Morgunblaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019 Lindsor-málið í Lúxemborg sama skuldabréfaflokki sama daginn. Kaupthing í Lúx keypti bréfin á 102 sent, 75 sent og 63 sent í þrennum viðskiptum sama daginn. Lindsor keypti þessi bréf af Kauphting í Lúx á sama verði. „Slíkur verðmunur inn- an sama dags er fáheyrður þegar um að ræða verðbréf með föstum vöxtum og rennir stoðum undir álit FME um að Lindsor hafi verið notað til að losa tiltekna aðila við verðlítil skuldabréf útgefin af Kaupþingi Ísl. Þessir að- ilar voru m.a. félagið Marple og fjórir starfsmenn Kaupthings Lux.,“ segir í réttarbeiðni sérstaks saksóknara til yfirvalda í Lúxemborg frá árinu 2010 sem Morgunblaðið hefur undir hönd- um. Í bréfi FME frá 24. mars 2010 til Financial Service Commission (FSC), fjármálaeftirlitsins á Bresku Jomfrúaeyjunum (BVI), sem Morg- unblaðið hefur einnig undir höndum, segir að Lindsor virðist vera félag sem var notað til að verðlauna valda skuldabréfahafa Kaupþings ásamt því að fjarlægja tap af efnahags- reikningi Kaupthing í Lúx. „Lindsor tók á sig þetta tap, félag sem var í eigu Kaupþings á þeim tíma sem Kaupþing var á leið í gjaldþrot. Með þessum hætti var Lindsor í raun „ruslakista“ sem var notuð til að til að henda skuldabréfum Kaupþings í þegar það var ljóst að þau yrðu bráð- lega verðlaus,“ segir í bréfinu. Það er athyglisvert að fjárhæð lánsins sé nákvæmlega 171 milljón evra, en samkvæmt FME er sú upp- hæð ekki í neinum tengslum við nein fyrirfram tilgreind viðskipti. „Öllu heldur virðist tilgangurinn með fjár- hæðinni vera sá að veita félaginu svigrúm til að gera því kleift að nota fjármunina þegar því hentar.“ Starfsmaður Kaupþings hf. sendi tölvupóst til Kaupthing í Lúx að kvöldi 6. október 2008 og spurðist fyrir um þessa nákvæmu lánsfjár- hæð. Francois Xavier Cabay, starfs- maður Kaupthing í Lúx, svaraði því til að upphæðin væri nákvæmlega 171 milljón og Magnús Guðmunds- son, fyrrverandi framkvæmdastjóri Kaupthing í Lúx, hefði staðfest það. „It has been confirmed by Magnús.“ Í skýrslu um ákveðna þætti innra eftirlits Kaupþings banka hf., gerð af PricewaterhouseCoopers hf. (PWC) að beiðni skilanefndar Kaupþings hf., kemur fram að engar sérstakar heimildir eru til fyrir útlánum til Lindsor. Þá var veitt almenn heimild á stjórnarfundi 25. september 2008 til kaupa á eigin skuldabréfum. Í þeirri skýrslu var leitað umsagn- ar frá Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrr- verandi forstjóra Kaupþings hf., og segir að áætlun Hreiðars Más hafi verið tvíþætt. Í fyrsta lagi að við- halda lausafjárstöðu bankans, í öðru lagi að kaupa eigin skuldabréf hans á afslætti. Vöxtur útlána var stöðvaður haustið 2007 og það lausafé sem kom inn og var umfram nauðsyn nýtt til að kaupa til baka skuldabréf bank- ans. „Magnúsi Guðmundssyni í Lúx- emborg var því falið að kaupa á markaði þau skuldabréf félagsins sem í boði voru. Hreiðar kannaðist ekki við framvirka samninga i lagið Otris S.A. er eigandi Lindsor. Undirskrift þess sem skrifar undir fyrir hönd Lindsor á peningaþvætt- isathuguninni er illlæsileg en í yfir- heyrslum sérstaks saksóknara yfir Eggerti J. Hilmarssyni, fyrrv. lög- fræðingi hjá Kaupthing í Lúx., kem- ur fram að Gianni de Bortoli eigi þessa