Tíðbrá - 01.11.1928, Blaðsíða 6

Tíðbrá - 01.11.1928, Blaðsíða 6
4 TÍÐBRÁ ráð, að get'a út tvö rit ura guðspekileg efni. Er þá ann- að algerlega sniðið eí'tir þörfum félagsmanna, en hitt miðað að raestu við utanfélagsmenn. Þykir þetta gef- ast miklu betur en útgáfa eins rits, sem reynir að gera hvorumtveggja til hæfis. „Gangleri" hefir einkum tekið tillit til utanfélagsmanna. En fréttablað innan deildar- innar hefir í rauninni vantað, síðan „gamli Gangleri“ hætti að koma út. Fyrir því vonar deildarstjórnin, að blað þetta verði vel þegið af félagsmönnum og komi þeirn i góðar þarfir. Og heitir hún á alla félagsmenn að leggja sitt fram til þess, að blaðið inegi verða sem bezt. Deildarstjórninni er vel ljóst, að ritstjórn blaðsins er langt frá því, að vera vandalaust verk. En hún hyggur að hún hafi valið lil verksins mann, sem er vandanum vaxinn. K. * * * Skýrt hefir verið frá því hér að framan, hver tildrög voru til útgáfu blaðs þessa. Getið er og um aðal tilgang þess. — Jeg hefi tekið að mér ritstjórn blaðsins, ábyrgð á efni þess og útsendingu til stúkna, en ætlast er til að stúkustjórnir annist um afgreiðslu þess, hver í sinni stúku. Tilgangur blaðsins næst því að eins, að samvinna takist milli mín og félagsmanna. Smágreinar, sem varða félagið eða tilgang þess, verða kærkomnar og munu birtasl i blaðinu, annað hvort heilar, eða í útdrætti. Þar eð um svo takmarkað rúm er að ræða, verður vand- inn mun meiri. Fyrst og fremst er blaðið ætlað öllum félagsmönnum, en þó verður séð svo um, að þeim, sem eru áhugasamir um audleg mál og vildu kynna sér hina ytri hlið fé- lagsskaparins, engu síður en hina innri, gefist kostur á að eignast blaðið, snúi þeir sjer til afgreiðslunnar. Hólmfríður Árnadóttir. Afgreiðsla „TtSbrár" lngólfsstrœti 22, Reykjavih.

x

Tíðbrá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíðbrá
https://timarit.is/publication/1376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.