Skessuhorn - 11.02.2015, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015
Vöruskipti
hagstæð
LANDIÐ: Samkvæmt
bráðabirgðatölum fyrir ný-
liðinn janúar var útflutning-
ur frá landinu 50,6 milljarð-
ar króna á fob verði. Á sama
tíma var innflutningur 42,5
milljarðar króna. Vöruskipt-
in í janúar voru því hagstæð
um 8,1 milljarð króna sam-
kvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofunnar. –mm
Af latölur fyrir
Vesturland
31. janúar - 6. febrúar.
Tölur (í kílóum) frá F
iskistofu:
Akranes 8 bátar.
Heildarlöndun:
1.524.305 kg.
Mestur afli: Lundey NS:
1.475.370 kg í einni löndun.
Arnarstapi 4 bátar.
Heildarlöndun: 55.468 kg.
Mestur afli: Kvika SH:
24.099 kg í þremur löndun-
um.
Grundarfjörður 11 bátar.
Heildarlöndun:
361.071 kg.
Mestur afli: Helgi SH:
96.015 kg í tveimur löndun-
um.
Ólafsvík 19 bátar.
Heildarlöndun:
389.483 kg.
Mestur afli: Guðmund-
ur Jensson SH: 61.048 kg í
þremur löndunum.
Rif 19 bátar.
Heildarlöndun:
602.297 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
126.841 kg í tveimur lönd-
unum.
Stykkishólmur 6 bátar.
Heildarlöndun:
148.134 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
95.315 kg í þremur löndun-
um.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Lundey NS – AKR:
1.475.370 kg. 3. febrúar
2. Tjaldur SH – RIF:
67.342 kg. 1. febrúar
3. Hringur SH – GRU:
65.624 kg. 2. febrúar
4. Tjaldur SH – RIF:
59.499 kg. 6. febrúar
5. Grundfirðingur SH –
GRU: 54.909 kg. 31. janúar
mþh
Eggjandi
briddsarar
BORGARFJ: Eftir tvö mög-
ur kvöld hjá Félagi eggjabænda í
sveitakeppni Briddsfélags Borg-
arfjarðar var Jóhannesi fyrirliða
nóg boðið. Setti hann mönn-
um afarkosti. Þetta dugði vel og
spilaði sveitin af feikna öryggi og
skoraði sveita mest, eða 59 stig.
Dugði það til að sveitin er ekki
lengur á botninum heldur jöfn
annarri stórsveit. Laxarnir halda
góðu tempói og skoruðu 54 stig
og Telpurnar nældu í 53 og skut-
ust við það á toppinn. Dóra með
brýnin sín er í öðru sæti og Skalla-
poppararnir þar sjónarmun á eftir.
Tvö kvöld eru eftir af keppninni
og ljóst að allt getur gerst. Vest-
urlandsmót í sveitakeppni verður
á Hótel Hamri 21. og 22. febrú-
ar, skráning er hjá Ingimundi ze-
torinn@visir.is s: 8615171. Fjór-
ar efstu sveitir öðlast þátttöku-
rétt á Íslandsmóti. Lokað er fyr-
ir skráningu að kveldi 19. febrú-
ar. Keppnisgjald um 20.000 kr. á
sveit.
–ij
Halda aðalfund
Samfylkingarinnar
VESTURLAND: Samfylking-
in í Norðvesturkjördæmi heldur
aðalfund laugardaginn 14. febrú-
ar kl. 12-17 í Gamla kaupfélaginu
á Akranesi. Á dagskrá eru venju-
leg aðalfundarstörf. Árni Páll
Árnason, formaður Samfylkingar-
innar, og Guðbjartur Hannesson
þingmaður í kjördæminu, ávarpa
fundinn og taka þátt í umræðum.
Einnig verður haldið stefnuþing
um tillögur málefnanefnda fyr-
ir landsfund Samfylkingarinnar
20. og 21. mars nk. á Hótel Sögu.
