Skessuhorn - 11.02.2015, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015
Vorið 2013 tók Sigurbjartur Loftsson
við starfi byggingar- og skipulagsfull-
trúa í Stykkishólmi og Grundarfirði.
Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heim-
sókn á skrifstofuna til Sigurbjarts í síð-
ustu viku þegar hann var að störfum í
Grundarfirði. Hann sagði að nóg hafi
verið að sýsla í starfinu þessi tæpu tvö
ár sem hann hefur starfað á Snæfells-
nesi og ýmislegt spennandi að gerast.
„Hérna í Grundarfirði er margt að
gerast í kringum ferðaþjónustuna. Í
Stykkishólmi er til dæmis þetta kalk-
þörungadæmi mjög spenannandi og
vonandi að það verði að veruleika,“
sagði Sigurbjartur. Núna í vikunni
var síðan kynnt nýtt deiliskipulag fyr-
ir frístundabúskap í Stykkishólmi sem
gjarnan hefur gengið undir nafninu
Nýræktin þótt þar hafi framkvæmd-
ir byrjað við stofnun Ræktunarfélags
Stykkishólms á árunum 1933-1935.
Sigurbjartur segir að undirbúning-
ur og vinna við þetta skipulag hafi
tekið langan tíma. Fundað hafi verið
með mörgum og hann hafi líka grúsk-
að í gögnum meðal annars flett upp
blaðafregnum og greinum um þetta
framtak sem Nýræktin var í Stykkis-
hólmi á sínum tíma.
Vanda þarf til verksins
Umrætt svæði er 35 hektarar í jaðri
þéttbýlisins í Stykkishólmi, skammt
frá kirkjugarðinum austan við Byrg-
isborg. Þarna neðan við er sum-
ar- og orlofshúsahverfið Arnarborg.
Sigurbjartur segir að ýmsir hafi haft
áhyggjur af því að fólki þar myndi
ekki líka nábýlið við sauðfjárbúskap-
inn og hænsna- og alifuglaræktina
sem stunduð er á Nýræktarsvæðinu
en annað hafi komið á daginn. Þvert
á móti virðist húseigendum í Arnar-
borg finnast þetta vinalegt og spenn-
andi nágrenni. Fjórðungurinn í Ný-
ræktinni er skógrækt Skógræktarfé-
lags Stykkishólms, kennd við Grensás
sem er stærsta holtið í Nýræktinni.
„Þetta er mjög spennandi og fallegt
svæði. Síðustu árin hefur verið úthlut-
að stöðuleyfum fyrir hús til nokkurra
til að stunda búfjárhald á svæðinu, en
lengi hefur skort á að gert væri heild-
arskipulag fyrir svæðið til framtíð-
ar. Vanda hefur þurft til þessa verks
og endurskoða og leiðrétta ýmis-
legt í sambandi við gamla gjörninga.
Gagnaöflun hefur verið mikil og mjög
gaman að grúska í gömlum gögnum
og blöðum. Við ætlum að leggja okk-
ur fram um að gera þetta sem rétt-
ast og best. Nú fer skipulagið í aug-
lýsingu og það verður náttúrlega ekki
að veruleika fyrr en það hefur farið í
gegnum skipulagsferlið og verið sam-
þykkt,“ segir Sigurbjartur.
