Morgunblaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 61
ÍÞRÓTTIR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019 Garðverkfæri í miklu úrvali Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 frá995 Volcan skófla Garðúðarar frá 2.995 999Barna- garðverk- færi 295 Vinnuvettlingar PU-Flex 695 Strákústar á tannbursta verði tskerinKa frá 1.995 Sláttuorf Sandkassa grafa,3.495 frá595 Vírbursti Hjólbörur 60L Garðslöngur og slöngutengi Gasbrennari , 100 kg 4.999 FRJÁLSAR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Ég er búin að gefa restina af tíma- bilinu upp á bátinn núna,“ segir hlaupakonan Aníta Hinriksdóttir. Snúin meiðsli hafa verið henni til traf- ala allt þetta ár og nú er kominn tími til að ráða bót á þeim. Þar með er ljóst að Aníta fer ekki á sitt þriðja heimsmeistaramót í Katar í næsta mánuði, eftir að hafa keppt í 800 metra hlaupi á bæði HM 2015 og 2017. Nú horfir Aníta til Ólympíu- leikanna í Tókýó. Meiðslin sem Aníta hefur glímt við eru í læri, en vegna þeirra hefur hún sáralítið keppt í 800 metra hlaupi í sumar. Hún getur hlaupið, en ekki eins hratt og hún er vön. Hún harkaði þó af sér til að sækja mikilvæg stig fyrir Ísland í Skopje um helgina þar sem hún varð í 2. sæti í bæði 800 og 1.500 metra hlaupi, þrátt fyrir að vera langt frá sínum bestu tímum, þegar Ísland vann til gullverðlauna í 3. deild EM. Óæskileg svör við meiri hraða „Ég byrjaði á því fyrir þremur vik- um að reyna að æfa meiri hraða og við því komu óæskileg viðbrögð í lær- inu, svo ég hugsaði að það væri eins gott að byrja bara uppbygginguna fyrir næsta tímabil fyrr. Ég vonast til þess að með því að hvíla mig núna næstu þrjár vikur geti ég byrjað með autt blað. Ef ég myndi halda áfram og reyna við HM gæti þetta setið enn meira í mér í vetur. Það er leiðinlegt að vera ekki hundrað prósent,“ segir Aníta. „Þetta er svolítil ráðgáta, en fyrst þetta tekur svona langan tíma þá eru þetta líklega ekki meiðsli í vöðva heldur í sin eða einhverjum fest- ingum. Þetta varð betra og betra í sumar, af einhverjum ástæðum, kannski af því ég hljóp á minni hraða, en ég veit ekki hvernig þetta byrjaði. Þetta kom fyrst upp í desember. Kannski hef ég misstigið mig ein- hvern veginn án þess að taka eftir því. Það er frekar þannig að ákveðnar æfingar erta meiðslin meira en að keppa. Svo fann ég reyndar núna að þetta var aðeins verra eftir 800 metra hlaupið um helgina, en ég hljóp samt í gegnum 1.500 metra hlaupið,“ segir Aníta, sem nú ætlar að hvíla sig al- mennilega. Hefði mátt hvíla mig fyrr „Það er svo erfitt fyrir íþróttafólk að hvíla sig alveg og ég hafði ekki gef- ið því nógu mikinn séns. En ég tel að það séu góðar líkur á að maður geti byrjað á fullu eftir nokkrar vikur ef ég sleppi því alveg núna að hlaupa næstu tvr til þrjár vikur. Ég hefði kannski alveg mátt prófa það fyrr. Þetta eru langvinnustu meiðsli sem ég hef glímt við. Þegar maður tognar eða brýtur bein eða slíkt veit maður líka hvað málið er og hve langan tíma meiðslin taka, en þetta er ekki eins augljóst. Maður getur skokkað og hlaupið á ágætu tempói, en þegar maður ætlar að stækka skrefin þá er einhver fyrirstaða,“ segir Aníta. Eina 800 metra hlaupið hennar í sumar, þar til um helgina, var á Meistaramóti Íslands í júlí þegar hún hljóp á 2:08,17 mínútum. Bestu tímar Anítu eru alveg við tvær mínútur sléttar. „Þarna fann ég að það var ennþá einhver fyrirstaða svo ég rúll- aði bara í gegnum hlaupið án þess að pína mig neitt. Formið hjá mér var hins vegar nógu gott til þess að ég gæti verið að keppa í 1.500 metra hlaupi í sumar, sem var mikilvægt því ég held að það væru allt of mikil við- brigði að sleppa alveg úr ári í keppni,“ segir Aníta sem keppti á mótum í Belgíu, en hún var búsett í Hollandi meira og minna í sumar, í von um að geta skipt um gír á ein- hverjum tímapunkti og farið af fullum krafti inn í keppnistímabilið. Einbeitir sér að