Tillögurnar munu liggja frammi á
fundinum. Félagsmenn eru hvatt-
ir til að mæta á aðalfundinn og
stefnuþingið. –fréttatilkynning
Von á starfsleyfi
fyrir urðun
jarðefna í
Bjarnhólum
BORGARBYGGÐ: Sveitarfé-
lagið Borgarbyggð hefur um ára-
bil nýtt Bjarnhóla, gömlu ösku-
haugana við Borgarnes, fyrir urð-
un jarðefna, svokallaðs óvirks úr-
gangs. Fyrir einu og hálfu ári rann
starfsleyfið út og þegar óskað var
eftir framlengingu á því gerði
Umhverfisstofnun kröfu um að
urðunarstaðurinn yrði settur inn
á aðalskipulag. Á dögunum barst
síðan Borgarbyggð bréf frá Um-
hverfisstofnun þar sem tilkynnt
var að sveitarfélagið yrði beitt
dagsektum ef það héldi áfram að
urða í Bjarnhólum án starfsleyfis.
Jónína Erna Arnardóttir, formað-
ur umhverfis-, skipulags- og land-
búnaðarnefndar Borgarbyggð-
ar, segir að þessi tilkynning hafi
komið sveitarstjórnarfólki á óvart.
Þegar málið var skoðað hafi kom-
ið í ljós að fólki í Umhverfisstofn-
un hafði láðst að skoða hvernig
vinnu við aðalskipulagið miðaði.
„Málin hafa nú verið rætt og kom-
ist á samkomulag. Við teljum okk-
ur hafa orðið við þessum óskum
sem Umhverfisstofnun lagði fram
og gott betur því við höfum líka
gert deiliskipulag af svæðinu og
bæði skipulögin eru lögð fram til
kynningar þessa daga. Við höfum
endurnýjað umsókn um starfsleyfi
og eigum von á því að fá það af-
greitt í vor. Þangað til verður ekki
urðað í Bjarnhólum,“ segir Jónína
Vigdís Arnardóttir. –þá
Þriðjungur íbúðanna á Sólmundarhöfða seldur
Rúmlega 400 manns komu á Sól-
mundarhöfða 7 á Akranesi þegar
efnt var til kynningar fyrir skömmu
á íbúðunum í fjölbýlishúsinu sem þar
er í byggingu. Ragnar Már Ragnars-
son framkvæmdastjóri og aðaleig-
andi félagsins SH7 ehf. sem bygg-
ir og selur íbúðirnar í húsinu segir
að unnið sé að sölu á ellefu íbúðum
af 31.
„Við fengum mjög jákvæð við-
brögð frá fólki og það var fullt út að
dyrum hjá okkur í tvo og hálfan tíma.
Margir eru að spá og spekúlera og
einhverjir búnir að setja sínar eign-
ir á sölu til að undirbúa kaup. Það er
komin greinileg hreyfing á markað-
inn,“ segir Ragnar Már. Hann segir
allt á fullu við frágang á íbúðunum
og vinna sé langt komin í húsinu en
alls eru íbúðahæðirnar átta auk bíla-
kjallara. Ragnar Már segir að íbúð-
irnar verði afhentar á bilinu apríl til
maí í vor og byggingu hússins þá
jafnframt lokið. Hann segir að nú
séu það bara kauptilboð sem gilda,
ekki séu lengur teknar frá íbúð-
ir í ákveðinn tíma eins og gert var
á fyrstu stigum söluferlisins. Eins og
áður sagði er 31 íbúð á Sólmund-
arhöfða 7. Þær eru 2-3 herbergja,
frá 75,1-134,3 fermetrum að stærð.
Hægt er að kynna sér þær frekar á
www.sh7.is, en íbúðirnar sem eru
óseldar eru á verðbilinu 20,5 til 37
milljónir króna. þá
Fjölbýlishúsið á Sólmundarhöfða 7 á Akranesi.
