Morgunblaðið - 15.08.2019, Page 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019
VILTU TAKAVIÐ
GREIÐSLUMÁNETINU?
KORTA býður uppá fjölbreytta þjónustu sem hentar
bæði minni og stærri fyrirtækjum. Kannaðu málið.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is
„Þessi hefð hefur fest sig í sessi, að við skiptum
um nafn á stöðinni í einn dag og fögnum fjöl-
breytileikanum með efnis- og tónlistarvali,“ segir
Sigurður Þorri Gunnarsson, dagskrárstjóri K100.
„Við breytum öllu, hvort sem það eru stefin,
nafnið sem birtist á skjánum í útvarpinu þínu
eða markaðsefnið,“ bætir Sigurður við. Dag-
skrárgerðarmenn hita upp fyrir Gleðigönguna
sem fer fram á laugardaginn og fjalla um ýmis
hinsegin málefni og tónlistin verður í léttari
kantinum, það má alveg búast við Village People
og Gloriu Gaynor.
„Svo er það rúsínan í pylsuendanum; Páll Ósk-
ar heiðrar okkur með nærveru sinni eins og
svo oft áður,“ segir Sigurður en Pallaball í
beinni verður á dagskrá frá 16 til 18 á föstu-
deginum.
Bein útsending úr Hljómskálagarðinum
Það er ekki nóg með að stöðinni verði breytt
í einn dag heldur verður bein útsending úr
Hljómskálagarðinum þar sem gleðigönguhá-
tíðin fer fram á laugardag frá 14-16.30. Eins
munu allar myndir merktar #reykjavikpride
birtast á sjónvarpsskjá K100 á rás 9 í sjónvarpi
Símans og á k100.is.
Hinsegin100 Skipt verður um nafn á stöðinni í einn dag til þess að fagna fjölbreytileikanum.
Gleði Sigurður Þorri, fyrir miðju, á K100 sviðinu í Hljómskálagarðinum í fyrra
Fjölbreyti-
leikanum fagnað
K100 skiptir um ham á morgun og verður Hinsegin100, eins og
undanfarin ár, til þess að samfagna Hinsegin dögum í Reykjavík
sem nú fara fram.
Nú er því haldið fram að Li-Fi-tækni muni leysa
Wi-Fi af hólmi í kapphlaupinu um hið svokall-
aða „net hlutanna“, á ensku „Internet of
things“. Vísindamenn í Massachussets telja að
Wi-Fi-merkið muni ekki duga til að sinna ört
fjölgandi tækjum sem þurfa trausta og örugga
sítengingu við netið. Li-Fi, sem mætti kalla
„ljóseindatækni“ á íslensku, verður von bráðar
hluti af staðalbúnaði fartölva, að mati þessara
sömu vísindamanna. Kröfurnar um hraða og
áreiðanleika verða alltaf meiri og meiri og hin
nýja tækni mun að öllum líkindum tryggja stöð-
ugleika í samskipum tækja og manna.
Er hátalarinn að hlusta á þig?
Það kom fram í fréttum fyrr í vikunni að
verktakar á vegum Amazon hlustuðu á einka-
samtöl í gegnum Alexu-snjallhátalara á heim-
ilum fólks. Svo virðist sem snjallhátalarar heyri
meira en áður hefur komið fram og miklu meira
en kannski góðu hófi gegnir. Jafnvel gætu þeir
verið að hlusta á viðkvæm einkasamtöl eða kyn-
líf fólks. Ísland vaknar fékk Árna Jón Eggerts-
son, sérfræðing hjá Opnum kerfum, til að koma
í þáttinn og ræða þetta mál og hvað væri til
ráða.
„Snjallhátalarar eru alltaf að læra betur og
betur á tungumálið,“ sagði Árni um ástæður
þess að hátalararnir tækju upp það sem þeir
heyrðu. Hann er þó ekki á þeirri skoðun að fólk
ætti að henda hátölurunum í ruslið. Gott væri að
vera meðvitaður um málið og fylgjast með því
að framleiðendur fylgi lögum um persónuvernd.
Heyra má áhugavert viðtal við Árna Jón á
K100.is.
Hraðara net og snjallhátalarar sem hlusta á þig
Tæknisnillingur Árni Jón veit
allt um nýjustu tæknina.
Tækninni fleygir ótrúlega hratt fram. Í vikunni
höfum við á K100 fengið fregnir um að hin
þráðlausa nákvæmni sem í daglegu
tali kallast „WI-Fi“ sé að verða úrelt;
svokölluð „LI-Fi“ taki brátt við. Einn-
ig bárust fréttir af því að snjallhátal-
arar hlustuðu á meira en þeir ættu
að gera.
Með eyru? Hlusta snjallhátalararnir á þig?