undirskrift. Í skjölum innan úr Kaupþingi hf. var þó að finna kaup- samning (e. Acquisition Agreement) milli Kaupþings hf. og Kaupthing í Lúx um að Kaupþing kaupi Lindsor. Kaupsamningurinn er dagsettur 24. september 2008 en undirskrift Bor- tolis um að Otris S.A. sé eigandi er dagsett 6. október 2008. Samkvæmt rannsókn sem skila- nefnd Kaupþings fór í og deildi með FME kemur fram að á þeim tíma sem lánveitingin er gerð og kaupin fara fram er annaðhvort Otris S.A. eða Kaupþing hf., eigandi Lindsor. Þá er eigandi Otris S.A. annaðhvort Kaupþing hf. eða Serradis, sem er fjárhaldsfélag (e. Trust) og skráð á eyjunni Guernsey. Í bréfi sérstaks saksóknara til FSC á Bresku Jóm- frúaeyjum fer þetta misræmi eftir heimildum (e. depending on the source). Skýrsla PWC snertir einnig á þessu og tekur fram að misræmis gæti í stofngögnum Lindsor um hver sé skilgreindur ráðandi hluthafi (e. beneficial owner). „AML (Anti mon- ey laundering) er ekki í samræmi við stofngögn,“ segir í skýrslu PWC. „Eitthvert optionssceem fyrir Búnaðarbankamenn“ Á stofngögnum Lindsor Holding er Otris S.A. skráð eigandi félagsins. Eigandi Otris S.A. er að því er Morg- unblaðið kemst næst Serradis Trust, sem er skráð á eyjunni Guernsey. Serradis Trust er í raun fjárhalds- félag í eigu sjálfs sín og á í Otris S.A. sem og öðru félagi að nafni Ferradis. Félögin eiga rætur að rekja til gamla Búnaðarbankans. „Þetta [Otris S.A. og Ferradis] er í rauninni afsprengi eða afsprengi, þetta er sem sagt, var stofnað í tíð Búnðarbankans þegar hann var. Síðan var fært yfir í raun- inni þessi félög, Otris, Ferradis til Kaupþings við sameiningu þar sem ég veit að þessi félög voru sett upp utan um eitthvert optionssceem fyrir Búnaðarbankamenn. Þar inni voru Búnaðarbankabréf sem breyttust síðan í Kaupþingsbréf þannig að þeg- ar þau voru færð yfir til Kaupþing í Lúx að þá var þetta samansett upp á venjulega þannig að félögin voru bara í administration hjá bankan- um,“ er haft eftir Eggerti Hilmars- syni í yfirheyrslu hjá sérstökum sak- sóknara, þegar hann er spurður um hverjir eiga og stýra þessum fé- lögum. Hann bætir við að í raun sé enginn eigandi að þessum sjóði. Þegar sak- sóknari spyr hann hvernig slíkt fyr- irkomulag virkar og hvort hagnaður sem þar myndast renni þá bara til góðgerðarmála segir Eggert að því geti hann ekki svarað. „Ég get ekki svarað, bara eiginlega veit ekki hvernig menn ætluðu sér að taka þann hagnað til baka af því eins og sagði áðan, upphaflega var þetta, átti þetta að fjármagna bréf í Búnaðar- bankanum sem semsagt hefði þá greiðst til baka […]“ Í yfirheyrslum yfir Hreiðari Má, 6. maí 2010, kemur fram að þessi félög voru sett upp þegar Búnaðarbankinn gamli var enn í ríkiseigu. „Það voru sett upp tvö félög, Feratis [Ferradis] og Otris, og inn í þau félög voru sett bréf bankans sem voru til þess að, til á móti hlutabréfasamningum starfs- manna […] ég held þetta sé svipað sett upp og Landsbankinn bjó svona til seinna meir, þarna með þessi Pa- nama-félög sem áttu þarna hlutabréf í bankanum, svona starfsmenn í raun og veru fengu hagnaðinn af og já svo þetta eru sjálfseignarfélög með ein- hverju beneficial owner. Þú veist, ég veit ekki hver það var, stundum er sett einhver rauður kross á Parama [Panama] í einhverjum tilvikum. Ég veit ekki í þessu tilviki eða undir svona stjórn bankans í raun og veru þarna, en af hverju það félag átti að vera beneficial owner, það veit ég ekki heldur,“ segir Hreiðar. „Hvernig er þessi strúktúr?