Morgunblaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019
Lindsor-málið í Lúxemborg
sama skuldabréfaflokki sama daginn.
Kaupthing í Lúx keypti bréfin á 102
sent, 75 sent og 63 sent í þrennum
viðskiptum sama daginn. Lindsor
keypti þessi bréf af Kauphting í Lúx
á sama verði. „Slíkur verðmunur inn-
an sama dags er fáheyrður þegar um
að ræða verðbréf með föstum vöxtum
og rennir stoðum undir álit FME um
að Lindsor hafi verið notað til að losa
tiltekna aðila við verðlítil skuldabréf
útgefin af Kaupþingi Ísl. Þessir að-
ilar voru m.a. félagið Marple og fjórir
starfsmenn Kaupthings Lux.,“ segir í
réttarbeiðni sérstaks saksóknara til
yfirvalda í Lúxemborg frá árinu 2010
sem Morgunblaðið hefur undir hönd-
um.
Í bréfi FME frá 24. mars 2010 til
Financial Service Commission
(FSC), fjármálaeftirlitsins á Bresku
Jomfrúaeyjunum (BVI), sem Morg-
unblaðið hefur einnig undir höndum,
segir að Lindsor virðist vera félag
sem var notað til að verðlauna valda
skuldabréfahafa Kaupþings ásamt
því að fjarlægja tap af efnahags-
reikningi Kaupthing í Lúx. „Lindsor
tók á sig þetta tap, félag sem var í
eigu Kaupþings á þeim tíma sem
Kaupþing var á leið í gjaldþrot. Með
þessum hætti var Lindsor í raun
„ruslakista“ sem var notuð til að til að
henda skuldabréfum Kaupþings í
þegar það var ljóst að þau yrðu bráð-
lega verðlaus,“ segir í bréfinu.
Það er athyglisvert að fjárhæð
lánsins sé nákvæmlega 171 milljón
evra, en samkvæmt FME er sú upp-
hæð ekki í neinum tengslum við nein
fyrirfram tilgreind viðskipti. „Öllu
heldur virðist tilgangurinn með fjár-
hæðinni vera sá að veita félaginu
svigrúm til að gera því kleift að nota
fjármunina þegar því hentar.“
Starfsmaður Kaupþings hf. sendi
tölvupóst til Kaupthing í Lúx að
kvöldi 6. október 2008 og spurðist
fyrir um þessa nákvæmu lánsfjár-
hæð. Francois Xavier Cabay, starfs-
maður Kaupthing í Lúx, svaraði því
til að upphæðin væri nákvæmlega
171 milljón og Magnús Guðmunds-
son, fyrrverandi framkvæmdastjóri
Kaupthing í Lúx, hefði staðfest það.
„It has been confirmed by Magnús.“
Í skýrslu um ákveðna þætti innra
eftirlits Kaupþings banka hf., gerð af
PricewaterhouseCoopers hf. (PWC)
að beiðni skilanefndar Kaupþings hf.,
kemur fram að engar sérstakar
heimildir eru til fyrir útlánum til
Lindsor. Þá var veitt almenn heimild
á stjórnarfundi 25. september 2008
til kaupa á eigin skuldabréfum.
Í þeirri skýrslu var leitað umsagn-
ar frá Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrr-
verandi forstjóra Kaupþings hf., og
segir að áætlun Hreiðars Más hafi
verið tvíþætt. Í fyrsta lagi að við-
halda lausafjárstöðu bankans, í öðru
lagi að kaupa eigin skuldabréf hans á
afslætti. Vöxtur útlána var stöðvaður
haustið 2007 og það lausafé sem kom
inn og var umfram nauðsyn nýtt til
að kaupa til baka skuldabréf bank-
ans. „Magnúsi Guðmundssyni í Lúx-
emborg var því falið að kaupa á
markaði þau skuldabréf félagsins
sem í boði voru. Hreiðar kannaðist
ekki við framvirka samninga i
lagið Otris S.A. er eigandi Lindsor.
Undirskrift þess sem skrifar undir
fyrir hönd Lindsor á peningaþvætt-
isathuguninni er illlæsileg en í yfir-
heyrslum sérstaks saksóknara yfir
Eggerti J. Hilmarssyni, fyrrv. lög-
fræðingi hjá Kaupthing í Lúx., kem-
ur fram að Gianni de Bortoli eigi
þessa undirskrift. Í skjölum innan úr
Kaupþingi hf. var þó að finna kaup-
samning (e. Acquisition Agreement)
milli Kaupþings hf. og Kaupthing í
Lúx um að Kaupþing kaupi Lindsor.
