Skessuhorn


Skessuhorn - 11.02.2015, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 11.02.2015, Blaðsíða 11
11MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015 Á R N A S Y N IR �Ú Í �E�SLU�U� ��LÆGT ÞÉ� Nói Síríus kynnir: Nóa Lakkrís Síríus Rjómasúkkulaði Í sérhverri sögu er hetja. Í þessari eru þær tvær. Nóa Lakkrís er ekta íslenskur lakkrís. Hann er sætur og kröftugur í senn. Hann er lungamjúkur, með djúpu lakkrísbragði og anísundirtóni, sem tryggir þér alveg einstaka bragðupplifun. Síríus súkkulaði þekkja Íslendingar vel og hafa átt í ástarsambandi við um árabil. Hið silkimjúka Síríus rjómasúkkulaði bráðnar uppi í þér og í Nóa Lakkrís bitum í rjómasúkkulaði umlykur það mjúkan lakkrísinn, sem er einmitt þróaður til að fara einstaklega vel með súkkulaði. Saman mynda Nóa Lakkrís og Síríus rjómasúkkulaði epíska bragðupplifun sem þú átt hreinlega eftir að elska. �étta bragðið Sjálfbær�i - Sa�félagsábyrgð Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnað- ar- og viðskiptaráðherra afhenti síð- astliðinn laugardag íslensku lýsing- arverðlaunin við hátíðlega athöfn á Vetrarhátíð í Perlunni. Það er Ljós- tæknifélag Íslands sem stendur fyr- ir samkeppni um bestu lýsinguna. Lýsing á endurbættu Akratorgi á Akranesi hlaut verðlaunin að þessu sinni en átta verkefni höfðu verið tilnefnd í samkeppnina. Fulltrúar Landmótunar, Verkís og Akranes- kaupstaðar voru viðstaddir og tóku við verðlaununum. Deiliskipulag Akratorgsreits var unnið árið 2013 af Landmótun sf. á grundvelli verðlaunatillögu og í kjölfarið var hafin vinna við hönnun torgsins. Torgið var formlega vígt 17. júní í fyrra. „Megin hugmynd- in var að skapa torg sem yrði an- keri menningar, viðburða og þjón- ustu á Akranesi. Lýsingarlausn- ir torgsins taka mið af þessari hug- mynd og skapa umhverfi sem er sí- breytilegt. Lýsingin á Akratorgi er bæði hugsuð sem almenn lýsing frá ljósastaurum í kringum torgið og skrautlýsing sem er stýrt í spjald- tölvu og lýsir á svið, styttu, gos- brunn og gönguleiðir innan torgs- ins,“ segir á vef Akraneskaupstaðar um lýsinguna á Akratorgi. mm Skessuhorni hefur borist eftirfar- andi bréf frá ánægðum þorrablóts- gesti í Kolbeinsstaðahreppi: „Ég má til að senda ykkur nokkr- ar línur um þrælgott (að vanda) þorrablót Ungmennafélagsins Eld- borgar í Kolbeinsstaðahreppi sem haldið var í félagsheimilinu Lind- artungu síðastliðið föstudagskvöld. Ungt fólk í sveitinni hafði veg og vanda af undirbúningi blótsins eins og í fyrra og var allt klárt og vel á málum haldið (skemmtileg kyn- slóðaskipti hafa orðið í ungmenna- félaginu þar á örfáum árum). Blót átti að hefjast kl. 21:00 með borð- haldi, þá skemmtun og svo balli. Hljómsveit Geirmundar Valtýsson- ar var bókuð með góðum fyrirvara, Jóhannes Kristjánsson eftirherma var veislustjóri og grínmyndband um hreppsbúa var klárt til sýning- ar. Um kl. 17.30 á sjálfan blótsdag- inn hringdi Geirmundur Valtýsson í Þráinn blótsstjóra Ásbjörnsson frá Haukatungu syðri II. Geirmundur tilkynnti að sökum ófærðar kæmist hljómsveitin ekki á blótið. Búið var að loka bæði Vatnsskarði og Þver- árfjalli og hljómsveitin því föst ofan í Skagafirði. Nú voru góð ráð dýr. Hrikalegt var að standa uppi með hljómsveit- arlaust blót aðeins þremur klukku- stundum áður en fólk mætti. Hratt var brugðist við og haft samband við Sissa í Borgarnesi og hljómsveit hans sem ber heitið Festival. Svo vel vildi til að þeir voru ekki bók- aðir þetta föstudagskvöld. Skipti því engum togum að þeir voru mættir í Lindartungu rétt fyrir kl. 19.00 (eða á innan við 1,5 klukku- stund eftir boðun!) Þeir voru bún- ir að stilla upp og stóðu klárir þeg- ar fólk fór að tínast í hús. Eins og þeirra var von og vísa héldu þeir svo hörkugott ball. Var dansað til að verða 04:00 um nóttina, enda vanir menn á ferð. Grínið á blótinu var það að útkallstími Festival væri skemmri en slökkviliðsins. Mið- að við vegalengd frá Borgarnesi og komutíma á blótið er morgunljóst að þeir hafa ekki haft margar mín- útur til að koma sér af stað!“ . Akratorg hlaut íslensku lýsingarverðlaunin Akratorg í dag.Fulltrúar Akraneskaupstaðar, Verkís og Landmótunar sem tóku við verðlaun- unum. Ófærð hamlaði för hljómsveitar – en því var reddað! Festival. Ljósm. úr safni

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.