“ Af tölvupóstssamskiptum lykil- starfsmanna Kaupþings að dæma virðast margir ekki meðvitaðir um eignarhaldið á Lindsor, hvorki fyrir né eftir lánveitinguna. Fyrsti tölvu- póstur sem birtist tengdur Lindsor í Kaupþingi er frá 2. október 2008. Þar sendir Magnús Guðmundsson á Bjarka Diego, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra útlána Kaupþings: „Sæll, þetta er félagið sem þarf 200 milljón evra lán til að kaupa skulda- bréf á bankann, getur þetta gengið hratt? Þetta er Zero cash flow.“ Morguninn eftir, hinn 3. október 2008, sendir Magnús Guðmundsson á Bjarka Diego póst þar sem í við- hengi er excelskjalið „Kaup á Bonds“ þar sem búið er að lista kaupin upp. Magnús segir í þeim pósti: „Með- fylgjandi eru skuldabréfin sem ég færi inn í félagið Lindsor Holding Corp.“ Bjarki er síðar í samskiptum við Halldór Bjarkar Lúðvígsson, fyrrverandi starfsmann fyrirtækja- sviðs Kaupþings, og segir: „Var að heyra í MG [Magnúsi Guðmunds- syni] sem var að gefa það í skyn að við þyrftum jafnvel að flýta þessari transaction eitthvað – varst þú nokk- uð búiin að heyra af því?“ Halldór Bjarkar svarar því neitandi. Á þessum tímapunkti eru þrír dag- ar í setningu neyðarlaganna og sex dagar þar til FME tekur yfir Kaup- þing hf. Hinn 6. október 2008 er að finna töluvpóstssamskipti milli Eggerts, Magnúsar og Bjarka Diego. Póstur er sendur á Halldór Bjarkar sem ber titilinn „Samningarnir um bondin“ og Halldór Bjarkar sendir á Guðnýju Örnu Sveinsdóttur, fjármálastjóra Kaupþings: „Þekkir þú ekki þennan strúktúr eitthvað? Otris SA er eig- andi Lindsor. Erum við beneficial eigandi Otris eða hvernig er þessi strúktúr?“ Þannig að sama dag og Lindsor er veitt 171 milljónar evru lán til skuldabréfakaupa er enn óvissa meðal starfsmanna um eign- arhald félagsins. Hinn 8. október 2008 rétt fyrir kl. 11 að morgni send- ir Halldór Bjarkar til Iðu Brár Bene- diktsdóttur, starfsmanns Kaupþings, með Magnús og Bjarka Diego í CC- pósti, póst sem ber heitið „Lindsor Holding Corp“ og segir: „Þetta er fé- lagið sem Magnús/Bjarki voru að tala um þ.e.a.s. Lindsor Holding. Ef við ætlum að taka þetta yfir væri það væntanlega í gegnum þetta félag, 8. október. Halldór Bjarkar.“ Þennan sama dag, korteri seinna, sendir Iða Brá á Halldór Bjarkar: „Ég er dáldið stressuð að nota þetta en ég er byrj- uð að fá póst frá lögfræðingum HSH þannig að við verðum að klára þetta. Er þetta ekki svolítil flétta eða er hægt að bendla þetta beint við Kaup- thing hf.?“ Í yfirheyrslum yfir Magn- úsi segir hann að áhyggjur Iðu Brár hafi ekki snúist um hvort rétt hafi verið staðið að Lindsor. „Það er ein- faldlega Iða Brá sem að var búin að kaupa skuldabréf frá HSH eða treas- ure-deildinni hjá móðurfélaginu [...] hún er bara að segja að hún sé stress- uð að láta Lindsor kaupa þessi skuldabréf,“ segir Magnús. Daginn eftir, 9. október 2008, tek- ur FME yfir Kaupþing. Hinn 31. Morgunblaðið/Ásdís Búnaðarbankinn Félagið Otris S.A., sem er skráður eigandi Lindsor á stofngögnum aflandsfélagsins, á rætur að