Kaupsamningurinn er dagsettur 24.
september 2008 en undirskrift Bor-
tolis um að Otris S.A. sé eigandi er
dagsett 6. október 2008.
Samkvæmt rannsókn sem skila-
nefnd Kaupþings fór í og deildi með
FME kemur fram að á þeim tíma
sem lánveitingin er gerð og kaupin
fara fram er annaðhvort Otris S.A.
eða Kaupþing hf., eigandi Lindsor.
Þá er eigandi Otris S.A. annaðhvort
Kaupþing hf. eða Serradis, sem er
fjárhaldsfélag (e. Trust) og skráð á
eyjunni Guernsey. Í bréfi sérstaks
saksóknara til FSC á Bresku Jóm-
frúaeyjum fer þetta misræmi eftir
heimildum (e. depending on the
source). Skýrsla PWC snertir einnig
á þessu og tekur fram að misræmis
gæti í stofngögnum Lindsor um hver
sé skilgreindur ráðandi hluthafi (e.
beneficial owner). „AML (Anti mon-
ey laundering) er ekki í samræmi við
stofngögn,“ segir í skýrslu PWC.
„Eitthvert optionssceem
fyrir Búnaðarbankamenn“
Á stofngögnum Lindsor Holding
er Otris S.A. skráð eigandi félagsins.
Eigandi Otris S.A. er að því er Morg-
unblaðið kemst næst Serradis Trust,
sem er skráð á eyjunni Guernsey.
Serradis Trust er í raun fjárhalds-
félag í eigu sjálfs sín og á í Otris S.A.
sem og öðru félagi að nafni Ferradis.
Félögin eiga rætur að rekja til gamla
Búnaðarbankans. „Þetta [Otris S.A.
og Ferradis] er í rauninni afsprengi
eða afsprengi, þetta er sem sagt, var
stofnað í tíð Búnðarbankans þegar
hann var. Síðan var fært yfir í raun-
inni þessi félög, Otris, Ferradis til
Kaupþings við sameiningu þar sem
ég veit að þessi félög voru sett upp
utan um eitthvert optionssceem fyrir
Búnaðarbankamenn. Þar inni voru
Búnaðarbankabréf sem breyttust
síðan í Kaupþingsbréf þannig að þeg-
ar þau voru færð yfir til Kaupþing í
Lúx að þá var þetta samansett upp á
venjulega þannig að félögin voru
bara í administration hjá bankan-
um,“ er haft eftir Eggerti Hilmars-
syni í yfirheyrslu hjá sérstökum sak-
sóknara, þegar hann er spurður um
hverjir eiga og stýra þessum fé-
lögum.
Hann bætir við að í raun sé enginn
eigandi að þessum sjóði. Þegar sak-
sóknari spyr hann hvernig slíkt fyr-
irkomulag virkar og hvort hagnaður
sem þar myndast renni þá bara til
góðgerðarmála segir Eggert að því
geti hann ekki svarað. „Ég get ekki
svarað, bara eiginlega veit ekki
hvernig menn ætluðu sér að taka
þann hagnað til baka af því eins og
sagði áðan, upphaflega var þetta, átti
þetta að fjármagna bréf í Búnaðar-
bankanum sem semsagt hefði þá
greiðst til baka […]“
Í yfirheyrslum yfir Hreiðari Má, 6.
maí 2010, kemur fram að þessi félög
voru sett upp þegar Búnaðarbankinn
gamli var enn í ríkiseigu. „Það voru
sett upp tvö félög, Feratis [Ferradis]
og Otris, og inn í þau félög voru sett
bréf bankans sem voru til þess að, til
á móti hlutabréfasamningum starfs-
manna […] ég held þetta sé svipað
sett upp og Landsbankinn bjó svona
til seinna meir, þarna með þessi Pa-
nama-félög sem áttu þarna hlutabréf
í bankanum, svona starfsmenn í raun
og veru fengu hagnaðinn af og já svo
þetta eru sjálfseignarfélög með ein-
hverju beneficial owner. Þú veist, ég
veit ekki hver það var, stundum er
sett einhver rauður kross á Parama
[Panama] í einhverjum tilvikum. Ég
veit ekki í þessu tilviki eða undir
svona stjórn bankans í raun og veru
þarna, en af hverju það félag átti að
vera beneficial owner, það veit ég
ekki heldur,“ segir Hreiðar.
