Morgunblaðið - 15.08.2019, Síða 39

Morgunblaðið - 15.08.2019, Síða 39
UMRÆÐAN 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019 Fiðlusnillingurinn snýr aftur í Hörpu Jónas Sen — 24.11.2017 Eldborg 20.okt. kl.19:30 Píanisti Alessio Bax Miðasala hefst kl. 12 í dag á harpa.is og í síma 528 5050 @harpareykjavik Gríðarlegur árangur í meðferð fíknisjúkdóma var staðreynd og bjartsýni ríkti fyrstu árin eftir að Samtök áhugafólks um áfeng- isvandann, SÁÁ, voru stofnuð ár- ið 1977. Krafturinn sem þessu nýju samtökum fylgdi fyrir rúm- um 40 árum var mikill. Menn sóttu þekkingu til Bandaríkjanna, þar sem árangursríkar meðferðir eru stundaðar og gera það enn. Þar er líka vagga AA-samtak- anna. En tímarnir breytast og mennirnir með, en þó er fíkni- sjúkdómurinn (alkóhólismi) sam- ur við sig. Biðlistarnir á sjúkra- húsið Vog telja í dag um 600 manns og listarnir hafa verið allt of langir í allt of langan tíma. Fyrir því eru ýmsar ástæður, þó aðallega ófullnægjandi þjónustu- samningur við ríkið og hefur reksturinn verið fjármagnaður að hluta til með sjálfsaflafé. Farið er að þrengja að umhverfi Sjúkra- hússins Vogs í dag og á þjónusta í núverandi húsnæði sífellt erfiðara með að mæta kröfum nútímans um kynjaskiptingu og aldurs- greiningu og öðrum kröfulýs- ingum hins opinbera sem voru óþekktar á þeim tíma sem sjúkra- húsið var byggt við Stórhöfða. Stærðin og hönnun hússins er takmarkandi þáttur í því hvernig hægt er að auka afköst sjúkra- hússins og stytta biðlista, bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk. Frá þeim tíma þegar sjúkrahúsið var byggt hefur fólki hér á landi fjölg- að um meira en hundrað þúsund manns. og biðlistar lengjast. SÁÁ-fólk er stórhuga og bjartsýnt í barátt- unni við fíknisjúkdóma nú sem fyrr og áformar að byggja nýtt sjúkrahús í landi Víkur á Kjal- arnesi þar sem eftirmeðferð- arstöð samtakanna er nú starf- rækt. SÁÁ ætti að hafa afl og aðstöðu til að byggja nýtt sjúkrahús á Vík og ljúka framkvæmdum um það bil þegar Sundabraut verður tek- in í notkun. Til þess þurfa margar hendur að vinna saman létt verk. Biðlistar lengjast en framlög óbreytt Núverandi þjónustusamningur milli SÁÁ og heilbrigðisyfirvalda gerir í raun ráð fyrir að SÁÁ fjár- magni stóran hluta þjónustunnar, en bilið sem SÁÁ er gert að brúa er allt of stórt og því þarf að breyta. Heilbrigðisyfirvöldum er varla stætt á því að leggja stöðugt fram nýjar kvaðir um aðbúnað og þjónustu án þess að fjármagn fylgi kostnaðaraukanum á sama tíma og fólkinu í landinu fjölgar Nýtt sjúkrahús SÁÁ Eftir Sigurð Pál Jónsson » Farið er að þrengja að um- hverfi Sjúkrahússins Vogs í dag og á þjón- usta í núverandi hús- næði sífellt erfiðara með að mæta kröfum nútímans. Sigurður Páll Jónsson Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Norðvest- urkjördæmi. Aðstaða SÁÁ áformar að byggja nýtt sjúkrahús í landi Víkur á Kjalarnesi. Menn hafa farið mikinn að undanförnu í skrifum sín- um um þriðja orkupakkann og ekki heldur sparað sig á vettvangi annarra fjölmiðla. Ekki er það allt vakurt ell- egar gáfulegt sem þar gefur að líta og því tímabært eins og lög mæla fyrir um að af- greiða málið á hinu háa Al- þingi og gefa öðrum nauð- synlegum málum gaum sem bíða úrlausna. Nærtækast væri að snúa sér nú þegar að því að jafna allan orku- kostnað í landinu, sem er vissulega tíma- bært og er mér sem þetta skrifar mikið undrunarefni að þingmenn lands- byggðarinnar skulu ekki fyrir löngu vera búnir að binda svo sjálfsagt réttlætismál í lög á meðan þeir hafa fulla heimild til þess og þurfa ekki að sækja um leyfi hjá yfirþjóðinni í Brussel. Ekki er efni til að treysta því að þingheimur standi í vegi fyrir að Íslendingar verði látnir greiða sama verð fyrir íslenska orku og Evr- ópumenn verða að greiða í sínu landi á meðan þeir eru ófærir um að sjá til þess að jafna þennan kostnað í eigin landi. Orkufyrirtækin okkar sem eru í opinberri eigu hafa alla burði til að standa undir þeim kostaði sem af því hlýst að hrinda í framkvæmd þessum sjálfsögðu mannrétt- indum, en ríkissjóður fengi minna í sinn hlut en ella. Auðvitað á engu að skipta hvort um rafmagn er að tefla eða heitt vatn, enda hvort tveggja íslensk orka. Nokkur hætta liggur reyndar í því að embættismönnum og yfirmönnum orku- fyrirtækjanna tækist að flækja málið á þann veg að enginn skilur og þeim takist eins og Bjartur í Sumarhúsum sagði, „að þeir héldu áfram að reikna þar til þeir fengju páskana til að koma upp á jól- unum“. Á hátíðastundum þykir við hæfi að minna á nauð- syn þess að byggja landið allt og líklega er mönnum aldrei ljósara en einmitt um þessar mundir að í þessu er heilmikið sann- leikskorn. Til þess að nýta kosti landsins og verð- mætin sem þar liggja verður að vera fólk sem skapar þau. Nægir að nefna sjávarútveginn, landbúnaðinn og nýjustu undirstöðuatvinnugrein okkar, ferða- þjónustuna, sem aflar þjóðinni meiri gjaldeyris en nokkur annar. Búseta ræðst einkum af því hvort möguleiki til sæmilegrar afkomu er í boði og um öryggi fólks. Á undanförnum ára- tugum hafa vissulega miklar og ágætar framfarir átt sér stað víða um landið og enn standa vonir til frekari framkvæmda í nálægri framtíð. Fólk mun enn kjósa sér búsetu um byggðir landsins og ég leyfi mér að trúa því að það verði í auknum mæli ef aðstæður og skilyrði til bættrar afkomu vaxa, sem reyndar flest bendir til. Samgöngur og möguleikar til fram- haldsmenntunar eru víða í góðum farvegi, en mikið vantar þegar heilbrigðismálin og óréttlátur orkukostnaður er látinn bitna á fólkinu sem vinnur í fiski og meist- ari Þórbergur kallaði „íslenskan aðal“. Orka til spillis Eftir Árna Emilsson Árni M. Emilsson »Nærtækast væri að snúa sér nú þegar að því að jafna allan orku- kostnað í landinu, sem er vissulega tímabært. Höfundur er fyrrverandi banka- maður og áhugamaður um þjóð- mál.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.