Morgunblaðið - 15.08.2019, Side 18

Morgunblaðið - 15.08.2019, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019 Lindsor-málið í Lúxemborg BAKSVIÐ Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Peningamarkaðslán Kaupþings hf., að upphæð 171 milljón evra, til af- landsfélagsins Lindsor Holding Cor- poration og kaup félagsins á skulda- bréfum útgefnum af bankanum þann sama dag, 6. október 2008, eru enn til rannsóknar af yfirvöldum í Lúxem- borg. Um er að ræða síðasta efna- hagsbrotamálið sem tengist efna- hagshruninu á Íslandi þar sem ákvörðunar um ákæru er enn að vænta. Fjármálaeftirlitið (FME) vísaði málinu til fjármálaeftirlitsins í Lúx- emborg (CSSF) hinn 22. janúar 2010. Málið hefur því verið til rannsóknar í nær áratug. Lítið hefur verið fjallað um Lindsor-málið hérlendis að und- anskilinni umfjöllun í bók Þórðar Snæs Júlíussonar, Kaupthinking, og á Kjarnanum. Morgunblaðið hefur undir höndum áður óséð gögn tengd málinu sem gefa mikla innsýn í lán- veitinguna til félagsins, skuldabréfa- kaup þess og hugsanlegt skjalafals starfsmanna Kaupþings. Um er að ræða m.a. gögn sem rannsóknar- aðilar á Íslandi sendu til yfirvalda í Lúxemborg ásamt tölvupóstssam- skiptum starfsmanna Kaupþings tengdum félaginu. Skráð eignarhald Lindsor á rætur að rekja til gamla Búnaðarbankans og samkvæmt FME var Lindsor notað sem „rusla- kista“ Kaupþings skömmu fyrir hrun. Lánveitingin til Lindsor og kaup félagsins á skuldabréfum í Kaupþingi á uppsprengdu verði áttu sér stað sama dag og Seðlabanki Íslands veitti bankanum neyðarlán að verð- mæti 500 milljónir evra. Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst er lánveitingin til Lindsor veitt áður en neyðarlánið til Kaupþings er veitt. Skuldabréfin sem Lindsor keypti urðu nær verðlaus einungis þremur dögum síðar, þegar FME tók yfir stjórn Kaupþings hf. 9. október 2008. Meginhluti viðskipta Kaup- þings hf. í tengslum við Lindsor átti sér stað í Lúxemborg með aðkomu Kaupthings í Lúxemborg og félags- ins Marple Holding, sem var í eigu Skúla Þorvaldssonar, og var skráð í Lúxemborg. Sá angi málsins sem var tengdur Marple varð að Marple-mál- inu hérlendis. Samkvæmt rannsókn FME og embætti sérstaks saksóknara voru starfsmenn og stjórnendur Kaup- þings grunaðir um auðgunarbrot, umboðssvik og skjalafals hérlendis en sterkar vísbendingar eru um að skjöl tengd Lindsor hafi verið útbúin og undirrituð í nóvember og desem- ber 2008, eftir fall Kaupþings hf. og rúmlega tveimur og hálfum mánuði eftir viðskiptin. Lindsor-málið er, eins og flest hrunmál, afar flókið en í senn einfalt. Um er að ræða aflandsfélag skráð á Tortóla sem stjórnendur Kaupþings hf. veittu hundraða milljóna evra lán til þess að kaupa skuldabréf útgefin af Kaupþingi hf. af Kaupthing í Lúx. Þar með var verið að losa Kaupthing í Lúx við bréf sem urðu brátt nær verðlaus. Lánveitingin var ekki borin undir lánanefnd bankans. Kaupþing hf. endurheimti ekki neitt af því fé sem bankinn lánaði Lindsor enda virðast engar ábyrgðir eða trygging- ar hafa verið veittar fyrir láninu. Lindsor tók því á sig allt tapið eftir yfirtöku bankans og rýrnaði eigna- safn aflandsfélagsins á tveimur mán- uðum um 94%. Þegar Guð var beðinn að blessa Ísland Á þeim tíma sem lánið er veitt, 6. október 2008, er nauðsynlegt að hafa í huga efnahagsástandið á Íslandi. Á þessum degi voru neyðarlögin sam- þykkt á Alþingi og Seðlabanki Ís- lands veitti Kaupþing hf. neyðarlán að upphæð 500 milljónir evra. Til- raunir til að bjarga Glitni banka höfðu brugðist í september mánuði og þá hafði lánhæfismat Kaupþings verið lækkað af Fitch skömmu áður. Seinnipart sama dag bað Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra Íslands, Guð að blessa Ísland í beinni útsendingu. Það er undir þessum kringumstæðum sem Kaupþing hf., banki í lausafjárkrísu, ákveður að veita Lindsor lán til að kaupa skulda- bréf að upphæð 84 milljónir evra og 95,1 milljón dala ásamt minni kaup- um í japönskum jenum og íslenskum krónum. Hvað