Skessuhorn - 11.02.2015, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015
Nýr rekstrarsamningur um þrekaðstöðu á Jaðarsbökkum
Íþróttabandalag Akraness og Akra-
neskaupstaður hafa undanfarin ár
verið með rekstrarsamning um
þreksalinn á Jaðarsbökkum, en eldri
samningur rann út í haust. Nú hef-
ur samningur um þreksalinn milli
þessara aðila verið endurnýjaður
og gildir út árið 2016. Bæjaryfir-
völd vilja ekki semja til lengri tíma.
„Framkvæmdastjórn ÍA fagnar að
samningar hafi tekist milli aðila og
væntir þess hér eftir sem hingað til
að eiga gott samstarf við bæjaryf-
irvöld um þennan rekstur,“ segir í
nýjasta raffréttabréfi ÍA.
Vilja ekki útiloka
einkaaðila
Talsverð umræða hefur verið í bæj-
arfélaginu síðustu misseri um að
þreksalurinn við Jaðarsbakka sé of
lítill og ýmsir sem halda því fram
að hann anni ekki eftirspurn þegar
tekið er tillit til vaxandi áhuga fyr-
ir þjálfun og líkamsrækt og fjölg-
un íbúa. Þar er á ákveðnum tímum
sólarhrings fullsetið í öll tæki og
fólk orðið frá að hverfa. Í viðræð-
um Íþróttabandalags Akraness og
Akraneskaupstaðar bar á milli varð-
andi áform og framtíðarsýn. Það
er vilji bæjaryfirvalda að útiloka
ekki þann möguleika að einkaaðil-
ar geti átt þess kost að koma upp
líkamsræktarstöð í bæjarfélaginu.
Þeir sem sýnt hafa því áhuga sjá þó
í hendi sér að þá má niðurgreiddur
rekstur líkamsræktarstöðvar á veg-
um bæjarfélagsins og íþróttahreyf-
ingarinnar ekki standa í vegi fyrir
að einkarekin starfsemi geti kom-
ist á legg. Því má segja að ákveðin
pattstaða sé í málinu þar sem togast
á lýðheilsumarkmið og samkeppni
einka- og opinberra aðila. Samn-
ingur um rekstur salarins á Jaðar-
sbökkum gildir því einungis í tvö
ár. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
staðfestir í samtali við Skessuhorn
að bæjaryfirvöld vilji kanna áhuga
aðila sem hafa sérhæft sig í að
byggja upp líkamsræktarstöðvar og
vilja því ekki festa samninginn við
ÍA til lengri tíma en tveggja ára.
Líkamsrækt óháð
efnahag
Sigurður Arnar Sigurðsson er for-
maður stjórnar Íþróttabandalags
Akraness. Hann segir í samtali við
Skessuhorn að íþróttahreyfingin
hafi mikinn áhuga á að byggja upp
sem besta íþróttaaðstöðu á Akra-
nesi. „Við þurfum að hugsa stöð-
una miðað við þörfina og fjárhags-
lega getu, hver króna er mikilvæg
í rekstrinum. Skyldur okkar eru
fyrst og fremst við íþróttafólk ÍA
sem og að stuðla að heilsueflingu
almennings. Núverandi rekstur
er hagkvæmur og við reynum að
koma til móts við ólíkar kröfur. ÍA
á hluta þess húsnæðis sem líkams-
ræktarstöðin á Jaðarsbökkum er
rekin í og þar að auki tæki og bún-
að fyrir milljónir króna. Við fögn-
um því í sjálfu sér ef einhver áhuga-
samur aðili vill opna líkamsrækt-
arstöð á Akranesi og bæta þannig
aðstöðuna. Við óttumst þó að út-
gjöld almennings og hreyfingar-
innar í heild stóraukist og teljum
núverandi rekstrarform vera far-
sælast fyrir íþróttahreyfinguna. Ef
þessar forsendur breytast og ein-
hver utanaðkomandi aðili kem-
ur með áhugaverða hugmynd þá
munum við að sjálfsögðu taka því
fagnandi og vega hana og meta.
Það er stefna okkar að sem flest-
ir eigi þess kost að stunda hreyf-
ingu og líkamsrækt óháð efnahag.
Til dæmis hvetjum við eldri borg-
ara til aukinnar heilsueflingar, nið-
urgreiðum þjónustu vegna hreyf-
iseðla sem heilbrigðis- og félags-
geirinn stendur fyrir, hvetjum
skólafólk til að nýta aðstöðuna án
verulegs kostnaðar og áfram mætti
telja,“ segir Sigurður Arnar.