Óttast að verkföll geti stöðvað framkvæmdir
Framkvæmdir ganga samkvæmt
áætlun við fjölbýlishúsið að Haga-
flöt 7 á Akranesi sem Trésmiðj-
an Akur og Rafþjónusta Sigur-
dórs keyptu rúmlega fokhelt síð-
asta vor. Húsið var eitt þeirra þar
sem framkvæmdir stöðvuðust við í
hruninu. Halldór Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Akurs kvaðst von-
ast til að hægt verði að standa við
áður útgefnar áætlanir að íbúðir í
húsinu verði tilbúnar til afhending-
ar í maímánuði í vor. Hann óttast
þó að yfirvofandi verkföll og ófrið-
ur á vinnumarkaðnum geti þar sett
strik í reikninginn. Aðspurður segir
Halldór að þegar sé búið að ganga
frá sölu á tveimur íbúðum, ein íbúð
sé frátekin og fleiri í skoðun, þann-
ig að ágætlega miði með sölu íbúð-
anna. „Ég hef trú á því að ef okk-
ur tekst að ljúka við íbúðirnar í vor
þá líði ekki langur tími þar til þær
verða allar seldar. Þetta fer allt af
stað með hækkandi sól,“ segir Hall-
dór í Akri.
Á Hagaflöt 9 verða 20 íbúðir og
eru flestar þeirra sniðnar að þörf-
um ungs fólks sem jafnvel er að
hefja sinn búskap. Þannig er helm-
ingur íbúðanna tveggja herbergja
og 63 fermetrar að stærð, sex íbúð-
ir þriggja herberga 85-90 fermetr-
ar og fjórar íbúðirnar eru fjögurra
herbergja um 100 fermetrar að
stærð. Ódýrustu íbúðirnar eru til
sölu á tæplega sextán og hálfa millj-
ón króna og fermetraverð því um
260 þúsund krónur. þá
Fjölbýlishúsið Hagaflöt 7 þar sem 20
nýjar íbúðir verða tilbúar í vor ef allt
gengur að óskum.
Jarðvegsskiptum lokið fyrir byggingu gistihúss
Eins og við greindum frá í Skessu-
horni nýverið ætlar Magnús Freyr
Ólafsson, forvígismaður í ferða-
þjónustu tengdri sjóstangveiði
á Akranesi, að færa út kvíarnar í
starfseminni í vor. Magnús Freyr
hefur starfrækt farfuglaheimili við
Suðurgötu 32 á Akranesi síðustu
árin. Hann hefur nú fengið lóð
og byggingarleyfi fyrir húsi á lóð-
inni þar framan við, á Suðurgötu
33. Það hús verður ætlað áhöfn-
um sjó stangveiðibáta og er um að
ræða lítið fjölbýlishús með fjórum
íbúðum á tveimur hæðum, hver
íbúð um 100 fermetra að stærð
og fjögurra herbergja. Jarðvegs-
skiptum er nú lokið eins og sjá má
á meðfylgjandi mynd. Áformað er
að tvær íbúðanna í húsinu verði
tilbúnar þegar háannatíminn hefst
í ferðamennskunni í vor.
Magnús Freyr sagði í samtali við
Skessuhorn að hver íbúð yrði ætl-
uð sex manna áhöfn sjóstangveiði-
báta. Hann segir að núna sé nær
fullpantað í sjóstangveiði næsta
sumar á bátinn Frey AK 81 sem
félagið á og gerður er út til sjóst-
angveiðanna. Nú er unnið að því
að fjárfesta í öðrum báti til að gera
út á sjóstöngina í sumar.
þá
Hér mun nýja gistihúsið rísa. Ljósm. mþh.
Bakaríið Brauðval • Skólabraut 12 – 14 • Akranesi • Sími 434 1413 Fylgstu með okkur á
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Bolludagurinn
Afgreiðslutími:
Virka daga kl. 9.00 – 18.00
Lokað um helgar
Opið bolluhelgina
Laugard. 14. febrúar og
sunnud. 15. febrúar kl. 9.00 – 16.00
Bollur í úrvali