varðar skuldabréfa- kaupin í dölum og evrum er um að ræða tvo framvirka samninga frá 25. september 2008, sem eru gerðir fyrir hönd Lindsor af Andra Sigurðssyni, lögfræðingi hjá Kaupthing í Lúx. Samningarnir virðast ná yfir nær alla skuldabréfaeign Kaupthing í Lúxem- borg í Kaupþingi hf. Hluta af skuldabréfunum sem Lindsor keypti af Kaupthing í Lúx hafði bankinn sama dag keypt af fé- laginu Marple og fjórum starfsmönn- um bankans, samkvæmt rannsókn FME. Framvirku samningarnir taka ekki til þessara skuldabréfakaupa og virðist þeim hafa verið bætt við á síð- ustu stundu. Starfsmennirnir höfðu á sínum tíma fengið lán hjá Kaupthing í Lúx til að kaupa skuldabréfin að hluta eða öllu leyti. Þrír seldu bréfin með hagnaði og sá fjórði fékk hærra verð en við var að búast á markaði á þeim tíma. Tveir af starfsmönnunum lögðu háar fjárhæðir inn á reikning félagsins M/Y Maria Ltd. hinn 7. og 8. október 2008, en félagið var í eigu háttsettra stjórnenda og starfs- manna Kaupþingssamstæðunnar (sjá síðu 22). FME telur það athyglisvert að mismunandi verð fékkst fyrir bréf í Atburðarás Lindsor-málsins í júlí til desember 2008 18. júlí Félagið Lindsor Holdings Corpora- tion er stofnað og skráð á Bresku Jómfrúa- eyjum. Tveir framvirkir samningar gerðir um kaup Lindsor á skulda- bréfum útgefnum af Kaup- þingi hf. 6. október Kaupþing hf. veitir Lindsor 171 milljónar evru peninga- markaðslán. Talsvert hærri upphæð en nam verðgildi þessara tveggja framvirku samninga frá 25. sept. 2. október Magnús, fyrrv. fram- kvæmdastjóri Kaupthing í Lúx., sendir tölvupóst á fyrrv. fram- kvæmdastjóra útlána hjá Kaupþingi um að Lindsor þurfi lán til að kaupa skuldabréf. Kaupthing í Lúxem- borg selur Lindsor nýkeypt skuldabréf í Kaupþingi hf. ásamt eigin skulda- bréfum. Almenn heimild til kaupa á skuldabréf- um veitt á stjórnar- fundi. Engin sér- stök heimild veitt fyrir lánveitingu til Lindsor. 25. september Skuldabréf fjögurra starfs- manna Kaupþings í Lúxemborg og Marple holding eru seld á yfirverði til Kaupþings í Lúxemborg. 3. október Magnús sendir tölvu- póst þar sem kaup Lindsor á skuldabréf- unum eru sett upp í excel-skjali. Kaupþing hf. fær 500 milljóna evra neyðar- lán frá Seðlabanka Íslands. Neyðarlögin samþykkt á Alþingi. 9. okt. FME tekur yfir Kaup- þing hf. 21. okt. Hreiðar Már hætt- ir sem forstjóri Kaup- þings. 31. okt. Gjalddagi á láni Kaup- þings til Lindsor rennur upp. Lánið fæst ekki greitt. 15. des. Lykilskjöl tengd stofnun Lindsor og lánveitingu Kaupþings til félagsins koma fram undirrituð. Skjölin eru dagsett aft- ur í tímann. 17. desember Skuldabréfa- eign Lindsor er nú 11 milljóna evra virði, ásamt áföllnum vöxt- um sem voru aldrei greiddir. Eignasafn Lindsor hefur því rýrnað um 94%. „Ruslakista“ Kaupþings  Lindsor-málið er enn til rannsóknar í Lúxemborg  Aflandsfélag á Tortóla tengir starfsmenn Kaup- þings við mögulegt skjalafals  Síðasta hrunmálið þar sem ákvörðunar um saksókn er enn að vænta Kaupþing hf. Aflandsfélagið Lindsor Holding var í eigu Kaupþings hf. en félagið keypti skuldabréf gefin út af bankanum skömmu fyrir fall hans. Eignarhald á Lindsor Holding Lindsor Holding Corporation stofnað og skráð á Tortóla Allied Directors Corp., Global Managers Inc. og International Officers Inc. eru skráðir stjórnendur Lindsor Stjórnendur þessara þriggja félaga og prókúruhafar Lindsor eru: Magnús Palmbäck, Gianni de Bortoli og Andri Sigurðsson, allt starfsmenn Kaupthing í Lúx Skráður eigandi Lindsor er félagið Otris S.A., sem á rætur að rekja til gamla Búnaðarbankans Eigandi Otris S.A. er talinn vera Serradis Trust, fjárhaldsfélag á eyjunni Guernsey Samkvæmt FME var raunveru- legur eigandi Lindsor þó alltaf Kaupþing hf. og var félaginu stýrt af bankanum  SJÁ SÍÐU 20 fyrir heimilin í landinu Sparidagar Skoðaðu úrvalið okkar á *SENDUM UM LAND ALLTLágmúli 8 | S: 530 2800 10% afsláttur 49’’ 55’’ 65’’ 75’’ 15-40% afsláttur 20% afsláttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.