Morgunblaðið - 15.08.2019, Qupperneq 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019
Frístunda- og atvinnufatnaður
frá REGATTA
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Söngleikurinn We Will Rock You
verður frumsýndur í Háskólabíói í
kvöld. Þar fara þjóðkunnir listamenn
með aðalhlutverk og brúa um leið
kynslóðabil – í því samhengi má
nefna að Króli og Laddi stíga báðir á
svið og mun það vera frumraun
söngvarans unga á stóra sviðinu í
leiklistarbransanum. Hann fer með
hlutverk Galileós Fígarós, sem kynn-
ist stúlkunni Scharamouche. Hana
leikur unga leikkonan Katla Njáls-
dóttir, sem lék í sjónvarpsþáttaröð-
inni Föngum og kvikmyndinni
Hjartasteini. Þau ætla sér að finna
músíkina að nýju í framtíðarheimi
þar sem öll tónlist, að stafrænni tón-
list stórveldisins Globalsoft undan-
skilinni, er bönnuð.
Í samstarfi við Queen
Sýningin hefur verið sett á svið í
nær öllum heimshornum og hóf
göngu sína árið 2002, þegar rithöf-
undurinn Ben Elton kom að máli við
liðsmenn Queen. Hann hafði ritað
skáldsögu sem gerist í framtíðinni og
hefur litla sem enga tengingu við
hljómsveitina. Lög sveitarinnar
smellpössuðu hins vegar inn í sögu
Eltons svo úr varð söngleikur sem
hefur náð að lifa góðu lífi til dagsins í
dag, þrátt fyrir að hafa sætt gagn-
rýni fyrst um sinn.
Vignir Rafn Valþórsson, leikstjóri
We Will Rock You, segir að sýningin
snúist um að segja sögu og lög
Queen, sem sungin eru á íslensku,
séu notuð til þess. „Leikritið hefst á
því að Galileó fer að heyra raddir og
hljóð í höfðinu á sér og hljóðin
hrökkva upp úr honum. Þetta eru allt
rímur úr popptextum og lögum.
Enginn í kringum hann veit hvað
þetta er, því öll músík er bönnuð,
nema stafræn fjöldaframleidd músík
sem ríkir,“ segir Vignir um sögu-
þráðinn.
Öll lög sungin á íslensku
Lögin eru sungin í íslenskri þýð-
ingu Jóhanns Axels Andersen, sem
hefur þýtt fjölda kvikmynda fyrir
Sambíóin. „Karl Ogleirsson tók eftir
því hversu ótrúlega vel textarnir
voru þýddir í Mary Poppins 2 þegar
hann var í bíó með konunni sinni svo
okkur datt í hug að heyra í honum,“
segir Vignir og bætir við að Jóhann
hafi klárað verkið í sumarfríinu.
„Við erum ennþá að átta okkur á
því hversu mikill lukkupottur þetta
var vegna þess að þetta er ótrúlega
skemmtilegt og vel gert hjá honum.
Björn Jörundur er nú frægur orðsins
maður og hann er alveg flissandi
hérna yfir litlum bröndurum og skír-
skotunum og leikararnir tala um
hversu þægilegt er að syngja þetta.“
Þess má geta að tvö lög úr sýning-
unni hafa þegar verið gefin út; ís-
lensk útgáfa af „Under Pressure“,
„Ofsa pressa“, ásamt laginu „Leiktu
með“ með Ragnhildi Gísladóttur.
Hún fer með hlutverk hinnar svo-
nefndu Killer Queen sem er allsráð-
andi í hinum gegnsýrða framtíð-
arheimi.
Queen með útsendara
Eins og áður sagði var söngleik-
urinn saminn í samstarfi við meðlimi
Queen, sem eru þess vísir að sýn-
ingin verður sett á svið á Íslandi í
dag. Þeir munu senda fólk á sínum
vegum til að verða vitni að afrakstri
íslenska leikhópsins.
„Það er aldrei að vita hvort Queen-
karlarnir láti sjá sig. Þeir hafa alveg
gert það í gegnum tíðina, sérstaklega
á sínum tíma þegar sýningin var sett
á svið í London. Alltaf á afmælinu
hans Mercurys kom Brian May og
tók gítarsóló til dæmis,“ segir Vignir.
Hann segir að leikhópurinn, undir
stjórn hinnar bresku Chantelle Car-
ey, standi sig með prýði og mun bet-
ur en hann þorði að vona – leik-
ararnir gamalreyndu, Ragnhildur,
Laddi og Björn Jörundur, fái að
verða vitni að hæfileikaríkum hópi.
„Það er reyndar búið að vera ótrú-
lega magnað að sjá Ladda í hópi með
þessum krökkum, hann gæti verið
langafi nokkurra þeirra, því hann er
orðinn 72 ára – það gleymist stund-
um. Hann byrjar stundum að koma
með hugmyndir og tilboð og við þurf-
um stundum að stoppa æfingarnar
vegna þess að krakkarnir, sem eru
17-18 ára, veltast um af hlátri,“ segir
Vignir.