Uppfyllir ekki kröfur
Ólafur Adolfsson og Sigríður
Indriðadóttir skipa tvö efstu sæt-
in á lista Sjálfstæðisflokks í bæj-
arstjórn sem myndar meirihluta
ásamt fulltrúa Bjartrar framtíð-
ar. Þetta mál var borið undir þau
Ólaf og Sigríði og segja þau að í
samningaviðræðum Akraneskaup-
staðar og Íþróttabandalags Akra-
ness síðastliðið haust um endur-
nýjun á leigu- og rekstrarsamn-
ingi líkamsræktarstöðar fyrir al-
menning á Jaðarsbökkum og á
Vesturgötu, hafi forsvarsmönnum
íþróttabandalagsins verið kynnt sú
fyrirætlan meirihluta bæjarstjórn-
ar á Akranesi að framlengja samn-
ing við ÍA til 31. desember 2016 án
möguleika á frekari framlengingu.
„Einnig samþykktu fulltrúar Akra-
neskaupstaðar að verða við ósk-
um íþróttabandalagsins og lækka
leigugjald í samningi um nær 40%
allt til samningsloka. Akurnesing-
ar hafa um langan tíma kallað eftir
bættri aðstöðu til líkamsræktar og
heilsueflingar. Núverandi aðstaða
uppfyllir ekki þær kröfur sem nú-
tíminn gerir til líkamsræktarað-
stöðu og er auk þess óaðgengileg
hreyfihömluðum og fjölda eldri
borgara. Það er og skoðun núver-
andi meirihluta bæjarstjórnar að
það sé ekki hlutverk Akraneskaup-
staðar að vera í samkeppnisrekstri
og því er vilji til að kanna til fulln-
ustu þann möguleika að einkaaðil-
ar hefji rekstur líkamsræktarstöðv-
ar á Akranesi.“ Þau Ólafur og Sig-
ríður bæta því við að endingu að
það sé mikilvægt að íþróttabanda-
lagið og Akraneskaupstaður vinni
saman að því verkefni að efla og
styrkja allt íþróttastarf á Akranesi
ásamt því að hvetja til almennrar
heilsueflingar og heilbrigðra lífs-
hátta.
mm
Svipmynd úr tækjasalnum á Jaðarsbökkum. Mynd úr safni Skessuhorns frá síðasta ári.
Dagur
leikskólanna
Síðastliðinn föstudag var Dagur
leikskólanna haldinn hátíðlegur í
leikskólum landsins, en hefð er fyr-
ir því að 6. febrúar sé hátíðisdagur
þeirra. Haldið er upp á að þann 6.
febrúar 1950 stofnuðu frumkvöðlar
leikskólakennara fyrstu samtök sín.
Á Degi leikskólans er vakin sérstök
athygli á því góða starfi sem unnið
er í leikskólum og hvatt til jákvæðrar
umræðu um skólastarfið. Að þessu
sinni tóku forsvarsmenn félaga leik-
skólakennara ákvörðun um að ekk-
ert eitt þema skyldi vera umfram
önnur. Hver og einn leikskóli hélt
því upp á daginn með sínum hætti.
Meðfylgjandi myndir voru teknar
við þetta tækifæri. mm
Á leikskólanum Akraseli á Akranesi var dagurinn tekinn snemma
og marserað í göngutúr umhverfis skólalóðina klukkan 9 um
morguninn þrátt fyrir rok og rigningu. Trommusveit frá Tónlistar-
skóla Akraness gekk í broddi fylkingar og sló taktinn.
Í tilefni af Degi leikskólans sem var föstudagurinn 6. febrúar voru börnin í leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi búin að gera
myndir fyrir sýningu sem við settum upp í Bónus. Sýningin er sprottin upp úr vinnu barnanna með Venjurnar. sem byggja á
hugmyndafræði The Leader in Me. Í stuttu máli gengur það út á að við verðum besta útgáfan af okkur sjálfum.
Trommusveit frá TOSKA gekki í broddi fylkingar
leikskólabarna á Akraseli.
Það er notalegt að fá ömmu í heimsókn.
Svipmynd frá Teigaseli.
Krakkarnir á leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði gerðu sér daga-
mun í tilefni af leikskóladeginum. Þá var haldinn lopapeysudagur
ásamt því að þorrinn var blótaður. Þeir voru hressir krakkarnir
þegar ljósmyndari Skessuhorns kíkti í heimsókn í þann mund er þau
voru að byrja á kræsingunum.
Í Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit var haldið upp á daginn með því
að opna sýningu á vinnu barnanna í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðar-
sveitar. Þar má sjá verk barnanna og skráningu á vinnu þeirra.
Sýningin verður opin út febrúar og er öllum velkomið að kíkja við.
Fjölbreytt verk eru til sýnis í stjórnsýsluhúsinu
í Hvalfjarðarsveit frá leikskólanum Skýjaborg.
Til dæmis könnunarverkefni elstu barnanna
um traktor og litaþema sem unnið var á yngri
deildinni.
Í Teigaseli á Akranesi var opið hús fyrir ömmur og
afa í tilefni af Degi leikskólans. Það komu margir
góðir gestir sem skemmtu sér vel í leik með
börnunum. Gestum var boðið upp á kryddbrauð
og kaffi.