Ólympíuleikum Nú horfir Aníta til Tókýó, eftir að hafa lent í 20. sæti á Ólympíu- leikunum í Ríó 2016: „Klárlega. Það er í raun ástæðan fyrir því að ég ákvað að slútta þessu tímabili núna. Að þannig kæmist ég fyrr í uppbyggingu fyrir Ólympíu- leikana. Ég er líka skráð í fjarnám í skólanum til að geta einbeitt mér bet- ur að æfingum. Það er sérstaklega gaman að æfa á ólympíuári,“ segir Aníta sem er að hefja annað ár sitt í kennaranámi. Hún mun væntanlega þurfa að keppa talsvert á mótum til að safna stigum á heimslista, en röð- un á heimslista ræður því hvaða hlauparar komast á Ólympíuleikana (hægt er að tryggja sig inn á leikana í 800 metra hlaupi með því að hlaupa á 1:59,50 mínútum). Frjálsíþróttamót hafa mismikið vægi í þessu sambandi og til að mynda hafa landsmót mikið vægi. Áður þurfti frjálsíþróttafólk að ná ákveðnu lágmarki til að komast á Ólympíuleika, en ekki sæti á heims- lista. „Ég hef rætt þetta við aðra hlaup- ara og mér finnst eins og almennt ætli fólk bara að halda sínu striki. Það skilur svo sem enginn þetta kerfi al- veg ennþá, en mótin eru farin að telja til stiga og það er þeim mun mikil- vægara að vera orðinn heill næsta vor og geta safnað stigum á mótum.“ „Þetta er svolítil ráðgáta“  Meiðsl hafa haldið aftur af Anítu allt árið  Fer ekki á HM en horfir til ÓL Ljósmynd/FRÍ Evrópubikar Þrátt fyrir meiðslin keppti Aníta á EM í Skopje og fékk silfur í 800 og 1.500 metra hlaupi. Bödö/Glimt, liði Olivers Sigurjóns- sonar gengur afskaplega vel í norsku knattspyrnunni og er í bull- andi toppbárattu. Liðið er á toppn- um með 38 stig eftir útisigur á Kristiansund í gær 2:1. Liðið er tveimur stigum á undan Molde sem fór svo illa með KR í Evrópudeild- inni í sumar. Oliver var ekki í leik- mannahópi toppliðsins. Stórlið Rosenborg er aðeins í 5. sæti sem stendur þótt liðið sé komið áfram í Meistaradeildinni eftir tvo örugga sigra gegn Íslandsvinunum í Maribor. kris@mbl.is Bödö/Glimt á toppnum Morgunblaði/Arnþór Birkisson Á toppnum Oliver Sigurjónsson, leikmaður Bödö/Glimt. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var hæstánægður með þá ákvörðun UEFA að láta konu dæma leik Liverpool og Chelsea í Stórbikar Evrópu sem fram fór í Istanbúl í gærkvöld Frakkinn Stephanie Frappart dæmdi leikinn og var það í fyrsta sinn sem kona dæmir úrslitaleik karla hjá UEFA. „Loksins“ sagði Klopp á blaða- mannafundi í gær. „Það var kominn tími til og ég er ánægður með að fá að taka þátt í þessu sögulega augnabliki,“ sagði Þjóðverjinn meðal annars. sport@mbl.is Tími til kominn að mati Klopp AFP Dómarinn Hin franska Stephanie Frappart mun annast dómgæsluna.  Erla Björg Hafsteinsdóttir og Drífa Harðardóttir eru heimsmeist- ararar í sínum aldursflokki í tvíliða- leik í badminton eftir sigur gegn Helenu Abusdal frá Noregi og Katju Wengberg frá Svíþjóð í úrslitaleik á HM í badminton 40 ára og eldri sem fram fer í Póllandi.  Sinisa Bilic er genginn til liðs við körfuknattleiksdeild Tindastóls og mun hann leika með liðinu í úrvals- deild karla á næstu leiktíð en það var Feykir.is sem greindi fyrst frá. Bilic er króatískur framherji sem er fæddur árið 1989. Bilic er tæpir tveir metrar á hæð en þykir fjölhæf- ur leikmaður og sterkur undir körf- unni. Þá mun hann einnig vera góð þriggja stiga skytta. Tindastóll end- aði í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og féll úr leik í átta liða úrslitum Íslandsmótsins.  Nýkrýndur Íslandsmeistari í golfi, Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili, hóf leik á móti í Frakklandi í gær á LET Access mótaröðinni. Guðrún virðist ekki hafa verið mjög fersk og lék á 75 höggum og var á fjórum höggum yfir pari. Er hún í 42. sæti að loknum fyrsta keppn- isdegi en besta skor dagsins var 65 högg. Ekki voru þó nema fjórtán kylf- ingar undir pari og völlurinn því væntanlega krefj- andi. Eitt ogannað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.