Er flókið að setja sýninguna á
svið?
„Já, við vissum svo sem að það yrði
það en síðan er þetta í Háskólabíói,
svo við erum ekki með eiginlegt leik-
hús, það er einn stakkurinn sem er
búið að sníða kringum okkur. En þá
eru bara fleiri lausnir og hugmyndir
sem maður þarf að fá. Þetta er gam-
an, það sagði enginn að þetta væri
auðvelt,“ svarar Vignir. Miðasala fer
fram á tix.is.
Bjarga rokkinu með Queen
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tímamót Söngleikurinn We Will Rock You, í leikstjórn Vignis Rafns Valþórssonar, verður loks sýndur á Íslandi.
Söngleikurinn We Will Rock You verður frumsýndur í kvöld Króli, Katla
Njálsdóttir, Ragnhildur Gísladóttir, Björn Jörundur og Laddi meðal leikenda
Kvartettinn Umbra heldur tónleika í
Stykkishólmskirkju í kvöld kl. 21 og
leikur miðaldatónlist frá Evrópu og
trúarlega og veraldlega tónlist frá
Norðurlöndum og meginlandi Evr-
ópu, auk þjóðlaga frá sömu mál-
svæðum. Er það einradda og fjöl-
radda tónlist, bæði sungin og leikin í
útsetningum Umbru. Miðar eru
seldir við innganginn og er miðaverð
kr. 2.000.
Í tilkynningu segir að um nokk-
urra ára skeið hafi Listaháskóli Ís-
lands sótt Stykkishólm heim með
nemendur sína í tónlistardeildum.
Þeir hafa dvalið þar um vikutíma og
átt samstarf og verkefni þvert á
deildir. „Afraksturinn er fjölbreytt
tónleikahald í Stykkishólmi á meðan
á verkefninu stendur auk þess sem
nemendum og íbúum í Stykkishólmi
gefst kostur á þátttöku í ýmsum
smiðjum sem fram fara. Hefur verk-
efnið mælst mjög vel fyrir af heima-
mönnum og nemendum LHÍ,“ segir
í tilkynningu og að í einu slíku verk-
efni hafi orðið til hugmynd þátttak-
endanna Alexöndru Kjeld kontra-
bassaleikara, Arngerðar Maríu
Árnadóttur orgel- og hörpuleikara,
Guðbjargar Hlínar Guðmundsdóttur
fiðluleikara og Lilju Daggar Gunn-
arsdóttur söngvara um að stofna
tónlistarhóp þar sem ólíkar víddir
hinnar fornu tónlistar væru kann-
aðar. Kvartettinn var stofnaður árið
2014 og hefur æ síðan flutt forna
tónlist í eigin útsetningum og í
spuna með eigin hljóðheimi sem hef-
ur fornan blæ.
Umbra Kvartettinn var stofnaður fyrir fimm árum.
Umbra í Stykkishólmi
Spænski óperusöngvarinn Plácido
Domingo hefur verið sakaður um
að hafa áreitt fjölda kvenna kyn-
ferðislega og hóf Óperan í Los Ang-
eles rannsókn í fyrradag, skv. frétt
dagblaðsins New York Times, á því
hvort eitthvað væri hæft í þeim
ásökunum. Domingo var einn
þeirra sem stofnuðu óperuna og
hefur starfað fyrir hana allt frá
árinu 2003. AP fréttaveitan greindi
upphaflega frá því að fjöldi kvenna
hefði borið sakir á Domingo og
skóku ásakanirnar óperuheiminn.
Domingo er orðinn 78 ára og enn
valdamikill innan Óperunnar í Los
Angeles. Domingo er sakaður um
að hafa þvingað fjölda kvenna til
kynmaka allt frá því snemma á ní-
unda áratugnum. Sjö konur halda
því fram að það að hafna Domingo
hafi komið niður á þeim í starfi.
Ásakaður Plácido Domingo.
Óperan rannsakar
mál Domingo
Tríó Ómars Einarssonar gítarleik-
ara kemur fram í tónleikaröð Sal-
arins, Sumarjazz, í dag kl. 17 og
flytur „skemmtilegar útsetningar á
þekktum jazzlögum og latin-tónlist
auk frumsaminna ópusa,“ eins og
því er lýst í tölvupósti. Ómar og Jón
Rafnsson kontrabassaleikari hafa
starfað saman í tæpa þrjá áratugi
en fyrir ári slóst slagverksleikarinn
Erik Qvick í lið með þeim og segir í
tilkynningu að sú viðbót hafi gefið
tónlistinni skemmtilega áferð.
Djassarar Tríó Ómars Einarssonar.
Tríó Ómars í Sum-
arjazzi Salarins