Skessuhorn - 11.02.2015, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015
Leiðrétt
föðurnafn
Farið var rangt með föðurnafn
Almars Sigurjónssonar, rekstr-
arstjóra fiskimjölsverksmiðju
HB Granda á Akranesi, í frétt
Skessuhorns í síðustu viku þeg-
ar sagt var frá því þegar Lund-
ey NS kom með fyrsta loðnu-
farm vertíðarinnar til Akra-
ness. Fyrir mistök var Almar
sagður Guðmundsson. Beðist
er velvirðingar á þessu.
–mþh
Tólf sinnum
komið til aðstoð-
ar borgurum
VESTURLAND: Í vikunni
kom lögreglan á Vesturlandi
tólf sinnum borgurum til að-
stoðar, oftast vegna veðurs eða
ófærðar. Ellefu umferðaróhöpp
urðu í umdæminu, þrjú þar sem
minniháttar meiðsli urðu og
í tveimur þessara tilfella voru
ökutæki flutt ógangfær af vett-
vangi með kranabifreið. Tveir
ökumenn voru kærðir fyrir
akstur undir áhrifum fíkniefna.
Sjö ökumenn voru kærðir fyr-
ir hraðakstur innan bæja, fjór-
ir þar sem hámarkshraði var 50
km og sá sem hraðast ók mæld-
ist á 79 km hraða. Þrír voru
teknir þar sem hámarkshraði
var 30 km og sá sem hraðast fór
var á 52 km hraða. Alls komu
upp 353 hraðamyndavélamál
í vikunni. Ellefu voru kærðir
fyrir að leggja ökutæki ólög-
lega. Skráningarnúmer voru
tekin af tólf ökutækjum vegna
vanrækslu eigenda eða umsjón-
armanna að færa þær til skoð-
un og greiða af þeim trygging-
ar. Fimm þjófnaðarmál vor til-
kynnt, öll minniháttar. Ein lík-
amsárás var kærð og alls komu
til afgreiðslu 485 mál hjá lög-
reglunni á Vesturlandi í þess-
ari viku.
–þá
Kjördæmavika
stendur yfir
LANDIÐ: Kjördæmavika
stendur nú yfir, nánar til tek-
ið dagana 9. til 12. febrúar. Þá
liggja hefðbundin störf niðri
á Alþingi en þingfundir verða
aftur á dagskrá 16. febrúar. Í
kjördæmaviku eiga þingmenn
það til að heimsækja kjósend-
ur og eiga við þá orðastað, ým-
ist á fundum, í vinnustaða-
heimsóknum eða á förnum
vegi. Skessuhorn hefur heim-
ildir fyrir að slíkir fundir hafi
verið og verði á dagskrá ein-
hverra þeirra flokka sem full-
trúa eiga á þingi úr Norðvest-
urkjördæmi. Fólki er því bent
á að láta sér ekki bregða sjáist
þeir á ferð og nýta tækifærið,
koma á framfæri ábendingum
og spyrja þessa þjóðkjörnu full-
trúa okkar út í landsmálin.
-mm
Þótt Valentínusardagurinn sé ekki sá
allra þjóðlegasti hér á Fróni er þó ekki
úr vegi að minna á að hann er á laug-
ardaginn.
Áfram er búist við umhleypingum
næstu dagana. Á fimmtudag er spáð
fremur hægri breytilegri átt og skýjuðu
með köflum en él nyrst framan af degi.
Vaxandi austanátt um kvöldið og fer
að snjóa sunnanlands. Hiti aðeins und-
ir frostmarki. Á föstudag er útlit fyr-
ir suðaustan 13-20 m/sek, hvassast
norðaustantil og snjókoma, en síðar
slydda eða rigning. Snýst í vestan 8-13
með éljum sunnan- og vestantil um
kvöldið. Á laugardag er spáð suðaust-
an hvassviðri með slyddu eða rign-
ingu og hlýnandi veðri. Á sunnudag
og mánudag er útlit fyrir suðlæga eða
breytilega átt en norðaustanátt á Vest-
fjörðum. Úrkoma með köflum og hiti
kringum frostmark.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Ætlarðu að fylgjast með Sjón-
varpi Skessuhorns?“ Langflestir ætla
að gera það. „Já“ sögðu 68,6%, „veit
ekki“ var svar 23,97% og „nei“ sögðu
7,44%.