rekja til Búnaðarbankans. tengslum við Lindsor né vissi hann af hverju þetta hefði verið gert í sér- félagi. Hann sagðist þó halda að þetta væri félag í eigu Kaupþings hf. sem Lúxemborg stjórnaði,“ segir í skýrslu PWC. Stofnun félagsins á Tortóla Félagið Lindsor Holdings Cor- poration var stofnað og skráð á Bresku Jómfrúaeyjum, nánar til tek- ið Tortóla, hinn 18. júlí 2008. Stjórn- endur eru skipaðir hinn 18. septem- ber 2008 og sér Francis Perez, starfsmaður lögmannsskrifstofunnar Mossack Fonseca & Co, um að skrá stjórnendur Lindsor. Stjórnendur Lindsor eru Allied Directors Corp., Global Managers Inc. og International Officers Inc. Öll þessi félög eru skráð á sama heim- ilisfang og Lindsor á Castro-stræti á Tortóla. Þrír einstaklingar eru síðan skráðir sem stjórnendur þessara þriggja félaga og eru prókúruhafar Lindsor. Það eru Magnús Palmbäck, Gianni de Bortoli og Andri Sigurðs- son. Þeir voru á þessum tíma allir starfsmenn hjá Kaupthing í Lúx. FME telur hins vegar að Lindsor hafi verið að fullu í eigu Kaupþings hf. Loðið eignarhald Lindsor Eignarhald Lindsor er sett upp með afar óljósum hætti. Eignarhald- ið virðist svo óljóst að mánuðum eftir lánveitinguna eru lykilstarfsmenn Kaupþings að spyrjast fyrir í tölvu- póstum sín á milli um hver sé raun- verulegur eigandi. Í peningaþvættis- athugun (e. AML [Anti Money Laundering] questionnaire for for- eign company) sem er dagsett 6. október 2008, og Morgunblaðið hef- ur undir höndum, kemur fram að fé- Í yfirheyrslum yfir Magnúsi Guð- mundssyni, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra Kaupthings í Lúx- emborg, hjá embætti sérstaks saksóknara tekur hann fram að með setningu neyðarlaganna þann 6.oktober 2008 verði verð- mæti skuldbréfakrafna sam- stundis lægra. „Þið áttið ykkur á því líka að neyðarlögin verða til þess að verðmæti krafna, skuldabréfa- krafna, lækkar 7. október vegna þess að menn búa til neyðarrétt sem gerir innistæðueigendum kleift að fá 100% af kröfum sín- um til baka,“ segir Magnús. Hann tekur fram að ekki hafi verið búið að leggja neyðarlögin fram á þingi þegar Lindsor-lánið er veitt. Hann segir síðan ítrekað að hann hafi ekki vitað af því að ver- ið væri að ræða setningu neyð- arlaga á Alþingi á þessum degi. „Mánudaginn 6. október voru neyðarlögin sett fram á Alþingi. Það er bara staðreynd. Við skul- um ekki vera að deila um það,“ segir saksóknari. „Í eftirmiðdag- inn og það er klukkan sex orðin hjá okkur,“ segir Magnús þá. Saksóknari segir að allir viti að það sé verið að ræða neyðarlög á Íslandi. Magnús svarar því neit- andi og saksóknari spyr þá: „Þú veist ekki af því, að það er verið að setja neyðarlög á Íslandi?“ og Magnús svarar því neitandi á ný. „Þú veist ekki af því úti í Lúx- emborg 6. október að bankakerf- ið á Íslandi sé að hrynja og þeir séu að setja neyðarlög?,“ spyr saksóknari á ný. „Ekki fyrr en þetta var sagt að það hafi verið sér útsending frá Alþingi.. ég hafði ekki hugmynd um það,“ segir Magnús þá. Neyðarlögin lækkuðu verðmæti krafna FALLEG OG VÖNDUÐ LEIKFÖNG úr náttúrulegum efnivið, tré og silki ERUM FLUTT ! á Nýbýlaveg 8 – Portið Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Eru sparifötin hrein?  SJÁ SÍÐU 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.