildi fyrir suma Spurður um áhrif málanna tveggja fyrir aðra íbúðarkaupendur segir Víðir Smári Petersen, aðjúnkt í kröfu- rétti við lagadeild Háskóla Íslands, al- mennu regluna þá, að dómur bindi einungis aðila máls. „Þessi tvö mál sem rekin eru núna binda þá ein- göngu Félag eldri borgara gagnvart þessum tveimur kaupendum. Auðvit- að hefur dómur í því máli fordæm- isgildi fyrir aðra sem eru í sömu stöðu,“ segir Víðir Smári, en þeir sem skrifuðu undir skilmálabreytinguna eru ekki í sömu stöðu og þeir sem höfnuðu henni, að hans sögn. „Það fyrsta sem manni dettur í hug er að viðkomandi kaupendur, ef þeir vilja hnekkja breytingunni, byggi á því að það hafi verið ósanngjarnt af hálfu fé- lagsins að bera þetta fyrir sig í ljósi aðstæðna,“ segir hann, en þar geta ógildingarreglur samningaréttar komið til kastanna. „Þá getur t.d. það sjónarmið haft þýðingu hvort viðkomandi aðilar hafi notið lögmannsaðstoðar eða ekki. Ef þeir nutu hennar ekki, þá gæti komið til greina að líta svo á að ekki sé jafn- ræði milli einstaklings í íbúðakaupum og síðan félagsins. Það getur haft áhrif við mat á því hvort samningur sé ósanngjarn eða ekki. Ef þeir nutu á hinn bóginn lögmannsaðstoðar, þá gæti verið að litið verði svo á að þeir hafi gengist undir þessar skuldbind- ingar með opin augu og séu þá bundn- ir við þær,“ segir Víðir Smári. Háð heildarmati dómstóla „Aðalatriðið sem dómstólar myndu líta til er að það er engin skylda fyrir þetta fólk að gangast undir þessa skuldbindingu. Það er með gildandi kaupsamninga um tiltekið kaupverð. Það væru þá einhverjar aðrar ástæð- ur, t.d. að viðkomandi hafi verið búinn að selja fasteign sína og hafi þurft að komast inn í þessa fasteign sem hafa þá ráðið för. Þá gæti verið horft til þess að þeir sem skrifuðu undir skuldbindinguna virðast hafa fengið ákveðna skilmála eða kvaðir felldar burt á móti. Það er að endingu dóm- stólanna að meta hvort það sé mál- efnalegt af hálfu félagsins að halda til streitu þessum samningsskilmálum gagnvart viðsemjanda sínum,“ segir Víðir Smári og nefnir að hér er um að ræða heildarmat sem fer eftir að- stæðum hvers og eins kaupanda. Víðir Smári segir óvenjulegt að seljandi fasteignar haldi því fram að hann hafi ekki lyklavöld og því sé ómöguleiki fyrir hendi að fylgja eftir skyldu samkvæmt kaupsamningi. „Samkvæmt þessum samningi hvílir skyldan til afhendingar fasteignar- innar á félaginu,“ segir Víðir Smári. Réttarstaða kaupenda er misjöfn  Breytilegt eftir því hvort skilmálum var tekið  Ógildingarreglur samningaréttar gætu komið til álita  Gæti skipt máli hvort kaupendur nutu lögmannsaðstoðar  Samband FEB og verktaka skipti engu Morgunblaðið/Árni Sæberg Árskógar Staða kaupenda íbúða í Árskógum er misjöfn, m.a. eftir því hvort þeir sættu sig við verðhækkun eða ekki. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019 sp ör eh f. Haust 10 Tíról í Austurríki er heill ævintýraheimur út af fyrir sig. Fegurð Alpafjallanna umlykur okkur þar sem við dveljum í fjallabænum Seefeld þaðan sem farið verður í skemmtilegar skoðunarferðir, m.a. í Swarovski kristalverksmiðjuna og til vínbónda í Isarco dalnum. Einnig verður komið til Garmisch-Partenkirchen og farið með kláfi upp á hæsta fjall Þýskalands, Zugspitze. 24. - 29. september Fararstjórn: Inga Ragnarsdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 169.900 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS Mjög mikið innifalið! Tindrandi Tíról Vel hefur gengið að vinna á boð- unarlista þeirra sem bíða afplán- unar, að sögn Páls E. Winkel, for- stjóra Fangelsismálastofnunar. „Þegar verst lét voru um 620 manns á boðunarlistanum en þeir eru rétt tæplega 500 nú. Ég geri ráð fyrir að það fækki áfram á listanum og að fyrndar refsingar nánast hverfi. Stóru tíðindin í þessu eru að fyrnd- um refsingum hefur fækkað mikið. Það sem af er þessu ári hafa fyrnst sjö dómar en í