Skessuhorn - 11.02.2015, Qupperneq 17
17MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015
Nýr hraðbanki
– auknir möguleikar
Í innleggshraðbönkum okkar geta viðskiptavinir
lagt inn seðla og tekið út allt að ���.��� kr.
Þú getur líka millifært, greitt reikninga, fyllt á
GSM Frelsi og skoðað stöðuna á reikningunum.
Allt með því að auðkenna þig með greiðslukortinu
þínu.
Prófaðu nýja innleggshraðbankann í Arion banka
í Borgarnesi.
Arion hraðþjónusta
– hafðu það eins og þú vilt
RARIK ohf • Dvergshöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 528 9000 • www.rarik.is
RARIK ohf. auglýsir laust til umsóknar starf tæknimanns við hönnun, áætlanagerð ofl. á rekstrarsviði
fyrirtækisins með aðsetur í Stykkishólmi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hér er um
ölbreytt starf að ræða við dreifikerfi fyrirtækisins.
Rekstrarsvið ber ábyrgð á rekstri og viðhaldi á dreifikerfi RARIK. Meginverkefni sviðsins eru hönnun,
nýframkvæmdir, breytingar, viðhald og rekstur dreifikerfis fyrirtækisins.
Starfssvið
Áætlanagerð.
Hönnun dreifikerfa
Verkbeiðnaútgáfa
Verkundirbúningur
Samskipti við
viðskiptavini
Hæfniskröfur
Rafmagnstæknifræði, rafmagnsiðnfræði.
Þekking og reynsla af háspennukerfum er kostur.
Góð almenn tölvukunnátta
Þekking á Microstation og/eða AutoCad æskileg
Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt
Nánari upplýsingar veita deildarstjóri rekstrarsviðs á Vesturlandi, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs eða
starfsmannastjóri RARIK ohf. í síma 528 9000. Umsóknarfrestur er til 2. mars n.k. og skal skila umsóknum
með ferilskrá á netfangið atvinnuumsokn@rarik.is.
RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að flytja og dreifa raforku, afla, dreifa og annast sölu á heitu
vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200, aðalskrifstofa er í Reykjavík og um 20 starfsstöðvar eru dreifðar vítt og breytt um landið.
Hönnun og áætlanagerð Vesturlandi
ur og varði mark stórveldisins Fram
í efstu deildinni. „Ég kvaddi Fram
reyndar með því að við lönduð-
um eftirminnilegum Íslandsmeist-
aratitli í handbolta utanhúss 1979.
Svo ökklabrotnaði ég veturinn eft-
ir og sá að það myndi taka mig lang-
an tíma að verða það góður að ég
gæti keppt um stöðu í fyrstu deild-
inni en þá voru þrjár deildir í hand-
boltanum. Skagamenn voru í þriðju
deild. Ég var ráðinn þjálfari meist-
araflokks og leikmaður. Ég ætlaði
bara að verða einn vetur á Skagan-
um og fara aftur í borgina en í milli-
tíðinni kynntist ég konunni minni
Sigríði Alfreðsdóttur. Það varð til
þess að ég ílengdist á Skaganum og
við stofnuðum hér heimili. Það gekk
vel í handboltanum en á undan mér
höfðu verið öflugir þjálfarar og leik-
menn eins og Jón Hjaltalín Magn-
ússon og Páll Björgvinsson. Okkur
tókst strax að vinna okkur upp um
deild. Komumst meira að segja í átta
liða úrslit Bikarkeppninnar þar sem
við unnum KR með Alfreð Gísla-
son, Gísla Felix Bjarnason, Friðrik
Þorbjörnsson, Hauk Geirmunds-
son, Jóhannes Stefánsson og fleiri
góða leikmenn. Hjá okkur voru öfl-
ugir strákar eins og Pétur Ingólfs-
son sem kom frá Ármanni og fór
svo seinna í FH, nafnarnir Pétur
Björnsson og Reimarsson, Sigþór
Hreggviðsson, Hlynur Sigurbjörns-
son, Þorleifur Sigurðsson og nokkr-
ir fleiri góðir. Í stjórninni voru Teit-
ur Stefánsson, Magnús Sólmundar-
son, Haraldur Bjarnason fréttamað-
ur og Valdimar Björgvinsson. Síðan
kvarnaðist úr þessu góða liði okkar
þegar strákarnir fóru hver af öðrum
í nám til Reykjavíkur,“ segir Gissur.
Það er þróun í þessu
Eftir að handboltatímanum sleppti
fór Gissur svo í golfið og hefur not-
ið sín í þeirri íþrótt ásamt góðum fé-
lögum síðan. Gissur og Sigríður Al-
freðsdóttir eiga þrjú börn og það
yngsta þeirra, Karitas 27 ára, býr á
Akranesi. Hún lauk meistaranámi í
kennslufræði á þessu ári. Næstelstur
er Alfreð tollvörður í Reykjavík 31
árs og elst er Sandra 36 ára starfandi
lyfjafræðingur í Noregi. Barnabörn-
in eru fimm og það elsta er fimm
ára gamalt. „Það bætist við eitt á ári,
það er þróun í þessu,“ segir Gissur
brosleitur að endingu. þá
Unnið að endurnýjun aðveituæðarinnar á Hestflóanum í Andakíl.