Morgunblaðið - 15.08.2019, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019
Nú þegar styttist í veturinn og
skólar hefjast fara margir að huga
að þvi að koma reglu á heimilislífið
eftir sumarleyfi og ferðalög. Það
hendir flesta að slaka á svefntím-
anum yfir bjartasta árstímann á Ís-
landi. Mörgum
finnst tímanum
illa varið í svefn
og vilja nota sem
stærstan hluta
sólarhringsins til
að njóta lífsins. Á
góðæristímum
eins og nú fara í
hönd hefur fólk
líka tilhneigingu
til að sofa minna
en á samdráttar-
tímum. Til að mynda svaf tæplega
einn af hverjum þremur fullorðnum
Íslendingum að jafnaði sex klukku-
stundir eða minna á nóttu á síðast-
liðnum árum, skv. upplýsingum frá
Embætti landlæknis
Nægur svefn er
vernd gegn þunglyndi
Það kemur sífellt betur í ljós
hversu mikilvægt er að tryggja sér
nægilega langan og góðan nætur-
svefn. Það kemur ekki aðeins fram
í betri einbeitingu að deginum held-
ur betra heilsufari til lengri tíma.
Sofi fullorðinn einstaklingur að
jafnaði 7-8 klst nætursvefni eru
minni líkur á að hann fái hjarta-
sjúkdóma, sykursýki, háþrýsting,
krabbamein eða alzheimer-sjúkdóm
síðar á lífsleiðinni. Hann hefur
sterkara ónæmiskerfi og nægur
svefn verndar einstaklinginn líka
fyrir þunglyndi. Dagsyfja vegna
ónógs svefns veldur ekki einungis
einbeitingarskorti heldur getur hún
valdið því að fólk borðar meira og
þyngist. í þessu samhengi má líka
benda á að ein algengasta orsök
umferðarslysa er að ökumenn sofna
undir stýri.
Fyrir börn og unglinga er enn
mikilvægara að þau fái nægan
svefn þar sem líkaminn framleiðir
vaxtarhormón að mestu á meðan
þau sofa. Þessi hormón stýra vexti
þeirra og þroska. Börn þurfa á mis-
langri hvíld að halda eftir aldri:
Yngstu börnin þurfa allt að 10-12
klukkustunda nætursvefn, skóla-
börn á aldrinum 6-12 ára þurfa að
minnsta kosti 10 klukkutíma svefn
og unglingar þurfa oftast að sofa 8-
10 klukkutíma nætursvefni.
Svefnlyf trufla mynstrið
Til að tryggja sér góða hvíld er
mikilvægt að venja sig á góðar
svefnvenjur. Flestir sofa betur í
dimmu og svölu herbergi. Líkams-
rækt og öll hreyfing stuðlar að
betri svefni þótt ekki sé gott að
vera i ræktinni seint að kvöldi.
Birtan af snjalltækjum, tölvum og
sjónvarpi getur truflað svefn og
ætti að slökka á þeim 1-2 klukku-
stundum fyrir háttatíma. Koffín-
neysla seinni hluta dags getur
truflað svefn og áfengisneysla veld-
ur lakari svefni.
Þrátt fyrir að svefnleysi þjaki
fólk tímabundið er sjaldan ráðlegt
að nota svefnlyf nema í mjög
skamman tíma. Svefnlyf eiga það
sameiginlegt að þau trufla svefn-
mynstrið. Þau verða fljótt gagns-
laus og geta orðið skaðleg. Neysla
áfengis til að vinna á svefnleysi
gerir meiri skaða en gagn.
Leitað að orsökum
svefntruflana
Ef einstaklingur telur sig glíma
við óeðlilegar eða langvinnar svefn-
truflanir er nauðsynlegt að leita
betur eftir undirliggjandi orsökum.
Þær geta verið margvíslegar:
Áhyggjur, álag, verkir, aukaverk-
anir lyfja, sjúkdómar svo sem kæfi-
svefn og fótaóeirð svo fátt sé nefnt.
Sjálfsagt er að ræða slík einkenni
við heilbrigðisstarfsfólk á heilsu-
gæslunni og fá ráðleggingar.
Fyrst og fremst hvetjum við alla
til að huga að því að tryggja sér
góðan nætursvefn. Við hvetjum alla
til að koma sér saman um kvöld-
venjur sem miða að því að hvílast
vel alla daga vikunnar en geymi
það ekki til helganna.
Fyrir frekari upplýsingar og góð
ráð fyrir svefninn bendum við á
pistla um svefn og hvíld á vefnum
heilsuvera.is.
Góður svefn og betri heilsa
Heilsuráð
Nanna Sigríður Kristinsdóttir heilsu-
gæslulæknir í Efra Breiðholti
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Svefn Allir þurfa að hvílast vel og ná djúpum svefni til að geta mætt amstri dagsins. Nanna SigríðurKristinsdóttir
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðsins
Við hvetjum alla til að
koma sér saman um
kvöldvenjur sem miða
að því að hvílast vel alla
daga vikunnar en geymi
það ekki til helganna.
Bæjarhátíðin Danskir dagar er nú
haldin í Stykkishólmi og stendur til
sunnudags. Hólmarar efna nú til
þessarar hátíðar í 25. sinn og eins og
titillinn vísar til er margt með dönsku
ívafi. Sýndar verða danskar bíómynd-
ir í Eldfjallasafninu, grillað verður
snobrød í Nýrækt og æbleskiver bak-
aðar í Norska húsinu. Á laugardags-
kvöld verður brekkusöngur og ball
með Stuðlabandinu í Reiðhöllinni.
Stykkishólmur er framarlega í um-
hverfismálum því ekki er flug-
eldasýningu á hátíðinni nú, segir á
vef bæjarins.
Bæjarhátíð í Stykkishólmi
Danskir dagar
Hólmurinn Bærinn við Breiðafjörð.
Í Hveragerði eru Blómstrandi dagar
nú um helgina. Áhugaverðar listsýn-
ingar og fjölbreyttir tónlistar-
viðburðir eru í bænum þessa daga
ásamt heilsutengdum atriðum fyrir
alla aldurshópa. Hátíðin verður í
mestum blóma og nær hápunkti á
laugardaginn, en á dagskránni verða
listsýningar og fjölbreyttir tónlistar-
viðburðir ásamt heilsutengdum at-
riðum fyrir alla aldurshópa. Þá verður
hægt að skoða verðlaunagarða í
bænum og boðið verður í leiðangur
um söguslóðir í bænum.
Kátt í Hveragerði
Bær blómstrar
Litrík menning, stórbrotnar náttúruperlur og ævintýri við hvert fótmál; sjávarréttir, eðalveigar og
mögulega besta kaffi í heimi. Taktu púlsinn á spennandi borgum þar sem sköpunargleðin ríkir.
Nú er rétti tíminn til að njóta lífsins á vesturströnd Bandaríkjanna og Kanada.
Svalaðu ævintýraþránni í fríinu
Portland I San Francisco I Seattle I Vancouver