„Hvernig er þessi strúktúr?“
Af tölvupóstssamskiptum lykil-
starfsmanna Kaupþings að dæma
virðast margir ekki meðvitaðir um
eignarhaldið á Lindsor, hvorki fyrir
né eftir lánveitinguna. Fyrsti tölvu-
póstur sem birtist tengdur Lindsor í
Kaupþingi er frá 2. október 2008.
Þar sendir Magnús Guðmundsson á
Bjarka Diego, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra útlána Kaupþings:
„Sæll, þetta er félagið sem þarf 200
milljón evra lán til að kaupa skulda-
bréf á bankann, getur þetta gengið
hratt? Þetta er Zero cash flow.“
Morguninn eftir, hinn 3. október
2008, sendir Magnús Guðmundsson
á Bjarka Diego póst þar sem í við-
hengi er excelskjalið „Kaup á Bonds“
þar sem búið er að lista kaupin upp.
Magnús segir í þeim pósti: „Með-
fylgjandi eru skuldabréfin sem ég
færi inn í félagið Lindsor Holding
Corp.“ Bjarki er síðar í samskiptum
við Halldór Bjarkar Lúðvígsson,
fyrrverandi starfsmann fyrirtækja-
sviðs Kaupþings, og segir: „Var að
heyra í MG [Magnúsi Guðmunds-
syni] sem var að gefa það í skyn að
við þyrftum jafnvel að flýta þessari
transaction eitthvað – varst þú nokk-
uð búiin að heyra af því?“ Halldór
Bjarkar svarar því neitandi.
Á þessum tímapunkti eru þrír dag-
ar í setningu neyðarlaganna og sex
dagar þar til FME tekur yfir Kaup-
þing hf.
Hinn 6. október 2008 er að finna
töluvpóstssamskipti milli Eggerts,
Magnúsar og Bjarka Diego. Póstur
er sendur á Halldór Bjarkar sem ber
titilinn „Samningarnir um bondin“
og Halldór Bjarkar sendir á Guðnýju
Örnu Sveinsdóttur, fjármálastjóra
Kaupþings: „Þekkir þú ekki þennan
strúktúr eitthvað? Otris SA er eig-
andi Lindsor. Erum við beneficial
eigandi Otris eða hvernig er þessi
strúktúr?“ Þannig að sama dag og
Lindsor er veitt 171 milljónar evru
lán til skuldabréfakaupa er enn
óvissa meðal starfsmanna um eign-
arhald félagsins. Hinn 8. október
2008 rétt fyrir kl. 11 að morgni send-
ir Halldór Bjarkar til Iðu Brár Bene-
diktsdóttur, starfsmanns Kaupþings,
með Magnús og Bjarka Diego í CC-
pósti, póst sem ber heitið „Lindsor
Holding Corp“ og segir: „Þetta er fé-
lagið sem Magnús/Bjarki voru að
tala um þ.e.a.s. Lindsor Holding. Ef
við ætlum að taka þetta yfir væri það
væntanlega í gegnum þetta félag, 8.
október. Halldór Bjarkar.“ Þennan
sama dag, korteri seinna, sendir Iða
Brá á Halldór Bjarkar: „Ég er dáldið
stressuð að nota þetta en ég er byrj-
uð að fá póst frá lögfræðingum HSH
þannig að við verðum að klára þetta.
Er þetta ekki svolítil flétta eða er
hægt að bendla þetta beint við Kaup-
thing hf.?“ Í yfirheyrslum yfir Magn-
úsi segir hann að áhyggjur Iðu Brár
hafi ekki snúist um hvort rétt hafi
verið staðið að Lindsor. „Það er ein-
faldlega Iða Brá sem að var búin að
kaupa skuldabréf frá HSH eða treas-
ure-deildinni hjá móðurfélaginu [...]
hún er bara að segja að hún sé stress-
uð að láta Lindsor kaupa þessi
skuldabréf,“ segir Magnús.
Daginn eftir, 9. október 2008, tek-
ur FME yfir Kaupþing. Hinn 31.