Í þessari viku er spurt:
Trúir þú á vöxt í atvinnulífi á Vestur-
landi næstu misserin?
Gangbrautaverðir sem hjálpa börn-
um að komast klakklaust til skóla á
morgnana eru Vestlendingar vikunnar.
Þeir eru margir sem leggja drjúgt á sig
hvernig sem viðrar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
HB Grandi hefur gert samkomulag
við Loðnuvinnsluna á Fáskrúðs-
firði um að skip Loðnuvinnsl-
unnar, Hoffell II SU-802, fari til
loðnuveiða fyrir fyrrgreinda fyrir-
tækið. Skipið mun veiða af heim-
ildum HB Granda og landa aflan-
um til vinnslu ýmist á Akranesi eða
Vopnafirði. Án efa er skarð fyrir
skildi að nú er Víkingur AK ekki
lengur til í flota fyrirtækisins en
skipið reyndist oft notadrjúgt þeg-
ar sækja þurfti stíft í loðnuna eins
og nú er útlit fyrir. Gert er ráð fyrir
Hoffell II verði komið til veiða síð-
ar í þessari viku. Skipstjóri verður
Magnús Þorvaldsson og fyrsti stýri-
maður Gunnar Gunnarsson. Þeir
eru báðir gamalreyndir skipstjór-
ar og hafa sinnt skipstjórn fyrir HB
Granda árum saman. Aflamark HB
Granda í loðnu er um 72.000 tonn
og eru nú um 55.000 tonn óveidd.
„Þau tonn eru enn í sjó en ekki á
bankabók,“ segir Vilhjálmur Vil-
hjálmsson forstjóri HB Granda á
heimasíðu fyrirtækisins. Hann vill
því ekki spá neinu um hverju þessi
kvóti skilar í verðmæti.
mm
Bæjarstjórn Akra-
ness samþykkti
á aukafundi sín-
um í gær að ráða
Jón Hróa Finns-
son í starf sviðs-
stjóra velferð-
ar- og mannrétt-
indasviðs. Svið-
ið varð til í kjölfar
stjórnkerfisbreyt-
inga hjá Akraneskaupstað síðastlið-
ið haust og annast verkefni á sviði
félagsþjónustu, mannréttindamála,
þjónustu við fatlaða og aldraða og
barnavernd. Starfið var auglýst í
nóvember. Tuttugu og fimm um-
sækjendur voru um starfið en fjórir
drógu umsóknir sínar til baka.
Jón Hrói er með meistaragráðu
í stjórnsýslufræðum frá Háskólan-
um í Árósum í Danmörku frá árinu
2004 og lauk BA námi í stjórnsýslu-
fræði við sama háskóla árið 2000.
Lokaritgerð hans í meistaranám-
inu fjallaði um íslenska velferðar-
kerfið í alþjóðlegum samanburði.
Jón Hrói starfaði sem sveitarstjóri
Svalbarðsstrandarhrepps árin 2010
til 2014, var þróunarstjóri Fjalla-
byggðar 2007 til 2010 og ráðgjafi
hjá ParX viðskiptaráðgjöf 2004 til
2007. Í starfi sínu sem sveitarstjóri
Svalbarðsstrandarhrepps hafði Jón
Hrói yfirumsjón með verkefnum
sveitarfélagsins og daglegri starf-
semi þess, m.a. stefnumótun, fjár-
málagerð og starfsmannamálum.
Þá kom hann að endurnýjun þjón-
ustusamninga og undirbúningi að
yfirtöku málefna fatlaðra til sveitar-
félagsins og sat sem fulltrúi á sam-
ráðsvettvangi þeirra sveitarfélaga
í Eyjafirði sem standa sameigin-
lega að þjónustu við fatlaða. Meðal
helstu verkefna sem þróunarstjóri í
Fjallabyggð var umsjón með sam-
þættingu verkefna í kjölfar samein-
ingar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar,
þ.m.t. endurskipulagning rekstrar
og stjórnskipulags. þá
Það var létt yfir félögum í stjórn
Hollvinasamtaka Heilbrigðis-
stofnunar Vesturlands og starfs-
fólki stofnunarinnar síðasta föstu-
dag enda gleðidagur. Skrifað var
undir kaup á nýju tölvusneið-
myndatæki fyrir HVE á Akranesi.
