Morgunblaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta er heilmikil framkvæmd.
Markmiðið er að hefjast handa
næsta sumar,“ segir Óli Grétar
Blöndal Sveins-
son, fram-
kvæmdastjóri
þróunarsviðs
Landsvirkjunar.
Áform Lands-
virkjunar um
byggingu göngu-
og reiðbrúar yfir
Þjórsá við Búr-
fellshólma eru á
áætlun. Fulltrúar
Landsvirkjunar
fóru yfir stöðu málsins með sveitar-
stjórnarmönnum í Skeiða- og Gnúp-
verjahreppi á dögunum. Umrædd
brú mun tengja saman kerfi reið-
vega og göngustíga beggja vegna
Þjórsár, í sveitarfélögunum Rangár-
þingi ytra og Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi. Eins og Morgunblaðið hefur
áður greint frá er bygging brúar-
innar liður í mótvægisaðgerðum
vegna framkvæmda við Búrfellsstöð
2 sem gangsett var sumarið 2018.
Leiðin í Búrfellsskóg að vestanverðu
lá yfir frárennslisskurð sem ekki var
vatn í fyrr en stöðin var tekin í
notkun.
Að sögn Óla Grétars er þegar far-
ið að leggja drög að byggingu brúar-
innar með malbikun vegar niður að
Þjófafossi og malbikun plans þar.
Fram undan sé vinna við að koma
brúnni inn á skipulag hjá sveitar-
félögunum, sækja um öll nauðsynleg
leyfi og fleira slíkt. Verkið verði boð-
ið út þegar öll leyfi verði komin í hús
á nýju ári.
Nokkrar hugmyndir hafa verið á
lofti um hvers konar brú verði reist.
Til að mynda um 65 metra löng brú
með steinsteyptri plötu, 56 metra
stálbitabrú í tveimur höfum, net-
bogabrú og hengibrú. Að endingu
var ákveðið að brúin sem reist verð-
ur skyldi vera 75 metra löng stál-
bitabrú með steyptu gólfi, í þremur
höfum. Brúin verður 2,5 metrar að
breidd. Hún þolir um það bil 1.600
rúmmetra á sekúndu rennsli í ánni.
„Þessi brú er talin falla best að
landslaginu og henta aðstæðum
best,“ segir Óli. Hann segir jafn-
framt að áætlaður heildarkostnaður
sé svipaður og að hefur verið stefnt
fyrir brúna og vegi að og frá henni,
þó að útfærsla hafi tekið breyting-
um. Reiknað er með að framkvæmd-
in geti kostað 3-400 milljónir króna
og hafist verði handa sumarið 2020.
Ætla að reisa 75 metra
stálbitabrú yfir Þjórsá
Landsvirkjun reiknar með að hefjast handa næsta sumar
Ný brú Svona lítur svæðið út samkvæmt uppdrætti Landsvirkjunar.
Óli Grétar Blöndal
Sveinsson
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Nýjar vörur Haust 2019 – frá
Str.
38-58
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á serlyfjaskra.is.
Haltu þínu striki!
Harpatinum við gigtar- og liðverkjum.
Bætir hreyfigetu og dregur úr stirðleika.
Fæst án lyfseðils í næsta apóteki Viðurkennt af Lyfjastofnun
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
FRÁ LAXDAL SKIPHOLTI
RÝMUM FYRIR
NÝJUM VÖRUM
VANDAÐAR DÚNÚLPUR OG ULLARKÁPUR
Á SÉRSTÖKU AFSLÁTTARVERÐI
30-50% AFSLÁTTUR
Í NOKKRA DAGA
NÝTTU TÆKIFÆRIÐ, LAXDAL SKIPHOLTI.
Nýjar
peysur
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Kr. 6.900
Str. S-XXL
Litir: Olivugrænt, rautt, svart
KÍNAKLÚBBUR
UNNAR
Kínaklúbbur Unnar
Njálsgötu 33, 101 Reykjavík
sími: 551 2596, farsími: 868 2726
Vefsíða: kinaklubbur.weebly.com
Netfang: kinaklubbur@simnet.is
Kínaklúbbur Unnar, hefur allt frá því að hann var stofnaður
1992, staðið fyrir ferðum til Kína, svokölluðum pakkaferðum.
Hafa þá skipulagðar ferðir verið auglýstar, en nú er breyting
á því. Slíkar ferðir eru ekki lengur á boðstólum, en í staðinn
gefur Unnur hverjum sem er, allar þær upplýsingar, sem
áhugasamir verðandi ferðalangar til Kína, óska eftir.
Nú geta ferðalangarnir ákveðið sjálfir, hvenær ársins þeir vilja
fara og hversu marga daga þeir vilja vera í Kína og hvað þeir
vilja sjá og gera.
Kínasafn Unnar
Njálsgötu 33B, er opið laugardaga og sunnudaga kl. 14.00-
16.00. Íbúð Unnar, á Njálsgötu 33, má einnig skoða, en hún er
í kínverskum stíl.
Aðgangseyrir kr. 1.000. Einnig er hægt að panta sérsýningar.
Kínastund
Einstaklingar og hópar geta pantað „Kínastund“ í íbúðinni og
er þá skoðun safnsins innifalin, ef svo óskast. Hægt er að fá
léttar veitingar, eða heila máltíð. Unnur segir frá kínverskum
siðum og stendur fyrir smá skemmtiatriðum.
Mat á umhverfisáhrifum, frum-
matsskýrsla vegna Einbúavirkj-
unar í Skjálfandafljóti í Þingeyj-
arsveit, verður til kynningar á vef
Skipulagsstofunar 21. ágúst til 2.
september sem er lokadagur til að
skila skriflegum athugasemdum.
Skipulagsstofnun leitaði m.a. um-
sagnar Ferðamálastofu, Fiskistofu,
Heilbrigðiseftirlits Norðurlands
eystra, Minjastofnunar, Nátt-
úrufræðistofnunar og Náttúru-
verndarnefndar Þingeyinga.
Frummatsskýrsla
Einbúavirkjunar