Tíðbrá - 01.11.1928, Page 20

Tíðbrá - 01.11.1928, Page 20
18 TÍÐBRÁ um fjellu fundarmenn ekki í geð o. s. frv. En Krishna- murti, sem mann, dáðu allir. Það virðist hans sterka hlið, að hann kemur til einstaklingsins, til þess að und- irbúa innra með hverjum manni ,,ríki hamingjunnar“. Hann tekur ekki beinan þátt í umbótastarfsemi þjóð- félagsins. Grundvöll þeirrar starfsemi er að tinna í eigin umbótum einstaklinganna. „Hörð er þessi ræða“, var forðum sagt. Margir hafa endurtekið þau orð í huga sínum, sem hlustað hafa á Fvrishnamurti. í þessu sambandi tek ég hér upp, í laus- legri þýðingu, nokkrar setningar úr greinarstúf eftir C. Jinarajadasa, sem birtist í ,,The Star Revie\v“, jan- úarheftinu 1928: „Krishnamurti hefir oft og tíðum verið „harðorður“. Er þessu í raun og veru svo farið? Þeim einum hefir fundist hann „harðorður“, sem hing- að til hafa valið sér hinar auðförnustu leiðir til guðlegs gervis. En þeim, sem þráð hafa samband við andann án efnis, og hafa því haft við erfiðleika að etja, eru harðv^rði Krishnaji’s eins og svöngum inanni matur eða þyrstum drykkur. Ef einhverjum okkar, sem fundið hafa Ijós guðlegrar vizku í fræðum guðspekinnar, hefir fundist Krishnaji harorður og við ekki finna Ijós og huggun í orðum hans, heldur þvert á móti, þá er eng- um þar um að kenna nema okkur sjálfum. Þetta ber einungis vott um, að hingað til höfum við ekki þorað að horfast í augu við ljós sannleikans, af ótta fyrir að fá ofbirtu í augun. Eina lækningin er sú, að venja augu sín smám saman við að horfa í ljósið, og þá munum við, þrátt fyrir þjáningarnar, smám saman vaxa fyrir áhrifin frá Ijósinu, þar til alt líf okkar er fögnuði fylt“. Nýr bælclingur. Athygli félagsmanna og annara skal vakin á því, að bi'áðlegi kemur út á islensku lítil bók. „Heimsstjórnin", sem er útdráttur úr bók eftir forseta félagsins, dr. Annie Besant. Þýðandi H. Á. Bók þessa settu allir félagsmenn að eignast og lesa. P. E.

x

Tíðbrá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíðbrá
https://timarit.is/publication/1376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.