Morgunblaðið - 15.08.2019, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 15.08.2019, Qupperneq 59
ÍÞRÓTTIR 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019 ● Betri melting, meiri orka! ● Inniheldur ATPro (ATP (orkuefni líkamans), Magnesíum Citrate, Coensime Q10, Phytase) ● 100% vegan hylki. Án fylliefna, bindiefna eða annarra flæðiefna Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og í heilsuhillum stórmarkaða Ég verð oft uppþembd og fæmagaónot eftir máltíðir. Ég tek eitt hylki áður en ég borða og finn ekki fyrir óþægindum lengur. Ég tek líka 1 hylki fyrir morgunmat og hefur það sett reglu á klósettferðir hjá mér. Barbara Kresfelder. Hefur gert kraftaverk Digest Gold Ensím geta dregið úr margskonar meltingar- vandamálum s.s. uppþembu, meltingaróreglu, loftmyndun og ýmsum einkennum fæðuóþols. Ein öflugustu meltingarensím á markaðnum í dag Það er fátt sem hefur kætt mig jafn mikið í sumar eins og fram- ganga Ásgeirs Barkar Ásgeirs- sonar með HK í Pepsi Max- deildinni. HK hefur komið mikið á óvart í deildinni í sumar en liðið er í fjórða sæti og þá tapaði liðið síðast deildarleik í lok júní. Það eru margir leikmenn í HK- liðinu að ganga í gegnum end- urnýjun lífdaga. Arnþór Ari Atla- son skoraði í síðustu umferð, eitthvað sem gerðist síðast árið 2017. Birnir Snær Ingason spil- aði heilan leik gegn KR, það gerðist síðast sumarið 2018, og Börkurinn orðinn einhver besti varnartengiliður deildarinnar. Að mínu mati hefur Börkurinn alltaf verið vanmetinn leikmaður. Við erum að tala um mann sem er eflaust einhver mesti liðs- maður sem fyrirfinnst og hann leggur sig alltaf 200% fram. Brynjar Björn Gunnarsson er ein- hver öflugasti varnartengiliður sem Ísland hefur átt og hann virðast vera búinn að kenna Berkinum ýmislegt. Þá spilar HK fótbolta sem hentar Berkinum fullkomlega. Hans hlutverk er fyrst og fremst að verjast á miðsvæðinu og vernda varnarmenn liðsins. Kópavogsliðið gefur andstæð- ingum sínum lítið pláss á síðasta þriðjungnum og þannig nýtist Börkurinn best, á litlu svæði. Hann hefur stungið sokk upp í marga sem töldu hann ekki nægilega góðan fyrir efstu deild. Á hinn bóginn finnst mér erfitt að sjá Börkinn springa svona út með öðru liði en Fylki. Þetta sýn- ir manni hins vegar að þjálf- ararnir í efstu deild eru misgóðir, alveg eins og leikmennirnir í deildinni, og kannski var það bara Helgi Sig sem átti heima í 1. deildinni allan tímann, ekki Ás- geir Börkur Ásgeirsson. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is FÓTBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Endurhæfingin hjá knattspyrnumanninum Emil Pálssyni hefur gengið vel í Noregi en Ísfirðingurinn sleit hásin í desember. Hann er nú farinn að spreyta sig með varaliði Sandefjord og vonast til þess að geta tekið þátt í leik með aðalliðinu eftir tvær vikur eða svo. „Ég er nokkuð nálægt því að komast aftur inn á völlinn. Endurhæfingin hefur gengið vel. Ég er nokkurn veginn á réttum tíma ef svo má segja því yfirleitt er miðað við sex til níu mánuði fyrir knattspyrnumenn að ná sér af meiðslum sem þessum. Ég er búinn að spila einn leik með varaliðinu og var með í tuttugu mínútur. Næst er stefnan að spila einn hálfleik og ég mun væntanlega spila þrjá leiki með varaliðinu þar sem álagið mun aukast smám saman. Ég stefni að því að komast í hópinn hjá aðalliðinu á næstu tveim- ur vikum,“ sagði Emil þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í gær. „Mér leið bara nokkuð vel inni á vellinum en hafa þarf í huga að það getur tekið upp undir ár að ná sér fullkomlega góðum. En samningur minn við Sandefjord rennur út að tímabilinu loknu. Þar af leiðandi er smá aukapressa á mér að ná að sýna mig í nokkr- um leikjum áður en tímabilinu lýkur í haust. Á sama tíma verður maður að vera skyn- samur varðandi það að fara ekki of snemma af stað. Ég held að ég sé ekki að gera það þar sem liðnir eru átta mánuðir. Hásinin ætti nokkurn veginn að hafa gróið.“ Sprauta hafði slæm áhrif Emil fór í tvær aðgerðir hjá Hauki Björns- syni. Annars vegar þar sem gert var við slitna hásin en hins vegar vegna þess að hæl- beinið hafði stækkað um of. „Ég fór í fyrri aðgerðina 21. des. Það var nú bara síðasta aðgerð ársins í Orkuhúsinu held ég. Mér tókst rétt að troða mér inn á föstudegi fyrir jól, nánast eftir lokun. Að- gerðin gekk eins og í sögu en ég fór í aðra aðgerð í febrúar út af hælbeininu. Hæl- beinið hafði stækkað og átti þátt í því að hásinin varð slæm en kúlan liggur und- ir hásininni,“ sagði Emil en hann vann fyrir verk í fætinum þegar síðasta keppnistímabil hófst. Í framhaldinu fékk hann sterasprautu og hann segir að þar hafi verið gerð mistök. „Ég fékk sterasprautu hjá lækninum okkar í Sandefjord. Ég komst að því eftir á að slíkt á alls ekki að gera í svona tilfelli vegna þess að ekki er mælt með að sprauta sterum nærri sinum. Sterarnir geta veikt há- sinina og það var tilfellið hjá mér. Af þessu lærði ég að maður ætti alltaf að fá álit frá fleiri en einum lækni áður en teknar eru ákvarðanir sem geta haft áhrif á ferilinn. Mér skilst að hásin slitni ekki upp úr þurru heldur sé það vegna einhvers sem er undirliggj- andi.“ Er þetta í fyrsta skipti sem Emil þarf að glíma við alvarleg meiðsli á sínum ferli. „Maður hefur tekið það sem sjálfsagðan hlut að vera heill og ég hef ekki misst af mörgum leikjum hjá FH. Ég hef verið heppinn og þetta mun breyta aðeins þeirri sýn sem maður hefur á íþrótt- ina,“ sagði Emil í samtali við Morgunblaðið.  Emil Pálsson fór í tvær aðgerðir  Sleit hásin í desember Endurhæfing Emil Páls- son er að verða leikfær á ný eftir langa bið. Morgunblaðið/Eggert Styttist í fyrsta leik Emils á árinu Ísland mætir Egyptalandi í dag í 8- liða úrslitum HM U19 karla í hand- bolta eftir 39:34-sigur á Japan í 16- liða úrslitum í Skopje í gær. Egypt- ar slógu Slóvena út með 30:23-sigri eftir að hafa unnið sinn riðil, sem í voru meðal annars lið Svíþjóðar, Frakklands og Ungverjalands. Japan byrjaði betur en Ísland í gær og komst í 4:1 en íslensku strákarnir voru fljótir að snúa stöð- unni sér í vil, komust meðal annars í 10:6 og voru 16:13 yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik náði Ísland mest sjö marka forskoti, 27:20, og vann loks fimm marka sigur sem fyrr segir. Haukur Þrastarson átti 12 stoð- sendingar fyrir Ísland og skoraði 4 mörk. Tumi Steinn Rúnarsson var markahæstur með 10 mörk úr 11 skotum. Dagur Gautason skoraði 8, Eiríkur Guðni Þórarinsson 7, Arnór Snær Óskarsson 6, Stiven Tobar Valencia 2, Einar Örn Sindrason 1 og Guðjón Baldur Ómarsson 1. Sig- urður Dan Óskarsson varði sjö af þeim skotum sem hann fékk á sig, eða 20%. Ljósmynd/HSÍ Öflugir Íslenska liðið í Skopje þar sem það er í hópi 8 bestu í heimi. Mæta Egyptum í 8- liða úrslitum á HM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.