fyrra fyrntust alls 35 dómar,“ sagði Páll. Forgangsraðað er inn í fangelsin þannig að oftast fyrnast refsingar vegna þess sem kalla má minni hátt- ar brot. „Við tökum í fangelsin alla sem dæmdir eru fyrir alvarleg brot. Einnig eru í forgangi þeir sem halda áfram brotum eftir að dómur er kveðinn upp,“ sagði Páll. Hann sagði að samsetning hópsins á boð- unarlistanum annars vegar og þeirra sem afplána í fangelsunum hins vegar væri eins og svart og hvítt. Langflestir sem nú eru á boð- unarlista voru dæmdir vegna um- ferðarlagabrota og annarra smærri brota. Í fangelsunum eru þeir sem brutu gegn almennum hegning- arlögum og voru dæmdir fyrir al- varlegar sakir. Aldrei hafa fleiri af- plánað með samfélagsþjónustu en nú. Í gær voru 210 manns í sam- félagsþjónustu og 158 að afplána í fangelsunum. Páll sagði að löggjaf- inn hafi rýmkað reglur um sam- félagsþjónustu. Stærri hópur en áð- ur geti því afplánað á þennan hátt. Uppfylla þarf lögbundin hæfisskil- yrði til að gegna samfélagsþjónustu. „Samfélagsþjónusta er ólaunuð vinna í þágu samfélagsins. Í stað þess að þessir einstaklingar kosti ríkissjóð fjármagn þá leggja þeir til vinnu hjá ýmsum samtökum, kirkjum og íþróttafélögum og láta þannig gott af sér leiða,“ sagði Páll. „Þetta er allt í rétta átt og ég er nokkuð bjartsýnn á næstu misseri.“ Fangelsismálastofnun hefur þurft að taka mið af fjárveitingum til reksturs fangelsanna. Reynt er að vera með eins marga fanga í af- plánun og fjármagn leyfir. Nýting fangelsanna hafi verið góð að und- anförnu, að sögn Páls. Notkun ökklabanda hefur verið nokkuð stöðug. Lögbundin skilyrði eru fyrir afplánun undir rafrænu eftirliti. Lengri afplánun heima er nýtt fullnustuúrræði sem hefur gengið vel. Páll sagði þessa tegund afplánunar mikilvægan þátt í að hjálpa mönnum að taka aftur þátt í samfélaginu. Þeir geta farið að stunda vinnu eða nám en verða að vera heima á tilteknum tímum og fá ákveðið aðhald síðustu mánuðina áður en þeir geta um frjálst höfuð strokið. gudni@mbl.is Boðunarlistinn styttist  Fleiri afplána í samfélagsþjónustu en í fangelsunum 180 157 138 152 143 158 105 156 171 145 168 210 Staða afplánunar 14. ágúst 2014-2019 Fjöldi í afplánun Fjöldi í samfélagsþjónustu 200 150 100 50 0 Erl. ríkisborgarar Erl. ríkisborgarar 2014 2015 2016 2017 2018 20192014 2015 2016 2017 2018 2019 Heimild: FMS Sigurður Helgi Guðjónsson, framkvæmdastjóri Húseigenda- félagsins, segir að kaupendur geti verið í mismunandi stöðu eftir því hvernig „efndaferillinn“ er. Þeir sem hafi efnt kaupsamn- inginn að fullu og greitt eigi að fá umráð umræddrar eignar. Hann segir þann rétt skotheldan og að staða félagsins gagnvart verktaka skipti engu. „Það skiptir engu máli þótt fé- lagið eigi eftir að greiða ein- hverja peninga. Það er grundvall- arregla í samninga- og kröfurétti að blankheit geti aldrei verið ómöguleiki. Þó þú þurfir að gera ráðstafanir til að þú getir efnt af þinni hálfu, þá varðar viðsemj- andann ekkert um það hvort þú ert blankur og hvernig stendur á hjá þér,“ segir Sigurður Helgi. Spurður um gildi niðurstöðu í aðfararmálunum tveimur segir hann að slíkur úrskurður geti verið stefnumarkandi fyrir aðra sem séu í nákvæmlega sömu stöðu. „En ef efndaferillinn er t.d. mismunandi getur staða þeirra verið mismunandi. Allir sem hafa efnt af sinni hálfu eiga rétt á umráðum. Menn geta fallið frá kröfum eins og félagið virðist vera að gera, en í upphafi þegar menn gerðu þetta í einhverri pa- nik, þá jaðraði þetta við misneyt- ingu eða nauðung. Sá sem van- efnir og getur ekki efnt stillir viðsemjendum sínum upp við vegg, gefur þeim þrjá kosti og alla vonda. Það mætti vel líta á hvort þarna hafi verið brot gegn ógildingarákvæðum samninga- laga um misneytingu, nauðung, brostnar forsendur o.s.frv.“ seg- ir Sigurður Helgi. Blankheit skipti engu HÚSEIGENDAFÉLAGIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.