Skessuhorn - 11.02.2015, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 7. tbl. 18. árg. 11. febrúar 2015 - kr. 750 í lausasölu
HEFUR SAFNAÐ FYRIR
ÖKUTÆKI
FYRIR HVERJU
LANGAR ÞIG AÐ SAFNA?
Allt um sparnað á arionbanki.is/reglulegur_sparnadur
Lúsina burt!
Nefúði!
Naso-ratiopharm
Grænn er
fyrir börnin
FRAMKÖLLUNARÞJÓNUSTAN EHF
BRÚARTORGI - 310 BORGARNESI - S. 437 1055
www.framkollunarthjonustan.is
Síðastliðinn föstudag var Dagur leikskólanna haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins, en hefð er fyrir því að 6. febrúar sé hátíðisdagur þeirra. Á leikskólanum Garðaseli
á Akranesi hefur frá upphafi þessa dags verið haldin opin söngstund þar sem fjölskyldum barnanna er boðið að taka þátt. Gleði og glaumur sveif nú sem fyrr yfir vötnum
og alltaf eru börnin jafnglöð að fá fjölskyldur sínar til sín í leikskólann. Fjölmenni mætti í Garðasel og tók þátt. „Söngur og dans er góð sálarnæring og þar mætast börn
og fullorðnir sem jafningjar. Í Garðaseli er lögð áhersla á að bjóða foreldrum að taka þátt í leikskólastarfinu og þessi dagur er mikilvæg leið að því markmiði,“ sagði
Ingunn Ríkharðsdóttir leikskólastjóri. já nánar um dag leikskólanna á bls. 12.
Sveitarstjórnarmenn á sunnanverðu
Vesturlandi, ásamt fulltrúum Faxa-
flóahafna og þingmönnum í Norð-
vesturkjördæmi, funduðu með
Davíð Stefánssyni, verkefnisstjóra
Silicor Materials, á Akranesi í síð-
ustu viku. Á þeim fundi kom fram
að listinn yfir þá fjölda tuga samn-
inga sem ljúka þarf í undirbúningi
verkefnisins vegna sólarkísilverk-
smiðjunnar er að styttast verulega.
Davíð kvaðst bjartsýnn á að þeim
yrði lokið þannig að allt yrði sam-
anstillt í aprílmánuði og þá væri
stefnt á formlega skóflustungu fyrir
verksmiðjuna. Framkvæmdir yrðu
síðan komnar á fullt með haust-
inu. Áætlanir gera ráð fyrir að vél-
búnaður verksmiðjunnar yrði ræst-
ur upp úr miðju ári 2017 og fram-
leiðslan farin að streyma á markað á
svipuðum árstíma 2018.
Fram kom á fundinum að sveit-
arfélögin á Vesturlandi eru fyrir
nokkru farin að undirbúa sig fyr-
ir að taka á móti stórum vinnustað
eins og Silicor, enda búist við mik-
illi uppbyggingu á svæðinu. For-
svarsmenn sveitarfélaganna telja
þau vel í stakk búin til að taka við
stórum hluta þeirra starfsmanna
sem áætlað er að fylgi komu Sili-
cors á Grundartanga en það er um
og yfir 450 bein störf.
Í máli Davíðs Stefánssonar á
fundinum kom fram að bygging
verksmiðjunnar væri ein stærsta
fjárfesting sem væri í gangi hér á
landi. Verkefnið er með hátt eig-
infjárhlutfall, eða um 40%. Búið
er að stofna bæði innlent félag og
móðurfélag. Davíð segir að enn sé
stefnt að því að a.m.k. þriðjungur
hlutafjár verði í eigu íslenskra að-
ila og meðal annars vonast til að þar
verði inni fjárfestingarsjóðir í eigu
lífeyrissjóðanna. Seðlabankinn hef-
ur nú til meðferðar umsókn frá Sili-
cor og þar er að sögn Davíðs ekki
óskað eftir neinni sérmeðferð, að-
eins því sama og aðrir hafa feng-
ið. Samningur við ríkið er frágeng-
inn og verður tekinn til lagalegr-
ar meðferðar á Alþingi væntanlega
í lok þessa mánaðar eða í mars. Þá
liggi fyrir samningsdrög við Orku
Náttúrunnar um 40 MW, en eftir
er að ljúka samningum við Lands-
virkjun sem gert er ráð fyrir að út-
vegi þau 45 MW sem uppá vantar
fyrir rekstur verksmiðjunnar í full-
um afköstum.
Silicor Materials mun hreinsa ál
og framleiða hreinan kísil í sólar-
hlöð og er þegar búið að selja 14
þúsund tonn af 19 þúsund tonna
framleiðslu sem gert er ráð fyrir að
verksmiðjan framleiði á ári. Stærsti
hluti framleiðslunnar verður seldur
til Kína, Suður-Kóreu og Taívan.
Samið er við hið 160 ára SMS Sie-
mag í Þýskalandi um allan tækja-
búnað. Áætluð stærð verksmiðju-
byggingarinnar á Grundartanga er
um 120.000 m2 og framkvæmda-
svæði alls um 218.000 m2. Útflutn-
ingsverðmæti verksmiðjunnar er
áætlað á bilinu 50 til 60 milljarð-
ar króna á ári. Áætlaður bygging-
arkostnaður er um 100 milljarð-
ar íslenskra króna. Þar af er tækja-
búnaður áætlaður um 60 milljarðar
króna. þá
Skóflustunga að sólarkísilverksmiðju í apríl
Davíð Stefánsson kynnir Silicor verk-
efnið.
Lóðin fyrir Silicor Materials í Kataneslandi er innrömmuð á myndinni en hún er um
22 hektarar en þar af eru byggingar á 12 hekturum lands.
Opnunartíminn okkar:
Mánudaga, þriðjudaga
og miðvikudaga
kl. 11:00 – 18:00
Fimmtudaga
og föstudaga
kl. 11:00 – 22:00
Laugardaga
og sunnudaga
kl. 11:00 – 18:00
Líkaðu við okkur á
facebook og fáðu
tilkynningar um
vikumatseðla,
tilboð og fleira
skemmtilegt
Kirkjubraut 2 við Akratorg
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5