Tíðbrá - 01.11.1928, Blaðsíða 29

Tíðbrá - 01.11.1928, Blaðsíða 29
TÍÐBRÁ 27 Fylgið henni, bræður. Betri leiðsögumann en hana get- ið þér eigi eignast, hana, sem hefir um mörg æfiskeið lifað til þess að þjóna meðbræðrum sínum, hana, sem hefir þolað pislax-vætti hetjunnar, hana, sem hefir geng- ið í gegn uin kvalir þær, sem heimurinn i heiftaræði sínu — jafnvel gegn vilja sínum — bakar þeim, sem elska hann. Sýnið henni hollustu, því þá eruð þér trúir hinum stóru hugsjónum, sem hún svo undursamlega lifir. Önnur hálf öld — fögur yfir að sjá — er framund- an yður. Hlustið á orð vor: Þér hafið á yðar valdi að afkasta meiru í náinni framtíð en nokkurt annað fé- lag karla og kvenna hefir nokkru sinni áður gjört. Hlustið á orð vor: Næstu hálfa öld getið þér gjört hræðralag að lifandi raunveruleika í heiminum. Þér getið komið því til leiðar, að þeir sem þrátta, þjóðir og stéttir manna, leggi niður allan misklíð; þjer getið haft þau áhrif, að hin ýmsu trúarfélög lifi aftur saman í bróðerni og skil.ji og virði hvert annað. Gjörið Guð- speki að lifandi orku i lífi yðar, og fyrir yðar eftir- dæmi mun á skömmuin tíma hverfa allur ætta- og stéttamunur, sem svo lengi hefir verið undirrót haturs og harðýðg'i, og þá mun enginn annar mismunur verða til en sá, sem stafar af ólíkum verkefnum í þjónustu þjóðar-fjölskyldunnar og heims-bræðralagsins. Frábær- ir gullgjörðarmenn (alchemists) munuð þér verða — sé það vilji yðar með því að breyta fávísi í vizku, hatri í ást, torrtryggni í traust og aðgreinandi drambi í sanna jafnaðarmensku.. Frábærir garðyrkjumenn mun- uð þér verða — sé það vilji yðar — með því að gjöra heiminn að ilmandi blómgarði og útrýma úr jarðvegi hans eitruðu illgresi. Frábærir eldri bræður munuð þér verða sé það vilji yðar með því að vernda alla, sem eru yngri en þér, blessa þá með mildri, innilegri og viturlegri samhygð, og gjörið það í enn fyllra mæli, þá er bræðurnir eru langt á eftir yður á þroskabraut lífsins. Verið bliðir við börn, en sýnið þó enn meiri mildi þeiin, sem hrasa — sökum fáfræði; sýnið einnig dýrum

x

Tíðbrá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíðbrá
https://timarit.is/publication/1376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.