Skessuhorn - 11.02.2015, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015
KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
• Olíur
• Glussi
• Smurefni
• Hreinsiefni
• Öryggisvörur
• Dælur, smurtæki og fleira
REKSTRAR VÖRUR
FYRIR LANDBÚNAÐINN
– Þekking og þjónusta í 20 ár
Kemi • Tunguhálsi 10 • 110 Reykjavík
www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30.
Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
„Nú er mælirinn einfaldlega fullur
og get ég ekki orða bundist,“ segir
Sigrún Þormar sem býr á Dagverð-
arnesi í Skorradal. Sigrún er þarna
að lýsa ástandi vegarins inn með
Skorradalsvatni að norðanverðu.
„Vegagerðin telur sig ekki hafa
peninga til að halda veginum við
en einhverra hluta vegna var sett
efni í veginn á síðasta ári sem gerði
hann enn verri. Þetta er leirborið
efni sem veðst upp í bleytutíð og
nú er svo komið að einungis er fært
um dalinn fyrir vel búna og öfluga
jeppa. Þegar frystir verður sundur-
skorinn vegurinn svo stórhættuleg-
ur allri umferð,“ segir Sigrún.
Sjálf situr Sigrún í sveitarstjórn
Skorradalshrepps og sem fulltrúi
þar heyrði hún nýlega umdæmis-
stjóra Vegagerðarinnar segja á fundi
að engir peningar væru á áætlun
til að lagfæra veginn um Skorra-
dal. Sigrún segir að ástand vegarins
hafi margvíslegar hliðarverkanir.
„Nú er nytjaskógrækt að aukast hjá
Skógrækt ríkisins og þar hafa menn
miklar áhyggjur af að vaxandi timb-
urflutningar eigi eftir að reynast
erfiðir og kannski koma í veg fyr-
ir að skógræktin geti selt timbur. Þá
veit ég um fólk sem á sumarhús hér
í landi Dagverðarness sem íhugar
að setja hús sitt á sölu af því það tel-
ur sig ekki geta notað það eins og
það vill, hvernær sem er ársins. Það
er gríðarmikil sumarhúsabyggð og
vaxandi áhugi fyrir heilsárs búsetu
hér í dalnum enda að flestu öðru
leyti frábært að eiga hér frístunda-
hús,“ segir Sigrún. Þá nefnir hún þá
hættu sem ill- eða ófær vegur getur
haft, svo sem vegna aksturs neyð-
arbíla enda eru þeir almennt ekki
búnir fjórhjóladrifi. Sigrún starfar í
Reykholti og reynir að sækja þang-
að vinnu daglega. Versta farartál-
mann segir hún vera klifið ofan við
Hvamm. „Ef allt væri eðlilegt léti
Vegagerðin taka þessa háu brekku,
vinna úr grjótinu efni til ofaníburð-
ar og bæta veginn. Ég sem íbúi hér
mótmæli því einfaldlega að rík-
isvaldið bjóði okkur upp á þjóð-
vegi sem verða ófærir við minnstu
veðrabreytingar,“ segir Sigrún Þor-
mar. mm/ Ljósm. Valdimar Reynisson.
