Tíðbrá - 01.11.1928, Síða 34

Tíðbrá - 01.11.1928, Síða 34
32 TÍttBRÁ og yðar heiins, og að þá opnist yður aðgangur að fleiri heimuin, svo úr þeiin ölluni verði einn heimur, og að vér náum aftur vorri eðlilegu stöðu mitt á ineðal vorra yngri bræðra, og að þá lifi menn og englar sam- an í ánægjulegum félagsskap. Trúið af öllu hjarta á sigur hins góða, fagra og sanna og vissulega mun það sigra. Fylgið einbeitt hugsjónum yðar, og þær munu g'anga í uppfyllingu. Útrýmið öllu, scin leiðir til aðgreinandi mismunar, allri særandi gagn- rýni og útásetningum, allri stórlætis yfirburðatilfinn- ingu, öllum óvingjarnlegum dómum, allri afbrýði, allri sjálfs-réttlætingu þá munuð þér öðlast þann frið, sem öllum skilningi er æðri og læra að nota orku þá, sein öllu til réttlætis snýr. Þá munuð þér leggja undir vður ríki himnanna, sem með fögnuði gæfust upp fyrir yður, og þá mundi Guðspekifélag vort nálgast takmark það, sem vér settum því fyrir hálfri öld — sem var bræðralag. Áfram, bræður! Áfram að takmarkinu. Óttist ekki hindranir. Örvæntið eigi þó þér verðið að þola stundar ósigur. Treyrstið sjálfum yður að saina skapi og vér treystum hverjum einstökum yðar, því enginn er sá félagsmaður, að eigi hafi hann samband við oss, eða hvers hjálpar vér eigi þörfnumst. Höfum vér eigi valið hvern og einn sökum þess, að vér þörfnuðumst hans? Sérhver yðar þarfnast hinna, og vcr þörfnumst yðar allra. Berjist hugrakkir fyrir sannleik og bræðralagi, og vé.r verðum ætíð með yður. H. Á. þýddi. Ritstjóri: Hólmfríður Árnadóttir. Reykjavík — Prentsmiðjan Gutenberg ht'. — 1928.

x

Tíðbrá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíðbrá
https://timarit.is/publication/1376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.