Skessuhorn - 11.02.2015, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2015
„Ég hætti í bankanum um mán-
aðamótin febrúar og mars 2013.
Mér leiddist ekkert að hætta í
vinnunni og fara á eftirlaun. Ég
hafði nóg að gera við að sinna
mínu. Ekki hvarflaði að mér að
fara aftur út á vinnumarkaðinn.
Vissulega bar ég smá kvíðboga
fyrir vetrunum, að ég hefði ekki
nægt fyrir stafni þá, en ég hafði í
nógu að snúast yfir sumarið. En
þá hringdi skólastjóri Auðarskóla
hér í Búðardal skyndilega í mig til
að heyra hvort mig vantaði ekki
vinnu,“ segir Edda Tryggvadótt-
ir í Búðardal og hlær við. Auð-
arskóli er samrekinn leikskóli og
grunnskóli og einn skólastjóri yfir
báðum. Núna eru um 40 börn í
leikskólanum í tveimur deildum.
Erindi skólastjórans var að bjóða
Eddu starf á leikskólanum.
Játti strax
atvinnutilboðinu
Þannig gerðist það að Edda fór
að starfa á leikskóla þegar hún átti
reglum samkvæmt að gerast elli-
lífeyrisþegi. „Ég sló strax til þeg-
ar mér bauðst þessi vinna á leik-
skólanum. Þetta var kærkomið.
Starfið er yndislegt og ég er það
heilsugóð að ég sé enga ástæðu
til að leggjast í kör. Ég ætla að
vera þarna á meðan ég má,“ segir
Edda. Börnin kunna vel að meta
að hún sé til staðar. Nærvera Eddu
minnir börnin á að þau eigi afa og
ömmur. „Ég verð mikið vör við
það að þau kunna að meta að það
sé líka eldra fólk sem gætir þeirra.
Það er afskaplega notalegt þegar
sum þessi yngstu koma og hrópa
„amma“ þegar þau sjá mig.“
Náttúrunytjar í mynni
Hvammsfjarðar
Síðustu 13 árin áður en Edda
komst á aldur sem kallað er, starf-
aði hún við bankastörf í Búðardal.
Hún er fædd og uppalin á jörð-
inni Arnarbæli yst á Fellsströnd-
inni við mynni Hvammsfjarð-
ar. Árið 1963 giftist hún Svani
Hjartarsyni frá Fremri-Vífilsdal
í Hörðudal sem er syðsti dalur
Dalasýslu. Þau settust að í Búðar-
dal, bjuggu þar alla sína búskap-
artíð og eignuðust fjögur börn.
Jafnframt þessu nytjuðu þau Arn-
arbæli þar sem fjölskyldan hefur
átt sér athvarf í lausum stundum
allt fram á þennan dag. Svanur
lést í byrjun árs 2010.
„Það má segja að Arnarbæli sé
ættaróðalið, jörðin þar sem ég
ólst upp. Foreldrar mínir voru
þarna með blandaðan búskap.
Alveg óskaplega fallegur staður.
Jörðinni tilheyrir fjöldi eyja og
hólma sem eru þarna við strönd-
ina. Við höfum byggt upp æð-
arvarp þarna og fáum að jafnaði
um sex kíló af hreinsuðum dún
hvert sumar. Það er mikill mun-
ur frá því um 1984 þegar við hóf-
um að sinna æðarvarpinu. Þá var
það nánast ekki neitt. En það hef-
ur verið gerð gangskör í því að
eyða mink þarna og hlúa að æð-
arfuglinum. Það hefur skilað sér,“
segir Edda.
Var fyrsti leikskóla-
stjórnandinn í
Búðardal
Leikskólastörfin sem Edda stund-
ar nú voru henni ekki eins fram-
andi og ætla mætti. Sem móðir,
amma og langamma hefur hún
mikla reynslu af því að umgang-
ast ung börn. Hún getur einn-
ig talist meðal frumherja í leik-
skólastörfum í Dalabyggð. „Já, ég
hafði reyndar komið að leikskóla-
störfum á árum áður. Þegar slík-
ur skóli var stofnaður hér í Búð-
ardal á sjöunda áratugnum tók ég
að mér að stýra honum. Ég gerði
það svo í nokkur ár. Þá kynnti ég
mér ýmislegt varðandi leikskóla.
Til dæmis fór ég suður að skoða
starfsemi leikskóla þar. Ég tók
einnig ýmis námskeið en fór þó
aldrei í formlegt fóstrunám enda
sjálf með ung börn heima við á
þessum árum. Þarna var heldur
ekki hægt að vera í fjarnámi gegn-
um tölvur eins og í dag. Ég hefði
orðið að fara suður með fjölskyld-
una til að fara í fóstrunámið.“
Arnarbæli er paradísin
Edda hætti svo störfum í leikskól-
anum á sínum tíma vegna þess að
þau hjónin hófu eigin atvinnu-
rekstur sem hún starfaði við.