Merkilegustu nýmælin í
atvinnuáttum þess tíma
Í gömlum blaðagreinum í Alþýðu-
blaðinu, Lögbergi, Samvinnunni,
Búnaðarritinu og fleiri blöðum er
getið framtaks Ræktunarfélags Stykk-
ishólms á árunum 1933-1935 þeg-
ar félagar ræstu fram landið með því
að handgrafa skurði og plægja. Þeg-
ar nokkuð var liðið á þetta tímabil
voru að baki 560 dagsverk hjá 15-20
mönnum. Með þessu var alþýðu-
fólk í Stykkishólmi að skapa sér veru-
lega eign, en tímakaupið var áætlað
25 krónur og gekk það upp í kaupin
á landinu. Þegar jarðarbótunum var
lokið árið 1936 var dregið um hvern
skika í Nýræktinni sem búið var að
hólfa niður. Í grein í Samvinnunni
var meðal annars sagt að Nýræktin
væri merkasta nýmæli í atvinnuhátt-
um þorpsins, Stykkishólms. Voru þar
einnig látnar í ljósi vonir um að fyr-
irtækinu lánist vel því jafnframt styðji
það við atvinnu bæjarbúa. Ræktunin
auki kúaeign manna í kauptúninu og
styðji við heilsusamlegra líf með auk-
inni mjólkurneyslu. „Ræktunin hefur
tekist mjög vel en orðið nokkuð dýr
sökum mjög illrar aðstöðu. Spretta er
ágæt. Finnst manni það ganga krafta-
verki næst að hafa getað ræktað þess-
ar ljótu fúamýrar á svo stuttum tíma.
Sýnir þetta fyrirtæki vel hvað hægt er
að gera þar sem ákveðinn vilji, þraut-
seigja og dugnaður fylgjast að. Gunn-
ar Jónatansson búfræðingur í Stykk-
ishólmi hefur stjórnað ræktuninni
af miklum dugnaði. Mjög mikil at-
vinnubót hefur verið að ræktuninni
fyrir bæinn, sérstaklega á haustin og
veturna, þegar ekkert annað hefir ver-
ið þar að gera. Ræktun þessi er þýð-
ingarmikið menningarfyrirtæki. Hún
þýðir aukna gras- og garðrækt, meiri
atvinnu, meiri mjólk og betra og fjöl-
breyttara mataræði. Þótti okkur mjög
ánægjulegt að kynnast þessu framfara-
og menningarfyrirtæki,“ segir í grein í
Samvinnunni frá árinu 1936.
Bjartsýnn á framhaldið
Sigurbjartur segist kunna vel við sig
á Snæfellsnesi. Hann er Grindvík-
ingur að uppruna og starfaði á árum
áður sem smiður og tók meðal annars
þátt þegar Bláa Lónið var í uppbygg-
ingu. Sigurbjartur nam bygginga-
fræði í Horsens í Danmörku á fyrstu
árum aldarinnar. Hann bjó og starf-
aði á Nýja-Sjálandi í þrjú ár og kom
að hönnun stórbygginga þar, sem og
að hönnun stórhýsa í Kanada, Nor-
egi og á Íslandi meðan hann starfaði
á arkitektastofunni Batteríinu áður
en hann flutti á Snæfellsnesið. „Við
hjónin vorum mikið í Stykkishólmi
yfir sumarið og það var ástæðan fyrir
því að við ákváðum að reyna að koma
okkur fyrir á svæðinu. Okkur lang-
aði að prófa að búa hérna fyrir vestan
en konan mín er héðan,“ segir Sigur-
bjartur. Hún er Kristbjörg Hermanns-
dóttir, kennari í Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga. Sigurbjartur segir að mik-
ið hafi verið að gera frá því hann tók
við starfi byggingar- og skipulagsfull-
trúa í júní 2013. „Eitt af fyrstu verk-
unum var að breyta hér öllu og koma
skrifstofum Grundarfjarðarbæjar fyr-
ir í þessu húsi sem áður var bókasafn.
Hérna er eins og ég segi mikið að gera
í stækkun húsnæðis vegna ferðaþjón-
ustunnar en ekki mikið í nýbygging-
um í bænum. Í sveitinni er hins vegar
verið að byggja íbúðarhús, fjárhús og
sumarhús. Í Stykkishólmi er mikið að
gerast í nýbyggingum á íbúðarhúsum
og orlofshúsum, sem og endurbótum
og breytingum í gömlum bygging-
um klaustursins. Æðarsetrið er langt
komið og þar er líka mikið að gerast í
kringum ferðaþjónustuna. Mér sýnist
að framkvæmdirnar séu að aukast hér
og ég er bjartsýnn á framhaldið í þess-
um tveimur sveitarfélögum,“ sagði
Sigurbjartur að endingu. þá
Það ber til tíðinda í ferðaþjónustu á
sunnanverðu Snæfellsnesi að nú er
hægt að fá svokallaðar sögufylgjur
til að greina frá fróðleik svæðisins.