Starfsmenn Áhaldahúss Snæfellsbæjar
hafa alltaf nóg að gera og eru nú
farnir að huga að sumrinu. Nýlega
unnu tveir starfsmenn að því að setja
rúður í nýtt þjónustuhúsnæði, sem
verið er að byggja á tjaldsvæðinu í
Ólafsvík. Verið er að taka aðstöðuna á
tjaldsvæðinu í gegn, þar sem einnig er
unnið að stækkun á tjaldsvæðinu og
að fleiri endurbótum. Vonast er til þess
að þessi bætta aðstaða skili sér í fleiri
ferðamönnum á svæðinu. þa
Umhverfis- og auðlindaráðherra
mælti á Alþingi fyrir frumvarpi til
laga um meðferð elds og varnir gegn
gróðureldum. Frumvarpið fjallar
m.a. um heimildir til að brenna sinu
og kveikja bálkesti og almennt um
meðferð elds utandyra, þar á með-
al ýmsar varúðarráðstafanir vegna
hættu á gróðureldum. „Fjallað er
um skyldu hvers og eins til að gæta
ýtrustu varkárni í meðferð elds. Sér-
staklega er fjallað um sinubrenn-
ur og tiltekið að þær séu eingöngu
heimilar á lögbýlum þar sem stund-
aður er landbúnaður og einung-
is í rökstuddum tilgangi í jarðrækt
eða búfjárrækt,“ segir í tilkynningu
frá ráðuneytinu. Í frumvarpinu eru
ákvæði um meðferð elds á víðavangi,
leyfisveitingu vegna sinubrenna og
framkvæmd þeirra. Þá er kveðið á
um heimild sveitarstjórnar til að af-
marka svæði í brunarvarnaáætlun
þar sem óheimilt verði að brenna
sinu vegna þeirrar hættu sem af því
getur stafað. mm
Nýverið var undirritaður samning-
ur milli Hreggnasa ehf. og Veiði-
félags Grímsár og Tunguár í Borg-
arfirði um að veiðiréttur ánna verði
hjá þeim fyrrnefnda til og með árs-
ins 2020. Um er að ræða framleng-
ingu á samningum við Hreggnasa
sem hafa haft Grímsá og Tunguá
á leigu frá árinu 2004 þegar fé-
lagið tók við sölu veiðileyfa af land-
eigendum. Sveinbjörn Eyjólfs-
son, formaður Veiðifélags Gríms-
ár og Tunguár, segir að um sé að
ræða fimm ára samning sem nú er
gengið frá með hóflegri hækkun á
hverju ári. Grímsá og Tunguá eru
talin meðal mestu laxveiðiáa í land-
inu. Grímsá á langa samfellda sögu
varðandi stangaveiðar, allt aftur til
ársins 1862 þegar að enskir veiði-
menn fóru að venja þangað kom-
ur sínar. Meðalveiði síðustu 20 ára
eru um 1.300 laxar á ári og við ána
stendur eitt glæsilegasta veiðihús
landsins. Á fésbókarsíðu Hreggnasa
segir að samningurinn sé mikið
gleðiefni fyrir aðstandendur félags-
ins en það fagnar 15 ára starfsaf-
mæli í ár.
þá
Víkingur Ólafsvík varð á dögun-
um B-deildar meistari Fótbolta.
net mótsins þegar liðið vann HK
með þremur mörkum gegn tveim-
ur í hreinum úrslitaleik. Leikurinn
fór fram síðastliðinn fimmtudag í
Kópavogi. HK-ingar fóru betur af
stað í leiknum þar sem Guðmundur
Magnússon fyrrum liðsmaður Vík-
ings kom Kópavogsliðinu yfir strax
á sjöundu mínútu og staðan 1:0 í
hálfleik. Víkingar komu grimm-
ir til seinni hálfleik og fyrirlið-
inn Steinar Már Ragnarsson jafn-
aði metin strax á 46. mínútu. Ing-
ólfur Sigurðsson, sem nýlega gekk í
raðir Víkings, kom sínum mönnum
yfir á 64. mínútu og nýr leikmað-
ur Víkings Kenan Turudija jók for-
ystuna í 3:1 rúmum fimm mínút-
um síðar. HK menn náðu síðan að
klóra í bakkann og skora sitt ann-
að mark í leiknum á 89. mínútu en
nær komust þeir ekki og Víkingur
því meistari. Víkingsliðið hefur þar
með borið sigur úr býtum í tveim-
ur fyrstu mótum ársins. Lengjubik-
arinn byrjar síðan um næstu helgi
þegar Víkingar mæta Breiðablik í
Fífunni Kópavogi klukkan 12 laug-
ardaginn 14. febrúar.
þá
Frumvarp um varnir
gegn gróðureldum
Við undirritun samnings, Sveinbjörn Eyjólfsson á milli forsvarsmanna Hreggnasa
sem gjarnan hafa verið kenndir við matvöruverslunina Nóatún.
Langtímasamningur um
Grímsá og Tunguá
Steinar Már Ragnarsson fyrirliði Víkings hampar bikarnum.
Ljósmynd: Víkingasveitin.
Víkingur sigraði í
B-deild æfingamóts
Ferðasumarið
undirbúið
Í gær hafði vegurinn vaðist enn meira upp og djúpur skurður eftir þungt ökutæki
eftir honum miðjum.
Einungis fært vel búnum jeppum
um Skorradalsveg
Svona var ástand vegarins á mánudaginn eftir rigningarnar.