„Maðurinn minn hafði starfað
sem flutningabílstjóri hjá Kaup-
félagi Hvammfjarðar allar götur
frá því við fórum að búa. Kaup-
félagið varð svo gjaldþrota árið
1989. Þá keyptum við flutninga-
hlutann úr því með bílum og hús-
næði og rákum flutningaþjón-
ustuna sjálf. Það gerðum við til
2001. Síðustu árin sem við vor-
um með flutningafyrirtækið vann
ég svo með því í bankanum,“ seg-
ir Edda.
Enn sem fyrr leitar hún á æsku-
slóðirnar út í Arnarbæli þegar frí-
stundir leyfa. Þar er náttúran nytj-
uð sem fyrr þó hefðbundinn bú-
skapur sé aflagður fyrir mörgum
árum. „Börnin mín hjálpa mér við
þetta. Ég er þarna alltaf á sumrin.
Þetta er óskaplega skemmtileg og
gefandi vinna að nýta náttúruna
með þessum hætti. Góð hreyfing
í fallegu umhverfi,“ segir Edda
Tryggvadóttir.
mþh
Við breytinguna á lögregluum-
dæmum á Vesturlandi um síðustu
áramót bættust nokkur ný and-
lit við lögregluliðið, meðal annars
í Borgarnesi. Blaðamaður Skessu-
horns kíkti í heimsókn á lögreglu-
stöðina. Ein af þeim sem var á vakt
þann daginn var Guðbjörg Ester
Einarsdóttir, ung lögreglukona sem
hóf störf hjá lögreglunni í byrjun
árs með aðsetur í Borgarnesi. Guð-
björg er Selfyssingur að uppruna
en hún kann vel við sig á Vestur-
landi og líkar nýja starfið vel. Hún
var í afleysingum hjá lögreglunni á
Hvolsvelli fyrir tveimur árum og í
starfsþjálfun síðasta sumar hjá lög-
reglunni á Selfossi. Hún útskrifað-
ist úr Lögregluskólanum í desemb-
er síðastliðnum og hóf fljótlega
störf í Borgarnesi eftir útskriftina.
En Guðbjörg er ekki eini lögreglu-
þjónninni í fjölskyldunni. „Mamma
er líka lögga. Hún fór í Lögreglu-
skólann 2008 og þá kviknaði fyrst
áhugi hjá mér fyrir starfinu. Ég
lauk fjölbrautaskóla 2010 og byrj-
aði á því að taka eina önn í mann-
fræði við Háskóla Íslands. Mér
fannst það ekki nógu spennandi og
ákvað þá að sækja um í Lögreglu-
skólanum. Svo var pabbi fanga-
vörður á Litla-Hrauni og pabbi
hans var lögga líka,“ segir Guð-
björg. „Ég gæti ekki verið sáttari í
dag,“ bætir hún við og brosir.
Sex úr be kknum á
Vesturlandi
Aðspurð um hvers vegna hún valdi
að koma til starfa í Borgarnesi seg-
ir hún að ekki sé mikið af lausum
störfum í lögreglunni. „Það voru
auglýstar fimm stöður hér. Mér
þótti það spennandi og sótti um.
Fæstir vilja fara út á land til að
vinna en mér þykir þetta mjög fínt.
Flestir vilja fá vinnu hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu en þeir aug-
lýsa sjaldan. Við vorum samt sex
úr bekknum mínum sem fengum
vinnu á Vesturlandi núna um ára-
mótin, fjórir hér í Borgarnesi og
tveir í Ólafsvík,“ segir hún. Guð-
björg hefur litla tengingu við Borg-
arnes aðra en þá að amma henn-
ar, Sigríður Steinunn Axelsdóttir,
bjó þar lengi. Þá vinnur hún með
ömmusystur sinni, Dóru Axels-
dóttur, sem starfar á skrifstofu lög-
reglunnar. Guðbjörgu líkar dvöl-
in í Borgarnesi vel. „Í sumar stefn-
ir maður á að nýta umhverfið hér í
kring betur. Það er svo góð aðstaða
til útivistar og hreyfingar hérna.
Líkamsræktin er til dæmis mjög
fín, ég æfi þar daglega. Annars hef
ég lítið nýtt mér það sem er í boði
hér því maður reynir að slaka vel
á á milli vakta, það er nauðsynlegt
líka,“ útskýrir hún.
Skemmtilegt umdæmi
Ungu lögregluþjónarnir fjórir deila
saman íbúð í Borgarnesi. „Við
erum tvö og tvö saman en förum
heim á frívöktum,“ segir Guðbjörg
sem annars er búsett í Reykjavík
með kærasta sínum. „Þetta er svo-
lítið skrýtið fyrirkomulag þar sem
ég er mikið í burtu vegna vinn-
unnar, hann er eins og gras ekkill
núna,“ segir Guðbjörg og hlær
við. „En hann stefnir sjálfur á Lög-
regluskólann og hefur verið að
leysa af á Selfossi.“ Guðbjörgu lík-
ar starfið vel og segist kunna mjög
vel við sig í þessu starfsumhverfi.