Sögufylgjurnar eru heimafólk sem
tekur á móti gestum, segir þeim
frá því sem fyrir augu ber og miðl-
ar um leið fróðleik um sín heima-
svæði. Það verður hægt að fá slíka
sögufylgd í gönguferðum eða á far-
artækjum, fólk getur sótt sögufylgj-
urnar heim eða mælt sér mót við
þær þar sem þess er óskað nánast
hvar sem er á Snæfellsnesi.
Hægt að hitta sjálfa
íbúa svæðisins
Það er fjölbreyttur hópur heima-
fólks af báðum kynjum og á breiðu
aldursbili sem hefur nú skráð sig í
hóp sögufylgja á Snæfellnesi. Alls
eru þetta um 25 manns á níu stöð-
um á svæðinu allt frá Hítará vest-
ur að Hellnum. „Við erum að taka
skref í þá átt að gera þetta saman
sem einn hópur hér á sunnanverðu
Snæfellsnesi. Þau sem eru komin á
skrá eru tilbúin með sína pakka ef
svo má segja og reiðubúin að taka
á móti gestum. Svo er næsta skref
að til verði sögufylgjur á gerv-
öllu Snæfellsnesi, bæði sunnan- og
norðan fjallgarðs. Með þessu getur
ferðafólk átt kost á því að hitta íbúa
svæðisins og heyra þau sjálf segja
frá sínum heimaslóðum. Á Snæ-
fellsnesi býr fjöldi af skemmtilegu
og fróðu fólki sem hefur frá ótal
mörgu að segja,“ segir Ragnhildur
Sigurðardóttir framkvæmdastjóri
Svæðisgarðsins Snæfellsnes.
Mikil breidd
í sögufylgjum
Sögufylgjurnar sem þegar eru á
skrá eru afar fjölbreyttar. Þóra Sif
Kópsdóttir á Ystu-Görðum við
Kaldá segir sögur af lífinu í sveit-
inni og kryddar þær með sögum af
tröllum og huldufólki. Hún býð-
ur einnig upp á ljósmyndaferðir og
sýnir búskapinn á bænum. Áslaug
og Þórður á Lágafelli geta greint
frá ræktun og ræktunarskilyrðum
á Snæfellsnesi, sagt frá náttúrunni
og frætt gesti um sögur og sagnir í
Miklaholtshreppi. Á Álftavatni taka
þær mæðgur Ragnhildur og Björk á
móti gestum og segja frá menningu
og náttúru. Þórunn Hilma á Neðri-
Hól í Staðarsveit býður fólki í fjósið
og segir frá búskapnum og sveitalíf-
inu. Laila Bertilsdóttir á Hofgörð-
um greinir frá sínum heimaslóðum
með sögnum og fróðleik um fallega
staði.
Strax byrjað að bóka
Þormóði G. Símonarsyni á Tvíodda
þykir gaman að tala um andleg mál,
gítara og tónlist, húsasmíði orku-
vænna húsa og áhugaverða einstak-
linga á Snæfellsnesi bæði fyrr og nú.
Á Votalæk er það Rósa Erlends-
dóttir sem talar um byggðar- og
atvinnusögu, segir sögur og sagnir
af svæðinu frá Dritvík að Kerling-
arskarði og greinir frá jarðfræði og
jarðsögu sunnanverðs Snæfellsness.
Mæðgurnar Margrét Björk og Dag-
björt Dúna í Böðvarsholti tala um
átthagafræði og halda mikið upp
á Búðakirkju. Í Samkomuhúsinu á
Arnarstapa eru það svo mæðgurn-
ar Ólína og María sem taka á móti
gestum, sérfróðar um ströndina við
Arnarstapa og Hellnar, áhugasam-
ar um tónlist og ljóð, bókagrúsk
og fleira. Af öllu þessu má sjá að af
nægu er að taka.
