Morgunblaðið - 15.08.2019, Page 56

Morgunblaðið - 15.08.2019, Page 56
56 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019 50 ára Gunnar er Ísfirð- ingur en býr í Reykjavík. Hann er rafmagnsverk- fræðingur með MS- gráðu í raforkuverk- fræði. Hann er að hefja störf sem aðstoðar- hafnarstjóri Faxaflóa- hafna. Gunnar situr í stjórn Landsvirkj- unar og er ræðismaður Tyrklands. Maki: Úlfhildur Leifsdóttir, f. 1972, tann- læknir. Börn: Tryggvi Örn, f. 1989, Magnea, f. 1994, Leifur Steinn, f. 2004, Dýrleif Lára, f. 2006, Vésteinn, f. 2009, og Daníel Ernir, f. 2010. Foreldrar: Tryggvi Þór Guðmundsson, f. 1940, fv. sjómaður, og Rósa Harðardóttir, f. 1942, húsmóðir. Þau eru búsett á Ísa- firði. Gunnar Tryggvason lagsmálanna og fjölskyldunnar segir Einar: „Síðan árið 1984 höfum við hjónin farið flest ár í skíðaferðir í Alpana. Ég hef varið frístundum við veiðiskap bæði með stöng og byssu og gengið á fjöll. Eftir göngu á Hvannadalshnjúk árið 2009 með Árnínu dóttur minni og fleiri vinum hef ég verið félagi í gönguhóp á veg- um Ferðafélags Íslands sem nú ber nafnið Léttfeti. Svo hef ég alla tíð haft gaman af ljóðum og lausavís- um.“ Fjölskylda Einar kvæntist Sigurbjörgu Bjarnadóttur bókasafnstækni 16. nóvember 1968. Sigurbjörg fæddist 1.7. 1947 á Hólmavík. Foreldrar hennar voru hjónin Halldóra Guð- mundsdóttir húsmóðir, f. 29.2. 1928, d. 20.12. 2017 og Bjarni Halldórsson vélgæslumaður f. 25.10. 1923, d. 2.6. 1989. Börn Einars og Sigurbjargar eru: 1) Guðný Dóra, sálfræðingur hjá Akureyrarbæ, f. 27.7. 1969, maki: Valdimar Ólafsson vélfræðingur, f. 29.10. 1968. Börn: Sara Agneta, f. 25.9. 2001, og Alexander Máni, f. 28.5. 2004. 2) Árnína Björg, við- skiptafræðingur MS, f. 28.7. 1971. Húsavíkur 1970-1978, formaður frá 1974. Hann var formaður stjórnar Eyþings – samtaka sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum 1992- 1997, sat í stjórn Hafnasambands sveitarfélaga 1997-1998 og í Blá- fjallanefnd 1998-2002. Hann var for- maður stjórnar Saltfiskseturs Ís- lands í Grindavík 2001-2002, sat í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga 2002- 2006 og var í Húsafriðunarnefnd rík- isins 2000-2009. Einnig kom Einar að ýmsum nefndarstörfum á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins, síðar velferðarráðuneytis, svo sem vegna yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga og var for- maður í verkefnisstjórn um endur- mat á yfirfærslu málaflokksins sem lauk með skýrslu í nóvember 2015. Um árabil starfaði Einar með Leikfélagi Húsavíkur (LH), sat í stjórn félagsins og var formaður um tíma. Hann var formaður Bandalags íslenskra leikfélaga 1979-1988, sat í stjórn Norræna áhugaleikhúsráðs- ins 1980-1990, varaformaður frá 1981. Einar hefur verið virkur félagi í Frímúrarareglunni síðastliðna fjóra áratugi og gegnt þar embætti. Spurður um áhugamál utan fé- E inar Guðni Njálsson fæddist í Dvergasteini á Húsavík 15. ágúst 1944. Hann fluttist þriggja ára gamall í nýtt hús fjölskyldunnar að Hring- braut 11, nú Laugarbrekku 12 á Húsavík, og ólst þar upp. „Mikið frjálsræði var til leikja fyrir okkur krakkana á Beinabakkanum og Hringbrautinni. Þar var allt undir, túnin, fjaran og Snásurnar, Höfðinn, Háhöfðinn og Laugardalurinn,“ segir Einar. Einar gekk í Barnaskóla Húsavík og tók landspróf frá Gagnfræða- skóla Húsavíkur. Hann stundaði nám í Samvinnuskólanum að Bifröst og lauk þaðan prófi 1963 og varð dúx í sínum árgangi. Hann starfaði hjá Hovedstadens Brugsforening í Kaupmannahöfn hálft árið 1964 og stundaði jafnframt nám í Dupont- skólanum í auglýsingateiknun og út- stillingum. Hann sótti nám í Banka- mannaskólanum 1965. Fyrstu störf Einars voru við að stokka og beita línu og sveitastörf á sumrin. „Ég var fjögur sumur í sveit í Skógum í Reykjahverfi hjá frænd- fólki mínu, Gunnlaugi Sveinbjörns- syni og Guðnýju Árnadóttur. Mér leið vel í Skógum og fékk að taka þátt í öllum verkum eftir minni getu og lærði heilmargt sem hefur komið sér vel síðar á ævinni.