„Þetta er mjög fín stöð og hér er
frábært starfsfólk. Þetta er nýtt og
skemmtilegt umdæmi, sem nær yfir
mjög stórt svæði og verkefnin eru
fjölbreytt. Eins finnur maður fyr-
ir jákvæðni í garð lögreglunnar,
fólkið hér er mjög kurteist.“ Hún
segir að rólegra sé yfir vetrartím-
ann en það gefi tækifæri til að vera
með frumkvöðlavinnu og auka eft-
irlit. „Það er öðruvísi að vinna úti
á landi en í stærri plássum þar sem
eru fleiri íbúar og skemmtistaðir.
Hér eru færri útköll en það gefur
líka tækifæri til að vera með sýni-
lega löggæslu á mismunandi stöð-
um. Það skemmtilegasta við starfið
er að maður veit aldrei hvað mað-
ur er að fara að gera. Það er vissu-
lega spennandi. Svo er frábært að fá
tækifæri til að hjálpa öðrum.“
grþ
Fyrirtækið Skema hefur á síðustu
misserum haldið fjölda Minecraft
námskeiða í Reykjavík. Námskeið-
in hafa verið þétt setin, sem segir
mikið til um þann áhuga sem ríkir á
leiknum og fjölda virkra Minecraft
spilara á Íslandi. Leikurinn kom
fyrst á markað árið 2009 og er í dag
vel þekktur meðal barna og ung-
linga auk þess sem fullorðnir hafa
mjög gaman af því að skapa sína
eigin heima í leiknum sem bygg-
ir á skapandi hugsun, arkitektúr og
hönnun. Nú ætlar Skema að vera
með námskeið í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi helgina 28.
febrúar – 1. mars. Boðið verður
upp á tvö sex klukkustunda nám-
skeið fyrir tvo aldurshópa, annars
vegar 7-10 ára og hins vegar 11-14
ára.
Ævintýraferðir - hönn-
un mannvirkja
Leikurinn Minecraft var upphaf-
lega hannaður af sænska forritaran-
um Markus „Notch“ Persson og var
síðar þróaður og gefinn út af sænska
fyrirtækinu Mojang sem í dag er í
eigu Microsoft. Hér er um að ræða
sýndarheim sem gefur sköpunar-
gleðinni og ímyndunaraflinu lausan
tauminn og geta spilarar ýmist spil-
að einir eða við aðra, reist mann-
virki eða farið í ævintýraferðir en
verða alltaf að muna að hafa varann
á þegar nóttin nálgast. Leikmenn í
Minecraft byggja og hanna mann-
virki og/eða heilu samfélögin með
því að raða saman einingum (ten-
ingum) í þrívíddar umhverfi. Leik-
maður þarf að vinna í því að eign-
ast rétta búnaðinn, auðlindirnar og
eiginleikana til að geta byggt heim
sinn og viðhaldið m.a. kröftum og
heilsu. Minecraft hefur unnið til
fjölda verðlauna fyrir frumlegheit,
nýsköpun og virkni.
Lærdómur á námskeiði
Á Minecraft námskeiði er farið yfir
öll helstu atriði í tölvuleiknum.
Nemendur læra að setja svokölluð
„mod“ inn í leikinn sem gerir þeim
kleift að sækja viðbætur og laga
hann að eigin ímyndunarafli. Þá
læra nemendur að setja upp vefþjón
sem gerir þeim kleift að spila saman
sem hópur og leysa ákveðin verk-
efni. Netöryggi varðandi aðgangs-
stýringar vefþjóna er einnig tekið
fyrir, að mikilvægt sé að læsa þeim
fyrir utanaðkomandi til að geta spil-
að í öruggu umhverfi. Námskeiðið
er ætlað jafnt þeim sem eru að stíga
sín fyrstu skref í leiknum og þeim
sem hafa kynnst leiknum að ein-
hverju ráði. Til þess að taka fullan
þátt í námskeiðinu er nauðsynlegt
að nemendur hafi keypt aðgang að
leiknum og kunni notendanafn sitt
og lykilorð.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðið og skráning á www.skema.
is
-fréttatilkynning
Guðbjörg Ester Einarsdóttir á Lögreglustöðinni í Borgarnesi.
Finnst frábært að fá tækifæri
til að hjálpa öðrum
Edda Tryggvadóttir frá Arnarbæli á Fellsströnd:
Langamma komin á eftirlaunaaldur en starfar nú á leikskóla
Edda Tryggvadóttir á heimili sínu í Búðardal. Í bakgrunni er ljósmynd af henni og
Svani Hjartarsyni eiginmanni hennar í umhverfi Arnarbælis.
Skema heldur Minecraft
námskeið á Akranesi