„Það er þegar byrjað að hringja
til að grennslast fyrir um sögufylgd
og búið að panta til dæmis nú um
páskana og svo í sumar. Það er mik-
ill áhugi í sögufylgjuhópnum og
hann fer ört vaxandi ,“ segir Ragn-
hildur Sigurðardóttir.
mþh
Foreldrafélag Grunnskólans í
Borgarnesi, í samvinnu við fjöl-
marga sjálfboðaliða, Grunnskól-
ann í Borgarnesi, Björgunarsveit-
ina Brák, Skátafélag Borgarness og
fleiri undirbúa Gleðileikana 2015.
Hugmyndin að baki Gleðileikanna
er að unglingarnir takist á við krefj-
andi verkefni sem er ekki hluti af
þeirra daglega skólalífi. Gleðileik-
arnir sjálfir eru þrautaleikur sem
fara fram á þriðjudegi til fimmtu-
dags frá hádegi til loka skóladags
unglinganna dagana 3. – 5. mars
næstkomandi.
„Sjálfstæði og samvinna eru ein-
kunnarorð leikanna og miðast að
því að efla samheldni og samstöðu
í samfélaginu okkar sem og gefa
nemendum á efsta skólastigi tæki-
færi til að spreyta sig á skemmti-
legum þrautaleik. Markmiðið er
að hver og einn unglingur fari frá
þessum leikum með jákvæð og fal-
leg orð í farteskinu og nýja sýn á
eigin styrk og getu,“ segir Eva Hlín
Alfreðsdóttir verkefnisstjóri Gleði-
leikanna 2015.
Eva Hlín segir að í anda sam-
félagsábyrgðar og samvinnu sé nú
óskað eftir aðstoð nærsamfélags-
ins og sér í lagi foreldra til að taka
þátt í þessum leikum og setja upp
verkefni víðsvegar um neðri bæinn
í Borgarnesi. „Í fyrra komu um 50
manns með einum eða öðrum hætti
til aðstoðar og eiga mikla þökk fyrir.
Aftur biðlum við til foreldra og/eða
annarra íbúa að gefa kost á sér og
taka þátt í verkefni sem eflir sam-
stöðu og samhug í sveitarfélaginu
okkar. Sérstaklega eru fyrirtæki á
svæðinu hvött til að sýna stuðn-
ing sinn í verki með því að „lána“
starfsfólk og þannig gefa starfsfólki
sínu kost á að leggja verkefninu lið
á vinnutíma sínum. Opinn kynn-
ingafundur verður haldinn mánu-
dagskvöldið 16. febrúar í húsnæði
Grunnskólans í Borgarnesi klukk-
an 20:15 og eru áhugasamir hvattir
til að mæta,“ segir Eva Hlín. Einnig
er hægt að hafa samband við hana
í síma 696-7910 eða á: evahlin@bi-
frost.is
mm
Undirbúa Gleðileikana
2015 í Borgarnesi
Svipmynd frá Gleðileikunum 2014, hér
á lögreglustöðinni.
Sögufylgjur segja frá á Snæfellsnesi
Ragnhildur Sigurðardóttir
framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins
Snæfellsness býr á Álftavatni í Staðar-
sveit og er sjálf ein af sögufylgjunum.
Frístundasvæði skipulagt í Nýræktinni og margt spennandi að gerast
Spjallað við Sigurbjart Loftsson byggingar- og skipulagsfulltrúa í Stykkishólmi og Grundarfirði
Einn frístundabóndinn sem er með stöðuleyfi í Nýræktinni, Benedikt Frímannsson,
gaukar tuggu að kindunum sínum. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Sigurbjartur á skrifstofu byggingar-
fulltrúans í Grundarfirði.
Innkoman á Grensás, skógræktarsvæðið í Stykkishólmi sem er fjórðungurinn í
Nýræktarsvæðinu sem nýlokið er að deiliskipuleggja.