Að undangenginni verðkönnun
verður keypt tæki frá Siemens í
Þýskalandi en umboðsmenn þess
hér á landi er Smith og Norland.
Halldór Þórir Haraldsson fram-
kvæmdastjóri S&N og Steinunn
Sigurðardóttir formaður hollvina-
samtakanna skrifuðu undir kaup-
samninginn. Áætlað er að fram-
leiðsla tækisins taki tíu vikur og
uppsetning þess um vikutíma.
Kostnaður við tækjakaupin er um
40 milljónir króna og er búið að
safna þeim peningum. Íslenska
ríkið greiðir 15 milljónir en 25
milljónir eru gjafafé frá fjölmörg-
um fyrirtækjum, félagasamtökum
og einstaklingum í landshlutan-
um sem lagt hafa myndarlega til
söfnunarinnar. Samtakamáttur við
þessa söfnun var því mjög mikill og
ánægjulegur. Steinunn Sigurðar-
dóttir vildi koma á framfæri þakk-
læti til allra sem lagt höfðu verk-
efninu lið. „Nú er þungu fargi af
mér létt,“ sagði Steinunn við þetta
tækifæri. „Ég einsetti mér í byrjun
að ljúka þessari söfnun á innan við
einu ári og það tókst.“ Nú eru um
300 manns félagar í Hollvinasam-
tökum Vesturlands.
Þórir Bergmundsson lækninga-
forstjóri á HVE sagði í samtali við
Skessuhorn að tölvusneiðmynda-
tæki væri forsenda þess að áfram
verði hægt að bjóða upp á fram-
úrskarandi heilbrigðisþjónustu á
Vesturlandi. Án þess væri í besta
falli hægt að tala um góða heilsu-
gæslu. Þórir sagði að eftir að gamla
sneiðmyndatækið bilaði í byrjun
nóvember síðastliðnum hafi þurft
að aka að meðaltali eina og hálfa
ferð á dag með sjúklinga af Akra-
nesi til rannsókna á Landspítalann
eða í Domus Medica. Þá þjónustu
þyrfti HVE að greiða samkvæmt
fullum taxta og væri kostnaður-
inn við slíkar rannsóknir á annan
tug milljóna á ári. Án tækisins yrði
spítalinn jafnframt án sértekna
og margvíslegra verkefna. „Þessi
stofnun hefði aldrei orðið söm við
sig án nýs sneiðmyndatækis,“ sagði
Þórir sem fagnaði líkt og aðrir
þessum ánægjulegu tímamótum.
En það eru mikið fleiri sem þurfa
að leita langt sé ekki tæki sem þetta
til staðar. Fram kom að meðaltali
þyrftu tæplega sjö Vestlending-
ar á dag að sækja myndgreining-
arþjónustu til Reykjavíkur með-
an ekki væri tæki til staðar á Akra-
nesi. Ásgeir Ásgeirsson fjármála-
stjóri HVE kom á framfæri þakk-
læti stofnunarinnar til hollvina-
samtakanna í forföllum Guðjóns
Brjánssonar forstjóra. mm
Skrifað undir kaup á nýju sneiðmyndatæki frá Siemens
Steinunn Sigurðardóttir og Halldór Þórir Haraldsson skrifa hér undir kaupsamn-
ing á nýju tölvusneiðmyndatæki. Fjær eru Sigríður Eiríksdóttir og Skúli Ingvarsson
stjórnarmenn í hollvinasamtökunum.
Hoffell kemur til löndunar á Akranesi á loðnuvertíð 2012. Ljósm. hb.
Hoffell II leigt til HB Granda
Jón Hrói ráðinn sviðstjóri velferðar- og
mannréttindasviðs Akraneskaupstaðar
Jón Hrói
Finnsson.
Í morgunverð er þetta helst