Morgunblaðið/Ásdís
Búnaðarbankinn Félagið Otris S.A., sem er skráður eigandi Lindsor á
stofngögnum aflandsfélagsins, á rætur að rekja til Búnaðarbankans.
tengslum við Lindsor né vissi hann af
hverju þetta hefði verið gert í sér-
félagi. Hann sagðist þó halda að þetta
væri félag í eigu Kaupþings hf. sem
Lúxemborg stjórnaði,“ segir í
skýrslu PWC.
Stofnun félagsins á Tortóla
Félagið Lindsor Holdings Cor-
poration var stofnað og skráð á
Bresku Jómfrúaeyjum, nánar til tek-
ið Tortóla, hinn 18. júlí 2008. Stjórn-
endur eru skipaðir hinn 18. septem-
ber 2008 og sér Francis Perez,
starfsmaður lögmannsskrifstofunnar
Mossack Fonseca & Co, um að skrá
stjórnendur Lindsor.
Stjórnendur Lindsor eru Allied
Directors Corp., Global Managers
Inc. og International Officers Inc. Öll
þessi félög eru skráð á sama heim-
ilisfang og Lindsor á Castro-stræti á
Tortóla. Þrír einstaklingar eru síðan
skráðir sem stjórnendur þessara
þriggja félaga og eru prókúruhafar
Lindsor. Það eru Magnús Palmbäck,
Gianni de Bortoli og Andri Sigurðs-
son. Þeir voru á þessum tíma allir
starfsmenn hjá Kaupthing í Lúx.
FME telur hins vegar að Lindsor
hafi verið að fullu í eigu Kaupþings
hf.
Loðið eignarhald Lindsor
Eignarhald Lindsor er sett upp
með afar óljósum hætti. Eignarhald-
ið virðist svo óljóst að mánuðum eftir
lánveitinguna eru lykilstarfsmenn
Kaupþings að spyrjast fyrir í tölvu-
póstum sín á milli um hver sé raun-
verulegur eigandi. Í peningaþvættis-
athugun (e. AML [Anti Money
Laundering] questionnaire for for-
eign company) sem er dagsett 6.
október 2008, og Morgunblaðið hef-
ur undir höndum, kemur fram að fé-
Í yfirheyrslum yfir Magnúsi Guð-
mundssyni, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Kaupthings í Lúx-
emborg, hjá embætti sérstaks
saksóknara tekur hann fram að
með setningu neyðarlaganna
þann 6.oktober 2008 verði verð-
mæti skuldbréfakrafna sam-
stundis lægra.
„Þið áttið ykkur á því líka að
neyðarlögin verða til þess að
verðmæti krafna, skuldabréfa-
krafna, lækkar 7. október vegna
þess að menn búa til neyðarrétt
sem gerir innistæðueigendum
kleift að fá 100% af kröfum sín-
um til baka,“ segir Magnús.
Hann tekur fram að ekki hafi
verið búið að leggja neyðarlögin
fram á þingi þegar Lindsor-lánið
er veitt.
Hann segir síðan ítrekað að
hann hafi ekki vitað af því að ver-
ið væri að ræða setningu neyð-
arlaga á Alþingi á þessum degi.
„Mánudaginn 6. október voru
neyðarlögin sett fram á Alþingi.
Það er bara staðreynd. Við skul-
um ekki vera að deila um það,“
segir saksóknari. „Í eftirmiðdag-
inn og það er klukkan sex orðin
hjá okkur,“ segir Magnús þá.
Saksóknari segir að allir viti að
það sé verið að ræða neyðarlög á
Íslandi. Magnús svarar því neit-
andi og saksóknari spyr þá: „Þú
veist ekki af því, að það er verið
að setja neyðarlög á Íslandi?“ og
Magnús svarar því neitandi á ný.
„Þú veist ekki af því úti í Lúx-
emborg 6. október að bankakerf-
ið á Íslandi sé að hrynja og þeir
séu að setja neyðarlög?,“ spyr
saksóknari á ný.
„Ekki fyrr en þetta var sagt að
það hafi verið sér útsending frá
Alþingi.. ég hafði ekki hugmynd
um það,“ segir Magnús þá.
Neyðarlögin lækkuðu
verðmæti krafna
FALLEG OG VÖNDUÐ
LEIKFÖNG
úr náttúrulegum efnivið,
tré og silki
ERUM FLUTT
!
á Nýbýlaveg
8
– Portið
Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Eru sparifötin
hrein?
SJÁ SÍÐU 22