“ Einar vann sem unglingur við síldarsöltun og saltfiskverkun, var verslunarmaður hjá Kaupfélagi Þingeyinga 1961-1963 og hóf störf hjá Samvinnubankanum í Reykjavík 1. september 1964 og var útibús- stjóri bankans á Húsavík 1969-1990. Hann var bæjarstjóri á Húsavík 1990-1998, bæjarstjóri í Grindavík 1998-2002 og bæjarstjóri í Árborg 2002-2006. Hann var verkefnisstjóri og síðan sérfræðingur í félags- og tryggingamálaráðuneytinu frá 2006, síðar velferðarráðuneytinu 2011- 2016 er hann lét af störfum vegna aldurs. Einar sinnti margvíslegum nefnd- ar og stjórnarstörfum í tengslum við störf á vegum sveitarfélaga. Hann sat meðal annars í stjórn Kísiliðj- unnar hf. 1974-1978, í skólanefnd Maki: Sigtryggur Heiðar Dagbjarts- son, f. 26.4. 1968, þau skildu. Dóttir þeirra: Sigurbjörg Ýr, f. 14.6. 2001. 3) Kristjana, faraldsfræðingur Ph.D, prófessor við HÍ, f. 15.6. 1977, maki: Anthony S. Gunnell, f. 4.9. 1971, líf- tæknifræðingur Ph.D. Börn: Lísa Sóley, f. 16.7. 2007, Vala Nicole, f. 26.10. 2009, og Erik Einar, f. 20.11. 2014. Alsystur Einars eru Oddný hús- móðir, f. 28.5. 1943 gift Halldóri Margeirssyni, búsett á Ísafirði, Bjarney Stefanía kennari f. 7.9. Einar Guðni Njálsson, fyrrverandi bæjarstjóri – 75 ára Á Borgundarhólmi 2017 Afmælisbarnið ásamt börnum, barnabörnum og tengdasonum. Eiginkonan tók myndina. Ann ljóðum, leiklist og útivist Hjónin Einar og Sigurbjörg í skíða- ferð í Selva á Ítalíu árið 2011. 60 ára Helga er Reyk- víkingur en býr á Sel- tjarnarnesi. Hún er sér- fræðingur í lyf- og öldrunarlækningum og er yfirlæknir á hjúkr- unarheimilunum Grund og Mörk. Hún er áhugamanneskja um þjónustu aldraðra í heimahúsum. Helga setti upp sýningu ásamt Magnúsi Pálssyni myndlistarmanni árið 2003 í Listasafni Íslands. Maki: Kristinn Guðbrandur Harðarson, f. 1955, myndlistarmaður. Synir: Theodór Magnús, f. 1988, og Dagur Elinór, f. 2002. Foreldrar: Hans Jetzek, f. í Herford, Þýska- landi 1927, d. 1994, umsýslustjóri hjá ÍSAL, og Álfheiður Líndal, f. 15.8. 1932, d. 2017, húsmóðir. Þau voru búsett í Reykjavík. Helga Hansdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þér hefur verið treyst til þess að kalla fólk saman til fundar og þarft að skipuleggja allt í stóru sem smáu. Gefðu þér því nægan tíma. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft að tala skýrt og skorinort ef þú vilt ekki eiga á hættu að einhverjir mis- skilji þig. Góðvildin sigrar allt og alla. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Mikið er á döfinni innan fjölskyld- unnar um þessar mundir og áríðandi að þú deilir viðhorfum þínum með öðrum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er ekki hægt að notfæra sér fólk sem ekki hefur veikleika, en það er líka erfitt að láta sér ekki þykja vænt um það. Nú er bara að sýna staðfestu og sigla mál- unum í örugga höfn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það eru margar spurningar sem brenna þér á vörum en þú þarft að vera þolinmóður þótt svörin birtist þér ekki tafarlaust. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér verða fengin ný verkefni og þótt þér lítist hreint ekki á þau við fyrstu sýn skaltu hefjast handa ótrauður. Aðrir kunna að meta það að þú getir séð málið í réttu ljósi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú beygir og sveigir framhjá hindr- ununum eins og vínviður og hefur kraftinn sem þarf til þess að brjóta niður veggi. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú situr uppi með sjálfan þig, til viðbótar við þá sem þú kýst að vera sam- vistum við. Ef þú sýnir sanngirni munu aðrir verða fljótir til að fallast á málflutning þinn. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú finnur á þér að eitthvað er í uppsiglingu milli þín og ástvinar þíns. Sýndu hógværð og lítillæti. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hugmyndir þínar í dag eru grundvöllur þess sem gerist á morgun. Það er allt að gerast í vinnunni og þér finnst stöðu þinn ógnað. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Láttu græðgina ekki ná tökum á þér því oft leiðir hún menn í glötun. Mars- eraðu fram með þá valkosti sem færa þér það sem þú vilt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur einsett þér það að koma þínu fram í vinnunni í dag. Þig vantar félaga til þess að framkvæma það sem þig dreym- ir um. Til hamingju með daginn Kópavogur Emilía Rut Leudóttir fæddist 22. ágúst 2018 kl. 0.53 í Reykjavík. Hún vó 3.470 g og var 48 cm löng. Foreldrar hennar eru Helena Rut Jónsdóttir og Lea Hrund Guðjónsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.