Tíðbrá - 01.11.1928, Blaðsíða 30

Tíðbrá - 01.11.1928, Blaðsíða 30
28 TÍÐBRÁ enn meiri mannúð, svo leið þeirra, inn á næstu þroska- braut, liggi um dyr kærleikans en ekki um dyr haturs- ins. Veitið einnig blessun yfir blóm og tré. Öll er- uð þér af sömu rótum runnin, frá sömu uppsprettu kornin, og stefnið öll að sama marki. — Lærið þann sannleik, og lifið hann. Styðjið öll ströf og allar hreyfingar í hinurn sýnilega heimi, sem hafa það markmið að efla bræðralag. Takið meira tii greina hugsjónirnar í stefnuskrá jteirra, en rninna hve miklu þær fá til vegar komið. Metið árang- Urinn ekki of mikils. Viðurkennið alla einlæga við- leitni, hver sem árangurinn kann að verða, og hvort sem það er i samræmi við yðar skoðanir og lífsreglur eða eigi. Metið rnikils alla einlæga viðleitni, hvort sem hinn sýnilegi árangur verður rnikill eða lítill. Drottinn vor getur, þegar hans tími er kominn, látið hinn minsta knúpp bróðurlegrar viðleitni vaxa og blómgast, svo að af honum angi í allar áttir. Takið tillit til viðleitninnar og hverjar hvatir að henni liggja. Þetta eru sáðkorn, sem þér eigið að hlúa að. Drottinn mun sjálfur annast um uppskeruna. Treystið lögmálinu. Látið af þvi að dæma hreyfingu, málefni eða skoðun eftir því, hvort það á við yður, hvort yður geðjast að því, eða eftir því, hvort það vekur andúð hjá yður. Dæmið það eftir því, hve miklu það fær til vegar komið í þarfir annara manna, sem á því þurfa að halda. Styðjið í orði og verki allan einlæg- an áhuga, hvort heklur hann kemur fram.í þvi sniði, sem vakið geti aðdáun yðar eða andúð, hvort heldur hann tekur á sig fagra eða ófagra mynd, að yðar dómi, hvort sem það lætur vel eða illa í yðar eyrum. Hættið að vera þrælbundin hvort heldur um er að ræða það, sem yður er geðfelt eða ógeðfelt. Leitið af alefli Ijóss og sannleika, og fylgið sannleikanum, hvað sem það kostar, eins og hann birtist yðnr. Hvetjið aðra íi! hins sama, og hafið það ætíð í huga, að hinn eini sannleik- nr og Ijós alheimsins bregða yfir sig blæjn i mörgum, misinunandi gerfum oft gagnstæðuin í vðar augum — til jiess að gagna ýmisu skapfari og mismunandi

x

Tíðbrá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíðbrá
https://timarit.is/publication/1376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.